Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.1990, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.1990, Blaðsíða 12
 4 Jeppar 1990 Nissan Patrol: Nissan Patrol jeppinn er í flokki þeirra stóru og hefur hann tekið nokkr- um breytingum með síðustu árgerðum. Þar má nefna nýja 2,8 lítra dísilvél með forþjöppu og hann er nú kominn á gormafjaðrir í stað blaðfjaðra áður og má segja að sú sé þróunin hjá mörgum jeppaframleiðendum sem bjóða jeppa sem ætlaðir eru líka til notkunar í borgum. Þá hefur meira verið lagt í innréttingu og ýmsan búnað en þó farið varlega í það að gera úr honum lúxusjeppa. Patrol er ennþá jeppi, hann er með sætum fyrir sjö manns og kostar um það bil 2,7 milljónir króna. Hann er sterklegur og þannig byggður að hann er traustvekjandi og auk þess má á einfaldan hátt hækka hann og gera ýmsar breytingar ef jeppamenn telja sig þurfa eitt- hvað meira en hann býður upp á eins og hann kemur til landsins. Nissan Patrol er einn kosturinn sem skoðaður er í dag. Ingvar Helgason hf. við Sævarhöfða í Reykjavík hefur umboð fyrir bíla frá Nissan eins og kunnugt er. Patrol hefur verið boð- inn í tveimur lengdum og í dag skoðum við lengri gerðina sem er 4,81 m langur. Styttri gerðin, Patrol Hardtop, er 4,24 m að lengd. Sem fyrr segir er Patrol sterklegur jeppi að sjá. Úlitið hefur breyst örlítið frá fyrri árgerð. Hjólaskálar eru vel víðar og stórir brettakantar umlykja þær. Þolir hann því vel allstóra barða. Patrol er mitt á milli þess að vera kantaður og með mjúkar línur. Það er eins og hann sé í slípun og þróun án þess að hann sé skyndilega gerður að straumlínulöguðum hraðakstursbíl. Er ennþá jeppi Grillið og framljósin enj í einum ramma og stefnu- og stöðuljós ná út á framhornin. Stuðarar falla ekki alveg að yfirbygging- unni. Gluggar eru stórir, hliðarspeglar eru einnig stórir, hálfgerðir vörubílaspeglar og litur skiptist rétt neðan við glugga. Eru til ýmsar útgáfur í þessum tvískipta lit. Vara- hjól hangir á afturhurð en hún er tvískipt og opnast til hliðar. Vinstri hurðin er mjó en sú hægra mégin breiðari og á henni hangir varahjólið. Blaðíjaðrir hafa nú vikið fyrir gormafjöð- rum. Patrol er á heilum hásingum og þrátt fyrir gormana verður ekki sagt að fjöðrunin sé mjúk. En hér sameinast kannski bestu kostir bílsins. Gormarnir gera hann þó eins mjúkan og frekast er hægt en með heilum hásingum er hann ennþá jeppi. Sumir kaup- endur Patrol vilja fá hann enn hærri og hafa því sett klossa undir gormana. Hækk- ar hann við það um tvo þumlunga og hækka má hann um tvo til viðbótar með því að Fjölhæfur Hiklaust má segja að Patrol sé fjölhæfur jeppi. Hann er stór og rúmgóður, kraftmik- ill og traustur og hann er þægilegur í með- förum. Jeppaeinkennin halda sér þrátt fyrir að ýmisleg fólksbílaþægindi sé að finna í bílnum og þess vegna má kannski segja að Patrol sé fremur bíll fyrir jeppamenn og ferðalanga en þá sem vilja jeppa til borga- raksturs. Fyrir 2,7 milljónir króna fá menn því góðan grip fyrir fjárfestingu sína. jt Afturhurðin opnast til hliðanna. Farangursrýmið er rúmgott. hækka hann á grindinni. Kosta þessar að- gerðir kringum eitt hundrað þúsund krón- ur. Er þá hægt að setja undir hann allstóra hjólbarða. Nissan Patrol er búinn 2,8 lítra dísilvél með forþjöppu. Skilar hún 115 hestöflum - með öðrum orðum nægri orku til að knýja þennan tæplega tveggja tonna bíl rösklega af stað með fimm gíra beinskiptingu. Heild- arþyngdin er 2,7 tonn. Innrétting er vel og smekklega úr garði gerð. Reyndar eru tvær gerðir hennar í boði og sú dýrari kölluð hágæða innrétting. Er hún með öðru áklæði á sætum, hæðar- og hallamælum og raf- magni í hliðarspeglum og kostar um 80 þúsund krónum meira. Sæti eru fyrir sjö manns. Framstólar eru góðir og sömuleiðis fer þokkalega vel um þijá í miðsætinu. Tveggja manna bekkur er aftast og er hann ekki ætlaður stórvöxnu fólki. Einfalt er að leggja fram aftasta bekkinn og yfrið nóg rými fyrir farangur. Sjái menn ekki fram á að nota aftasta sætið er næsta einföld að- gerð að skrúfa það úr. Oryggisbelti eru í öllum sætum. Driflæsing Mælaborð er eins og hliðarspeglamir - minnir nokkuð á vörubíl. Hraða- og snún- ingshraðamælar eru í stokki fram af stýrinu ásamt með olíu- og hitamælum og viðvö- runarljósum. Stokkur til hliðar hefur að geyma miðstöðvarrofa og stillingar, vindl- ingakveikjara, rofa fyrir driflæsingu og blikkljós og nægilegt iými er til að koma fyrir útvarpi. Gírstöng er ágætlega staðsett en mætti e.t.v. vera örfáum sentimetrum lengri. Við hlið hennar er stöng til að skipta milli drifa. Skipta má í aldrif á nokkurri ferð, þó ekki yfir 40 km og með rofa í mælaborðinu er hægt að læsa drifi 100%. Ökumaður sem og reyndar aðrir í Pat- rol, sitja hátt og sjá vel út. Er ökumaður auk þess fljótur að átta sig á stærð bílsins, framhomum og breidd en það tekur helst tíma að átta sig vel á lengd þegar bakkað er. Einnig þurfti nokkrar krappar beygjur til að átta sig almennilega á stýrinu. En -&ð þessu frátöldu er ökumaður fljótur að ná tökum á bílnum og hann er auðveldur í meðfömm. Góð vinnsla Kraftur og vinnsla eru með ágætum. Þegar aka á rösklega af stað er eins og örlítið þurfi að bíða áður en viðbragðið kem- ur að fullu þegar forþjappann er komin í gagnið. Þá er hann líka röskur. Vinnsla er líka góð þegar ekið er á 70 til 80 km hraða og þarf naumast að skipta úr 4. eða 5. gír á vegunum til nágrannabæja höfuðborgar- innar á þeirri ferð. Hámarkshraði er uppgef- inn 150 km á klukkustund og má segja að sú tala skipti engu máli í þessu sambandi. Hún kæmi sér kannski vel í ,sjúkraflutning- um eða öðmm neyðartilvikum en Patrol er fyrst og fremst jeppi og ferðabíll en ekki hraðakstursbíll. Fjöðrun er hæfilega mjúk og með ágætum sætum má segja að bfllinn fari vel með far- þega sína á ójöfnum vegum eða vegleysum. Við akstur á venjulegum þjóðvegi sem reyndar var ekki mikill í þessu tilviki virðist hann taka holur og þvottabretti vel þótt aðeins séu tveir eða þrír í bílnum. Gripið verður að sjálfsögðu enn meira með aldrif- inu en það er langt frá því að vera nauðsyn- legt til að fá fram góða aksturseiginleika á malarvegum. Vélin er hljóðlát og er því Qarri því að vera til ama þótt reynt sé á hana. Stýri er létt og meðfærilegt og sama er að segja um hemla og kúplingu. Segja má hins vegar að olíugjöfin mætti vera stífari. Ökumaður situr hátt og nær vel til allra átta til að hafa góða stjóm á Patrol. Rúmgóður og kraftmikill jeppi 12

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.