Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.1990, Blaðsíða 11
Toyota Land Cruiser
jeppinn erglæsilegur
á að líta.
Toyota Land Cruiser:
Jeppi með
fólksbflaþægindi
Tveir góðir dísiljeppar írá Toyota og Nissan. Þeir eru skemmtilega ólíkir enda
lagðar misjafhar áherslur.
Nýr Toyota Land Cruiser
jeppi hefur að undanf-
örnu verið kynntur af
Toyota-umboðinu P.
Samúelssyni. Land
Cruiser er í flokki
stórra jeppa og hefur
nú skipað sér í flokk
lúxusjeppa því hér er tjaldað því sem til er
og ekkert sparað til að framleiða glæsilegan
bíl. Fjárfestingin er eftir því - kringum 3,7
milljónir króna. Glæsileikinn nær þó ekki
út yfir notagildið og traustið - Land Cruiser
virðist ennþá hafa til að bera þann styrk
og áreiðanleika sem hann hefur státað af
gegnum árin. Meðal helstu breytinga sem
gerðar hafa verið má nefna að nú er komin
gormafjöðrun í stað blaðfjaðra, hann er nú
sídrifinn og með læsingum í millikassa og
báðum hásingum og nýrri 4,2 1 dísilvél með
forþjöppu. Land Cruiser er einn þeirra jeppa
af stærri gerðinni sem við kynnum í dag í
þessari jeppasyrpu.
Hinn nýi Land Cruiser virðist örlítið minni
en fyrirrennari hans en hann er þó í raun
bæði stærri og lengri. Eins og títt er um
nýja fólksbíla hafa hönnuðir valið honum
mjúkar línur og þess vegna virðist hann ef
til vill hafa skroppið saman. Er hann líkari
Toyota 4Runner eða Foringjanum eins og
hann hefur verið kallaður hér heldur en eldri
Land Cruiser bróður sínum.
Sterklegur
Stuðarar bílsins eru sterklegir og á fram-
endanum eru aðalljósin mest áberandi og
ná þau út á framhornin. Grillið er nokkuð
nett milli aðalljósanna. Varla er hægt að
hanna jeppa á mjög mismunandi vegu og
má segja að útlit Land Cruiser sé nokkuð
hefðbundið en með litaskiptingu á hliðum,
stórum brettaköntun og gangbretti er settur
ákveðinn svipur á bílinn og má segja að
með þessum atriðum fari hver framleiðandi
sínar leiðir.
Ekki væsir um farþega eða ökumann
þeirra í Land Cruiser. Útgáfan sem hér er
kynnt er 7 sæta. Framstólar eru ágætlega
stífir og halda mönnum mjög föstum í sessi.
Ökumannssæti má stilla að sjálfsögðu, færa
það fram og aftur og stilla halla á baki en
auk þess er halli á setu breytilegur, stuðn-
ingur við mjóbakið einnig, hliðarstuðningur
við bakið og hæð á höfuðpúða. Farþegi í
framsæti verður að láta sér nægja hinar
hefðbundnu stillingar. Vel fer einnig um
farþega í aftursæti eða öllu heldur miðsæti
þar sem þrír geta setið og aftast er sæti
fyrir tvo. Þar myndi fullvaxið fólk fljótt
stirðna á langferð og því vart ráðlegt að
búast við að menn uni sér þar nema á
styttri leiðum. Þessi öftustu sæti er auðvelt
að leggja saman og upp til hliðar og er þá
komið ákjósanlegt og rúmgott farangurs-
rými.
Mörg handföng
Það sem einkennir bílinn að innan er
fjöldi handfanga sem hvarvetna má grípa í
sér til stuðnings. Er þægilegt að halda í þau
þegar ekið er í veltingi og geta allir farþeg-
ar þannig gripið í sitt handfang nema miðju-
maðurinn í miðsætinu. Hann verður bara
að fá stuðning af samferðarmönnum sínum.
Þá er bíllinn einnig vel búinn af hólfum og
vösum.
Allt umhverfi ökumanns er mjög vold-
ugt. Hann situr í skemmtilegu umhverfí við
gott mælaborð, hefur góða yfirsýn og þægi-
leg tök á öllum stjórntækjum. Stór stokkur
er milli framsæta þar sem er meðal annars
nóg rými fyrir farsíma. Mælar sýna allar
venjulegar upplýsingar og eru greinargóðir.
Útsýni er gott eins og jafnan úr bíl þar sem
menn sitja hátt en öftustu sætin trufla út-
sýni afturábak þegar þau liggja upp að hiið-
argluggum. Aftari hliðargluggar eru opnan-
legir þannig að þeim er rennt tii hliðar.
Ein aðalbreytingin í hinum nýja Land
Cruiser er drifíð. Jeppinn er nú með sítengdu
aldrifí og eru læsingar í millikassa og báðum
hásingum. Með rafstýringu er hægt að læsa
því 100%. Dísilvélin er 4,2 lítra með for-
þjöppu, sex strokka og 130 hestöfl. Meðal
nýjunga þar má nefna tveggja þrepa spíssa
sem gefa jafnari innsprautun á lágum snún-
ingi og dregur það úr hávaða vélarinnar í
hægum gangi. Má reyndar segja að Land
Cruiser sé hljóðlátur af dísilbíl að vera hvort
sem menn eru inni eða utan við bílinn.
Rafkerfi er 12 og 24 volt og er aflmeiri
geymirinn notaður við gangsetningu en hinn
annast allt annað. Með því verður gangsetn-
ingin mun hraðari og ekki kemur til þess
að doka þurfi við - jafnvel ekki í miklum
kulda.
Toyota Land Cruiser vegur rúmt 2,1 tonn.
Bíllinn er 4,78 m langur, 1,83 m að breidd
og hæð hans er 1,87 m. Sporvídd að fram-
an er 1,535 og að aftan 1,54 m. Hæð und-
ir lægsta punkt er 19,5 cm, eldsneytistank-
ur tekur 95 lítra og hefur bíllinn eftirtalinn
búnað: Diskahemla að framan og aftan,
öryggisbelti fyrir alla farþega, rafknúnar
speglastillingar og rúðuvindur, svo og loft-
netið og útvarpi og segulbandi fylgja 5
Að innan er Land Cruiser allur hinn
vandaðasti og þar væsir hvorki um
ökumann né farþega.
hátalarar. Hiti er í framsætum, litað gler,
klukka og þjófavörn. Verðið á Land Cruiser
með þessum búnaði er 3,7 milljónir króna.
Það er allnokkur fjárfesting en hér fá menn
líka talsvert fýrir þetta verð. Fyrir utan það
sem þegar hefur verið lýst verður nú getið
um eitt og annað varðandi sjálfan aksturinn.
Afl og mýkt
Það er traustvekjandi að setjast undir
stýri. Hér hefur ökumaður verklegt tæki í
höndum og verður ekki fyrir vonbrigðum.
Bíllinn er búinn öllum þægindum sem hugs-
ast getur og það er auðvelt að aka honum
þótt stór sé. Vökvastýri, sjálfskipting og
góður aðbúnaður leggjast á eitt í því efni
og orkan er næg til að knýja bílinn rösklega
af stað. Vélin malar líka þægilega þegar
bíllinn er settur í bratta brekku og látinn
þumlungast yfír torfæru. Gormafjöðrunin
gerir bílinn mjúkan við þessar aðstæður og
sem fyrr segir verða menn ekki varir við
hávaða frá vél hvort sem látið er reyna á
kraftinn eða hraðann.
Ekki var unnt að reyna þannig á drif eða
hæfni bílsins að hægt sé að lýsa dugnaði
hans við erfiðar aðstæður en ljóst er að
aflið er nægilegt og drifið nógu lágt til að
knýja hann upp bratta, yfir ár eða skafla.
Toyota Land Crpiser er ótvírætt jeppi og
búinn öllum kostum sem jeppar þurfa að
hafa en þar fyrir utan er hann hlaðinn
ýmsum fleiri kostum og gæðum sem gera
hann að lúxusbíl með þægindum fólksbfls.
í borgarumferð er hann auðveldur og lipur
í akstri, á sléttri hraðbraut getur hann skil-
að farmi sínum hraðar yfír en umferðarlög
leyfa og á venjulegum íslenskum malarvegi
nýtur sín mjúk gormafjöðrunin. Allt þetta
býður Land Cruiser fyrir 3,7 milljónir króna.
Samspil áhuga og Qárhags
í fyrstunni pantaði umboðið 7 bíla og
seldust þeir allir svo að segja strax og nú
eru fleiri á leiðinni. Land Cruiser sómir sér
vel í flokki lúxusjeppa en það er sjálfsagt
eins og við önnur bflakaup að hér verða
menn að staldra við og láta samspil áhuga
síns og fjárhags ráða kaupunum. Hér hafa
verið kynntir nokkrir jeppakostir sem von-
andi hefur orðið einhver leiðbeining.
jt
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 16. JÚNÍ 1990 1 1