Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.1990, Side 9

Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.1990, Side 9
Andlitsmyndir Sigurjóns 1927-1980 Sýning á 26 andlitsmyndum og 20 ljósmyndum i safni 3. júní og mun standa í ár. Hér eru fímm af öðrum andlitsmyndum, var opnuð í Sigurjóns- | andlitsmyndir, sem verða á sýningunni. Ásgrímur Jónsson listmálari. Gabbró, 1947. Jón Þórðarson forstjóri í Sjó- klæðagerðinni, 1956. Siguijón við myndina af Otto Gelsted, 1941. júní 1924, er orðið heldur fátæklegt m.a. vegna þess að fyrir nokkrum árum var mik- ið af þeim fuglum sem í safninu voru hent vegna skemmda. Unga fólkið hefur því gegnum árin komist í safnið og margt farið forgörðum af þeim sökum. Þeir gripir sem eftir eru þyrftu að komast í skjólgóða höfn til varðveislu og dettur manni helst í hug Sjóminjasafnið á Eyrarbakka. Þess má geta að Siguijón Olafsson er skráður gefandi í viðbæti við náttúrugripa- safn Nielsens gamla. Gaf Siguijón flugu og er hún sögð komin frá Spáni með salt- farmi. Þessi rausnarlega gjöf á merkilegu lindýri og Aðalsteinn hefur ekki fundið latn- eskt heiti yfír, var afhent á tímabilinu 8. júní til 31. desember 1924. Þessi víðflogna fluga fannst ekki í safninu eftir leit höfund- ar og Óskars Magnússonar núverandi skóla- stjóra Barnaskólans á Eyrarbakka. Árangur teiknikennslunnar í Bamaskól- anum var sýndur á sérstakri vorsýningu í skólanum og var foreldrum og áhugasömum boðið til að koma og skoða. Á sýningunni árið 1920 var Siguijón með fleiri myndir eftir sig en aðrir nemendur í skólanum. Fékk hann sérstakt pláss til að sýna mynd- ir sínar, sem mönnum þóttu mjög góðar, af svo ungum manni. Svo virðist sem að á þeirri sýningu hafi menn ekki velkst í vafa um það að í Siguijóni bjó efni í góðan teikn- ara, en þá þegar hafði Siguijón mynd- skreytt þýðingu Aðalsteins á sögu Leos Tolstojs í Geisla, blað Ungmennafélags Eyr- árbakka og teiknað talsvert í Stjörnuna, blað yngri deildar Ungmennafélags Eyrar- bakka. Þessi sýning 1920 var fyrsta sýning- in sem haldin var í skólanum og þar með sú fyrsta sem Siguijón tók þátt í. Næstu tvö árin þar á eftir voru samskonar sýning- ar haldnar og tók Siguijón þátt í þeim báð- um með sama hætti og 1920. Það er vert að staldra aðeins við þær myndir sem Siguijón teiknaði veturinn 1919-1920 og sýndi hluta af á sýningunni í Barnaskólanum. Það sem vekur eftirtekt er að Haraldur Blöndal (1882-1953) ljós- myndari hefur tekið Ijósmyndir af Siguijóni við teikningarnar sínar. Er það kannski vísbending um það álit sem menn höfðu á Siguijóni og einnig að minning samtíðar- manna Siguijóns sé rétt, að hann hafi verið kallaður Siguijón málari. Guðmund Geir Ólafsson (f. 1911), einn af samferðarmönnum Siguijóns, rekur minni til að Siguijón hafi verið kallaður Siguijón listmálari. Hið sama má segja um Ástríði Sigurðardóttur (f. 1910), nema hvað hún taldi Siguijón hafa verið kallaðan Sigur- jón málara. Þetta viðurnefni hefur ekki fengist úr minnum annarra sem rætt hefur verið við, en segja má að áhugi Siguijóns á teikningu og föndur hans við málun styðji þessa endurminningu. Þær teikningar eftir Siguijón sem hanga á vegg Barnaskólans og Haraldur ljósmynd- ari tók, sýna um margt þann hugarheim sem Siguijón og önnur börn lifðu í á þessum tíma. Hér sýnir hann okkur dýramyndir, myndir af húsum og skipum undir fullum segluYn. Af þeim teikningum sem greinast á ljósmyndinni og þeim sem varðveist hafa til dagsins í dag, má ráða, að formskynjun hans er mikil og að hann hefur færni í að leysa ákveðin vandamál á blaðinu. Siguijón skortir þó ennþá, sem eðlilegt er, nægilega þekkingu og færni til að koma myndefninu lifandi frá sér. Sé tekið dæmi, skal nefna kúna og kálfinn, en þau eru njörvuð niður í forminu og eiga erfitt með gang í hug- skoti þess sem myndina skoðar. Tæknileg úrlausnarefni í myndinni af skjaldbökunum í íjöi'unni, eru vel af hendi leyst, en þar hefur ekkert vafist fyrir Siguijóni hvernig teikna á ölduhrygg, sem hverfur sjónum á einu augnabliki. Hér teiknar Siguijón hrygginn sem afmarkaðan flöt og sýnir þannig betur en önnur ráð, hvernig öldu- kamburinn flýtur upp á strönd og eyðist. Lausn af svipuðum meiði má einnig finna í mynd sem Siguijón hefur teiknað á Eyrar- bakka út um gluggann heima hjá sér og sýnir myndin Gunnarshús og gamla bakar- íið. Þar fæst hann við að mála skýjafarið og tekst bærilega vel úr hendi. Þessar að- stæður Sigurjóns minna um margt á frá- sögn Benedikts Gröndals (1826-1907) í bréfi til Eiriks Magnússonar (1833-1913) prófess- ors í Cambridge 1877. En Siguijón greinist frá Benedikt í því að hann tekst á við ský- in og má ætla að það sé nokkur vísbending um það stig sem Sigurjón var á í teikningu og litameðferð, þá tólf ára gamall. í bréfi sínu rekur Benedikt Gröndal hvað- an hann málar myndirnar af húsunum í Reykjavík og meðal annars tiltekur hann kvistgluggann á Menntaskólanum í Reykjavík. Að endingu í þessari lýsingu, segir hann svo frá því að hann hafi ekki nennt að fást við skýin því þau séu breyti- leg hvort sem er! Þessi mynd eftir Siguijón og sýnir Gunn- arshús og gamla bakaríið er teiknuð af Sig- uijóni út um suðurglugga Einarshafnar, en þaðan sést til þessara húsa og einnig út á haf. Eyþór Guðjónsson (1906), fyrrum bóndi á Eyrarbakka, hefur sagt frá því að hann hafi oft heimsótt Sigutjón í Einarshöfn og þá hafi hann stundum verið við suður- gluggann, að teikna seglskip sem lónuðu úti fyrir. Að lokum skal minnst orða Aðalsteins, í tengslum við það stig sem Siguijón var á í teikningu, er hann viðhafði í yfirliti um feril Siguijóns og kynni sín af honum í Skinfaxa (1930). Yfirskrift greinarinnar er „Ég skal!“. Aðalsteinn segir: „Þegar hann fékk viðfangsefni sem hann átti verulega örðugt með, beit hann á jaxlinn og sagði' „ég skal“, en viðkvæðið var hjá öðrum „ég get það ekki“. Og hann teiknaði betur en ég þekkti (og þekki enn) dæmi til um byij- endur.“ Ungmennafélagið Aðalsteinn Sigmundsson stofnaði ung- mennafélagið Eyrarbakka 5. maí 1920, en markmið þess félags var að vekja og göfga æskulýðinn, styrkja hann og stæla. Fundir voru haldnir í Barnaskólanum til að ná fram settum markmiðum og voru helstu mál á dagskrá m.a.: íþróttir, móðurmálið, ættjarð- arást, heimiiisiðnaður, bindindismál, bók- menntir, skólamál og dýraverndun. Réttu ári eftir að Ungmennafélagið var stofnað, var því skipt í tvær deildir, yngri og eldri, og miðaðist skiptingin við fermingaraldur. Siguijón gerðist félagi í Ungmennafélag- inu 1920 og hefur að öllum líkindum verið á stofnfundi félagsins á Eyrarbakka, Þegar yngri deildin var svo stofnuð hefur Siguijón tilheyrt henni og sótt fundi hennar. í funda- gerðarbók yngri deildar frá tímabilinu 1921—1924 má sjá að Siguijón hefur tekið á sig nokkur embætti fyrir félagsskapinn og hefur hann hafist handa strax á fyrsta fundi yngri deildarinnar 2. febrúar 1921. Á þeim fundi er hann kosinn vararitari í vara- stjórn og má af framvindu fundagerðarbók- ar sjá að mæting hefur verið það góð hjá aðalstjórn að varamenn hafa þurft að sitja í almenningi á félagsfundum. Staða Sigur- jóns breytist þó 30. október, sama ár, en þá er hann kosinn aðalritari, eftir að hlut- kesti hafði verið varpað um starfið, þar sem hann og keppinautur hans um embættið, Ásmundur Guðmundsson, urðu jafnir að atkvæðum. Af fyrsta embættisverki Siguijóns þann 9. nóvember 1921, mætti ætla að þarna sé á ferð allt annað en efnilegur teiknari, þar sem lestur á skriftinni hans er nokkuð skrykkjóttur vegna tíðra yfirstrikana og taktlausrar stafagerðar. Kannski er um að kenna að þessi fundur varð nokkuð lengri en venja var og þurfti Sigurjón því að halda lengur á pennanum en hann hefur verið vanur. Á næsta fundi, 21. nóvember, rætist þó úr hjá Siguijóni og verður heildarsvipur skriftarinnar betri. Að embættisglöpum slepptum er ekki hægt að segja að Siguijón hafi skorið sig á nokkurn hátt úr þeim hópi sem hann tilheyrði, þegar kemur að alvar- legri umræðuefnum. Hann tekur þátt í fund- unum af jafnmikilli innlifun og aðrir fundar- menn, lofar að blóta ekki og biður menn að minna sig á það heit, segir sögur af sér og samskiptum sínum við dýr, og lýsir þvi yfir, af sömu alvöru og rökvísi og aðrir, að sér þyki veturinn skemmtilegastur því þá væri skautaís. En Sigutjón fékkst ekki bara við ritara- störf á þessum tíma og að segja sögu af Kaldaðarneshrútnum, líkt og hann gerði á einum Ungmennafélagsfundinum. I öðru blaði Geisla (1. árg.) hefur hann mynd- skreytt smásögu eftir Leo Tostoj — „Hvern- ig púkinn vann fyrir brauðbitanum" — í þýðingu Aðalsteins Sigmundssonar. Þessar myndir eru að öllum líkindum glataðar, en þær hafa fylgt lausar með blaðinu. Þessi myndskreyting Siguijóns er sérstök fyrir þá sök, að ekki eru neinar aðrar mynd- skreytingar í heftum Geisla sem til eru frá árunum 1920-1923 og einnig að hann hefur teiknað myndirnar við þýðingu Aðalsteins. Af síðara atriðinu má ráða hversu hvetjandi Aðalsteinn hefur verið fyrir Siguijón og ýtt undir þroska hans á þessu sviði. En þessi myndskreyting Siguijóns hafði í för með sér fleiri verkefni fyrir Siguijón sem þá var kominn til Reykjavíkur. Siguijón bjó í fimm ár í Reykjavík frá árinu 1923 til 1928. Það ár hélt hann utan til náms i myndhöggi við Konunglega lista- akademíið i Kaupmannahöfn. Fram að þeirri utanför hafði Siguijón notið þeirrar gæfu að kynnast Aðalsteini, Ásgrími Jónssyni (1876-1958), Bimi Bjömssyni (1886-1939) teiknikennara í Iðnskólanum og Einari Jóns- syni (1874-1954) myndhöggvara. Leiðbein- ingar þeirra og stuðningur við Siguijón Ólafsson urðu honum dijúgt veganesti. En þá sögu geymurn við þar til síðar. Höfundur er nemi i mannfræði og greinin er hluti úr ritgerð í listasögu. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 16. JÚNÍ 1990 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.