Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.1990, Page 10

Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.1990, Page 10
4 Jeppar 1990 Bílaþáttur Lesbókar fjallar að þessu sinni um §óra jeppa sem allir eiga það sameiginlegt að hafa verið á markaði hér í nokkur ár. Bílaumboðin hafa upp á marga kosti að bjóða í þessum efnum og því var okkur nokkur vandi á höndum að velja úr. I þessari jeppasyrpu er fjallað um Toyota Land Cruiser, Mitsubishi Pajero, Nissan Patrol og Range Rover. Hér er ekki um eiginlegan samanburð að ræða heldur kynningu enda er hér um að ræða mjög ólíka gripi að útliti, gerð og í verði. Allir sóma þeir sér vel í flokki jeppa en vissulega hefðu fleiri jeppar átt erindi í þessa syrpu. Þeir bíða þó betri tíma. B w 1 L A R Range Rover Vogue: Sígilt útlit og yfirburða ijöðrun Ekki beint torfærutröll, en Iiðtækur utan vega. egar um er að ræða stöðutákn á fjórum hjól- um hér á Islandi, er Range Rover númer eitt. Kannski komast dýrar gerðir lúxusbíla eins og Mercedes Benz 560 og BMW 730 upp að hliðinni á honum, en ekki framúr. Þetta helgast af þrennu. í fyrsta lagi er þessi brezki yfírstétt- aijeppi svo dýr, að tiltölulega fáir hér hafa efni á því að kaupa hann. Hann kostar nefni- lega 4,5 milljónir króna. í annan stað er það vegna tæknilegra verðleika og í þriðja lagi sökum útlitsins, sem Bretinn er ekkert að breyta á fárra ára fresti og hefur í upp- hafí tekizt svo vel, að það er hreint engin ástæða til að breyta því. Range Rover er einfaldlega virðulegri en allir keppinautam- ir. Það var í heimsstyrjöldinni 1939-1945, að jeppinn varð til sem sérstakt afbrigði af bíl og þá að sjálfsögðu sem hemaðartæki. Rover smíðaði fyrst Land-Roverinn og sá elzti hérlendis er frá árinu 1948 og er til sýnis í Heklu. Land-Roverinn reyndist góður brúkunarhestur til sveita, þegar hestaverk- færaöldin var liðin, enda var hann mitt á milli þess að vera bíll og landbúnaðartæki. Rover varð hinsvegar á undan öðmm til að taka hugmyndina um jeppann til endur- mats. Arangurjnn varð Range Rover, bíll sem sameinar sterkbyggt útlit jeppans, al- drif, en á hinn bóginn mýkt í fjöðrun og íburðarmikla innréttingu. Síðar hafa Japan- ir reynt að þróa þessa málamiðlun lengra, m.a. með því að farga tveimur hásingum Tyrir sjálfstæða fjöðrun á hveiju hjóli. Mér skilst að sannir jeppamenn kunni þeirri skip- an illa. Jeppinn varð sjálfsagður valkostur í landi illra vega og það hefur löngum þótt kostur hans, að ökumaðurinn er ekki einu sinni háður því að hafa veg. Það var í „den tid“, þegar ekkert þótti athugavert við að fara hamfömm utan vega, ekki sízt í óbyggðum. Nú er öldin önnur með vaxandi áhuga á náttúmvemd og jeppamenn utan vega em mjög litnir homauga. Það var þó fyrst og fremst á hinum dæmigerðu íslenzku malar- vegum, að Range Rover sannaði gildi sitt. Hann varð bæði óskabíll landsbyggðarinnar og sportmanna úr þéttbýlinu, sem héldu að ekki væri með góðu móti hægt að komast í laxveiði án þess að vera á Range Rover. Skilyrði fyrir venjulega sportbíla eru ekki til í landi, sem hefur 90 km á klst fyrir hámarkshraða. Þessvegna hafa þeir sem stunda bílasport að lang stærstum hluta umfaðmað jeppana. Þeir eru hinir íslenzku sportbílar. Það fer síðan eftir smekk og efnahag, hvort menn vilja hafa þessi farartæki spar- tönsk eða með lúxusívafí. Þar í liggur styrk- ur Range Roversins, að þeir sem verið hafa á dýmm drossíum og taka jeppatrú, finna ekki mun á þægindunum þegar ekið er í Range Rover. Sumpart eru þægindin raunar meiri, til dæmis á holóttum vegum. Innrétting í hæsta gæðaflokki. Eftir þennan formála er mál til komið að snúa sér að gripnum, sem lítillega var tekið í; um eiginlegan reynsluakstur gat ekki orðið að ræða, því undirritaður hafði bílinn aðeins í einn sólarhring. Það varð því enginn langakstur, en hinsvegar reyndi ég þennan nýja Range Rover Vogue við ýmsar aðstæður. Útlitsbreytingin á árgerð 1990 er svo lítil, að ugglaust fer hún framhjá flestum, enda er engin beyting á forminu í heild. Það er aðeins rimlarnir á kæligrindinni framan á bflnum sem nú em láréttir. Það er með þennan bfl eins og Jagúarinn, að erfitt hefur reynzt að endurbæta útlitið og það á jafnt við að utan og innan. Sætin í Range Rover em svo góð, að bflsæti gerast naumast betri, enda fengu þau hæstu ein- kunn í umfjöllun erlendra lækna fyrir nokkr- um ámm. Stýrið er leðurklætt og svert; það er búizt við því að kaupendumir séu hand- stórir, enda em það mennimir með breiðu bökin og þeir eru ugglaust handstórir líka. í dýrustu útfærslu, Vogue SE, er hægt að fá leðurklædd sæti, einnig sjálfvirkt hitastill- ingarkerfí (air condition). Meðal þess sem hægt er að sérpanta er ABS hemlakerfi, svo skilvirkt og fullkomið, að 250 sinnum á sekúntu fá skynjarar upplýsingar um hvort hjól séu að læsast. Enginn aldrifsbíll getur boðið svo fljótvirkt hemlakerfí; þetta gerir kerfinu kleift að leiðrétta hemlunina 10 sinn- um á sekúndu. Meginbreytingin á árgerð 1990 felst í því að vélarafl hefur verið aukið um 12%. Vélin er V-8 með beinni innspýtingu og rúmtak hennar hefur verið aukið í 3.9 lítra, sem gefur 185 hestöfl við 4750 snúninga. En Range Rover er 1954 kg og veitir ekki af þessu afli. Það eina sem mér fínnst að mætti betmmbæta er í raun og vem það að gefa kost á aflmeiri vél. Sá sem hér var reyndur, varað vísu sjálfskiptur, sem dreg- ur aðeins úr honum vígtennunar, en breytir ekki því, að þegar bíll kostar hálfa fimmtu milljón, vill maður helzt hafa nóg af öllu. Það er svo óendanleg spurning, hvað sé „nóg“. Rolls Royce gefur ekki upp hestafla- tölu, en sé um hana spurt er því til svarað, að aflið sé „nóg“. Range Rover telst ekki neitt torfæru- tröll, en í lága drifínu er hægt að komast yfír dijúgar torfæmr. í borgarumferð er hann þægilegur og lipur, en styrkur hans í akstri kemur umfram allt í ljós á holóttum malarvegum. Hann er byggður á grind og búinn langri gormafjöðmn. Slíka yfírburða fjöðrun hefur Range Rover, að ég veit ekki um neinn bfl, sem svo mjúkt flýtur yfir holur og ójöfnur nema stærstu gerðirnar af Citroen fyrr og nú. Range Rover er fáanlegur með 165 hest- afla dísilvél, en til þessa hefur hann einung- is verið fluttur hingað með bensínvél. Rúður eru rafknúnar, speglar rafstilltir og völ er um 5 gíra handskiptingu eða 4ra gíra sjálf- skiptingu. Af öðru, sem jeppaunnendur kynnu að hafa áhuga á að vita um gripinn, má nefna, að lengdin er 4.45m, breiddin er 179sm og hæðin 181sm. Hámarkshraðinn er 176 km á klst og í hundraðið fer hann úr kyrrstöðu á 10,7 sek. handskiptur, en á 11,1 með sjálf- skiptingunni. Umboðið er hjá Heklu h/f. Niðurstaðan er sú, að þrátt fyrir harðar atrennur er ekki búið að slá Range Rover út sem stöðutákn og heldur ekki sem af- burða þægilegt farartæki í langakstri, ekki sízt á misjöfnum vegum. En það má líka segja, að sá „status“ og þau þægindi séu talsvert dým verði keypt. Að minnsta kosti er það svo hér á ísa köldu landi. . G.S.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.