Lesbók Morgunblaðsins - 20.10.1990, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 20.10.1990, Page 6
Að þessum punktí sem skapar jafnvægið Með Jóni Guðnasyni og félögum á farskipinu Reykjafossi í aprfl 1990 I. Skip Er Lítill Staður Landgangnum er svipt burtu. Hann er hífður upp og skipið mjakast frá. Eitthvað brestur milli mín og lands. Nálægðin. Mér finnst frelsið eitt- hvað þungt. Mér finnst hann sem stendur eftir á bryggjunni vera fangi landsins. Svíþjóðar. Sjórinn er lygn og ísland lygnt í fjarska. Eitthvað barnslegt grípur um sig. Stýrimaður stefnir á Reykjanestá. Leiðin tekur sinn tíma. Nú er það Miðnessjór og þarna erþað sem fískimenn kalla Garðsjó. Dagurinn flýtir sér ekki, síðasti vetrardagur. Eftir KRISTÍNU BJARNADÓTTUR Dagurinn er föstudagurinn iangi og skip- ið er Reykjafoss. Það var við landfestar í Gautaborg snemma í morgun. Byijað að losa klukkan sjö, með einu gengi og land- krana, þótt annars væri kyrrlátt í höfninni vegna helgidagsins. Laust fyrir hádegi var lokið við að lesta og það á að halda áfram til Noregs. Að öllu jöfnu tekur Reykjafoss ekki vandalausa um borð, sem farþega, en af því mér lá lítið við, nefndi ég nafn Jóns Guðnasönar skipstjóra. Og nú flýt ég með. Það_ er hlýtt í lofti, sólskin og hægviðri. Vor. Ég stend á dekkinu og veifa sænska skeijagarðinum með augunum þegar siglt er út Alvsborgsfjord. Þegar ég stend þama eins og túrisjt á lystisnekkju, hugsa um elds- voða og kafbáta og góni svo á alla þessa vorkyrrð, rennur það upp fyrir mér að hér er enginn farþegi. Enginn stendur aðgerðar- laus nema ég. Hér hafa allir hlutverk. Þekkj- ast. Og svo er ég. Á ieið heim til íslands, kannski að kveðja föður minn. Veit að nú er það alvara. Eitthvað er alvara. Eitthvað sem ég á eftir að komast að, bæði í vöku og draumi. Hvaðan maður kemur og hvert maður fer verður allt eins og örlítið skýrara á sjó en í lofti, þegar flogið er á svipstundu af einum stað á annan. Farkosturinn er þijú þúsund sjö hundruð tuttugu og sex tonna gámaskip (brúttó), sem breyta má í stórflutningaskip, smíðað í Hamborg 1979 og leigt þaðan en skráð í Antigua. Haraldur Ingólfsson yfirvélstjóri sýnir mér inn í undraheima vélarrúmsins, síðar í ferðinni, en það sem drífur þennan furðulega jámkassa áfram er fjögurra strokka vél, fj ögur þúsund hestafla. Örtölv- ur sinna ýmsu og alls em hundrað og fimmt- án þreifarar á sjálfvirkri vakt. Kallvaktin vaknar við ýlfur í flautu, ef eitthvað er ekki nákvæmlega eins og það á að vera, svo vélstjóramir þrír geta blundað allir í senn að loknum vinnudegi. Svo ömggt er sjálfvirka viðvörunarkerfið. Það segir Har- aldur. Nánustu samstarfsmenn hans í páskatúrnum em vélstjórarnir Öm Engil- bertsson og Gústaf B. Pálmason. Á svona fallegrí föstudagssiglingu um Skagerak, út af Víkinni sem Víkverjar vom kenndir við, finnst mér aumt ef ég næ ekki að þekkja farmennina ellefu með nöfnum. En þeir em eins og allstaðar og hvergi á þessum vinnustað og heimili sem skipið er. Og hver og einn er nefndur margt. Maggi bátsmaður, sem heitir fullu nafni Magnús Gunnarsson, fræðir mig á að ef ég heyri háseta tala um „helvítis fíflið“, þá sé það líka hann. Auðskilið mál þegar maður veit hver skipar hveijum fýrir um borð. Að kunna að bölva yfirmanni eða verkstjóra getur verið gott. Hér em fjögurra tíma vakt- ir hjá hásetunum þrem og sá fjórði lánar mér káetuna sína án þess að vita af því, hann er í fríi heima á Islandi. Klukkan tólf og klukkan sex eru vaktaskipti í brúnni, á matmálstímum, miðnætti og meðan flestir sofa á siglingum, eða fjórum sinnum á sólar- hring. Nú em það Sigurður Sveinsson og Árni Karlsson, sem leysa hvor annan af. „Það er sagt þú hafir komist að því að þú sért eini farþeginn um borð,“ segir Ólaf- ur Jensson háseti og brosir laumulega, þeg- ar við kynnum okkur í sólinni úti á dekki. „Já, já, maður er eins og hver annar asni, ég var augnablik um borð í skemmtiferða- skipi, fannst mér.. .“ Ég blaðra eitthvað áfram meðan ég reyni að rifja upp hvar ég hafí látið í ljós hug minn fyrir stundu. Eina niðurstaðan sem ég fæ er: Skip er lítill stað- ur. Um kvöldmatarleytið er siglt um Koster- fjord. Enginn dansar á dekkinu í dag. Ekki heldur brytinn. Hann heitir Erlingur Hauks- son og hefur öðm að sinna. Nefnilega steik- inni, sem ég held hann sé búinn að gæla við í allan dag og sjálfsagt lengur. Hann kann sitt fag, og það svo vel að mér dettur í hug hvort hinir tíu viti allir af því hvað þeir borði góðan mat. Svo margt sem verður sjálfsagt á litlum stað. Og ég fer upp í brú til að horfa. Til að missa ekki af kvöldinu meðan sólin er að setjast. Horfi á stýrimann- inn, Sigga Sveins, stjóma vandasömum valsi milli skeija. Hann stýrir eftir landsýn. Sólin er að síga bak við norsku tijátoppana á skeijunum og lítil vinaleg hús falla hvert af öðm í skuggann. Siglingaleiðin er þröng og við erum skringilega nálægt landi á þetta stóm skipi. Stýrimaðurinn bjargar mér frá því að verða strandaglópur í huganum, seg- ir ristuna vera sex metra og dýpið fimmtíu, bara nokkra faðma frá landi, Jón skipstjóri er kominn upp í brú og bregður upp sjónaukanum: Nú ætti lóðsinn að vera á leiðinni. Það er hann líka, fyrst eins og lítill depill á Óslófírðinum, svo eins og bátur sem loks smeygir sér upp að skips- hliðinni og hafnsögumaðurinn frá Fredrik- stad vippar sér um borð. „Ég treysti honum fullkomlega fyrir stjóminni, en það er ég sem ber ábyrgðina ef eitthvað ber útaf,“ segir Jón. „Sama hvað gerist, ég ber ábyrgð- ina.“ Hann segir að nú eigi að taka því rólega í kvöld, en fyrst þegar við liggjum við landfestar í Fredrikstad. í rnorgun var hann eini maðurinn um borð sem ég var nokkurn veginn málkunnug og það er hann enn. Þrátt fyrir vingjamlega framkomu hvers og eins, hef ég ýmist á tilfínningunni að mér gæti orðið á að tmfla menn, eða þá að ég veit ekki hvernig ég á að bera mig að, án þess að valda vitleysum og mis- skilningi. Veit bara að hér ríkja óskráð lög sem ég ekki þekki. Það eru ekki margar hafnir sem legið er í heila nótt. Og mín gamla götótta hugmynd um sjómenn í millilandasiglingum tekur stakkaskiptum aðra hverja klukkustund. Enginn virðist eiga sérstakt erindi í land. Og því skyldu skipveijar ekki geta verið sjálfum sér og hver öðrum nægir, þegar loksins má gera sér glaðan dag? Það er safnast saman í einni og annarri káetu, sagðar sögur af svarta genginu og því hvíta, búin til ævintýri úr löngu liðnum atburðum og gerðar skrýtlur úr næstum því engu. Gamanyrði sem þarf að þýða fyrir þann sem ekki var með. Það eru rauluð norræn stef og einkum íslensk. Niðri í messa er sjónvarp- ið, Vikivaki sýndur einmitt þetta kvöld, óp- eran þeirra Atla Heimis og Thors Vilhjálms- sonar. Þótt söguleg samhengi verði brota- kennt í höfninni þá er ofur notalegt að sjá gamalkunnug andlit, sem minna mig á hvert ég er að fara. Þegar ég fer til koju, geng ég fram á tvo háseta. Nágranna mína á neðstu hæðinni. Þeir eru að koma úr göngutúr í næsta ná- grenni hafnarinnar, koma beint inn úr vor- golunni og dimmunni, allsgáðir og yndisleg- ir. Ekkert að leggja það á sig að reyna að samlagast norsurunum, þótt ungir séu, eða rétt um þrítugt. Þeir segjast vera kallaðir Gunni og Lenni. Og stundum Gunni og Steini, eða þá Lenni og Drengurinn. Og vera hvor öðrum næstir á sjó, hvort sem þeir eru saman á vakt eða annar á frívakt að festa tölur á flík fyrir hinn. Lenni vill tala um bækur, er smekkmaður á bókmennt- ir, og býður mér lesefni til láns. Hann seg- ist sjá um bókasafnið, en segir Drenginn sjá um disketturnar. Þeir eru fyndnir félag- ar. Steinþór Hreinsson og Gunnar Eyþórs- son. Þeir viðurkenna alveg að það sé pínu- lítið þvingandi að hafa farþega um borð, að þurfa að vera á varðbergi, vanda orð sín ef þau eiga ekki að misskiljast. Hér eru menn búnir að vinna saman svo árum skipt- ir, lítið um breytingar á áhöfninni. Allir þekkjast á þessu heimili, það er málið. Og svo verður hver að hafa einhvern sér næst- an, sem þekkir mann best, þegar eitthvað bjátar á. Það segja Lenni og Drengurinn. IL í Noregi Og á NORÐURSJÓ „Að koma hingað er eins og að koma heim til sín,“ segir skipstjórinn og ég elti hann í land. Til að sjá og heyra eitthvað 6

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.