Lesbók Morgunblaðsins - 20.10.1990, Blaðsíða 14
Bílaleigubíll í
viku á Spáni fyr-
ir 50.000 krónur
Takið ekki bílaleigxibíl á Spáni - bókið
bíl í gegnum íslenska ferðaskrifstofu
LJÓTAR sögur berast af bílaleigum á Spáni sem reyna að pretta
saklausa ferðamenn sem ekki eiga auðvelt með að tjá sig á
spönsku. Ein fylgir hér á eftir frá íslenskri stúlku sem segir sínar
farir ekki sléttar.
Eg gekk inn á bílaleigu í Barc-
elona og tók á leigu ódýr-
asta bílinn, Fiat Uno. Sölumaður-
inn kunni lítið í ensku. Mér skild-
ist að hægt væri að leigja bílinn
f viku með ótakmörkuðum kíló-
metrafjölda, fyrir 15.000 krónur.
Og ég fengi auk þess afslátt þar
sem bíllinn var óþveginn. Mér
fannst þetta verð í samræmi við
almennt verð á bílaleigubflum á
meginlandinu.
Visa-reikningur var útbúinn
(án upphæðar.) sem ég skrifaði
undir og fékk afrit af. Viku síðar
var bílnum skilað á flugvelli í
Barcelona. Þá hljóðaði reikningur-
inn upp á tæpar 50.000 krónur.
Skýringin var sögð að eknir hefðu
verið fleiri km en svo að ótak-
markaður km-fjöldi borgaði sig.
Úr því sem komið var reyndist
ekki hægt að gera neitt í málun-
um. Umboðsaðili bflaleigunnar
hér heima sagðist hafa heyrt um
svipuð tilfelli sem komu upp á
Spáni í sumar. Lofað hefur verið
að athuga málið. En ég hef ekki
trú á að reikningurinn fáist lækk-
aður.“
Auðvitað á maður aldrei að
skrifa undir Visa-reikning með
óútfyllta upphæð. Þeir sem eru
miður vandir að virðingu sinni
geta notfært sér það. Til saman-
burðar má nefna að bflaleigubfll
í viku með ótakmarkaðan km
fjölda og engan tryggingabak-
reikning, kostaði frá LUxemborg
í sumar um 12.000 kr.
*
Odýrasta hótelgist-
ing í Frakklandi
Frakkland er dýrt land. En samt má finna þar ódýra hótel-
gistingu. Hótelkeðja sem kallar sig Formula 1 býður her-
bergi fyrir þijá á um 1.350 krónur nóttina. Það er erfitt að
finna ódýrari gistingu, en hótelkeðjan getur ekki státað af
fínni dráttum í herbergisbúnaði eða notalegheitum.
Hótelin eru byggð úr ein-
ingum sem eru settar
saman á staðnum. Her
bergin eru öll steypt í sama
mótið og ætlað að fullnægja
þörfum ferðamannsins. Hljóðein-
angruð og loftkæld, með tveggjá
manna og eins manns rúmi, fata-
skáp, handlaug, skrifborði, stól
og sjónvarpi með innbyggðri
vekjaraklukku. Eitt baðherbergi
með sturtuklefa fýrir hver þrjú
herbergi. Og sturtan er með
sjálfvirkum hreinsibúnaði eftir
hveija notkun.
Formula 1-hótelin er að finna
TiaiSSgt l'iugvöiium, hraðbrautum
og úthverfum. 27 eru í úthverf-
um Parísar, en 150 um allt
Frakkland, 4 í Belgíu. í áætlun
er að reisa þau í Vestur-Þýska-
landi og Bretlandi. Á hótelunum
er opin móttaka frá kl. 6.30-10
á morgnana og frá 17.00-22.00
á kvöldin. Utan þess tíma nota
gestir Visa-kortið sitt til að kom-
ast inn. Kortinu er stungið í sjálf-
virkan opnara, en Visa-kort er
eina greiðslukortið sem tekið er
við.
Upplýsingar og bæklingar hjá:
Chaine des Hótels Formule 1,
rp iKA oaifis þJoif.vJ.s.úrs.n.'i
France.
BAÐSTRENDURNAR A KANARI-EYJUM
PALMA
LANZAROTE
0Roque
Punta del Hidalgo
TENERIFE
La Arena (Teide)
GOMERA
HIERRO
Las Cuchharas
EÍCable
'Playa Blanca-Grande
Puerto del Rosario
FUERTEVENTURA
GRAN
CANARIA
Playapdel Inglés
'Maspalomas (Tirajana)
'T' Þærbetri
Þærsíöri
Baðstrendur á Kanaríeyjum
Hversvegna að baða sig 1 klóaki ef hreint vatn er í næsta
nágrenni? Veljið bestu strendurnar á Kanaríeyjum!
Baðstrendur eru tvennskonar eins og flestir vita. Á óska-
ströndinni sjáum við hvíta sandbreiðu eins langt og augað eyg-
ir. Glæsilegt par að leika sér í blátæru öldufalli. Og pálmatré
taka við af strönd. Allt hreint og ósnortið og baðað í sól. Hin
ströndin er minna fyrir augað. Olíubrák við landsteina. Klóak-
rör liggur út í sjó. Tómar bjórdósir, plastpokar og drasl. Og
fólk að viðra hundinn sem gjarnan gerir þarfir sínar í sandinn.
Spánveijar hafa verið sofandi fyrir varðveislu helstu útflutn-
ingsvöru sinnar, „baðstrandarinnar“, en fóru í mikla hreinsun-
arherferð 1988-1989. Nýlega birtist í könnun í tímaritinu E1
Pais um ástand spænskra baðstranda.
Margt stuðlar að betra eft-
irliti með baðströndum,
m.a. viðurkenning Evr
ópunefndarinnar, sem útdeilir
bláum fánum á þær baðstrendur
sem taldar eru hreinar og örugg-
ar fyrir sjóböð, að undangeng-
inni rannsókn. Spánn fékk flesta
bláa fána í fyrra, eða 137, Dan-
mörk 128, Frakkland 102, Port-
úgal 101, Grikkland 83, írland
48, Stóra-Bretland 29, Ítalía 28,
Holland 21, Þýskaland 17 og
Belgía 4.
Margir stefna á Kanaríeyjar á
þessum árstíma, svo við skulum
líta á baðstrendur þar. Kanarí-
eyjar búa yfir 1.545 km strand-
lengju - þar af 256 km löngum
sandströndum sem skiptast í 719
baðstrendur. Spánveijar hafa
miklar áhyggjur af umhverfís-
vemd kanarísku strandanna, þvi
baðstrandargestum fjölgar stöð-
ugt, en ferðamannaaðstaða og
eftirlit er langt frá því að vera
nógu gott. Kanarískar strendur
eru líkt og afrískar strendur
fremur fátækar af gróðri og
dýralífí og þess vegna viðkvæm-
ari.
Hver á að borga hótel-
reikning gíslanna?
Sú ráðstöfun að breyta hótelum í Kúvæt og írak í fangelsi
fyrir vestræna gísla hefur vakið upp alþjóðlegar deilur um
hver eigi að borga hótelreikning gíslanna.
Skilti við Formula 1-hótel.
Ferðaskrifstofur kreíjast
þess að hótelreikningar
fyrir vestræna ferða
menn, sem haldið er nauðugum
á Persaflóasvæðinu, verði sendir
til íraska ríkisins. „Ef írak neitar
að greiða, þá á viðkomandi þjóð-
land að borga,“ segir Ottó
Schneider, formaður félags
þýskra ferðaskrifstofa.
í yfírlýsingu frá félagi alþjóð-
legra hótelsamtaka segir, að hót-
el sem beijist við að hýsa gísla
undir erfiðum aðstæðum eigi
ekki undir nokkrum kringum-
stæðum að bera kostnaðinn. Full-
trúi þeirra, Ray Fenelon, segir:
„Hótelin verða sjálf að ákveða
hvert þau senda reikningana.
Ferðaskrifstofur ættu að krefjast
tryggingabóta fyrir almenna
ferðamenn, en fyrirtæki ættu að
bera tapiö ryrir sitt viðskipta-
fólk.“
En Ottó Schneider segir það
fáránlegt að krefjast greiðslu af
gíslunum. Hann segist viss um,
að viðkomandi þjóðlönd muni
borga. Samt gæti það vandamál
komið upp, að gíslunum væri
sagt að þeir væru frjálsir ferða
sinna - en ekki fyrr en þeir hefðu
gengið frá reikningum sínum.
Á meðan sitja hótelin í óvissu
um hvernig þau eiga að ná upp
tapi síðustu vikna. Talsmaður
Sheraton-hótelanna lét í ljós
áhyggjur um rof á viðskipta-
samningum, ef reikningar yrðu
sendir til íraska ríkisins. En tals-
maður breska utanríkisráðuneyt-
isins sagði, að þeir sem þvinga
fólkið til dvalar í landinu ættu
skilyrðislaust að bera kostnað af
því. En hann bætti því við að
breska rikisstwnin þjálpa
sínum þegnum.
Keflavík - g’lug’gi íslands
bæinn. Keflavík liggur flöt fyrir
októbersólinni. Engin öngstræti
sem safna í sig skuggum. Og niðri
við höfnina, hjarta Keflavíkur,
standa margir bæjarbúar með
veiðistöng í hönd og sjá - við
landsteinana hoppa stærðarlaxar,
sem sloppið hafa úr kvíum. Ódýr-
ara að kasta fyrir laxinn hér, en
borga tugi þúsunda við árbakka!
„í sumar voru hér vænir regn-
bogasilungar. Sjóstangaveiði er
vinsæl og ég er alltaf með bát til
taks, ef einhver vill skreppa á
skak.
„Nú er í bígerð að samtengja
hafnirnar í Keflavík og Njarðvík.
Einnig stendur til að leggja sjáv-
arbraut meðfram sjónum út að
sjósleðaleigu í útjaðri bæjarins,
svo innan tíðar má aka í útsýnis-
ferðir meðfram sjónum. Og mörg-
um fínnst gaman að heimsækja
dæmigerð íslensk sjávarþorp eins
og Garða og Sandgerði. Við get-
um líka státað af einum besta
golfvelli á landinu, þar sem stór-
mót í golfi hafa verið haldin. Gest-
ir okkar geta skroppið á hestbak
eða í sund í nýju laugina okkar,“
segir Steinþór með stolti, „og lítið
mál að skreppa á ball í Stapann
og Glaumberg eða eiga kvöld-
stund á góðu veitingahúsi.“
Frá Aðalgötu ber nývígðan
minnisvarða af Stjána bláa við
hafíð. Og frá efstu hæð Hótel
Keflavíkur fá Reykvíkingar nýtt
sjónarhorn yfír til Esju og Akra-
fjalls handan flóans. Þaðan er líka
gott útsýni yfir höfnina og bæinn.
Feðgamir Steinþór og Jón láta
ekki deigan síga, en áætla að
stækka hótelið. I kjallara á að
koma líkamsræktarstöð og á efstu
hæð veitingahús undir glerþaki
eða 400 fm innigarður, einnig
notaður sem ráðstefnusalur. Það-
an verður gaman að horfa á sólar-
lagið yfír Snæfellsjökli.
Oddný Sv. Björgvins
Úr hótelherbergi.
14