Lesbók Morgunblaðsins - 13.04.1991, Qupperneq 5
Þar sem einu sinni var gjöfult og fiskisælt vatn, eru nú saltsléttur. Afkomu fjölda fólks, sem byggði á veiðum úr vatninu,
hefur verið stefnt í voða.
geymir vatnið, hefur lokað vatnskerfi án
frárennslis safnast eiturefnin fyrir í grunn-
vatni jarðvegsins og menga það. Neysluvatn
íbúanna er tekið úr brunnum, þannig að
þeir drekka blöndu af vatni og eiturefnum.
Það er engin furða þótt sjúkraskýrslur séu
fullar af frásögum um vansköpuð korna-
börn, íjölgandi tilfelli lifrar- og nýrnasjúk-
dóma, ólæknandi magasár, vaxandi ung-
bamadauða og aukningu krabbameinstil-
fella.
Sem dæmi um hið síðastnefnda má benda
á þá staðreynd, að í ríkinu Uzbekistan við
suðurströnd Aralvatns er ákveðin tegund
krabbameins sjö sinnum algengari en í öðr-
um hlutum Sovétríkjanna.
Einn af sovézku vísindamönnunum sem
hafa rannsakað heilbrigðisástandið á svæð-
inu lýsir því í tímaritinu „Soviet Industry"
með þessum orðum: Allt þetta (heilbrigðis-
ástandið) er gjaldið sem greitt er með heilsu
íbúanna til þess að Sovétríkin geti verið sjálf-
um sér nóg um baðmullarframleiðslu.
Samkvæmt upplýsingum frá Sovézku vís-
indaakademíunni hefur ungbarnadauði auk-
ist hröðum skrefum á árunum 1970-1985 í
lýðveldunum 5 við Aralvatn. Sem dæmi er
bent á héraðið Bozatus í Karakalpak. Þar
fara saman léleg skolpræsakerfi, ófullnægj-
andi heilbrigðiseftirlit með barnshafandi
konum og ungbörnum, og vaxandi magn
skordýraeiturs og efna sem notuð eru gegn
jurtasjúkdómum í drykkjarvatni. Af hveijum
1.000 börnum sem fæðast deyja 110 áður
en þau hafa náð eins árs aldri. Samanborið
við önnur lönd deyja t.d. 109 í Afríku, 95 í
Indlandi og 37 í Kína.
Smá Skammtur
Af Skynsemi
Einn af eftirtektarverðari ávöxtum glasn-
ost var ráðstefna sem haldin var í október
1990 í borginni Nukus, höfuðborg Karakalp-
ak, sem stendur á bökkum Amu Darya.
Ráðstefnan bar yfirskriftina: Aralkreppan:
orsök, afleiðingar og leiðir til úrbóta. Á
ráðstefriunni voru saman komnir nálægt 100
sovézkir vísindamenn og stjórnmálaleiðtogar
ásamt 13 erlendum vísindamönnum sem
Sovézka vísindaakademían hafði boðið þang-
að. Mörgum erlendu þátttakendunum varð
það ljóst, að aðalatriðin í áætluninni um að
snúa þróuninni við voru: að selja bændunum
vatnið, fá þá til þess að rækta nytjajurtir
sem þurfa minni vökvun en baðmull, koma
á fót áætlun um svæðisbundna stjórnun
vatnabúskaparins þar sem gert er ráð fyrir
vökvun með grunnvatni og árvatni að hluta
til. Einnig gerðu þeir ráð fyrir stórátaki í
skipulagningu fjölskyldustærða. Allar þessar
aðgerðir kalla á yfirstjórn sem yrði skipuð
fulltrúum frá lýðveldunum 5 sem verst hafa
orðið úti, ásamt leiðandi vatnafræðingum,
jarðyrkjufræðingum, þjóðfræðingum og öðr-
um vísindamönnum. Þessi yfirstjórn yrði að
hafa óskorað vald til þess að framkvæma
þessar aðgerðir.
Það má vera hverjum manni ljóst að þessi
áætlun er næsta ófrarnkvæmanleg. Ef veita
á vatni frá ánum Irtysh og Ob sem eru í
lýðveldinu Rússlandi og renna norður í íshaf
suður á bóginn yrði það stórkostlegasta verk-
lega framkvæmd hins opinbera tii þessa.
Kostnaðurinn yrði svo mikill að skipti hundr-
uðum milljarða króna þannig að bágborið
efnahagsástand Sovétríkjanna kemur örugg-
lega í veg fyrir þessa framkvæmd. Fram-
kvæmd áætlunarinnar er einnig háð því hvort
lýðveldið Rússland sé tilbúið til þess að láta
vatnið sitt af hendi, en Rússlandi er nú
stjórnað af Boris Jeltsín hinum „herskáa".
Auk þessa myndi breytingin á rennsli
ánna þegar byija að valda truflunum á
umhverfinu sem hugsanlega gætu orðið jafn
aivarlegar og umhverfisslysið á Aralvatns-
svæðinu. Það er næsla víst að rennsli þessa
geysimikla vatnsmagns yfir þúsundir km af
eyðimörk myndi valda því að landið meðfram
skurðunum yrði vatnssósa. Veðurfræðingar
óttast líka að verði dregið úr rennsii tiltölu-
lega hlýs vatns í Norður-íshafið gæti það
valdið kælingu þess í þeim mæli að ísmynd-
un þar aukist með tilheyrandi breytingu á
loftslagi sem að lokum gengi gegnum allt
loftslagskerfi jarðarinnar.
Það sem skiptir íbúa lýðveldisins Rúss-
lands mestu máli er að ef rennsli ánna verð-
ur breytt, mun það hafa óheillavænleg áhrif
á landbúnað þeirra. Victor Kovda, forseti
sovéska jarðvegsfræðingafélagsins, bendir á
að verði vatpsrennslinu beint til Aralsvæðis-
ins dregur það úr rennsli á hlýju vatni um
árfarvegi dalanna í norðri. Við það fellur
hitastigið og ræktunartíminn styttist. Sums
staðar legðist landbúnaður algjörlega af.
Fjöldi annarra vistfræðilegra og hagfræði-
legra atriða mæla gegn þessari áætlun en
það þeirra sem vegur þyngst á metunum,
er sú staðreynd að hún myndi ekki hafa
nein áhrif á jarðvatnið eða saltútfellinguna
eða auka framleiðslugetu akurlendis á Aral-
svæðinu. Þörfin á því að lækka yfirborð jarð-
vatnsins í ræktarlandi kallar á allt aðrar
aðgerðir.
Að Spyrna Við Fótum
Verkfræðiprófessorinn Peter Rogers telur
ástandið á Aralsvæðinu nú um margt líkjast
ástandinu í Pakistan snemma á 7. áratugn-
um en þar eyðilagði vatnsaginn og saltútfell-
ingin nálega 50.000 ekrur árlega í Indus-
lægðinni (dalnum). Rogers og áðrir meðlim-
ir alþjóðlegs vinnuhóps hönnuðu áætlun um
vatnsbúskap sem sneri þróuninni við og jarð-
vegurinn endurheimti fijósemi sína og' af-
rakstur landsins færðist í fyrra horf.
Eitt af því sem stuðlaði að velgengninni
í Pakistan og gæti sennilega orðið Aralsvæð-
inu til bjargar var að nota grunnvatn og
árvatn að hluta til vökvunar. Grunnir brunn-
ar með dælum til vökvunar geta á ódýran
hátt snúið þróuninni við. Þegar grunnvatninu
er dælt upp lækkar yfírborð jarðvatnsins og
vatnsaginn og saltútfellingin minnka. Um
leið eykst vatnsrennslið í Aralvatni. Á stöð-
um þar sem grunnvatnið er of salt til þess
að vökva með því má blanda með árvatni
áður en það er notað til vökvunar.
Til þess að auka vatnsrennslið enn frekar
þarf að vökva þannig að vatnið nýtist betur.
Þegar mest lá á að auka baðmullarframleiðsl-
una voru mörg þúsund km langir skurðir
grafnir skipulagslaust um landið, sem verið
var að taka til ræktunar. Afleiðingin var sú
að óhemjumikið vatn fór til spillis. Skipuleg-
ir áveituskurðir og dreypivökvun er miklu
hagkvæmari en vökvun með vatnsrennsli í
plógförum á ökrunum eða áveitu vatns og
hefði í för með sér ótrúlega mikinn sparnað
á vatni.
Núna er vatnið á Aralsvæðinu svo að segja
ókeypis sem þýðir það, að það er notað í
miklu óhófi eins og allt það sem er ókeypis
eða mjög ódýrt. Viðbrögð bænda í vesturríkj-
um Bandaríkjanna þegar komið var á vatns-
markaði þar gæti verið fyrirmynd hér. Þar
er vatnið nú selt á hærra verði og leggja
bændur sig fram um að nýta það á sem
hagkvæmastan hátt.
Ef greitt verður fyrir vatnið stuðlar það
að betri nýtingu þess sem m.a. væri í því
fólgin að velja til ræktunar tegundir sem
þurfa minni vökvun. Ef áherslan verður Jögð
á efnahagslegar umbætur verða fram-
leiðslukvótar á baðmull aflagðir og bændurn-
ir látnir sjálfir ákveða hvers konar ræktun
er hagkvæmust fyrir þá. Vatnsþörf jurta er
mjög mismunandi eftir tegundum. Sem dæmi
má nefna að helmingi minna vatn þarf til
þess að framleiða eitt.tonn af hveiti en eitt
tonn af hrísgijónum. Verði vatnið selt er
sennilegt að ræktun verði hætt á jaðarsvæð-
um lýðveldanna en þau hafa notað vatn til
jafns við góð ræktunarsvæði en afrakstur
af þeim verið lítill.
Ein af fáum nýstárlegum tillögum af hálfu
sovétmannanna á ráðstefnunni í Nukus var
lögð fram af Y.S. Kamalov, sem var fulltrúi
grasrótarhreyfingar sem stofnuð var með það
markmið að bjarga Amu Darya og Aral-
vatni. Hann gekk út frá því að árnar Amu
Darya og Syr Darya tilheyri Aralvatni og
stakk því upp á að stofnaður yrði Aral-
banki sem bændur keyptu síðan allt sitt
vatn af. Verðið átti að vera það hátt að
. árvatnið næði að renna út í vatnið og bæta
þar með að hluta til úr tjóninu sem orðið er
á Aralvatni. Hagnað bankans á svo að nota
til þess að íjárfesta í brunnum og vatnsdæl-
um sem eru nauðsynlegar til þess að lækka
yfirborð grunnvatnsins. Einnig má nota fé
bankans til þess að kenna bændum að nýta
vatnið betur og að skipuleggja varnir gegn
skordýrum þannig að þeir þurfí ekki að reiða
sig jafn mikið á. notkun skordýraeiturs eins
og nú er raunin. Ekki verður annað séð en
þessar hugmyndir Kamalovs lofi góðu.
Ofsetið Landsvæði
Þótt aðgerðir til þess að snúa þróuninni
við takist og fijósemi og afrakstur ræktar-
lands verði endurheimt, batna lífskjörin ekki
nema dregið verði úr fólksfjölguninni.
Reynsla Japana í þessum efnum á síðari
hluta 5. áratugarins er lærdómsrík. Þá höfðu
Japanir tapað heimsveldinu og miklu af nátt-
úruauðlindum sínum. Þeir urðu að velja á
milli versnandi lífsafkomu eða fámennari
ijölskyldna. Þeir völdu síðari kostinn og á
árunum 1948-1955 dró um helming úr fólks-
fjölguninni.
Heitt og þurrt vistkerfi þar sem skortur
er á vatni þolir ekki 3% fólksfjölgun á ári
en erfitt verður að draga úr henni. I lýðveld-
unum 5; Kazakhstan, Uzbekistan, Kirghizia,
Tajikistan og Turkmenistan, þar sem íbúarn-
ir eru flestir múslimar, leggja þjóðarleiðtog-
arnir áherslu á þá staðreynd aðaneðal músl-
ima séu mörg börn og stórar fjölskyldur
heilög erfðavenja. Þeir halda því fram að
með efnahagslegum og félagslegum fram-
förum dragi úr fjölskyldustærðum. Þetta er
að vísu rétt en staðreyndin er' sú að ef hag-
stjórnin fer fram úr vistkerfinu sem efna-
hagsafkoman byggist á verða hvorki efna-
hags- né félagslegar framfarir til staðar.
Þegar fólksfjöldinn fer fram úr framleiðslu-
getu landsins versna lífskjörin. Það má vera
að 10. áratugurinn bjóði þjóðunum á Aral-
svæðinu síðasta tækifærið til þess að leysa
fólksijölgunarvandamálið á mannúðlegan
hátt. Aukning ungbarnadauða, krabba-
meinstilfella og annarra sjúkdóma á síðustu
árum er nú komin á það stig að vaxandi
dánartíðni er farin að draga úr fólksfjölgun-
inni. Þar sem stjómmálamennirnir eru ófær-
ir um að sjá auknum fólksfjölda farborða
og veija hann fyrir ógnum þeim er stafa frá
umhverfínu, verða þeir nú annaðhvort að
stuðla að því með ráð og dáð að fjölskyldur
verði fámennari eða taka á sig ábyrgðina
af aukinni dánartíðni. _
Eigi að takast að koma á umhverfis- og
efnahagsumbótum tekst það aðeins með
mjög náinni samvinnu lýðveldanna 5 en þjóð-
ernisdeilur flækja málið. Um leið og dró úr
stjórn Moskvuvaldsins fór að bera á þjóðern-
isetjum í lýðveldunum, sem höfðu verið nið-
urbældar í áratugi. Þessar eijur hafa oftar
en ekki leitt til ofbeldisaðgerða.
Tíminn vinnur ekki með Aralvatni. Ef
fólkið á Aralsvæðinu grípur ekki í taumana
og gerir sem skjótast framtíðaráætlun um
aðgerðir, mun náttúran sjálf setja þeirn miklu
harðari kosti. Þekking er fyrsta skrefíð við
lausn hvers vandamáls. Hún er fyrir hendi.
En þá er komið að því erfíðasta, sem er að
hrinda björgunaraðgerðum í framkvæmd.
í vissum skilningi er Arallægðin jörðin í
hnotskurn. Hún er eitt af fyrstu svæðunum
á jörðinni þar sem skemmdir á umhverfinu
leiða til minnkandi arðsemi og valda stöðugt
versnandi lífskjörum. Fólkið sem býr þar
hefur aðeins örfá ár til þess að snúa óheilla-
þróuninni við. Hvort það tekSt eða ekki get-
ur sagt okkur eitthvað um getu þjóða jarðar-
innar til að fást með árangri við gróðurhúsa-
áhrifín, eyðingu ósonlagsins og björgun
dýra- og jurtategunda, sem eru að deyja út.
Þýtt og tckið saman úr tímaritinu World Watch.
JÓNAS GUÐLAUGSSON
Kristinn á
Nesi
- brot -
Guðmundur Arnfinnsson
þýddi úr dönsku
A útnesi einu við fjörðinn
er einsetumannsins bær,
í tj'aliinu byljir blása
og brotnar á skerjum sær.
Um nesið með háværu hlakki
hringsólar mávager,
og örninn á hamrinum hæsta
hreiður byggði sér.
Kristinn unir hjá ægi
sem örninn sívökull;
hann eijar ölduna salta
og uppsker hið lifandi gull.
Hann á hvorki víf né vini
og vitjar ei nokkurs manns,
en elskar aðeins varginn
og unir í návist hans.
Hann þarf ekki annarra aðstoð
sinn öngul og færi við,
um bólið sitt býr hann sjálfur
og báti rær einn á mið.
XXX
Er örninn flýgur ei framar,
því fleygt niðrí dalnum er,
að Kristinn hafi sig hafnað
handan við yzta sker.
Á síkviku sævardjúpi
svæfir hann aldan hrein,
en sól skín á hamrínum háa
á hvít og skinin bein.
Á nesinu líkt og legsteinn
á leiði er auður bær,
í storminum hræfuglar hlakka,
og hrynur að björgum sær.
Jónas Guðlaugsson, skáld, orti nokkur
Ijóð á dönsku, sem ekki hafa verið þýdd
á íslenzku fyrr en nú og er hér eitt þeirra.
JÓN Þ. HARALDSSON
Finndu sann-
leikann
Taktu engan trúnað
svo tryggan að ei þoli rýni
reyndu að sjá sjálfur
hvað sérðu eigin augum,
lát aldrei sýn annars
umbreyta þinni hegðan,
nema þú eygir áður
yfirlit grannt skoðað.
Varastu vinar hjalið
valt er því öllu að treysta,
því skaltu velja vini
vandlega þér til handa.
Hugsun má hvergi hefta,
hafðu skoðanir fijálsar,
bint’u ekki traustum böndum
við brigðular sálir tála.
Þó skaltu vinum veita
vel, það, sem best máttu,
ekkert má undan skilja,
allt láttu af hendi rakna,
orð, sem til heilla horfa,
hugsun og allar gerðir
gefðu af heilum huga,
hulið má ekkert vera.
Byggðu svo bróðurþelið
sem best verður á kosið,
segðu og svíktu engan,
sannleik um allt, sem þekkir.
Gefðu vonir og glæddu,
grátþrungnar hugga sálir,
lofa þó engum lengra,
en Ijóst þú náir að efna.
Völt er vinar hyggja,
sem veldur ei góðum gjöldum
græddu með göfgu hjarta
gleddu sálir lujáðar,
gerðu hvað geta máttu,
gakktu heill til verka,
hikaðu aldrei að hafna
hveiju, sem rangt má telja.
Höfundur, f. 1917, hefur verið verkamað-
ur í Reykjavík, en jafnframt ort Ijóð og
stundað myndlist.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 13. APRÍL 1991 5