Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1991, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1991, Blaðsíða 6
Þetta hús á nr. 4 reisti Ellert Schram skipstjóri árið 1900 og bjó þar ásamt Magdalenu, konu sinni, til ársins 1915. Seinna ólust upp í húsinu Bjarni Felixson íþróttafréttamaður og bræður hans. Á þessum slóðum er vagga KR. Timburhúsið að Reynimel, eins og það lítur út nú til dags, en steinbærinn er horfinn. Úr sögu Bræðraborgarstígs Hvenær svaf hús- freyjan á Reynimel? 2. hluti byggðinni við Bræðraborgarstíg og þar í grennd bjuggu yfirleitt vel bjargálna menn á þeirra tíma mælikvarða og flestir störfuðu við sjávarútveg og fiskvinnslu framan af öldinni. Þessi byggð var eins og lítið fiskimannaþorp og æðsta markmið strák- anna, sem þama ólust upp, var að komast til sjós. Magnús Runólfsson skipstjóri segir svo um upphaf ævi sinnar: „Eg byijaði sjómennsku mína í stóra vöskunarkarinu sem stóð allan ársins hring á stéttinni vestan við bæinn okkar í Miðhús- um á Bræðraborgarstig 21b í Reykjavík. Við tókum blautan fisk heim, vöskuðum hann í þessu kari og þurrkuðum á stakk- stæði við bæinn. Það var á að giska tveggja metra langt og hálfur metri á breidd og ég sat í því alla daga, þegar ekki var verið að vaska og þóttist vera á fleygiferð úti á rúmsjó.“ Pabbi Magnúsar var verkstjóri hjá Duus og fiskmatsmaður, eða ragari, eins og það var kallað í þann tíð. Litli steinbærinn á Miðhúsum, sem þessi fjölskylda bjó í, var því kannski dálítið rúmbetri og veglegri en margir aðrir bæir. Húsbóndinn hafði örlítið betri afkomu en allur fjöldinn. Niðri vr stofa og eldhús en uppi baðstofa, eins og á hveij- um öðrum sveitabæ, með rúmum til beggja handa þar sem öll fjölskyldan svaf. En litla stofan niðri, sem börnin máttu helst ekki koma inn í, var heldur betur stássleg eins og Magnús lýsir: „í stofunni var sóffi, 4 stólar, stofuborð, orgel, skrifbórð, lítill bókaskápur með gleri fyrir og heljarmikill ofn með emileraðri umgerð. Sóffinn og stólarnir voru ákaflega fínir, klæddir með ekta_ plussi, grænu á lit, og með kögri niður úr. í bókaskápnum voru nokkrar bækur svo sem íslendingasögur, skáldsögur eftir vinsælustu höfundana á Gula húsið uppi í lóðinni er Miðhús á Bræðraborgarstíg 21b. Það reisti Run- ólfur Magnússon fiskimatsmaður en áður hafði hann átt lítinn steinbæ á sömu lóð. Við götuna til hægri eru Eiðs- staðir. Þar bjuggu forfeður Þorsteins Pálssonar alþingismanns. þeim árum, Jón Trausta og einhveija fleiri, og tímaritið Eimreiðin. Á veggjum voru fjöl- skyldumyndir og klukka. Ur Ioftinu hékk forláta olíulampi. Gluggar voru tveir í stof- unni, annar á gafli en hinn á vesturhlið. í þeim ræktaði móðir mín jólarósir." Af sæmdarhjónunum Hirti og Margréti með sín 11 börn í steinbænum Reynimel, af upprunaslóðum KR og rauða húsinu hans Eldeyjar-Hjalta. Eftir GUÐJÓN FRIÐRIKSSON 'A, - fe . Hús Eldeyjar-Hjalta á nr. 8 stendur enn með sóma. Þar búanú Örnólfur Árnason rithöfundur og Helga Jónsdóttir leikkona. 6

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.