Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1991, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1991, Blaðsíða 9
# luð tækni. er: Ars Brevis, 1989. blönduð tækni. sín til Vesturlanda, en hefur þótt það um- stang erfitt. Einn sagði svo í viðtali: „Margir okkar eru að springa áður en komið er að aðalréttinum, ef svo mætti segja. Allar þessar ferðir uppá síðkastið hafa dengt á sovézka listamenn slíku upplýs- ingaflóði og orsakað þvílíka streytu vegna peninga, tíma og alls annars, að persónu- lega er ég að niðurlotum kominn. Mér finnst ég úttroðinn uppí háls, ekki bara af list, en líka af samræðum og veizlumat. Nú er tími til að koma sér heim í hornið sitt. Það er brýn nauðsyn að eiga sér stað, þar sem hægt er í rólegheitum að meta allt sem gerst hefur - og slíka staði er ómögulegt að finna á Vesturlöndum “. Nú eru leyfðar í Sovétríkjunum sýning- ar, sem eiga að heita utan við Kerfið. Allt er nú leyfilegt nema það sem kann að vera skilgreint sem klám, svo og árásir á valdamenn þjóðfélagsins. Sýningar frægra erlendra myndlistarmanna eru lika farnar að eiga sér stað og meðal þeirra sem sýnt hafa verk sýn austur þar er Robert Rauschenberg og Leroy Nieman, - hvorttveggja fyrir atbeina Rússavinarins ameríska, Armand Hammer, sem nú er nýlega látinn. Þar fyrir utan má nefna fræga menn eins og Julian Schnabel og Gilbert & George og Rússarnir tveir, sem vinna saman að myndum sínum í New York: Komar & Melamid, munu einnig vera búnir að sýna þar ásamt nýfrægum Könum eins og David Salle og glingurlist- armanninum Jeff Koons. Heimildum ber saman um, að sovézkir listamenn hafi nú æði margir glýju dollara og þýzkra marka í augum og að metnaður- inn stefni allur í þá átt í stað þess að vinna upp athygliverða stöðu heima fyrir. Af því sem sést hefur í blöðum og tímaritum af nýlegri sovétlist, vekur fátt athygli. Eins og sakir standa virðast margir hafa tekið konsept, eða hugmyndalist, uppá sína arma, en mest af því virkar gamalt vegna þess að ekki tekst nægilega að finna sér- sovézkan flöt til að vinna á. Kannski er það vanmetakenndin sem hamlar iíkt og hér á norðurslóðum og er þá illa komið, ef heimurinn á bara að fylgjast með því sem gerist innan þríhyrningsins New York - Róm -Berlín. Gísli Sigurðsson tók saman. Sverre Wyller: sjónarhorn skipuleggjendanna, 1989, akrýl á léreft. í dempuðu ljósi Sverre Wyller í Norræna Húsinu Það er góðra gjalda vert, að Norræna Húsið kynnir annað veifið listamenn frá Norðurlöndum. Að vísu kveður ekki mikið að Norðurlandamönnum á alþjóðavísu í myndlist, sem svo er nefnd, þegar í rauninni er átt við örfáar þjóðir: Banda- ríkin, Þýzkaland, Frakkland, Ítalíu og í mesta lagi Bretland, Niðurlöndin og Spán að auki. Þessar þjóðir telja sig geta einokað heimslist- ina; þar gerist listaagan og hvað kann að vera gert á útkjálkum eins og Norðurlöndum, skiptir að því er virðist ekki máli. Að einhvetju leyti eiga Norðurlandamenn sök á því sjálfir, að svo er komið. Hvað sem Norðurlandaráði líður og norrænni samvinnu yfirleitt, hefur þessum þjóðum ekki tekizt sem skyldi að standa saman sem ein menningar- leg heild, sem gæti átt frumkvæði og skapað sér sérstöðu, til dæmis með sínum eigin tvíæringi. Við látum aðra um slíkt, bíðum eftir frumkvæði annarra og síðan verður myndlistin aðeins bergmál þess, sem mynd- listarstórveldin eru búin að gera frægt. Draumur framsækinna, norrænna lista- manna, snýst um að búa og starfa í New York eða Frankfurt eða París eða Rómaborg. Einn þeirra sem hefur látið þann draum rætast er Sverre Wyller, norskur málari, sem nú sýnir verk sín í Norræna Húsinu. Hann hlaut menntun sína heima í Noregi, fyrst í arkitektaskólanum, síðan í Handíða- og lis- tiðnaðarskóla ríkisins og í Norska akademíinu í Osló. Námi sínu lauk hann í Hochschule der Kúnste í Berlín 1982 og hefur síðan búið og starfað utan heimalandsins, fyrst í fimm ár í Þýzkalandi , en síðan 1987 hefur hann verið í New York. Hann hefur þó hald- ið sambandi við fósturjörðina með sýningar- haldi, en að myndir hans fjalli um Noreg eins og Asmund Thorkildsen, forstöðumaður Kunstnernes Hus í Ósló, skrifar í sýningar- 'skrá, þarf góðan vilja til að ímynda sér. Eft- ir því sem séð verður, til dæmis af myndun- um sem hér eru prentaðar, gæti myndlist Sverre Wyllers verið amerísk, eða frá hvaða Vestur-Evrópulandi sem er. Við það er út af fyrir sig ekkert að athuga; mikill fjöldi listamanna vinnur á þeim nótum og telja ekki nauðsynlegt að listin hafi einhver sérein- kenni eftir löndum og menningarsvæðum. Thorkildsen segir einnig í sýningarskrá, að verulegar breytingar hafi orðið í list Wyll- ers, þegar hann flutti frá Berlín til New York með viðkomu í Rómaborg. Hann hvarf frá dökkum, leyndardómsfullum myndum til mun ljósari innanhússmótífa með dauft lamp- askin sem birtugjafa; einnig málaði hann landslagsmyndir með sama jafna ljósinu. Eins og mjög margir þýzkir máiarar og aðr- ir sem voru undir áhrifum frá ný-expressjón- ismanum um og uppúr 1980, málaði Sverre Wyller á tímabili stórar og litsterkar myndir með kröftugri pensilskrift. Áherzlan var á grófgerða fígúruteikningu og hráa, hvella liti. En síðar hefur Wyller eins og margir aðrir horfið frá þessu grófa taki, sem einnig hefur verið nefnt „innsæislist". Segja má, að hann hafi horfið frá þessari málunarað- ferð næstum svo langt sem verða mátti. Hann fór að leggja stund á fígúratíft flatar- málverk eins og meðfylgjandi myndir bera með sér, þar sem fletirnir eru „dauðmálaðir" í daufum grátónum. „Rýmið er grunnt og aflokað í þröngu plani. Hér er sótt í myndrými kúbismans og það er sama hvort myndimar eru skoðaðar sem landslagsmyndir eða kyralífsmyndir (innimyndir): það er yfir þeim einhver blær innilokunar. Ljósið er þar að auki dempað", segir Thorkildsen í grein sinni. Sýningin á verkum Sverre Wyllers stendur fram til 26. mai. GS. Sverre Wyller: Tveir stólar, 1989, akrýl á léreft, LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 11. MAÍ 1991 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.