Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1991, Side 10
B i r L A R
Forvitnilegur ZX frá
Citroén
-■ ■■ ..............................................
Citroen ZX er forvitnilegur og áiitlegur
bíll - og ekki spillir fagurt umhverfi í
Suður-Frakklandi.
Citroén ZX heitir nýjasta afkvæmi Citro-
én verksmiðjanna í Frakklandi en hann
var formlega kynntur um miðjan mars
þar í landi. Síðustu vikurnar hefur hann
verið kynntur fyrir blaðamönnum og
gafst okkur frá Islandi kostur á að skoða
gripinn og aka 250 km um Suður Frakk-
land fyrr í vikunni. Citroén ZX fyllir
ákveðið bil sem verið hefur hjá verk-
smiðjunum, er stærri en AX en minni
en BX. Með þessu er verið að bjóða nýj-
an valkost fyrir þá sem hafa þurft að
Ieita annað en til Citroén eftir bíl í þess-
um stærðarflokki. Nú státa verksmiðj-
urnar af því að bjóða bíla af öllum stærð-
um og hver gerð býður upp á talsvert
mismunandi búnað. ZX er fáanlegur í
fjórum megin gerðum með mismunandi
vélarstærðum. Ekki er á þessari stundu
unnt að segja nákvæmlega til um verðið
en fyrstu bílarnir á erlendan markað frá
verksmiðjunum verða afhentir um miðj-
an maí.
V
Citroén ZX kemur til með að keppa við
ýmsa evrópska bíla, svo sem Renault 19,
Volkswagen Golf, Peugeot 309, Ford Escort
og Fiat Tipo svo nokkrir séu nefndir. í svo-
nefndum M1 stærðarflokki sem þessir bílar
falla undir seldust í fyrra tæplega 4 milljón-
ir bfla í Evrópu. Af mest seldu einstöku
bflunum hefur Golf verið með 18,5% mark-
aðarins, Kadett með 15,3%, Escort með
12,7% og Renault 19 með 10,9%. Hér er
Citroén því að ráðst inn á mjög fjörugan
markað en forráðamenn verksmiðjanna
segjast staðaráðnir í að hasla sér þar völl
með ZX bílnum. Ráðgert er að framleiða
um liðlega 230 þúsund bfla á þessu ári og
mun dagsframleiðslan verða 1.450 bílar
þegar hún nær hámarki. Alls hefur verið
fjárfest fyrir sem svarar um 60 milljörðum
króna til undirbúnings framleiðslunni.
Ósvikinn Citroén
Citroén ZX er ósvikinn Citroé n í útliti.
Honum svipar til AX, er með sama niðurhall-
andi framendann, en er greinilega stærri.
Þetta er rennilegur bfll en hann er samt í
raun ósköp venjulegur. Auk hliðarglugga í
hurðum er þriðji hliðarglugginn aftast ein-
kennandi og þannig minnir hann til dæmis
á Fiat Tipo en að öðru leyti má segja að
ZX skeri sig lítið úr enda er honum ætlað
að keppa á markaði nokkuð „venjulegra"
bflakaupenda ef svo má að orði komast,
þeirra sem vilja notadijúgan bfl á skaplegu
verði og þurfa ekkert ptjál. Með dýrustu
gerðinni er þó líka komið til móts við þá
sem vilja snöggan og kraftmikinn bíl.
ZX er allvel búinn að innan og þar virkar
allur frágangur mjög vandaður. Sætin eru
sterkleg og ökumannssæti með stilianlegan
stuðning við mjóbak og hliðar auk hinna
venjulegu stillinga. Rými er gott í framsæt-
um og þokkalegt í aftursætum en sitji menn
stífir og uppréttir þar stijúkast menn fljótt
upp undir. Bfllinn er búinn veltistýri og hæð
á festingu öryggisbeltis er einnig stillanleg.
Mælaborðið er með nokkuð hefðbundnu
sniði og með venjulegum mælum en nokkuð
er misjafnt milli gerða hvort það er búið
snúningshraðamæli, hvar klukka er staðsett
og hvort hanskahólfíð er með loki eða ekki.
Bíllinn er hins vegar vel búinn smáhólfum,
í hurðum og milli framsæta. Útsýni er gott
fram og til hliða, svo og aftur fyrir með
baksýnisspegli og tveimur útispeglum sem
stillanlegir eru innan frá. Framrúðuvindur
eru rafdrifnar og læsingar sömuleiðis og
með fjarstýringu á dýrari gerðunum. Skott-
rými er í meðallagi og hægt að leggja fram
bak aftursætis. Einnig er hægt að renna
aftursætinu alveg fram að framsætum og
næst á góð stækkun á farangursrými. Má
ímynda sér að þetta henti til dæmis þeim
sem ferðast með smábörn og kerrur eðg.
aðra fyrirferðamikla fylgihluti þeirra.
Þrjár gerðir
A þessari kynningu í Suður-Frakklandi
gafst kostur á að aka þremur gerðum:
Reflex sem er með 1,3 lítra og 75 hestafla
vél, Aura með 1,6 lítra og 89 hestafla vél
og Volcane með 1,9 lítra vél sem gefur 130
hestöfl og allar eru þessar vélar fjögurra
strokka. Allir eru bílarnir búnir fimm gíra
handskiptingu. Sjálfskipting verður væntan-
lega ekki í boði fyrr en á næsta ári. Þessar
gerðir eru svo til eins að ytri gerð, hliðar-
listi er mismunandi og stuðari er ýmist grár
Með ZX hyggjast Citroen verksmiðjurnar hasla sér völl á bílamarkaði í Evrópu
sem þeir hafa ekki getað sinnt til þessa.
eða í sama lit og bíllinn og sama gildir um
handföng og útispegla.
ZX er 4,07 metra langur, 1,7 metrar á
breidd og 1,4 á hæð. Bíllinn er því lágur
og breiður og virðist þannig stór sérstaklega
þegar horft er framan á hann. Bfllinn vegur
1030 til 1150 kg eftir gerðum og hann
getur borið milli 500 og 600 kg. Bensíntank-
ur tekur 56 lítra og eyðsla í borgarakstri er
á bílnum með minni vélinni sögð vera um
7 lítrar á hundraðið.
Eftir að aka Citroén ZX samtals liðlega
250 km vegalengd á rerinisléttu malbiki,
slitnu og ósléttu malbiki, á beinum brautum,
hraðbrautum og mjög mjóum og krókóttum
vegum í hæðóttu landslagi verður umsögnin
þessi:
Gott viðbragð
Allar gerðimar eiga það sammerkt að
vera viðbragðsgóðar og skemmtilegar í '
akstri. ZX er sérlega hljóðlátur bíll og skipt-
ir litlu máli hversu slétt og gott yfirborð
vegarins er, það verður aldrei vart við háv-
aða. Þegar ekið er lengi á miklum hraða í
fimmta gír verður helst vart vélarhávaða
eða hvins og þá er eins og ökumaður eigi
eftir að skipta í einn gír til viðbótar.
Gírskiptingin er mjúk og þægileg og stöng-
in vel staðsett og ekki varð vart við annað
en að auðvelt væri að skipta hratt niður
þegar þess var þörf.
ZX með minnstu vélinni er ekki með
vökvastýri eða léttistýri en það eru hinar
gerðirnar og vissulega mætti það vera fyrir
hendi í þeim öllum. Þeir sem eru vanir vökva-
stýri myndu strax sakna þess en aðrir ekki
því bíllinn er alls ekki þungur í stýri. Sem
fyrr segir er viðbragðið gott og vinnslan
og gildir það jafnt um þann með minnstu
Óhætt er að gefa ZX góða einkunn
fyrir gott rými og góðan frágang að
innan og hann er líka vel búinn.
vélinni sem Volcane sem hefur auðvitað
ákveðna yfirburði á þessu sviði með 130
hestafla vél. Það var eini bíllinn sem gafst
tækifæri á að þeyta eftir hraðbraut og virð-
ist 130 km hámarkshraði á hinum frönsku
hraðbrautum hvergi nærri duga. Á þeim
hraða getur ökumaður setið afslappaður og
finnur lítið fyrir hraða og er það ekki fyrr
en á 150 og þar yfir sem finnst verulega
fyrir hraða.
Fjöðrun er McPherson gormar að framan
og snerilfjöðrun að aftan. Nákvæmt stýri
og nokkuð stíf fjöðrunin gera það að verkum
að bíllinn liggur mjög vel og kom það ekki
síst í ljós í kröppum beygjum á mjóum veg-
um þar sem menn aka furðu greitt miðað
við aðstæður á hvers konar bflum.
Góð samkeppnisstaða
Sem fyrr segir er Citroén ZX líklegur
keppinautur nokkurra evrópskra bíla sem
þegar eiga vinsældum að fagna. Ljóst er
að verðið mun ráða miklu um viðtökur þessa
bfls hér á landi. Takist að halda því undir
einni milljón króna til dæmis fyrir bílinn
með 1,6 lítra vélinni ætti hann að hafa
góða samkeppnisstöðu. Fulltrúar Globus,
sem hefur Citroén umboðið hérlendis eru
að semja um verðið fyrir íslenskan markað
og verður þar tekið nákvæmt mið af helstu
keppinautunum.