Lesbók Morgunblaðsins - 06.07.1991, Qupperneq 8
Vesturbæj ar skóla
Skúlptúrar og skipulag eftir Magnús Tómasson
Það ber ekki mikið á nýja
.Vesturbæjarskólanum
við Sólvallagötuna,
vestarlega í Vestur-
bænum í Reykjavík. En
þama hefur Ingimund-
ur Sveinsson, arkitekt,
teiknað gott hús til síns
brúks og ekki er síður athyglisvert, hvem-
ig gengið hefur verið frá skólalóðinni. Þar
var leitað til Magnúsar Tómassonar mynd-
listarmanns og er hvorttveggja, að hann
skipulagði og ákvað gerð sjálfrar skólalóð-
arinnar, og svo hitt, að hann fékk tæki-
færi til að setja svip á verkið með sérkenni-
legum skúlptúr, sem fer vel a sínum stað.
Þó þetta séu stór og mikil björg, ber samt-
lítið á þeim og það er ugglaust hægt að
aka þama framhjá án þess að taka eftir
neinu sérstöku.
Við þá hlið skólans, sem snýr út að
götunni verða fyrst fyrir þijú björg, sem
Magnús hefur gert hyrnd; tvö þeirra með
myndarleg nautshorn, en eitt er einhyrn-
ingur, sem Islendingum er að vísu fram-
andleg skepna. Á leiksvæði barnanna er
rennibraut ofan af stóru bjargi, sem lyft
hefur verið uppá stórgrýti og hefur þótt
öruggara að hafa handrið á þessu klifur-
verki. Önnur klifurverk eru úr staurum,
listræn í útfærslu og ágætur skúlptúr út
af fyrir sig. Síðast en ekki sízt er stór
hluti skólalóðarinnar afmarkaður með
misstórum björgum, sem mynda einskonar
túngarð og sýna hvað þessi náttúrulegi
efniviður, sem oft kemur uppúr húsgrunn-
. um, er kjörinn til að skapa tilbreytingar-
ríkt umhverfi. GS.
Skólalóð við
Séð yfir skólalóðina: Klifurverk og fallegt sam
og deyja í júnísólinni.
Rennibrautin er ofanaf bjargi, sem lyft
hefur verið uppá stórgrýti og hellur,
sem mynda tröppur. í forgrunni er einn
stauraskúlptúrinn.
Skólalóðin er afmörkuð að hluta af
misstórum björgum, sem mynda nátt-
úrulegt umhverfi.
Hyrnd björg horfa
„eins og naut á ný-
virki“ við þá hlið
skólans, sem snýr
út að Sólvallagöt-
unni.
Ljósmyndir: Les-
bók/GS
Stauraskúlptúr á leiksvæði skólans.
8