Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq

Lesbók Morgunblaðsins - 06.07.1991, Qupperneq 11

Lesbók Morgunblaðsins - 06.07.1991, Qupperneq 11
 FUJGLEIDIR S0 FEREHBMÐ LESBÓKAR Staðarskáli með Tröllakirkju í baksýn. Kötlugljúfur í Víðidalsá. Staldrað við í Staðarskála í leit að sögu og náttúruvættum ÞJÓÐBRAUTIN Reykjavík- Akureyri er framundan. - Og við setjumst upp í bílinn, lítum á klukkuna og hefjum akstur yfir holt og heiðar. Tíminn ræður. Klukkan sljórnar. - Hvað verðum við Iengi? - Fimm tíma? Já, við höfðum viðdvöl í Staðarskála og feng- um okkur smáhressingu. Streitan er förunautur. Hrað- inn er fylgifiskur. Og bóndinn við þjóðveginn hristir höfuðið yfir hröðum akstri. - En við skulum nema staðar um stund í sýslu sem einkennist af gegn- Á Arnarvatnsheiði upp úr Miðfirði. umakstri; - skynja hvað Vestur-Húnavatnssýsla býður upp á. Fornihvammur hefur jafnast við jörðu. Og bíllinn þýtur eina dagleið yfir margar dagleiðir landpósta á hestbaki. í raun ótrú- legt hvað hringvegur íslands hef- ur malbikast á skömmum tíma. Og á ferð í góðviðrinu um daginn sannfærðist ég um, að ekkert land er fegurra eða gefur meiri mögu- leika til náttúrudýrkunar og af- þreyingar en sólbjart ísland! - Eitt fótmál frá þjóðbraut bíður ósnortinn friðarlundur, eftir þér. - Sagan leynist í örnefni, á vega- slóða, í gömlu bæjarstæði eða húsi. - Og við ættum að eiga meiri tíma NÚNA á hveijum stað, þegar við þjótum eftir malbikaðri hraðbraut! Fjarlægðir dragast saman Já, ennþá er viðdvöl á Stað í Hrútafirði; aldagömlu póststöð- inni og gististaðnum. A dögum landpóstanna þótti fjölmennt, þegar 10-15 hestamenn í hópferð gistu. Nú streymir manpfjöldi daglega inn í Staðarskála. Áning- arstaður landpóstanna hefur þan- ist út. Söluskúr frá 1954, seldi bensín og smávarning, - breyttist í 120 fermetra veitingabúð 1960, - í 600 fermetra veitingasal 1971. Nú biðja flestir um hraðrétti (allir að flýta sér) af matseðli eða panta með fyrirvara og fá dúkað borð. Staður, áður í dagleiða ijarlægð frá höfuðborg, nú 2-3 tíma akst- ursleið og færist enn nær, ef Hvalfjarðargöng verða byggð. SJÁNÆSTU SÍÐU íUúnivæUi sýshmnar. $

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.