Lesbók Morgunblaðsins - 06.07.1991, Page 16
Jeep Wrangler
sportbíll fyrir
íslenzkar aðstæður
Heimsstyrjöldin síðari olli miklum breytingum á
högum okkar íslendinga. Nýjungar af öllu
tagi flæddu inní landið. Eitt af því, sem banda-
ríski herinn flutti með sér hingað til lands,
var fjöldinn allur af litlum snaggaralegum
Fimmtugur og aldrei
frískari, segja þeir hjá
Jöfri hf. á
Nýbýlaveginum í
Kópavogi um jeppann
góða. Þetta má til sanns
vegar færa því jeppinn
er orðinn fimmtugur og
sprækur er hann.
bílum með drifi á öllum hjólum, sem þeir
kölluðu jeep. Orðið jeep mun vera stytting
á „General Purpose Vehicle“ eða G.P. og á
íslensku fékk þetta farartæki fljótlega nafn-
ið jeppi. Að stríðinu loknu og jafnvel fyrr
fóru þessi farartæki að koma á markaðinn,
allir vildu eignast jeppa. Það voru ekki síst
bændur, sem sáu þarna arftaka þarfasta
þjónsins og varð jeppinn brátt eitt algeng-
asta farartækið á landinu. Nú skunduðu
bændasynir fyrirhafnarlítið á sveitaböll eða
í heimsókn í sveitina, þar sem gjafvaxta
heimasætur tóku á móti þessum vegavíking-
um. Flestir jeppanna voru með blæju, sem
ekki var nógu gott í norðanhríðinni. Menn
hófu þá fljótlega að smíða á þá tréhús, sem
mörg hver voru æði skrautleg.
Jeep Wrangler: Rúmur og aðgengilegur að framan, en að hætti sportbíla er aftur-
sætið nánast aðeins fyrir börn og sé það skipað, verður næsta lítið farangurs-
rými. A myndunum má sjá hina voldugu veltigrind.
Smáatriði sem lýtirgóðan grip: Pjáturs-
leg stefnuljós standa út úr brettunum
og verða fyrir vikið viðkvæm fyrir
hnjaski.
Á framendanum er að mestu haldið
gömlu svipmóti og ennþá er vélar-
hlifinni læst með klassískum krækjum.
Sem strákur í sveit um og uppúr 1960
upplifði ég að sjá þessi farartæki í allri sinni
dýrð. Mér er minnisstætt að jeppinn á
mínum bæ þótti verulega góður til ballferða
í næstu firði vegna þess að hann var lengri
en þeir venjuiegu. Þetta var nefnilega vél-
byssujeppi og mátti sjá undir gólfinu fyrir
aftan framsætin sterklega undirstöðu fyrir
þetta vopn. Nei, þeir Jarpur og Skjóni stóðu
í túnfætinum, hnakkarnir úti í geymslu og
Ellý Vilhjálms söng: „og í jeppa oft vil
skreppa".
Mikið Breytt Og Bætt
Síðan þetta var eru nú liðin allmörg ár og
jeppinn eini sanni hefur tekið sínum breyting-
um og fengið samkeppni frá mörgum bíla-
framleiðendum. Undirritaður eignaðist nýjan
Jeppinn hefur verið meðal hinna þörfustu þjóna í næstum hálfa öld, en tekið smá
breytingum. Hann er aðeins lengri og breiðari en áður var og línurnar hafa
verið mýktar í samræmi við tíðarandann.
jeppa eða Jeep seint á áttunda áratugnum
þannig að ég hef pokkra viðmiðun hvernig
til hefur tekist síðan, þegar sá nýjasti verður
tekinn til kostanna.
Þegar sest er undir stýri á Jeep Wrangler
árgerð 1991 sést strax að miklu hefur verið
breytt og margt lagfært á þeim 13 árum, sem
skilja að minn gamla og þennan, svo ekki sé
nú minnst á vélbyssujeppann. Maður situr
hátt og hefur gott útsýni, framsætin eru bóls-
truð sportsæti, sem gefa góðan stuðning við
bak og til hliðar. Stýrið er leðurklætt, sem
gefur gott og öruggt grip og er hægt að
stilla hailann á fimm vegu. Gamli stóri mælir-
inn í miðju mælaborði er horfinn og í staðinn
er komið öllu venjulegra mælaborð. Sitt hvoru
megin við stýrissúluna eru hraða- og snún-
ingshraðamælar og til hliðar eru síðan mælar
fyrir kælivatnshita, bensín, smurolíuþrýsting,
volt og klukka. Milli framsætanna er stórt
læsanlegt geymsiuhólf og gróf fyrir gosflösk-
ur og brauðsamloku eða eitthvað álíka. Al-
mennt má segja að umhverfi ökumanns sé
þægilegt og spennandi.
Veltigrindin hefur verið stórbætt. Hún er
ekki einungis klædd á skemmtilegan hátt,
heldur hefur verið bætt við hana sverum póst-
um, sem ganga yfir dyraop og tengjast efri
hornum framglugga. Það er til dæmis ágætt
fyrir farþega í framsæti að grípa um póstinn
þegar ekið er um vegleysur. Aftursætið er
tveggja manna og frekar lítið, þó er ágætt
olnbogarými til hliðanna yfir afturbrettunum.
Til að komast í aftursætið er hægra fram-
sæti fellt fram í heilu lagi og myndast þann-
ig ágætis aðgengi afturí. Fyrir aftan aftur-
sætið er síðan farangursgeymsla en ekki er
hún nú stór. Auðveit er að auka farangurs-
rýmið með því að fella fram aftursætið eða
hreinlega kippa því úr en með_ því myndast
1500 lítra rými fyrir farangur. A afturrúðuna
er nú komin vinnukona með sprautu sem
ágæt viðbót og þar fyrir aftan sér í varadekk-
ið. Þægilegt er að komast að farangursrými
og. er ekkert mál að opna afturendann frá
gólfi og uppí þak.
NÝ Og Kraftmikil VÉL
Og þá er að renna af stað. Vélin í þessum
bíl er 4,0 lítrar, 180 hestöfl eða 131 kílówatt
og er þetta fyrsta árið sem þessi aflmikla vél
er sett í Jeep Wrangler. Það er óhætt að
segja að bíllinn er geysilega sprækur og ég
skil það vel að framleiðendur hans hafi verið
nokkuð hikandi við að senda hann frá sér
svona aílmikinn. Gírskipting er lipur og fimm
gíra kassinn er mikil breyting frá gamia
þriggja -gíra kassanum. Ekkert mál er að
renna honum í framdrifið á ferð með léttu
handtaki. í gamla daga þurfti að stoppa og
grípa báðum höndum um stöngina og rykkja
fram og þá var hann kominn í drifið, það er
að segja ef framdrifslokurnar voru á. I þess-
um jeppa eru þær óþarfar, nútímatækni hefur
einnig komið hér við sögu með sjálfvirkar
driflokur. Akstur þessa jeppa er að flestu
leyti mjög skemmtilegur. Hann er með meiri
sporvídd en áður auk þess sem sver og sterk-
leg jafnvægisstöng að framan eykur stöðug-
leikann. Snúningsradíus er ekki nema 10
metrar þannig að maður snýr honum nánast
á punktinum. I innanbæjarakstri er þessi jeppi
mjög skemmtilegur, þægilegur að skjótast
um þröngar götur, leggja honum við erfiðar
aðstæður, auk þess vekur hann talsverða at-
hygli. Nokkuð veg- og vélarhijóð berst inn
og kunni ég því ekki illa. Ég átti von á að
sterklegar blaðíjaðrirnar festar á svera grind-
ina myndu gera jeppann talsvert hastan en
svo var ekki. Hér hafa framleiðendur þrætt
ágætan milliveg.
Hvað varðar akstur við erfið skilyrði eins
og í snjó og ófærð þá er það þekkt stærð að
þar hefur Jeep verið í fararbroddi frá byijun.
Nýjasta afrekið er okkur í fersku minni þeg-
ar stóri bróðir seiglaðist uppá Hvannadals-
hnjúk. Það er ekki hægt að lýsa akstri þessa
bíls án þess að minnast á að í hálku er eins
gott að fara varlega. Þessi jeppi er frekar
stuttur og breiður þannig að hraðakstur í
hálku er bannaður. Það er minnt á það skýr-
um stöfum inni í bílnum að menn skulu hafa
sætisbeltin spennt, alltaf.
Fimmtugir Strákar
Útlit Jeep Wrangler má segja að sé sígilt.
Rimlarnir sex fyrir framan vatnskassann setja
sterkan svip á jeppann svo og hjólaumbúnað-
ar og vélarhlífin með sínum gömlu festingum.
Eitt er það sem. ég sætti mig ekki alveg við.
Fremst á frambrettunum eru komin stefnu-
ljós, sem mér finnst allklossuð og framstæð.
Verð á Jeep Wrangler er um 1.700.000. -
Innifalinn er flestur sá búnaður, sem prýða
þarf þennan jeppa þannig að litlu er hægt
að bæta við. Þegar nágranninn hafði skoðað
bílinn og fengið uppgefið verðið var svarið:
„Nú, ekki meira?“ Mér lék nokkur forvitni á
að vita hver væri kaupendahópur þessa jeppa
og sagði sölustjórinn hópinn vera á öllum
aldri en strákar milii fertugs og fimmtugs
væru þó áhugasamastir. Á.A.R.