Lesbók Morgunblaðsins - 19.10.1991, Side 7
Tillaga Kristins Hrafssonar. Umsögn dómnefndar: „Tillagan er samsett iir litsterk-
um formum og er rennsli vatns kveikjan að hugmynd verksins. Verkið nýtir sér
rýmismöguleika veggjar en virkar nokkuð ofhlaðin í þessu umhverfi. Tillagan
er vel og fallega unnin. ’’
Tillaga Daníels Magnús-
sonar. Umsðgn dómnefnd-
ar: „Litir í verkinu falla vel
að salnum. Þetta er sérstæð
tillaga ogfallega fram sett.
Hringfletirnir verka hins
vegar stífir íferhyrndri
uppröðun og fyrirferð
verksins nokkuð mikil á
veggnum.
Önnur tillaga Níelsar Haf-
stein: Umsögn dómnefnd-
ar: „Allsérstæð tillaga
byggð á þekkri hugmynda-
fræði. Formrænt séð og
sem táknmynd er tillagan
ekki áhugaverð. ”
að ég hugsaði um hvað það er að stjóma
borg, og fannst sem það væri eins og að
semja tónverk, sem aldrei lyki”.
Um verk sitt úr járni, ryðfríu stáli, tré
og kopar, segir Kristinn Hrafnsson svo:
„Það má með nokkurri vissu segja að
virkjun vatns og almenn nýting þess fyrr
á öldinni hafi skapað forsendur fyrir því
borgarsamfélagi sem við þekkjum í dag.
Því var það ekki aðeins staðsetningarinnar
vegna sem hugmynd um um vatn var við-
eigandi við hönnun ráðhúss í Reykjavík.
Hugmyndin er gegnumgangandi í arki-
tektúr hússins og tengsl þess við tjörnina
augljós. Rennsli vatns milli húsanna í litlum
læk undirstrikar þessi tengsl enn frekar
og var þetta rennsli kveikjan að hugmynd
minni um „BRUNNA” Samspil hússins við
vatnið, borgina umhverfis, borgarana sem
leið eiga um það og þá starfsemi sem í því
fer fram, myndar hringrás svipaða eilífri
hringrás vatnsins sjálfs.”
Um aðra af tveimur tillögum sínum seg-
ir Sigurður Örlygsson svo:
„Eg setti mér að gera eins stóra mynd
og salurinn þyldi, án þess þó að stærðin
yrði yfirþyrmandi... Aðallitur myndarinnar
er blár, þannig tengist myndin salnum enn
frekar. Bogar og sporöskjur eru einkenn-
a^ndi fyrir ráðhúsið og ég hef tekið mið af
því við gerð verksins. Með þessu er enn ít-
rekað að verkið verði ótjúfanlega tengt við
húsið, rímaði við sjálfa bygginguna...
í myndinni koma fyrir 4 upphaflegu
frumefnin, jörð, loft, vatn og eldur. Við
sjáum sjóinn/vatnið. Sjórinn tengir okkur
út í næsta umhverfi og ráðhúsið er byggt
út í vatn...
Upp úr sjónum standa tvær súlur. Efst
á þeim sitja brjóstmyndir af tveimur mönn-
um. Þeir eru ekki eins, en hallast hvor að
öðrum. Vel má hpgsa sér að þarna séu full-
trúar ýmissa andstæðna í mannlífinu. Á bak
við þá er landið og uppi á ströndinni stend-
ur stigi, tákn uppbyggingar og víðsýni, eða
er þetta bara metorðastigi? Þarna hanga
keilur á svífandi kaðli. í þeim brennur eld-
TiIIaga Þoryaldar Þorsteinssonar. Umsögn dómnefndar: „TiIIagan er bæði
skemmtileg og hnitmiðuð. Verkið nær þó ekki nægilega góðri samsvörun við
umhverfið. Tillagan er vel unnin og einföld.”
TiIIaga þeirra Erlu Þórarinsdóttur og Guðrúnar Erlu Geirsdóttur um tjöld í Tjarn-
arsal. Umsögn dómnefndar: „Sérstæð og athyglisverð tillaga. Myndmálið byggist
á einföldum táknum sem raðað er á dimmbláan flöt. Myndbyggingin er óljós svo
og uppruni tákna. Tjöld í stigaopum eru vel leyst en ólík salartjöldum. Tæknileg
lausn á upphengingu Ijalda er áhugaverð. Tillagan er sérstaklega vel unnin og
fram sett. Mat dómnefndar er að tillagan verðskuldi viðurkenningu. ”
Tillögur Ingibjargar Styrgerðar
Haraldsdóttur um Ijöld við Tjarnarsal.
Á myndinni þar sem tillagan er inn-
felld í módel, sést bæði hvernig tjöldin
koma ístigaop (að ofan) ogsem skilrúm
á milli Tjarnarsalar og gönguáss. Um-
sögn dómnefndar: „í tillögu 1 samræm-
ast láréttar áherzlur vel jarðhæð húss-
ins. Geómetrískt munstrið er hins vegar
stíft. Tjöld í stigaopum eru vel leyst.
TiIIaga 2 býr yfir kyrrð og dýpt. Þetta
eru vandaðar tillögur og vel unnar.
Mat dómnefndar er að tillögurnar verð-
skuldi viðurkenningu.”
ur. Hægra megin í myndinni stendur gam-
alt barnaleikfang upp úr sjónum. Ef ýtt er
á hnappinn, tognar á böndunum sem halda
mannverunni og steypir hún sér þá koll-
hnís. Hver ýtir á hnappinn? Ef til vill er
þetta tónkvísl, sem gefur hinn eina sanna
tón..”
Um verk sitt „Náttúru”, segir Daníel
Magnússon svo m.a.:
„Verkið á að túlka hreyfingu vatnsyfir-
borðs sem vatnsdropi hefur fallið á.
Það sýnir hvernig fyrsta gáran myndast
og síðan hvernig hún stækkar og færist
nær jaðri flatarins þangað til að nýr öldu-
toppur hefur myndast. Staðsetningyerksins
á veggnum er ekki hugsuð sem endanleg,
það má reikna með frávikum að einhveiju
leyti. Verkið er hugsað sem óður til
náttúruaflanna, og má líta á sem minnis-
varða um þann hluta tjarnarinnar sem fór
undir ráðhúsið.”
Tillaga Þorvaldar Þorsteinssonar gerir
ráð fyrir bókum á miðjum vegg; þær eiga
að vera heilbundnar í ljóst geitarskinn og
hilla undir úr ljósu beyki. Sinn hvorum
megin við bækurnar eru stórir svigar úr
íslenzku blágrýti. Þetta er eirtt og verk
Daníels, mjög á nótum hugmyndalistarinn-
ar og í greinargerð segir m.a. svo:
„Grunnform verksins, tveir svigar og
bandstrik, eru sótt í algengar leturgerðir.
Afstaða þeirra innbyrðis tekur mið af þeirri
afstöðu sem er á milli sviga og bandstriks
þegar verið er að gera grein fyrir tímabilum
með notkun fjögurra stafa ártala, sbr.
Kolbeinn Tumason (1172-1208)
Móðuharðindin (1784-1785)
Sigurður Sigurðsson (1949- )
...Bandstrikið er brúin á milli tiltekins upp-
hafs og endis og er fyrir vikið tákn þess
sem ártölin afmarka, þess sem er forsenda
þeirra... Blágrýtissvigarnir mynda um-
gjörð verksins. Sveigja þeirra gefur eyju-
formið til kynna og áferð þeirra endurspegl-
ar þann hijúfleika og fínleika, þá hörku
pg mýkt sem er svo samtvinnuð í náttúru
íslands og íslendinga...”
Níels Hafstein hefur m. a. þetta að segja
um tillögu sína, Hnykil 55555:
„Fyrir höfundi vakir að leggja fram til-
lögu sem tengist ríkum þætti í skapgerð
og vitund íslendinga, - viljanum til að ríkja
yfir náttúruöflunum sem ógna tilveru
þeirra.
Miðgarðsormurinn var í ásatrúnni tákn
hins illa, sem hringaði sig um heiminn fal-
inn í vötnunum; ógnin og skelfingin sem
beið færis, óáþreyfanleg eins og gamli drek-
inn í Kaos. Til þess að vinna bug á þessum
illvilja, ringulreið og stjórnleysi í sálar-
skarninu, þá varð að hrekja hann á braut,
rekja þráðinn upp til enda og öðlast frið.
Það skal tekið fram að lokum, að tillög-
urnar verða á næstunni til sýnis á Kjarvals-
stöðum.
Gísli Sigurðsson.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 19. OKTÓBER 1991 7