Lesbók Morgunblaðsins - 08.05.1993, Síða 5
Áætlaður fjöldi hrygna í miUjónum 1955-1991 og samsvar-
andi fjöldi 3 ára nýliða á hrygnu miðað við heildarstofn og
heildamýliðun. Túlkist með varúð sbr. texta.
Ástand þorskstofns á íslandsmiðum 1955-1991/92 - fjöldi við 3 ára aldur í milljónum; stærð hrygn-
ingar- og veiðistofns (4 ára og eldri) í þúsundum tonna; og afli í þúsundum tonna. Hrygningargöng-
ur frá Grænlandi - árgangar - eru einnig auðkenndar. Athygli vekur að 3 ára nýliðar 1986 og
1987 (árgangar 1983 og 1984) skiluðu sér ekki sem skyldi í hrygningar- og veiðistofni og síðan
afla nokkrum árum síðar, heldur nær strax í afla 1986-1988. Bendir það til þess að fiskurinn hafi
ekki vaxið og dafnað fram að hrygningu í sama mæli og áður.
Yfirlitsmynd af veiðistofni þorsks, góðri nýliðun miðað við árgang (+), og árferði á íslandsmiðum 1960-1992. Hámörk
hrygningarstofns eru einnig sýnd ( ).
Fjöldi þorska við 3 ára aldur (nýliðun) sem fall af fjölda hrygna á klakárinu í
milljónum (eða stærð hrygningarstofns) og samsvarandi fjölda nýliða á hrygnu
miðað við heildarstofn og heildarnýliðun.
A) Nauðsyn á mörgum nýliðum á hrygnu til að fá mikla heildarnýliðun eykst
hratt með minnkandi stofni ; eða með minnkandi stofni þarf stöðugt fleiri og
fleiri nýliða á hrygnu til að ná góðum árangri. B) Eitt hólf eða takmarkaður
fjöldi hrygna getur skilað af sér góðri nýliðun og mörg hólf eða hópar (og þá
stór stofn) þá hver um sig einnig sem eykur möguleika á góðri nýliðun (match/
mismatch).
Tafla 1 sýnir að 20-22 örugg góðæri í sjó
fyrir Norðurlandi árin 1952-1991 gáfu góða
nýliðun eða sterkan árgang í 9 skipti (50%),
en 14 örugg harðæri gáfu vonda nýliðun eða
veikan árgang í 13 skipti (nær alltaf). Eina
undantekningin er árið 1983 en þá varð mjög
góð nýliðun þrátt fyrir „vont“ árferði, sem
reyndar lauk um haustið og varð „gott“ allan
næsta vetur, árferði sem hélst meira eða
minna út árið 1987. Árferðið á norðurmiðum
fyrsta veturinn og næsta vor í lífi fiskseið-
anna kann e.t.v. að skipta sköpum í þessu
efni. „Vond“ ár en þó betri en næsta ár á
undan á tímabilinu 1965-1991 eru 4 og gáfu
3 góða nýliðun (sterka árganga 1966, 1970,
1976). Árið 1991 kemur á óvart í þessu við-
horfi, því að eftir lélega nýliðun margra ára
(árgangar 1985-1990) hefði góðærið 1991
að loknu 3 ára harðæri væntanlega átt að
skila sér í góðri nýliðun þorsks, þess sjást
þó engin merki. Er hér að fmna merki þess
að hrygningin sjálf hafí misfarist hvort sem
litlum hrygningarstofni eða einhverju öðru
verði um kennt?
í góðu árferði virðist þannig oft að nýliðun
verði einnig góð (yfir meðallagi) a.m.k. fram-
anaf, en ekki nauðsynlega alltaf, og veiði-
stofninn vex ár frá ári næstu ár á eftir (2.
mynd). í vondu árferði reynist nýliðun al-
mennt léleg (undir meðallagi) og stofninn fer
minnkandi, það eyðist sem af er tekið þegar
lítið kemur í staðinn. Að loknu tímabili með
vondu árferði er stofninn í lágmarki en í
upphafi góðs árferðis fær nýliðun á nýjan
leik tækifæri til aukningar. Lífið er dulið -
latent - og grípur tækifærið þegar gefur. í
þessu samhengi er e.t.v. að leita skýringa á
því áliti að lítill stofn gefí af sér góða nýliðun
og öfugt. Það er árferðið og breytileiki þess
og samspil við stærð og samsetningu stofns-
ins sem ræður ferðinni.
í töflunni hér að framan var árferði metið
eftir vorgögnum, en einnig liggja fyrir athug-
anir á ástandi sjávar á miðunum við ísland
frá öðrum árstímum - ágúst, október-nóvemb-
er, febrúar. Nánari könnun á öllum þessum
gögnum frá 1974-1991 liggurfyrir. Felst hún
í mati á hlutfallslegum styrk hlýsjávar (hiti
hærri en 3°, selta hærri en 34.90) á norðurm-
iðum niður á 300 m dýpi (Svend-Aage Malm-
berg og Stefán S. Kristmannsson 1992). Þetta
mat hefur síðar verið sameinað fyrir allar
athuganir frá vori hvert árið fyrir sig til vetr-
ar hið næsta (Stefán S. Kristmannsson). Nið-
urstöður sýna hlutfallslegan styrk Atlants-
sjávar yfir meðaltali fyrir eftirfarandi ár (rað-
að eftir minnkandi styrk hlýsjávar):
1985, 1984, 1980, 1974, 1990, 1986, 1983,
1987, 1991 (',heitu tímabilin" 1972-1974,
1980, 1983/84-1987, 1990/91)
og undir meðaltali árin (aftur raðað eftir
minnkandi styrk hlýsjávar)
1989, 1988, 1978, 1979, 1976, 1981, 1975,
1982, 1977 ( „köldu tímabilin" 1975-1979,
1981-1982/83, 1988-1989/90).
Allt er þetta í nokkuð góðu samræmi við
matið frá vorleiðangri einum með sömu at-
hugasemdum varðandi nýliðun og áður um
mörg „góð“ ár í röð (1972-1974 og 1983/84-
1987) og einstök „betri" eða „góð“ ár innan
um „vond“ ár (1976, 1980).
Nýliðun 3 ára þorsks (miðað við árgang)
á þessu tímabili (1974-1991) var eins og áður
sagði aðeins mjög góð 1983 og 1984, í meðal-
lagi eða rétt ofan við meðallag 1975, 1976
og 1980, en öll önnur ár undir meðallagi bæði
í vondu og góðu árferði. Hrygningastofn hafði
á tímabilinu sigið úr 300-400 þúsund tonnum
í 200-300 þúsund tonn, en í góðærinu fyrir
1960 var hann yfir ein milljón tonn. Er léleg
nýliðun árganganna 1985-1991 í bæði mjög
góðu árferði og vondu fólgin í litlum hrygn-
ingastofni? Það er ekki nema von að spurt sé
í mikilli alvöru.
Fjöldi nýliða á hrygnu
Lítum nú á fjölda 3 ára nýliða á hveija
einstaka hrygnu á klakárinu í stað þess að
líta á heildina. Samkvæmt fyrirliggjandi
gögnum virðist við fyrstu sýn sem nýliðum á
hrygnu fjölgi yfirleitt eftir því sem hrygnurn-
ar eru færri (3. mynd). í raun er ekkert vitað
um hve margar hi-ygnur skili árangri hveiju
sinni svo flöldi nýliða á hrygnu er villandi
stærð. Væntanlega skilar aðeins hluti þeirra
árangri og þá því fleiri nýliðum hvort sem
þær eru færri eða hlutinn minni. Fjöldi hrygna
endurspeglar að sjálfsögðu stærð hrygningar-
stofnsins, sem var tæp 1400 þúsund tonn
1955 en er á síðustu missirum 200-300 þús-
und tonn. Ef meðalþyngd hverrar hrygnu er
áætluð 5 kg, sem er reyndar mjög gróft
mat, en talið gilt í þessu einfalda dæmi, þá
samsvarar það u.þ.b. 140 og 20 milljón hrygn-
um. Árleg heildarnýliðun íslenska þorsk-
stofnsins er á bilinu 100 til 400 milljón 3
ára fiskar eða 1 til 20 nýliðar á hrygnu í
heild eftir atvikum. Að öllu jöfnu er talan
þó í kringum 5.
Frekari íhugun getur svo e.t.v. leitt hug-
ann að kenningum um ágæti stórra stofna
sem hrygna vítt og breytt í lengri tíma
(match/mismatch) og einnig hvort gamlar
hrygnur skili betri afkomu en ungar. Verð-
ur að því vikið hér á eftir. í öllu þessu
sambandi skal tekið fram að í engu er hér
frekar en í öðru enn fullyrt um stóran og
lítinn hrygningarstofn í heild sem gefur
af sér mikla og/eða litla heildarnýliðun.
Víðátta miðanna
Stór hrygningarstofn sem hrygnir á
stóru svæði í langan tíma tryggir þannig
e.t.v. að einhver hluti hrygningar hitti vel
á ytri skilyrði án þess að öll hrygningin
þurfí að gera svo. Þessi ákveðni hluti skil-
ar sér svo i öruggri nýliðun en annað fer
jafnvel forgörðum. íslandsmið hafa sýnt
sig að fóstra 100 til 400 milljónir nýliða
árlega sem þannig geta verið árangur af
hrygningu tiltölulega fárra hrygna í stórum
stofni alveg eins og lítill hrygningarstofn með
þá fáum hrygnum getur gefið af sér þessa
sömu nýliðun (4. mynd). Hagstæð skilyrði á
miðum ráða þannig úrslitum um fjölda nýliða
og ekki fjöldi hrygna nema þá, svo að það
sé endurtekið, aukinn möguleiki fyrir góðri
nýliðun með stórum stofni sem hrygnir vítt
og breytt í tíma og rúmi. Eftir sem áður er
það væntanlega aðeins hluti hrygningastofns
sem hittir á hagstæð skilyrði.
Nýliðun þorsks á mun víðáttumeiri miðum
en íslandsmiðum eins og við Noreg, Græn-
land og Nýfundnaland gaf þegar best lét með
ytri aðstæður í sjónum einnig mun meiri nýlið-
un en þorskur við ísland eða allt að 1500
milljónir 3 ára físka. Þessar tölur hafa svo,
í stöðugri ofveiði miðað við ástand stofna og
versnandi árferði H miðunum og með minnk-
andi lendum, hrapað niður í 100-200 millj.
nýliða.
Sveiflur í árgangastærð -
gamlar hrygnur eða árferði?
Þegar horft er sérstaklega til ástands ís-
lenska þorskstofnsins 1960-1990 virðist mega
lesa úr stofnstærð hans u.þ.b. 8-12 ára sveiflu
(1. og 2. mynd). Góð nýliðun árganganna
1960-1964, 1970-1973 og 1983-1984 og
einnig göngur frá Grænlandi stuðlaði að há-
marki í veiðistofni, að vísu minnkandi há-
marki, árin 1968, 1980 og 1988, en lágmark
veiðistofns, lágmark sem einnig fór minnk-
andi, var 1964, 1973 og 1983. Er í þessu
fólgin einhver vísbending um að u.þ.b. 10 ára
gamlar hrygnur úr sterkum árgöngum skili
aftur bestum árangri í nýliðun, eða felst í
þessu vísbending um áhrif frá sveiflum í ár-
ferði - gott 1960-1964, batnandi 1970-1973
eftir hafísár 1965-1970, og batnandi 1980
og 1983-1984 eftir köld ár 1975-1979 og
1981-1983. Sólblettir hafa einnig verið nefnd-
ir í þessu sambandi (Gunnar Böðvarsson og
Jón Jónsson 1961). Ef dæmið gengur eftir,
hvort sem ræður 10 ára fískur eða árferði,
ættu 1983/1984 árgangar eða batnandi ár-
ferði 1991-1992 eftir vont árferði 1988-1990
að skila sér í bættri nýliðun og vaxandi veiði-
stofni á næstu árum. Þess sjást þó enn engin
merki hvað varðar 1991/1992 árgangana.
Er ef til vill komið að skuldadögum á mið-
unum við landið eins og áður með kjarrskóg-
ana á landi.
Síðari grein birtist í næstu Lesbók.
Höfundur er haffræðingur.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 8.MAÍ1993 5