Lesbók Morgunblaðsins - 28.09.1996, Síða 8
Stokkhólmur veróur menningarborg Evrópu 1998
og Svíar vonast til aó fó Olympíuleikana 2004.1
tilefni bessa ó heldur betur aó taka til ó hlaóinu. A
döfinni er aó þétta mióborging og byggja þar stóra
hluta aó nýju en þar aó auki veglegt nútímalista-
safn sem ó aó vera ein gf skrautfjöórum borgarinnar.
EFTIR GÍSLA SIGURÐSSON
Að áliti sumra þeirra sem
gerst þekkja til evrópskra
borga, getur Stokkhólm-
ur talizt í flokki þeirra
fimm borga sem menn
vilja telja hinar fegurstu
í álfunni. Þær sem auk
Stokkhólms eru gjarnan
nefndar í þessum gæðaflokki eru París,
Barcelona, Prag og Budapest. Allt er það
að sjálfsögðu smekksatriði. Fyrir Stokkhólm
er sjálft borgarstæðið þungt á metunum;
eyjar og sund eru hrífandi umhverfi, en jafn-
framt afar dýrt borgarstæði. Glæsibygging-
ar frá fyrri öldum einkenna allar þessar
borgir og þar er Stokkhólmur ekki undan
skilinn. Talað er um stórveldistíma Svía á
17. öld þó ekki yrðu þeir stórveldi á heims-
vísu.
Frá þessum tíma, en einnig frá 19. öld-
inni og frá fyrriparti þessarar aldar eru
ýmsar þær stórbyggingar í Stokkhólmi sem
sæma höfuðborg. Þar ber ráðhús borgarinn-
ar hæst eins og vera ber, stórfenglegt hús
með klassísku yfirbragði og þó ekki byggt
fyrr en á þessari öld. Hér
munar mest um það sem alveg
vantar á ráðhúsið í Reykjavík;
nefnilega turninn.
í allri uppbyggingu hafa
borgarfeður í Stokkhólmi far-
ið eftir hinni hefðbundnu evr-
ópsku formúlu: Opinberar lyk-
ilbyggingar standa einar sér,
en þar fyrir utan er borgin
byggð þétt. Það sem útúr
stendur fyrir utan Ráðhúsið
er að sjálfsögðu Konungshöllin, byggð í ít-
ölskum endurreisnarstíl, Þinghúsið, Þjóð-
minjasafnið, Óperan, Katrínarkirkjan og
ýmsar aðrar minna kunnar byggingar, þar
á meðal íþrótta- og sýningarhúsið Globen.
Stokkhólmur er borg samkvæmt þeirri
skilgreiningu, að götuhliðarnar eigi að vera
samfelldar; húsin alveg sambyggð og 6-8
hæðir. Sé farið að byggja einstök hús á lóð-
um með sundum á milli, séu menn ekki leng-
ur að byggja borg. Það séu bæir eða út-
hverfi, segja vísir menn um þessi fræði.
Eftir þeirri skilgreiningu örlar varla nokk-
ursstaðar fyrir því að Reykjavík sé byggð
eins og borg. Ekki frekar en Þórshöfn í
Færeyjum eða Þórshöfn á Langanesi.
Stokkhólmur er raunar meira en borg;
hún er stórborg, því þar búa um milljón
manns. Þegar menn meta hana og vega,
er Kaupmannahöfn gjarnan tekin til sam-
anburðar, önnur milljónaborg. Um 1960 var
tvímælalaust meiri glæsibragur á Kaup-
mannahöfn. Hann hefur látið mikið á sjá,
en Stokkhólmur hefur sótt í sig veðrið. I
miðhluta Stokkhólms, við Hötorgið, á Serg-
elstorgi, Sveavegi og Drottningargötu er
iðandi og margbreytilegt stórborgarlíf. Og
nú skal enn taka til hendinni.
Nú stendur mikiö til
Þessar hugleiðingar hafa orðið til eftir að
setin var ráðstefnan Nordisk Byggdag síðla
ágústmánaðar í Stokkhólmi. Þessi ráðstefna
felst eiginlega í því að hóa saman á þriggja
ára fresti Norðurlandamönnum sem tengjast
byggingum. Það geta verið arkitektar,
skipulagsstjórar, byggingameistarar eða
menn úr stjórnkerfinu. Nokkrum sinnum
hefur Norræni byggingadagurinn frarið
fram á íslandi og nú stendur til að næst
verði komið saman hér sumarið 1999. Þor-
valdur S. Þorvaldsson, skipulagsstjóri
Reykjavíkur mun hafa veg og vanda af
þeim undirbúningi, en það gætu hæglega
orðið 1000 manns, sem leggðu leið sína til
íslands af þessu tilefni.
Það voru um 700 manns sem mættu í
Stokkhólmi og hlíddu á fyrirlestra og sáu
margt af því sem nú er á döfinni hjá Svíum.
Það stendur mikið til og Svíar sem frægir
eru fyrir sín “problem", sýndu að þeir hugsa
þó nokkra leiki fram í tímann. Kannski er
það dæmigert fyrir breyttan hugsunarhátt,
að ráðstefnan fór fram undir yfirskriftinni
“Marknadsplads Stockholm" - Markaðstorg-
ið Stokkhólmur.
Áætlanir Svía eru stórar í sniðum. í fyrsta
lagi þarf að byggja og bæta vegna þess að
Stokkhólmur verður menningarborg Evrópu
1998. í annan stað hefur Stokkhólmur
ásamt 11 öðrum borgum sótt um Olympíu-
leikana árið 2004. Það kostar nýjan leik-
vang, Olympíuþorp og fjölda annarra bygg-
inga. Svo sannfærðir virðast Svíar vera um
að þeir fái hnossið, að nú þeg-
ar hefur farið fram samkeppni
um Olympíuleikvanginn, sem
á þá að rísa á hæsta höfðanum
í eyjaklasanum næst miðborg-
inni.
Stórtækasta framtíðarmús-
íkin verður Hammarby Sjö-
stad. Það verður Olympíustað-
urinn, en hvort sem Svíar
krækja í Olympíuleika fyrr eða
síðar, á að rísa þar vistvænt
bæjarhverfí, sem verður alveg í sérflokki
hvað varðar orkunýtingu, frárennsli og ann-
að slíkt. Þetta verður 15 þúsund manna
hverfí sem Svíar staðhæfa að verði eins vist-
vænt og framast má verða. Það er ljóst að
þegar endanleg ákvörðun verður tekin um
stað fyrir Olympíuleika í byijun næsta árs,
verða ekki nema liðlega 6 ár til stefnu. Þá
er orðið of seint að hefja skipulagningu.
Þessvegna ætla Svíar að standa klárir að
þessu ef þeir hreppa hnossið. Hugmyndin
um Olympíuleikvanginn sem varð fyrir val-
inu er bæði frumleg og falleg og ekki hefur
það þótt verra að á bak við hana standa
tveir sænskir arkitektar, Svante Berg og
Gert Wingárdh. Ein af stórstjörnunum úr
heimi alþjóðlegs arkitektúrs, Spánveijinn
Calatrava, fékk önnur verðlaun.
Nýtt nútimalistasafn
Höfuðborgir verða að eiga sínar skrautfjaðr-
ir og flestar reyna það. Perlan og Ráðhúsið
eru þesskonar skrautfjaðrir hér og yfirleitt
eru ráðhús í þessu hlutverki. Þannig er það
til dæmis bæði í Kaupmannahöfn, Osló og
Stokkhólmi. Byggingar yfir listir, óperuhús,
leikhús og listasöfn, eru annað sem menn-
ingarlega sinnaðar höfuðborgir gera vel við.
' Það er vel þekkt staðreynd að Moderna
Museet - Nútímalistasafnið - í Stokkhólmi,
sem stofnsett var 1958, er afar gott safn.
Það hefur verið til húsa í gamalli byggingu
á Skepsholmen. Nú er safnið annarstaðar
til bráðabirgða og þessa dagana var m.a.
til sýnis það sem safnið á eftir Norðurlanda-
málara frá árunum 1910-1930; þar á meðal
var málverk af íslenzkum torfbæ eftir Gunn-
laug Blöndal og virtust sýningargestir hug-
fangnir af henni.
BÖRN síns tíma: Skrifstofublokkir við Sveavagen frá um 1960 áttu að gera Stokkhólm stór-
borgarlega, en þóttu síðar svo Ijótar að rætt var um að rífa þær. Þær eiga nú að standa.
LIFANDI miðborg: Á Hötorginu eru ýmist ávaxta- eða flóamarkaðir. í baksýn er Filmstden
Sergel, kvikmyndamiðstöð sem dregur að 4000 manns á dag.
OLYMPÍULEIKVANGUR fyrir Ol.árið 2004. Þessi tillaga sænskra arkitekta varð ofaná í sam-
keppni, en ekki hefur verið ákveðið hvaða borg fær Olympíuleikana þetta ár.
NÝJA Nútímalistasafnið sem Spánverjinn Rafael Moneo hefur teiknað, er í byggingu á Skepr
BYGGT OG BREY
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 28. SEPTEMBER 1996