Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1996, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1996, Blaðsíða 7
ÚR FYRSTU myndinni sem gerð var eftir leikriti Schakespears árið 1908. Hér er dauði Mercutio sviðssetttur i Rómeó og Júlíu. KENNETH Branagh er hvorki glæsimenni né mikill að vallarsýn. Hann hefur orðið að komast áfram á leikhæfileikunum einum enda varla maður sem tekið er eftir á götu. sýna að þeir séu víðlesnir og veraldarvanir hvort sem þeir láta til leiðast að lesa þessar bækur eða ekki. Má segja að Ys og þys út af engu sé eins konar kaffiborðsmynd. Mynd- in er fagmannlega gerð í alla staði og vel heppnuð stílæfing en hefur allt of góð menn- ingarleg skilríki til þess að nokkur lifandi maður viðurkenni að honum finnist hún lang- dregin. Pétur og vinir hans Branagh fór næst ótroðnar slóðir og gerði kammerverkið og gamanmyndina Vini Péturs (Peters Friends). Myndin er bresk útgáfa af Kalanum mikla (The Big Chill) nema vinir Péturs eru snöggtum skemmtilegri en vina- hópur Kasdans. Branagh gat fengið þennan söguþráð að láni með góðri samvisku því að mynd Kasdans var í raun stæling á verki eftir John Sayles, Sjömenningarnir frá Sýrak- úsu snúa aftur (The Return of the Syracuse Seven). Vinir Péturs er hlý og skemmtileg gaman- mynd þar sem allur leikhópurinn fer á kost- um. Nægir þar að nefna Branagh sjálfan, Emmu Thomson, Stephen Fry, Hugh Laurie og alla sem að myndinni komu. Leikararnir eru einkar samstilltir, eins og breskum leikur- um er lagið, og enginn skyggði á annan. Branagh lét hvergi bera meira á sjálfum sér en öðrum leikurum myndarinnar svo að gagn- rýnendur urðu að láta ásakanir um dramb og hroka bíða betri tíma og bíta í sig gremj- una um sinn. Köttur i bóli bjarnar Gamanleikarar á borð við Charles Chaplin, Buster Keaton og Woody Allen hafa löngum leikstýrt eigin kvikmyndum og slíkt þótt sjálf- sagt. Hins vegar hafa gagnrýnendur almennt verið tregir til að taka dramatíska leikara í sátt sem kvikmyndaleikstjóra. Laurence Olivier var lengi eina undantekningin sem sannaði þessa reglu, að ógleymdum fjöllista- manninum og hálfguðinum Orson Welles. Brátt settust fleiri leikarar í leikstjórastólinn. Robert Redford vann til Óskarsverðlauna fyrir bestu leikstjórn árið 1981 fyrir myndina Venjulegt fólk (Ordinary People). Árið 1995 vann annar leikari, Mel Gibson, sömu verð- laun fyrir stórmyndina Hetjuna (Braveheart). Heilbrigó sál i hraustum likama Næsta mynd Branaghs, „Frankenstein“, var barokkverk í anda samnefndrar skáld- sögu eftir Mary Shelley. Þótt myndin væri langbesta útgáfa af sögunni í áraraðir fékk hún háðulega útreið hjá gagnrýnendum. Réð- ust þeir allir sem einn á Branagh og ijölluðu um myndina nánast eins og henni væri ætlað að vera raunsæisverk. Veittust þeir óspart að frammistöðu Branaghs í hlutverki Dr. Frankensteins, sögðu hann hafa gert mynd- ina til þess eins að hnykla vöðvana í ákveðn- um atriðum og drógu hógværð hans mjög í efa. Því næst gerði Branagh svart/hvítu kam- mermyndina Miðsvetrargráma (In the Bleak Midwinter) sem sýnd var hér á kvikmyndahá- tíð. Að þessu sinni lét Branagh sér nægja að sitja í leikstjórastólnum. Shakespeare i Hollywood Leikskáldið Shakespeare hefur átt fremur brösótt samskipti við þennan unga miðil frá upphafi kvikmyndasögunnar. Framleiðendur í Hollywood leituðu snemma í smiðju skálds- ins en vissu vart hvað gera skyldi við verkin. Árið 1927 gerðu Bandaríkjamenn þögla mynd eftir leikritinu Skassið tamið (The Taming of the Shrew) . Léku þekktustu kvikmynda- stjörnur samtímans Mary Pickford og Dou- glas Fairbanks aðalhlutverk. í þessari kvik- mynd kemur fyrir frægasta titilspjald kvik- myndasögunnar: „Handrit eftir William Sha- kespeare, önnur samtöl eftir Sam Taylor." Þótti sprenghlægilegt að þeir væru nefndir í sömu andrá, þeir Sam og Bill. Rómeó og Júlia Max Reinhart gerði kvikmynd eftir Jóns- messunæturdraumi árið 1935. Þótti verkið gríðarvel heppnað. Leslie Howard lék Rómeó fertugur að aldri árið 1936 en stórstjarnan Norma Shearer gekk að hlutverki Júlíu dauðu. Bandaríkjamenn hafa ekki reynt að kvikmynda leikritið síðastliðin sextíu ár og segja má að Shearer hafi næstum gert hlut- verkinu endanleg skil þar í landi. Ný útgáfa af Rómeó og Júlíu hefur nú farið mikla sigur- för um Bandaríkin. Leikur Leonardo Di Caprio Rómeó. Capprio er með efnilegri bandarískum leikurum af yngri kynslóðinni um þessar mundir. Macbeth og Óþelló Undrabarnið Orson Welles reið fyrstur manna á vaðið í Bandaríkjunum og reyndi að gera einhveija alvöru úr því að gera bíó- myndir úr harmleikjum Shakespeares. Welles kvikmyndaði Macbeth árið 1948. Framleiddi hann myndina sjálfur en naut ekki stuðnings stóru kvikmyndaveranna. Síðan festi hann Óþelló á filmu í Frakklandi. Sú mynd var einnig gerð af vanefnum. Örlögin réðu því að Welles fékk aldrei tækifæri til að spreyta sig á verkum Shakespeares svo að vel færi þótt hann hefði alla burði sem listamaður til þess að gera glæsilegar kvikmyndir úr leikrit- um skáldsins. Shakespeare i Volgubökkum Rússar kvikmynduðu Hamlet og Lé kon- ung á sjötta áratugnum. Slavneskur drungi þessara verka hæfði efninu vel. Myndirnar voni í alla staði vel gerðar en vöktu því mið- ur ekki mikla athygli á vesturlöndum. Blikur á loffti Framúrstefnumaðurinn sálugi Derek Jar- man gerði eins konar pönkútgáfu af Óviðrinu eða Storminum (The Tempest) eftir Shake- speare í lok áttunda áratugarins. Skrautlegur vinahópur leikstjórans skipaði helstu hlut- verk. í sögulok var gamli slagarinn „Stormy Weather" eða Blikur á lofti kyijaður. Þessi furðulega og ódýra mynd hlýtur að teljast besta kvikmyndaútgáfa þessa verks. Unnu þeir Jack Birkett og Heathcote Williams mik- inn leiksigur í hlutverki Calibans og Prospe- ros auk þess sem söngkonan Toyah Wilcox virtist fædd til að leika Míröndu. Lér i Danaveldi Breski leikstjórinn Peter Brook. kvikmynd- aði Lé konung í byijun áttunda áratugarins. Aðalleikarinn Paul Scofield átti að vísu stór- leik, sem endranær. Myndin var hins vegar grámygluleg, enda tekin í Danmörku. Leik- myndin nánast riðaði í hverju atriði. Vantaði bæði bein og merg í þessa mynd þrátt fyrir góða frammistöðu leikara. Meistarinn Laurence Olivier er sá maður sem kvik- myndað hefur verk Shakespeares oftast og farist það best. Árið 1944 gerði hann téða mynd um Hinrik V. Árið 1948 leikstýrði hann Hamlet og lék jafnframt aðalhlutverkið af mikilli snilld. Árið 1955 gerði hann Rík- harð þriðja. Olivier lék sjálfur kroppinbakinn og var óviðjafnanlegur í því hlutverki. Árið 1965 lék hann Óþelló en þar var frekar um kvikmyndað sviðsverk en bíómynd að ræða. Fór hann með helstu hlutverk í verkum Sha- kespeares í sjónvarpsmyndum fyrir BBC, þar á meðal Kaupmanninum í Feneyjum. Oró og gjöróir Olivier sagði eitt sinn í viðtali að það væri gott og blessað að kvikmynda leikrit Shake- speares sem raunsæisverk en fyrr eða síðar hlyti áhoifandinn að spyija sig að því hvers vegna fólkið talaði svona skringilega. Góð samtöl í bíómyndum snúast oftast um það sem ósagt er látið, undanskilið. I leikrit- um Shakespeares kynnumst við sögupersón- um út frá því sem þær segja, í gegnum yfir- lýsingar þeirra en ekki gjörðir og hátterni. Þegar bókmenntaverk eru kvikmynduð felst tilhögunin einmitt í því að breyta orðum í einhvers konar athafnir. Þessi umbreyting er nánast útilokuð þegar verk Shakespeares eru fest á filmu. Kvikmyndalinsan er hlutlausari en manns- augað og erfiðara að útiloka umhverfi sög- unnar á breiðtjaldi en í leikhúsi. Af þessum sökum skiptir umhverfi sköpum í bíómynd. Hins vegar er staðsetning verks nánast auka- atriði í leikriti. Helsingjaeyri og Feneyjar skipta litlu máli í Hamlet og Kaupmanninum í Feneyjum. italskur Shakespeare Franco Zeffirelli tókst snemma að gera aðgengilegar og heilsteyptar kvikmyndir úr verkum Shakespeares. Myndir hans, Skassið tamið, Rómeó og Júlía og Hamlet þóttu ekki nógu leiðinlegar og drungalegar, þ.e.a.s. menningarlegar. í ofanálag er Zeffirelli ítali en guð og Shakespeare breskir. Zeffirelli hefur verið sakaður um örgustu menningar- spjöll eftir gerð hveijar einustu Shakespeare- myndar hans hversu vel sem honum tekst til. Önnur ástæða til þessara viðbragða er sú að Zeffirelli hefur lagt mikla áherslu á fallega kvikmyndatöku og valið stórstjörnur á borð við Richard Burton, Elizabeth Taylor og Mel Gibson í helstu hlutverk. Sú tilhögun virðist á skjön við hugmyndir margra um hvernig menningarmynd eigi að vera. Leikrit Shakespeares eru ævintýri, harmleikir, gam- anleikir og ástar- og spennusögur. Því getur vart verið goðgá að gera þau þannig úr garði að sem flestir geti notið þeirra. Tilefnislaus illska Branagh leikstýrir ekki nýjustu Shakespe- aremyndinni, Óþelló. Aðalhlutverk er í hönd- um blökkumannsins Laurence Fishburne sem ekki hefur fengist við Shakespeareleik áður. Branagh leikur hins vegar eina undarlegustu sögupersónu Shakespeares, óvildarmanninn Iagó. Sérstaða þessa hlutverks í leikbók- menntunum er í því fólgin að ástæðan fyrir svikum og undirferli Iagó er hvorki könnuð né skýrð. Hann er bara svona. Aó vera eóa vera ekki Branagh hefur leikið sama leikinn og í Ysi og þysi út af engu og fengið fræga banda- ríska leikara til að leika aukahlutverk í Ham- let. Sjálfur fer hann að sjálfsögðu með aðal- hlutverk og fetar á ný í fótspor Laurence Oliviers sem aðalleikari og leikstjóri. Myndin verður tekin á 70 mm filmu og ekkert til hennar sparað. Herma sögur að Branagh hyggist kvikmynda leikritið óstytt. Ef þetta er rétt verður myndin fjögurra klukkustunda löng eða lengsta Shakespeareuppfærsla sem gerð hefur verið fyrir kvikmyndahús í hinum enskumælandi heimi. Shakespeare á skjánum Segja má að þær Shakespearemyndir, sem best hafa heppnast á undanförnum áratug- um, séu myndir sem breskir sjónvarpsmenn hafa gert eftir verkum þjóðskáldsins. Nægir þar að nefna Lé konung og Hamlet. Laur- ence Olivier lék Lé. Átti hann þar síðasta leiksigur sinn og sýndi þar vald sitt á þeirri tækni sem pentametri Shakespeares krefst af leikaranum. Laurence túlkaði persónuna óaðfinnanlega í allri reisn sinni og smæð. John Hurt lék fíflið af mikilli snilld. Það hlut- verk er jafnan talið eitt hið erfiðasta í vest- rænum leikbókmenntum. Þessi sjónvarps- mynd hlýtur því að teljast besta mynd sem gerð hefur verið eftir leikritinu fyrr eða síð- ar. Ekki má gleyma frábærri uppfærslu BCC á Hamlet þar sem Derek Jacobi lék hlutverk- ið og hver einasti leikari sýndi Óskarsverð- launaleik. Sjálft leikritið er löngu útjaskað, nánast hver lína í textanum orðin að tuggu í ensku máli. Samt var engu líkara en hver setning væri sögð þarna í fyrsta sinn. Var það allt innlifun og valdi leikarana á bundnu máli að þakka. Pentametri Shakespeares er nauðalíkur hrynjandi enskrar tungu. Derek Jacobi er einn af þeim leikurum sem gert geta texta skáldsins lifandi og eðlilegan án þess að missa tök á þeirri list sem framsetn- ing á bundnu máli er. Vondi kónguftnn Myndin Ríkharður þríjji var sýnd hér á kvikmyndahátíð og liljtur að teljast stór- virki. Ian McKellen leikur aðalhlutverk : þess- ari nýju útgáfu. McKellen er einn virtasti, og besti, sviðsleikavi Breta um þessar mund- ir og helsti Shakespeareleikari síðustu ára- tuga þótt hanr, hafi hingað til ekki fengið kvikmyndahlutverk við sitt hæfi. Helgi Skúla- son var ógUymanlegur í hlutverki Ríkharðs á fjölum Þjóðleikhússins. Myndiu Þrettándakvöld (The Twelfth Night) hóf nýlega göngu sína á Bretlandi. Alls hata níu bíómyndir eftir verkum Williams Shakespeares verið frumsýndar nýlega eða eru í smíðum. Jafnvel Quentin Tarantino hefur hótað að gera Shakespearemynd. Ef William Shakespeare væri á lífi gæti hann sagt farir sínar ekki sléttar eftir viðskipti sín við kvikmyndaheiminn. Samt hafa kvik- myndagerðarmenn sýnt verkum hans meiri áhuga en sögum nokkurs annars höfundar, lífs eða liðins. Höfundur er kvikmyndageróarmaður LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 7. DESEMBER 1996 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.