Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1996, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1996, Blaðsíða 12
IGLFIRSKAR þjóðsögur og sagnir eftir Þ. Ragnar Jónas- son eru komnar út hjá Vöku- Helgafelli. Álög huldukonunnar s Þ. Ragnar Jónasson skráði eftirfarandi sögu eftir Jóni Oddssyni (f. 1903, d. 1994) frá Siglunesi árið 1976. „Yngstur af níu bömum Þorvaldar ríka Sig- fússonar á Dalabæ í Úlfsdölum var Sigfús. Hann dó 19. september 1866, aðeins 21 árs að aldri, og stendur þá í kirkjubókunum að hann hafi verið „aumingi á Dalabæ". Í ætt hans, Úlfsdalaættinni, lifir sú sögn að Sigfús hafi verið mikill efnismaður og hraustur eins og hann átti kyn til. En svo vildi til að hann sem unglingur, milli fermingar og tvítugs, hafi farið frá Dalabæ í erindum heimil- isins yfir fjallið til Siglufjarðar. Fer ekki sögum af því hvaða leið hann fór en sagan segir að hans hafi verið saknað er hann kom ekki til baka sama daginn til Dalabæjar. Var þá hafin leit að honum og fannst hann alveg ósjálf- bjarga vegna máttleysis og mállaus. Eftir það lifði hann í skjóli foreldra sinna til dauðadags heilsulaus. Nú fer öðrum sögum af þessu heilsuleysi hans. Anna Kristjánsdóttir, kona Jóns Þorláks- sonar bónda á Siglunesi, sem var margfróð, SIGLFIRSKAR ÞJOÐ- • • SOGUR OG SAGNIR og ýmsir aðrir, héldu því fram að Sigfús hafi fengið málið stuttu áður en hann dó og ætt- menn hans viðurkenndu að svo hefði verið. Sagði hann þá frá atvikum þeim sem ollu heilsuleysinu. Á för sinni yfir íjallið mætti hann ungri stúlku sem hann þekkti ekki fyrr. Hún biður hann að koma með sér heim til sín en hann var tregur til. Gekk þó með henni áleiðis. Þó kom að því að hann vildi ekki fara með henni lengra þar sem hann þyrfti að Ijúka erindum sínum í kauptúninu. Var hún ekki ánægð með þetta og gekk eftir honum að koma með sér. En þá harðneitaði hann. Brá hún þá litum og varð hin reiðasta. Lagði hún þá á hann að hann yrði aumingi alla sína ævi upp frá þessu og gæti ekki einu sinni sagt frá þeirra viðskipt- um fyrr en á sínu endadægri. Skildu síðan leiðir. Hún hvarf inn í bergið en hann lá eftir ósjálfbjarga. Sigfús fannst svo daginn eftir undir kletti á fjallinu og var þá búinn að liggja úti rúman sólarhring. Engin ummerki sáust þess að hann hefði hrapað því ekkert sást á honum og ekki var hann beinbrotinn. Ættmenn hans reyndu að þagga þessa sögu niður og töldu að hér væri um óráðshjal sjúks manns að ræða og myndi hann hafa fengið slag og lamast af afleiðingum þess. Hins veg- ar þótti það haria undarlegt að eftir margra ára málleysi skyldi hann geta talað við heima- fólk sitt þegar að dauðastundinni kom.“ Hver var i bátnum? Söguna sem hér fer á eftir skráði Þ. Ragn- ar Jónasson eftir Soffíu Jónsdóttur árið 1986: „Þetta var síðla hausts 1939. Ég var stödd í Siglufjarðarkaupstað og hafði farið yfir fjörð- inn með mjólkina frá Staðarhóli. Það var aust- anátt, ljótur bakki úti fyrir firðinum og tölu- vert þung undiralda, en ég ákvað nú samt að fara til baka á bátnum. Eg hafði þurft að ná í síldarmjölspoka, sem var 200 pund, og lét hann í botninn á bátnum. Maður sem hét Vigfús hafði ætlað með mér. Ég beið eftir honum en hann fann ekki bátinn og kom síðar í ljós að hann hafði farið gangandi fyrir fjarðarbotninn. Ég fór um borð í bátinn um eittleytið og reri af stað. Þá var orðið býsna hvasst. Þegar ég kom fyrir hornið á Hafnarbryggjunni var kallað til mín. Það var Guðmundur heitinn Hafliðason sem sagði: „Þú skalt ekki vera að fara þó að þú sért ekki ein.“ Mér fannst þetta dálítið skrítið en ansaði því ekki og hélt áfram austur á fjörðinn. Þá var komið rok og ég sneri bátnum svo ég fengi ekki hliðarskelling, en það voru þarna í firðinum gamlir barkar, skipsflök sem vont var að lenda á. Eg ætlaði að lenda í Skútufjöru en þegar ég var komin uppundir fjöruna stöðvaði ég bátinn vegna kvikunnar. Svo kom góð fylling sem bar bátinn langleiðina upp í sandinn og ég gat kippt honum betur upp til að losna við útsogið sem var nokkuð mikið. Vigfús, maðurinn sem ætlaði með mér, var nú kominn þarna yfir og ég var undrandi á að hann skyldi ekki koma og hjálpa mér við bátinn. Ég sá líka að pabbi var að koma heim- anað en hann hélt ekkert áfram frekar en hinn. Loks kom þó Vigfús niður í fjöruna og seg- ir strax við mig: „Hvað er þetta, hvar er maður- inn sem var með þér?“ „Það var enginn með mér, ég var alein í bátnum," svara ég. „Það var nú skrítið, ég sá hann alltaf með þér,“ segir Vigfús. Svo kom pabbi líka og spurði mig um manninn sem hefði verið með mér. Ég fór daginn eftir yfir til bæjarins og þar fékk ég hálfgerðar skammir fyrir glannaskap „þó þessi strákur hefði verið með í för.“ Ég mótmælti ennþá og sagðist hafa verið ein. En hver var í bátnum? Rétt er að geta þess að þessi litli bátur hafði verið lánaður til flutninga á líki frá Úlfsd- öium til Siglufjarðar eftir sjóslysið er Þengill fórst.“ Tef It ó tæpasta vaó Eftirfarandi sögu skráði Þ. Ragnar Jónasson eftir Þórhöllu Hjálmarsdóttur frá Dalabæ á Úlfsdölum árið 1986: „Vorið 1859 bjuggu á Hvanndölum í Hvan- neyrarhreppi hjónin Einar Ásgrímsson og Guð- rún Þórarinsdóttir. Þetta var fimmta búskapar- ár þeirra og það síðasta á Hvanndölum. Einar hafði fengið ábúð á Ámá í Héðinsfirði á næstu fardögum hjá ekkju Jóns Sigfússonar, Aðal- björgu Þorsteinsdóttur. Heimilisfólk á Hvannd- ölum voru hjónin og þrjú börn, stúlka, Hólm- fríður níu ára, tökubarn, Ástríður sjö ára og Guðlaug á öðru ári, dætur hjónanna. Einar fór á hákarlaskip á útmánuðum eins og þá var títt og varð þá Guðrún að hirða allar skepnur og mun hún jafnan hafa haft bömin með sér þegar veður leyfði. En þegar vont var veður skildi hún eldri stúlkurnar eftir í bænum en tók Guðlaugu með sér og geymdi hana í fjárhúsgarða eða kýrjötu á meðan hún sinnti skepnunum. Konur gengu þá oftast í tveimur eða þrem- ur pilsum. Guðrún bretti upp ysta pilsinu og vafði því um Guðlaugu litlu svo ekki næddi um hana hríð eða stormur er hún bar hana á milli húsa og bæjar. Matur mun hafa verið nógur til á Hvanndöl- um en eldiviður var lítill og lélegur og alltaf gekk Guðrúnu verr og verr að halda eldinum lifandi. Og svo fór að einn morguninn var engan neista að finna í öskunni. Guðrún vissi að ekki þýddi að örvænta. Hér var aðeins eitt til bjargar og það var að sækja eld inn í Vík í Héðinsfirði. En þangað var ekki auðhlaupið eins og á stóð. Guðrún hafði oft gengið yfir Víkurbyrðu þessi fimm ár sem hún var búin að eiga heima á Hvanndölum. Hún horfði til fjallsins og fann að hún var ekki manneskja til þess að ganga svo brattan veg og bera tvö börn, annað í fanginu og hitt undir beltinu. Guðrún hafði, er hér var komið sögu, hálfgengið með sitt þriðja bam. Hvanndalaskriður voru ófærar en það var hægt á stórstraumsfjöru og dauðum sjó að ganga neðanundir þeim og þá leið ákvað Guð- rún að fara ef tækifæri gæfist. Hún leit til lofts og hafs. Það var norðansvelja og kvikus- lampandi. Nei, þarna yrði ekki fært í dag eða á morgun. Guðrún hafði ekki þekkt hafið fyrr en hún kom hingað til dvalar. 0, hve hún hataði þessa síkviku úthafsöldu sem stundum lék sér eins og unglingur á gelgjuskeiði en gat svo á svipstundu breyst í öskrandi óvætt sem engu þyrmdi, hvorki lifandi né dauðu. Tveir d’agar liðu. Þá gekk hann til sunnanátt- ar og Guðrún sá að nú myndi tækifærið kom- ið að komast inneftir með morgunfjörunni. Hún stóð upp seinni hluta nætur og vakti Hólmfríði og sagði henni hvert hún væri að fara. Bað hana að gæta Ástríðar vel. Hún sagðist ekki verða lengi í burtu og þegar hún kæmi heim skyldi hún bæði baka brauð og sjóða kjöt handa þeim. Barnið gladdist við lo- forðið um dýrðlega veislu og hét því að vera dugleg. Guðrún bjó sig svo til ferðar að hún batt bandi aftan í pilsfaldinn og brá endum fram yfir axlirnar og batt þeim í faldinn að framan. Þannig bjó hún sér til poka úr ysta pilsinu sem hún stakk svo Guðlaugu í. Með þessu móti létti hún sér burðinn. Síðan tók hún langa stöng til að hafa í hendi og gekk af _stað. Á Hvanndölum eru brattir bakkar að sjónum og einstígi að ganga niður í fjöruna. Guðrúnu gekk vel niður bakkann og eftir fjörunni uns hún kom að aðal forvaðanum. Þá leist henni ekki á blikuna. Sjórinn skall alveg að berginu en hún sá að nú þýddi ekki að hika. Hún varð að tefla á tæpasta vaðið. Guðrún batt pilsið upp ennþá meira til þess að barnið vöknaði ekki og hugði sig bera það þannig. En sjálf yrði hún að vaða í mitti. Hún studdi sig við stöngina og tók sjór henni í beltisstað. En allt í einu lyfti lognaldan sér og færði bæði móður og bam í kaf. Guðrún neytti ýtrustu krafta til að standa af sér ölduna og hélt ótrauð áfram. Og þegar aldan lyfti sér næst hafði hún náð á grynnra vatn og var nú sloppin. En drjúg varð gangan heim að Vík svo vot sem hún var. í Vík var henni tekið tveim höndum. Hús- freyjan, Helga Hallgrímsdóttir, var fljót að hlúa að Guðlaugu litlu, gefa henni volga mjólk í pela og stinga henni undir sæng. Meðan Guðrún fékk þurr föt og hressingu bar Björn Skúlason bóndi mópoka á bátinn, síðan tók hann járnpott og setti eld í hann og bjó svo um að lifði til Hvanndala. Þegar Guðrún ætlaði að taka Guðlaugu litlu með sér sagði Helga: „Ég ætla að geyma hana fyrir þig þangað til þú flytur að Ámá. Ég vil ekki eiga það á hættu að þú þurfir að bera hana í annað sinn milli Víkur og Hvanndala." Og svo varð að vera sem húsfreyja vildi. Björn bóndi lagðist fast á árar því hann skildi kvíða Guðrúnar yfir börnunum sem heima biðu þó ekki segði hún neitt. Allt var í góðu lagi þegar heim kom. En vart munum við nútímakonur geta gert okkur í hugarlund gleði Guðrúnar er hún stóð aftur yfir logandi eldi í hlóðunum sínurn." Þióómálaþankar UM BÓKVIT OG ASKA ÞEGAR þetta er ritað dynur yfir okkur skólamálaumræða af ófxjóustu gerð. Vegna rannsókna, sem leiða í ljós slaka stöðu íslenskra grunn- skólanemenda, þá ætlar allt af göflunum að ganga. Sum- ir kenna því um að kennarar séu ofmenntaðir sem kennarar, en aðrir því að þeir séu of mikið kvenkyns. Þá er kennt um agaleysi, metnaðarleysi og blöndun í bekki. Kennarar veija hendur sínar með því að benda á kjör sín og úrelt námsgögn en fáir sjá að börnin stóðu sig vel í náttúru- fræðum,- miðað við það sem þau höfðu lært - sem var næstum ekkert. Foreldrar saka skólana um að kenna ekkert af viti og að sinna ekki uppeldi svo þeir sjálfir losni við það. Þingmaður vill nefnd í málið, sem starfi jafnvel á alþjóðlegu plani við gagnaöflun, en annar telur, ásamt ráðherra að allt muni nú batna með tilkomu reglu- gerða og námskráa. Öllum fínnst útkoman verri en tap í lands- leik við Dani. Þó er verst að efst á lista eru Asíuþjóðir og Austur-Evrópulönd, en við lendum næstum því í flokki með Suður Afríku sem er þó samt fyrir neðan sem betur fer. Ein lausnin, segir ráðherra, kann að vera að efla samkeppni milli skóla og jafnvel að blanda í bekki. Og enn vantar framhalds- skólakönnunina. Útkoma hennar verður ekki skýrð með kennurum með of mikið kennslufræðinám eða áhugaleysi almennra kennara. Hins vegar getur framhaldsskól- inn, ef þörf krefur, skellt skuldinni á grunn- skólann, enda rökin tii þess þegar komin fram. Rannsóknir á skólastarfi hafa sýnt að vissulega þurfa skólar nóg fjármagn,- en það ræður ekki úrslitum. Fremur þurfa þeir stöðugleika í fjárveitingum þó en sveifl- ur eða stöðugan niðurskurð. Þá er gott að vera í góðu húsi með vandaðar bækur en það ræður ekki öllu. Loks eru hálaunaðir og velmenntaðir kennarar mikilvægir en þó ekki úrslitaatriði. Miklu mikilvægari eru þættir eins og metnaður sem kynntur er með góðri stjórnun auk hvata frá stjórnvöld- um eða eigendum skólanna - samfélaginu. Hátt hlutfall fjárveitinga til menntamála á fjárlögum er ekki heldur aðalatriðið en það hjálpar. í fjölmörgum erlendum rannsókn- um sést að vissulega geta ofangreindir rammaþættir haft áhrif, ekki síst ef allt er neikvætt í þeim. Hins vegar skipta meira máli skýr markmið skólastarfs, að skólum væri faglega stjórnað, að kennslan sé fag- leg og að góður tími sé til samráðs um starf- ið. En til þess þarf að skapa jákvætt við- horf til starfans og til þess þurfa stjórnvöld og kennarar að taka höndum saman. Þar þarf að vinna mikia vinnu. Ungum manni var sýndur nýji skólinn glansandi og flottur. Aðspurður sagði hann: Þó hann væri úr marmara er hann sami fjandans skólinn. Þegar skoðuð eru þau lönd sem eru fyrir ofan okkur í rannsókninni þá er eitt sem þau hafa flest fram yfir okkur. Þar er bor- in virðing fyrir menntun, hún talin eftir- sóknarverð og menntað fólk metið vegna menntunar sinnar. Slíkt skortir mjög hér á landi. Hér er fólki hælt fyrir að vera lítið menntað og þeir sem ekki míga í saltan sjó, dífandi höndum í kalt vatn, eru taldir afætur. Menn átta sig hins vegar ekki á því t.d. að tæknin sem nú gerir sjávarútveg- inum fært að mala meira gull en endranær er ekki byggð á hyggjuviti einu saman. Þar fara saman hugvit, menntun og framtak. Og það sama gildir um tölvu- og sjónvarps- tækni, samskiptatækni, samgöngur og margt annað. Bókvitið verður sem sé í askana látið. En að auki þurfa íslendingar að átta sig á því að raunverulegur metnaður mun efla menntun meira en nokkuð annað. Það er ekki nóg að þykjast. En þannig er líka allt uppeldi, - ekki satt? MAGNÚS ÞORKELSSON 12 1ESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/IISTIR 7. DESEMBER 1996

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.