Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1996, Blaðsíða 15
ARKITEKTUR
HUÓÐLÁTT
SAMRÆMI
EFTIR SIGURÐ PÁLMA ÁSBERGSSON
Um Dómhús Hæstaréttar. Arkitektar: Studio Granda,
Margrét Haróardóttir, Steve Christer. Verkfræói-
stofur: Línuhönnun, Almenna verkfræóistofan, Rgf-
teikning, Önn.
TÆP FIMM ár eru liðin síðan
ákveðið var að reisa nýja bygg-
ingu undir starfsemi Hæstarétt-
ar íslands, á lóð sem þá var
ófrágengið og óhijálegt bíla-
stæði við Arnarhól. Það kom
fljótlega í ljós að ekki voru allir
sáttir við fyrirhugaða staðsetn-
ingu hins nýja Hæstarréttarhúss. Margir álitu
að ný bygging á þessum stað myndi þrengja
að eldri byggingum á svæðinu og um leið raska
jafnvægi hins byggða umhverfis við Amarhól.
Mikil og nokkuð heit umræða var um þetta
mál á sínum tíma og menn skipuðu sér í fylk-
ingar með eða á móti Hæstaréttarhúsinu. Nú
er húsið risið og var það formlega tekið í notk-
un í byijun september í haust. Menn eru að
mestu hættir að diskútera umhverfisspjöll af
þess völdum, enda lætur hin nýja bygging lít-
ið yfír sér á ytra borði, yfírbragð hennar er
fremur hlédrægt en látlaust og virðulegt. Göt-
ulínum og stefnum i umhverfinu er haldið og
þær styfktar og þótt efnisnotkun sé nýstárleg
er andinn klassískur og formmál hússins allt
í hljóðlátu samspili við byggingamar i kring.
Þetta samræmi er sérlega áberandi þegar horft
er til hússins með Þjóðleikhúsið í bakgrunni,
til dæmis neðan frá Reykjavíkurhöfn eða Lækj-
artorgi.
Aðalinngangur Dómhússins er staðsettur í
suðvesturhorni þess og tekur upp stefnu
göngustígs sem liggur beint að styttu Ingólfs
landnámsmanns á Arnarhóli. Ingólfur, ættfað-
ir allsheijargoðanna sem til forna helguðu
æðsta dómstað landsins, stýrir hér stefnum
og efnisvali.
Anddyri hússins er þröngt og einkennilegt
rými, hátt og bjart en alveg „blint“ því jöfn
og mild birta fellur gegnum sandblásið gler
en ekkert sést út. Hér þarf að hugsa sig um
tvisvar því rýmið gefur sig ekki áreynslulaust.
Gesturinn nálgast nú bústað hins æðsta rétt-
lætis laganna en það réttlæti er einmitt blint
og krefst sérstakrar umhugsunar allra sem
að því koma.
Inn af anddyri tekur við hár salur sem þjón-
ustar aðkomu gesta, þaðan er síðan gengið
upp langan stíg til dómsala á annarri hæð.
I dómsölunum tveimur ríkir nákvæmni og
einfaldleiki í allri formgjöf. Þeir eru hannaðir
með sérstöku tilliti til hljómburðar, eru í sjálfu
sér eins konar hljóðfæri til að magna orð þeirra
sem hér taka til máls. Orðin koma eins og
töluð inn í eyra þess sem á þau hlýðir utan
úr salnum, næstum áþreifanleg og er það vel
við hæfi hér í sölum blindrar gyðju sem hlust-
ar og dæmir.
Almenningur hefur ekki aðgang að þriðju
hæð hússins en þar er vinnuaðstaða dómara
og starfsfólks Hæstaréttar til húsa, ásamt
Kristinn
bókasafni Hæstaréttar og fundaherbergi.
Hið nýja Dómhús Hæstaréttar er glæsileg
bygging og leggst allt á eitt til að auka á
sannfæringarkraft hennar. Af fullkomnu ör-
yggi hefur upprunalegum hugmyndum verið
fylgt eftir með hönnun og handverki sem vissu-
lega er á heimsmælikvarða. Þetta hljóta að
teljast góð skipti fyrir drullupollabílastæði, sem
nóg er til af hér í regnbarðri Reykjavík.
Þeir sem áhuga hafa á nútíma byggingar- .
list ættu eindregið að gera sér ferð til að skoða
nýja húsið við Arnarhól, það er vel þess virði.
Höfundurinn er arkitekt.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 7. DESEMBER 1996 15