Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1996, Qupperneq 19

Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1996, Qupperneq 19
Morgunblaóió/Árni Sæberg FiNNUR Arnar myndlistarmaður. „Ég er enginn brautryðjandi í að vera til. ERTU Á LAUNUM? Finnur Arnar veltir á sýningu sinni í Nýlistasafninu upp spurningum um líf fólks úrýmsum stéttum þjóó- félagsins. ÞORODDUR BJARNASON leit inn á sýn- inguna og leit um leið í eigin barm. ERTU á launum?,“ var það fyrsta sem myndlistarmaðurinn Finnur Arnar sagði þegar blaðamaður leit inn í Ný- listasafnið. Þegar blaðamaður kinkaði kolli bætti hann við: „Frábært að vera á laun- um við að skoða myndlist." Þessi orð eiga vel við þegar sýning Finns er skoðuð en á henni veltir hann fyrir sér daglegu lífi skrifstofu- fólks, hveiju það hefur áorkað í lífinu og í leiðinni hvert það stefnir. Eins hefur hann stækkað upp launaseðla hjá átta opinberum starfsmönnum og sést þar svart á hvítu hversu mikið þeir fá greitt fyrir vinnu sína. Svokölluð- um „Skrappverkum" hefur hann einnig komið fyrir víða í sýningarsalnum og fær maður það strax á tilfinninguna að þessi eða hinn hafi skropppið frá, upp eða niður, eins og titlar verkanna segja til um. „Ég ætti nú eiginlega að taka viðtal við þig, spyija hvað þér fínnst um sýninguna,“ segir Finnur, „maður lifír svo mikið fyrir viðbrögðin og hvort einhver átti sig á hvað maður er að gera.“ Pólilisk myndlist Hvað ertu að gera? „Þessi íjögur skrappverk mín eru eins og smásögur þar sem ég bý til einskonar forsögu að verkinu. Verkin eru lík hlutum sem maður sér oft á dag úm allan bæ en það er svo spenn- andi að reyna að fá fólk til að sjá fegurðina í þeim, til dæmis með því að setja þá hér inn á Nýlistasafnið. Ég reyni að orða hlutina skiljanlega og tak- ast á við nútímann sem við lifum í. Mér finnst spennandi að taka á lífinu í landinu og leyfa mér að vera pólitfskur en mér finnst að mynd- list eigi að hafa eitthvað til málanna að leggja," sagði Finnur Arnar. Hann segir að þrátt fyrir að hlutirnir sem hann sýnir ættu að vera mjög skiljanlegii' og nálægt daglegu lífi manna sé eins og mörgum finnist þeir þeim mun óskiljan- legri útaf samhenginu sem þeir eru í, það er inni í sýningarsal. „Fólk er kannski ekki vant því að myndlist snúist um brauðstrit." En líta ekki margir á iist eingöngu sem augnakonfekt? „Jú, hún á að hafa eitthvað fegurðargildi, það er að það sé fallegt að horfa á hlutinn án þess að innihaldið skipti máli. Ég er alinn upp við það að fegurð fólks komi að innan og að mínu mati er það eins með hluti sem þrátt fyrir að vera ljótir og slitnir að utan öðlast fegurðargildi við kynningu og umgengni. Það er þessi fegurð sem heillar mig.“ Finnur segir að hugmyndin að æviferlunum og það að setja þá upp á vegg eins og hann gerir á sýningunni sé sprottin af hugleiðingu um feril iistamanna sem gjarnan er birtur í sýningarskrám og í bókum. „Það var því gam- an að fá þessa fimm skrifstofumenn til að setjast niður og gera svona feril og sjá um leið hvað það var sem varð þess valdandi á endanum að þeir urðu skrifstofumenn. Fegurð- arlega séð er þetta kannski ekki upp á marga fiska en innihaldið býr yfir mikilli fegurð og hvert atriði er mjög mikilvægt fyrir viðkom- andi,“ segir Finnur og bendir á að öll séum við að keppa að því sama og reyna svipaða hluti, „ég er til dæmis enginn brautryðjandi í því að vera til, þó margt sem hendi mig þyki mér stórkostlegt og sérstakt." Aðspurður um hvað hann ætlist til að fólk sjái út úr verkunum segir hann að fólk sem sér þau fari kannski að skoða eigið líf á sama hátt. „Sumir sem ákváðu að vera með í þessu verkefni fengu vægt áfall þegar þeir riíjuðu lífið upp og hvað hafði áorkast í því.“ Hann sagði að allir hefðu tekið vel í að vera með og ekki síst fólkið sem lánaði honum launaseðl- ana enda hefur það ekkert að skammast sín fyrir að hans sögn. „Það hefur bara sínat' 70.000 krónur í mánaðarlaun. Það var aftur erfiðara þegar ég talaði við fólk sem vann í einkageiranum, enda eru laun þar oft trúnaðar- mál.“ Gáfwlegt forvarnarstarf Hann segir að talan á launaseðlinum segi lítið ein og sér um kjör fólks því líta verði á hvað fólk vinni til að ná þessari tölu og það geta sýningargestir séð svart á hvítu á sýningunni. „Ég held að í sambandi við ástandið í þjóðfélag- inu, unglingavandamál, eiturlyf, glæpi og þess- háttar þá er það gáfulegasta forvarnarstarfið að gefa fólki kost á að geta lifað af 40 stunda vinnuviku. Eins og staðan er í dag þá á fólk ekki kost á að sinna því sem mestu máli skipt- ir, eins og fjölskyldunni til dæmis.“ Að lokum ræddu Finnur og blaðamaður um stöðu myndlistarmannsins í samfélaginu og hvort fólk bæri traust til hans, það er að segja hvort það treystir honum til að vinna sína vinnu. „Það er að vissu leyti umhugsunarvert hvort það sé ekki virðingarvert að til sé heil stétt manna sem nennir að vera sífellt að setja fram aðra sýn á hlutina og ýta við ýmsu sem betur mætti fara í þjóðfélaginu. Mér fínnst að lista- menn ættu að vera örlítið virtir fyrir það.“ Sýningin er opin alla daga frá 14-18 og lýkur næstkomandi sunnudag. >>?, ís <>e <. ’ýf'jí) to* Pifí** ■55**» .... »„• T^l oJ099ó*50ö9?Þ CiSVOO-iö0V96 fír:i iri 15 KlOÖOÍ 3A<Ieíl»Í ‘i ISU lila .cooo C-1,0 +{., ð j Skattílofr. iSííkfiftiur jkattbr j?>á Uírjór,..;, piSSSl;;:-*'”" AHOLD UM ÚTGÁFU Sænska útgófan BIS hefur meóal annars tekió sér fyrir hendur aó gefa út verk Jóns Leifs. ÁRNI MATT- HÍASSON tók tali eiganda útgófunngr, Robert von Bahr, sem sagói honum aó framhald væri óljóst. s SÍÐASTA ári hófst útgáfa á heildar- verkum Jóns Leifs hjá sænsku útgáf- unni BIS. Út komu diskur með píanóverkum Jóns, strengjakvartett- ar og Sögusinfónían. Diskunum hefur verið vel tekið, og þannig hlaut diskurinn með strengjakvartettunum verðlaun á MIDEM- stefnunni í Frakklandi sem kammermúsíkút- gáfa ársins og Sögusinfóníunni hefur verið vel tekið um heim allan og hún selst vel. BlS-stjór- inn Robert von Bahr er reyndar vanur verð- launum, því önnur útgáfuröð hans, heildarút- gáfa á verkum Sibeliusar, er margverðlaunuð. Eins og getið var eru þrír diskar komnir út í Jóns Leifs-röðinni og snemma á næsta ári kemur fjórði diskurinn út, verið er að vinna upptökur frá því í júlí fyrir útgáfu í janúar. Robert von Bahr segir að þó það sé diskur væntanlegur séu áhöld um hve löng útgáfuröð- in eigi eftir að verða og hve langan tíma eigí eftir að taka að gefa út verkin öll. „Við viljum gjarnan taka upp meira og segja má að við séum bara að bíða Sinfóníuhljómsveit íslands," segir Bahr, en meðfram því að taka upp fyrir BIS tekur Sinfónían líka upp fyrir Naxos- útgáfuna og þá verk Sibeliusar, sem Bahr seg- ir anga af því sem helst hijái útgáfuheiminn í dag. „Til eru um 240 útgáfuraðir með verkum Sibeliusar í heiminum, en ekki nema ein út- gáfuröð með verkum Jóns Leifs,“ segir hann ákveðinn. „Annar er finnskt tónskáld, en hinn helsta tónskáld íslands. Ef Sinfónían vill frek- ar taka upp Sibelius fyrir ódýra útgáfu en standa að menningarlegri útgáfu með gæða- útgáfu er það val hennar; hvort hún vill frekar vinna að menningarefni eða óþarfa. Ég tek svolítið stórt uppí mig en það er vegna þess að það er engin ástæða fyrir Sinfóníuna að taka upp Sibelius, það er engin þörf fyrir enn eina Sibeliusarröðina," segir hann. Hann seg- ist hafa velt því fyrir sér að notast við finnska hljómsveit eða sænska til að þoka útgáfunni á verkum Jóns Leifs áfram, en honum finnist rétt að gefa Sinfó- níunni tækifæri til þess að segja af eða á áður en hann leitar ann- að. „Mér finnst að þetta eigi að byggjast á þjóðarstolti íslendinga. Ef Sinfóníuhljómsveitin hefur ekki metnað tii _að taka upp verk helsta tónskálds Islands verður bara að hafa það, en mér finnst að fyrst íslendingar hafa á að skipa öðru eins tónskáldi og Jóni Leifs sé það menningarleg skylda þeirra að gefa hann út.“ 41 diskwr kominn wt af Sibeliwsi hjá BIS Robert von Bahr er sjálfur að gefa út Sibel- ius, heildarverk Sibeliusar, og þegar er 41 disk- ur kominh út í þeirri röð og fjölmargir diskar eftir að hans sögn. Á diskunum hefur fjöl- margt komið út sem ekki hefur áður heyrst upptekið og jafnvel ekki heyrst yfirleitt. Á sín- um tíma fékk BIS verðlaun fyrir útgáfu þar sem flutt var frumgerð fiðlukonserts Sibeliusar og á þessu ári hlaut fyrirtækið Gramophone- verðlaun fyrir útgáfu á frumgerð fimmtu sinf- óníu Sibeliusar, en útgáfa á Skógardís, áður týndu hljómsveitarverki, fékk einnig marghátt- aða viðurkenningu. Bahr segir að það sé mik- ið mál að fá að gefa út áður óútgefið efni eftir Sibelius. „Það tekur okkur yfirleitt nokk- ur ár að fá leyfi til að gefa út og til að mynda tók það okkur fjögur ár að fá að taka upp frumgerð fimmtu sinfóníunnar, en við fengum ekki leyfi til að gefa hana út að svo komnu. Ég ákvað því að taka þá miklu áhættu að fá ekki útgáfuleyfí og lét hljóðrita hana með það í huga að kannski fengist ekki leyfi til að gefa hana út fyrr en árið 2038, þegar ég verð löngu dauður," segir Robert von Bahr og hlær við, „eða endanlega genginn af göflunum. Þegarerfingjar Sibeliusar svo heyrðu útkomuna var auðsótt að fá að gefa hana út. Við gáfum líka út á árinu Skógardísina en það var annað mál, því nóturnar að því verki fundust í háskóla- bókasafninu í Helsinki, þar sem þær höfðu verið skráðar undir vitlausu nafni. Við vissum að verkið væri til og það tók langan tíma að leita það uppi.“ Robert von Bahr segir að nokkuð sé enn ófundið af verkum Sibeliusar, þó ekki séu það stórvirki, nema átt- unda sinfónían, sem sé líklega glötuð að eilífu. Bahr segir að það sé dýrt að gefa út heildarverk Sibeliusar og iðulega þurfí að kosta miklu til við að búa verkin undir upptöku, en það þurfí einhver að gera það. „Mig langar til að gefa út allan Sibelius og læt kostnaðinn ekki standa í veginum fyrir því. Þetta er helsta verk lífs míns og þegar menn eiga eftir að minnast BIS þá er það vegna þess að ég hafí gefíð út öll verk Sibeliusar og vonandi Jóns Leifs. Þegar ég verð fluttur á elliheimilið verð ég ríkur í anda, en ekki að veraldlegum auði og það skiptir mestu," segir Bahr og hlær við. Bahr segir að upptaka BIS af Sögusinfóníu Jóns Leifs hafi selst vel og pantanir berist úr öilum heimshornum. „Að mínu mati á Jón Leifs góða möguleika á að fá alþjóðlega viður- kenningu fyrir einstaka tónhugsun sína og því óþolandi að hugsa til þess að kannski verði ég að hætta við að taka upp verk hans á ís- landi vegna þess að menn eru að eyða orku í óþarfa útgáfu á Sibeliusi." Robert von Bahr fékk Fálkaorðuna fyrir mánuði og segir að það hafí verið sér mikill heiður. í kveðjuskyni fer hann með þakkará- varp á nánast lýtalausri íslensku: „Ég er stolt- ur, glaður og þakklátur fyrir þennan heiður. Ég ætla líka í framtíðinni að beijast fyrir ís- lenskri tónlist, íslenskum tónskáldum og tón- listarmönnum,“ segir hann og skellihlær; „ég á aldrei eftir að gleyma þessari ræðu“. ROBERT von Bahr LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 7. DESEMBER 1996 19

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.