Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1996, Side 20

Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1996, Side 20
Morgunblaóió/Árni Sæberg LEIKFÖNG þriggja kynslóða eru til sýnis á Þjóðminjasafninu, hin elstu eru frá þvf um og fyrir síðustu aldamót svo sem brúða og fylgir henni rúm og rúmfatnaður frá fyrstu tíð auk fatnaðar. Á sýningunni er einnig fágætt líkan af íbúðarhúsi á dönskum bóndabæ með tilheyrandi innanstokksmunum. FYRRUM ÁTfl ÉG FALLEG GULL... í GÆR, föstudag, var opnuð jólasýning í Bogasai Þjóðminjasafnsins þar sem verða til sýnis leikföng þriggja kynslóða. Leik- föngin eru hluti af safni sem Elsa E. og Þór Guðjónsson og fjölskylda afhentu safn- inu að gjöf nýlega. Elsa starfaði um árabil við safnið og var síðast deildarsljóri Text- íl- og búningadeildar. Að sögn Elsu er þetta leikfangasafn frá þremur kynslóðum. „Þau eru öll úr minni fjölskyldu. Þarna eru leik- föng frá móður minni, sem var dönsk og fædd árið 1896, frá már sjálfri, Þór manni mínum og börnum okkar sem fædd eru á tímabilinu 1946 til 1950. Þarna eru brúður, sú elsta frá árinu 1903 og fylgir henni rúm og rúmfatnaður frá fyrstu tíð auk fatnað- ar. Þá er á sýningunni fágætt likan af íbúð- arhúsi á dönskum bóndabæ með tilheyr- andi innanstokksmunum, járnbrautarlestir, spil, raðþrautir, leikir, kubbar og fleira." Sýningin veitir góða innsýn í það hvern- ig börn léku sér fyrr á öldinni og má glöggt skynja að það hefur breyst með tímanum ekki síður en annað. Aðspurð hvort það væru samt sem áður ekki nokkurn veginn sömu hlutirnir sem krakkar væru að leika sér að nú og áður sagði Elsa að það væri ómögulegt að segja. „Það verða aðrir að segja til um það; ég veit ekki hvernig krakk- ar nú til dags leika sér með Barbie-dúkkur og bíla.“ Minna má á að frá og með 12. desember heimsækja gömlu íslensku jólasveinarnir safnið daglega fram að jólum. 20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 7. DESEMBER 1996 stjórn, og fluttist með honum til íslands. Varð þeim fjögurra barna auðið. Þegar Hannes Sigurðsson listfræðingur fór þess á leit við Ara á liðnu ári að hann héldi sýningu á Mokka langaði listamanninn til að nýta tækifærið og heiðra minningu afa síns og stuðla um leið að auknum samskipt- um íslands og norðurhvelsþjóða. Þótti honum rýmisverk, þar sem skinn væru í aðalhlut- verki, við hæfi þar_ sem þau séu samofin sögu beggja þjóða. Ýtti Ari því málverkinu, sem hann hefur til þessa leitt til öndvegis, til hliðar. „Skinn gegna óvíða stærra hlut- verki en í Síberíu og sagan sem ég rek á sýningunni er þegar afi vafði móður mína, þriggja ára gamla, inn í holdrosann af kálfi, sem hefur mikinn lækningamátt, og læknaði hana með þeim hætti af húðsjúkdómi sem hún átti við að stríða. Tengslin við ísland eru því augljós en, sem kunnugt er, voru handrit íslensku heimsbókmenntanna skrifuð á kálfsskinn.“ Listamaðurinn fékk sútunarverksmiðjuna Loðskinn hf. á Sauðárkróki til liðs við sig og var skinnið sem prýða mun Mokka næsta mánuðinn sérverkað með sýninguna í huga. „Loðskinn tók beiðni minni af mikium áhuga og kann ég þeim bestu þakkir fyrir.“ Málverkasýning í Jakútiu Ari vitjaði ættar sinnar og uppruna í aust- urvegi fyrst fyrir þremur árum en hann hafði nokkrum sinnum komið til Rússlands áður. Kveðst hann þegar í stað hafa orðið fyrir hughrifum, sem orð fái ekki lýst. „Móðir mín hefur alla tíð lagt mikla rækt við frásagnir af forfeðrum okkar, sem margar hvetjar eru lygilegar, þannig að ég var vel undirbúinn þegar ég kom til Jakútíu. Engu að síður kom landið mér í opna skjöldu." Að sögn Ara er sjálfsstjórnarlýðveldið Sak- ha (Jakútía) jafnstór Vestur-Evrópu en íbúar eru einungis um ein milljón. „Auðlindir lands- ins eru miklar en sá auður hefur lengst af runnið beint til Kremlar. Það mun þó eitthvað vera að breytast, en eins og við vitum er Rússland í heild sinni gjörsamlega óútreiknan- legt.“ Listamaðurinn er nýkominn frá Jakútíu þar sem hann efndi til málverkasýningar í boði menningarmálaráðherra landsins í síðasta mánuði. Hefur hann, svo sem fram hefur komið, mikinn hug á að efla tengsl landanna tveggja og er farinn að leggja dreg að menn- ingardögum næsta haust, þar sem listamenn frá Jakútíu muni verða meðal gesta. Mokka er að mati Ara kjörinn vettvangur fyrir sýningu af þessu tagi, ekki síst í Ijósi skírskotunarinnar til fortíðar enda hafi „allar helstu hetjur íslands setið þar inni“. Thor Vilhjálmsson, „hinn eini sanni meistari“, ritar formála í sýningarskrá og tónlistarmennirnir Óttarr Proppé og Jóhann Jóhannsson hafa unnið hljóðverk fyrir sýninguna sem nefnist Leikið á úlfa. Segir Ari það nafn við hæfi enda séu úlfar sérstaklega skæðir í Síberíu. „Á þessari sýningu, sem víðar, er úlfur undir niðri, sem minnir okkur á að þar sem fólk er tekið úr samhengi við umhverfi sitt og náttúru verður það úti.“ Morgunblaóió/Júltus ARIALEXANDER Ergis Magnússon myndlistarmaður kveðst i senn vera að heiðra minningu afa síns og stuðla að auknum samskiptum íslands og norðurhvelsþjóða. SKINN í HÓLF OG GÓLF MOKKA-KAFFI verður klætt skinn- um í hólf og gólf næsta mánuð- inn en tilefnið er sýning sem Ari Alexander Ergis Magnússon myndlistarmaður opnar í kvöld kl. 20.00. Ber hún yfírskriftina HLÉ í minningu um afa minn en sýningin, sem unnin er í samvinnu við ísjaka, menningar- og vináttufélag íslands og Jakútíu, og Hannes Sigurðsson listfræðing, er tileinkuð minningu móðurafa listamannsins, Gabriels Argunovs frá Jakútíu. Gabriel Argunov var veiðimaður á sléttum Síberíu, þar sem mælast mestu frosthörkur á byggðu bóli. Var hann snauður, svo sem flestir stéttbræður hans á sovéttímanum, og þegar heimsstyrjöldin síðari teygði anga sína til Sovétríkjanna, 1941, var hann sendur á víglínuna, þar sem „veiðimenn máttu fyrstir missa sín í því samfélagi sem var í uppbygg- ingu í Sovétríkjunum", að því er fram kemur í máli Ara. Átti Argunov ekki afturkvæmt. Móðir Ara, Kjuregej Alexandra Argunova, var barn að aldri þegar faðir hennar féll og voru kynni hennar af honum því stutt. „Það Morgunblaóið/RAX FRÁ æskustöðvum móður Ara í Jakútíu en myndin er tekin þegar listamaðurinn var þar á ferð árið 1993. eina sem hann fékk tækifæri til að gefa henni settist á skólabekk í Moskvu þar sem hún var lífið,“ svo sem Ari kemst að orði. Sleit kynntist föður Ara, Magnúsi Jónssyni, sem Kjuregej barnsskónum í Jakútíu áður en hún lagði stund á nám í kvikmyndagerð og leik-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.