Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1997, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1997, Side 2
TRIO REYKJAVIKUR I HAFNARBORG Nýtt íslenskt og klassík Ashkenazy vill til Prag VLADIMÍR Ashkenazy hefur óskað eftir því að verða aðalstjórnandi tékknesku filharmón- íunnar í Prag og mun stjóm hljómsveitarinnar taka ákvörðun um hvort sú verður niðurmiðjan þennan mánuð, að því er fullyrt er í Aftenposten. Hefur blaðið eftir talsmanni sinfóníuhljóm- sveitarinnar í Berlín, þar sem Ashkenazy er stjómandi, að hann muni starfa áfram í Berlín, hvort sem hann fái starfið í Prag eður ei. Þjóðverjinn Gerd Albrecht gegndi stöðunni í Prag en lenti upp á kant við yfirvöld menningarmála í Prag og sagði upp á síðasta ári. Þá hafði hann stjómað tékk- nesku fílharmóníunni, sem einnig hefur geng- ið undir nafninu Böhmen-fílharmónían, í hálf- an annan áratug. Ástæða þess að hann á ekki lengur upp á pallborðið hjá Tékkum er sú að æ ríkari þjóðernisstefnu gætir í menning- armáium sem og á öðrum sviðum þar í landi, og eiga útlendingar því erfitt uppdráttar. Þó styðja fímm af átta stjórnarmeðlimum ráðn- ingu Ashkenazys. Ashkenazy endumýjaði nýlega samning sinn í Berlín og gildir hann til ársins 2000. Á blaða- mannafundi hljómsveitarinnar í vikunni sagðist hann telja sig bundinn henni, stefnt væri að mörgum spennandi verkefnum og að hann vonaðist til að eiga nokkur góð ár í Berlín. SÍÐUSTU tónleikar Tríós Reykjavíkur á þessu starfsári verða haldnir í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, á morgun, sunnudag, kl. 20. Tríóið skipa þau Peter Máté, píanóleikari, Guðný Guð- mundsdóttir, fiðluleikari, og Gunnar Kvar- an, sellóleikari. Frumflutt verður nýtttríó eftir John Speight sem nefnist „Out of a Gothic North“. Ónnur verk á efnisskránni verða tríó í A-dúr eftir Haydn og hið vold- uga tríó í H-dúr op. 8 eftir Brahms í til- efni hundrað ára dánarafmælis hans. Að sögn Guðnýjar er hið nýja verk Speights afar skemmtilegt, sérstaklega að því leyti að hann nýtir hljóðfærin á mjög áhugaverðan hátt í því. „Hann leggur áherslu á samspil, bæði tveggja og alls tríósins og auk þess komum við líka mjög mikið fram í hlutverki einleikara í verk- inu. Þetta er því skemmtilega samansett tríó. Andstæður eru líka mjög miklar í því, það eru í því bæði kraftmiklir og ofur- veikir kaflar.“ Meðlimir tríósins segja að þau hafi reynt að spyija Speight um tilurð verksins og tilvísun en hann hafi sagt að hann vildi helst láta tónlistina tala sínu máli sjálfa. „Titlinum fylgir til dæmis engin skýring," segir Gunnar, „en hann skírskotar senni- lega til þess að Speight hefur búið hér á landi mörg undanfarin ár. Speight er breskur að uppruna. Hann byrjaði sinn feril hér á landi sem söngvari, hefur bæði fengist við ljóðasöng, óperusöng og kennslu. Hann hefur svo í sívaxandi mæli látið til sín taka sem tónskáld." Verk Haydns sem flutt verður er samið árið 1785 og því á síðari hluta ævi hans. Gunnar segir að Haydn hafi verið mikil- væg^ur brautryðjandi í samningu kammer- verka og það liggi eftir hann ógrynni pía- nótríóa og strengjakvartetta. „Þetta verk er stutt, aðeins í tveimur þáttum, og af- skaplega fallegt. Það er mikil heiðríkja í þessu verki.“ H-dúr tríó Brahms er fyrsta píanótríóið sem hann samdi en síðar á ævinni endur- samdi hann það. „Þetta er líklega stórbrotn- asta píanótríóið sem Brahms samdi,“ segir Gunnar. „Eins og alltaf er Brahms mjög klassískur í sinni formgerð. Þetta er geysi- lega áhrifamikið og stórbrotið tríó, það er svo voldugt og þétt ofið að það er næstum því sinfónískt. Það má með sanni segja að þetta sé hveiju tríói verðugt verkefni.“ Tríó Reykjavíkur á tíu ára afmæli á næsta ári og í tilefni þess verður lögð áhersla á íslensk verk. TRÍÓ Reykjavíkur leikur nýtt verk eftir John Speight í Hafnarborg á morgun og verk eftir Haydn og Brahms. Yfirlitssýning á verkum Asmundar Keisaradjásnin til Texas Washinjjton. Reuter. TÖLUVERT hefur þokast í deilu rúss- neskra og bandarískra stjórnvalda um dýrgripi rússnesku keisaraættarinnar, sem Rússar lánuðu til sýninga í Banda- ríkjunum. Eftir að sýningu á þeim lauk í Washington og flytja átti þá til Texas kröfðust Rússar þess að endurheimta þá, þrátt fyrir að þeir hefðu lánað grip- ina í tvö ár. Lokuðu þeir bifreið, sem flytja átti munina til Texas, og var hluti þeirra síðan fluttur í rússneska sendi- ráðið. Nú bendir allt til þess að af sýning- unni í Texas verði en hins vegar er óvíst að munirnir verði sýndir á fleiri stöðum í Bandaríkjunum, eins og ráð- gert hafði verið. Rússnesku djásnin voru flutt til Houston í Texas um helg- ina og verður sýningin opnuð 11. maí. Hvorki Bandaríkjamenn né Rússar vilja gefa upp í hverju samkomulag þjóðanna felst, en í Bandaríkjunum grunar marga að Rússar hafí viljað fá meira greitt fyrir munina en þeir sömdu um í upphafi. YFIRLITSSÝNING á verkum Ásmundar Sveinssonar verður opnuð í Ásmundarsafni við Sigtún í dag kl. 16. Þar getur að líta höggmyndir, teikningar og málverk sem spanna allan feril listamannsins. Hin síðari ár hafa verið settar upp sýning- ar í Ásmundarsafni sem gefíð hafa innsýn í ólíka þætti listsköpunar Ásmundar Sveins- sonar. Að þessu sinni er sett upp yfirlitssýn- ing á verkum listamannsins, eins konar sam- antekt fyrri sýninga. Að sögn Gunnars Kvarans, forstöðumanns Listasafns Reykjavíkurborgar, er sýningin sérstaklega hönnuð fyrir nemendur og ferða- menn sem muni í Ásmundarsafni eiga aðgang að öllum helstu öndvegisverkum Asmundar, auk þess að geta lesið þróunar- og þroskafer- il listamannsins. Ráðgert er að yfirlitssýningin standi minnst í þtjú ár en á þeim tíma mun hún, að sögn Gunnars, taka breytingum — til verði „sýningar inni í sýningunni". Skipt verði um einstaka myndir og ýmsu efni bætt við, svo sem ljósmyndum og skissum. Gunnar segir að með þessum hætti verði hægt að draga fram ýmsa athyglisverða þætti í Iist Ásmund- ar svo sem fjölbreytileika í efnisnotkun og einstaka þema. Gunnar segir að hér sé á ferð ný hugsun hjá Listasafni Reykjavíkurborgar og fróðlegt verði að fylgjast með framvindu sýningarinn- ar, þar sem öðrum þræði sé litið á Ásmundar- safn sem fyrirmynd Hafnarhússins, það er að segja þeirrar starfsemi sem muni verða þar í framtíðinni. „Við höfum aldrei átt safna- hús, þar sem safn borgarinnar er sýnt, og því er nauðsynlegt að til séu hugmyndir um það hvernig slíkt safn eigi að þróast þegar húsið verður tekið í notkun," segir Gunnar og bætir við að gera megi ráð fyrir að sam- bærilegar sýningar við yfirlitssýninguna á verkum Ásmundar verði útfærðar af meiri hugmyndaauðgi og á ítarlegri hátt í Hafnar- húsinu en þekkst hefur til þessa.“ MENNING/ LISTIR í NÆSTU VIKU MYNDLIST Listasafn íslands yerk í eigu safnsins til sýnis út maí. Ásmundarsafn, Sigtúni Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveins- sonar Kjarvalsstaði, Flókagötu Sýning verkum eftir Larry Bell, einnig sýn. á verkum eftir Kjarval til 11. maí. Safn Ásgríms Jónssonar, Bergstaðastr. 74 Sýning á úrvali vatnslitamynda eftir Ásgrím til loka maímánaðar. Hafnarhúsið við Tryggvagötu Eggert Einarsson sýnir til 18. maí. Gallerí Hornið Magdalena M. Hermanns sýnir til 28. maí. Mokka, Skólavörðustíg Helgi Sigurðsson sýnir til 6. júní. Gerðuberg, Gerðubergi 3-5 Magnús Tómass. sýnir til 25. maí. Gallerí Handverk & Hönnun Elísabet Ásberg sýn. skartgripi til 19. maí. Sjónarhóll, Hverfisgötu 12 Sigrún Eldjárn sýnir til 25. maí. Önnur hæð, Laugavegi 37. Max Nenhaus sýnir út maí. Galleríkeðjan, sýnirými Sýningar í maí: Gallerí Sýnibox: Ragnheiður Ragnarsdóttir. Gallerí Barmur: Bjami H. Þórarinsson. Gallerí Hlust: Hannes Lárusson. Gallerí 20m2: Rúrí og ísak Eldh. Gerðarsafn, Hamraborg 4, Kóp. Anna-Eva Bergmann sýnir til 8. júní. Gallerí Myndáss Vilmundur Kristjánsson sýnir ljósmyndir. Þjóðarbókhlaðan Ásjónur skáldsins. Myndverk af Halldóri Laxness, til 23. maí. Myndlistaskólinn í Reykjavík Afmælissýning til 12. maí. Listhús 39, Strandgötu 39, Hf. Iva Sigrún Björnsdóttir sýnir til 26. maí. Hafnarborg, Strandgötu 34, Hf. Sparistellið. Tólf listamenn sýna postulín til 19. maí. Gallerí Sævars Karls, Bankastræti 9 Anna Sigríður Siguijónsd. sýnir til 28. maí. Listasafn Sigurjóns, Laugarnestanga 70 Skólasýn. á völdum verkum Siguijóns. Hlaðvarpinn, Vesturgötu 3 Haraldur Jónsson sýn. til 15. maí. Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3b Samsýning til 18. maí. Norræna húsið við Hringbraut. Antti Linnovaara sýnir til 11. maí. Ingólfsstræti 8, Ingólfsstræti 8 Anna Líndal sýnir til 25. maí. Gallerí Fold við Rauðarárstig Sossa sýnir til 25. maí. SPRON, Álfabakka 14, Mjódd. Aðalheiður Valgeirsdóttir sýn. til 8. ágúst. Byggðasafn Hafnarfjarðar Undir Hamrinum. Af lífi hafnfirskrar al- þýðu; sýning til út sept. Sunnudagur 11. maí. Tríó Reykjavikur frumflytur tríó eftir John Speight i Hafnarborg kl. 20. Hanna Dóra Sturludóttir og Jónas Ingimund- arson halda tónl. í Gerðarsafni kl. 20.30. Ingibjörg_ Marteinsd., Einar S. Einarsson, Kristinn Árnason og Órn Falkner halda tónl. í Kópavoskirkju kl. 21. Alina Dubik og Pavel Manásek halda tónl. í Háteigskirkju kl. 20.30. Mánudagur 12. mai. Málmblásarakvintett úr Lúðrasv. konung- lega danska lífvarðarins heldur tónl. í Hafn- arborg kl. 20.30. Karlakór Keflavíkur heldur tónl. í Fella- og Hólakirkju kl. 17. Þórunn Guðmundsdóttir og Kristinn Örn Kristinsson halda söngtónl. í Bústaðakirkju kl. 20.30. Burtfararpróf Bjamveigar Ingibjargar Sig- bjömsdóttur píanóleikara kl. 20.30 í sal Tón- listarskóla FIH. Þriðjudagur 13. maí. Haraldur Vignir Sveinbjörsson. Burtfarar- próf í píanóleik kl. 20.30 í Gerðarsafni. LEIKLIST Þjóðleikhúsið Villiöndin mið. 14. maí. Fiðlarinn á þakinu lau. 10., fös. 16. maí. Köttur á heitu blikkþaki, sun. 11., fim. 15. maí. Litli Kláus og Stóri Kláus, sun. 11. maí. Listaverkið lau. 10., fös. 16. maí. Borgarleikhúsið Dómínó lau. 10., fös. 16. maí. Svanurinn fim. 15. maí. Konur skelfa lau. 10. maí. BarPar lau. 10., fös. 16. maí. Krókar & kimar, ævintýraferð um leikhús- geymsluna frá 13-18 alla daga og til kl. 22 sýningardaga. Loftkastalinn Áfram Latibær sun. 11. maí. Á sama tíma að ári sun. 11. Skemmtihúsið Ormstunga sun. 11. maí. Kaffileikhúsið Vinnukonurnar sun. 11., fös. 16. maí. Leikfélag Akureyrar Vefarinn mikli frá Kasmír lau. 10. maí. 2 IESBÓK MORGUNBIAÐSINS ~ MENNING/IISTIR 10. MAÍ 1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.