Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1997, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1997, Blaðsíða 7
1 Myndlistarskólans í Reykjavfk í Víðishúsinu við Laugaveg 166. ÞORVALDUR Skúlason listmálari leiðbeinir nemanda í Víðishúsinu á fyrri hluta sjötta áratugarins. Kennarar skólans hafa alltaf verið starfandi myndlistamenn á hverjum tíma. menningsfræðslu í myndlist fyrir borgarbúa, önn voru á þriðja hundrað, flestir í teiknun endurmenntun fagfólks og býður áfanga í og málun en einnig í myndasögugerð, form- myndlist fyrir nemendur á framhaldsskóla- fræði, keramik og skúlptúr. Módelmálun, stigi. Nemendur í almenningsfræðslu, endur- teiknun og mótun í leir eftir fyrirsætu er í menntun og á framhaldsskólastigi nú á vor- fyrirrúmi á vorsýningunni. BOÐSKORT og kynning afmælissýningar Myndlistaskólans í Reykjavík er myndskreytt gamalli Ijósmynd úr myndasafni skólans en hún var tekin í kennslustund í módelstúdíu hjá Ásmundi Sveinssyni en módel er Ásta Sigurðardóttir sem síðar varð þekktust fyrir Reykjavíkursögur sínar. Myndin er tekin um 1950. „ Velgengni skólans og vinsœldir má pakka kennurum hans. Og kannski hefurþað ekki síður komið listamönn- unum sjálfum vel að kenna héma en nem- endunum. Listamenn- imir hafa hér komist í hein oggóð tengsl við almenningy hér hafa þeirgetað horið hug- myndir sínar heint undir fólkið sem nýtur listar þeirra. “ Valgerður segir að börn og fullorðnir vinni að hluta til saman í skólanum. „Börnin eru með fullorðnum seinni partinn. Bömin líta á þennan skóla sem alvöru myndlistarskóla og taka til dæmis akademíska námsþætti eins og módelteikningu sem sjálfsögðum hlut í námi sínu. Það að þau kynnist þessum þáttum svo ung gerir það vitanlega að verkum að þau standa seinna meir jafnöldrum sínum, sem ekki hafa verið hér við nám, miklu fram- ar, bæði í tækni, beitingu á áhöldum og öðru.“ Mikil tengsl við starfandi myndlistarmenn Valgerður segir að einn af meginkostum skólans séu tengsl hans við starfandi lista- menn á hverjum tíma. Kennarar við skólann hafa alltaf verið starfandi myndlistarmenn. Meðal kennara frá fyrstu starfsárum skólans voru Asmundur Sveinsson, en hann var alla tíð mikill velunnari skólans og kennari um tuttugu ára skeið, Ragnar Kjartansson sem var fyrst sem nemandi Ásmundar og síðan kennari og í stjórn skólans til um 1988, Þor- valdur Skúlason, Hörður Ágústsson, Karl Kvaran, Hringur Jóhannesson, Jóhannes Jó- hannesson, Jón Gunnar Árnason, Unnur Bri- em, Guðmunda Andrésdóttir, Hafsteinn Aust- mann, Valtýr Pétursson og Kjartan Guðjóns- son. „Að mínu mati,“ segir Valgerður, „má þakka velgengni skólans og vinsældir kenn- urum hans. Og kannski hefur það ekki síður komið listamönnunum sjálfum vel að kenna hérna en nemendunum. Listamennirnir hafa hér komist í bein og góð tengsl við almenn- ing, hér hafa þeir getað borið hugmyndir sínar beint undir fólkið sem nýtur listar þeirra." Kviði ekki f ramtiðinni Myndlistarskólinn í Reykjavik hefur gengið í gegnum þónokkrar sviptingar í húsnæðis- málum allt frá stofnun og kannski aldrei átt neitt öruggt heimili. Skólinn var fyrstu tíu árin á efstu hæðunum að Laugavegi 166, í Víðishúsi. Húsið brann árið 1957 og þar með allar eigur skólans. Ásmundur Sveinsson, sem eins og áður sagði var mikill velunnari skól- ans, skaut þá skjólshúsi yfir hann. Skólinn starfaði því næstu tuttugu árin í Ásmund- arsal eða til ársins 1977 að skólinn, vegna uppsögn húsnæðis, var fluttur að Laugavegi 118. Þar var skólinn í mun stærra húsnæði enda var stækkun þess orðin brýn vegna aukins nemendafjölda. Skólastarf tók þá á sig núverandi mynd að mestu þar sem byggt er á námskeiðsáföngum og skólaárinu skipt í haustönn og vorönn. En Myndlistaskólinn í Reykjavík þurfti að flytja aftur við uppsögn húsnæðis í árslok 1980. Snemma árs 1981 var kennsla hafin að nýju og nú að Tryggva- götu 15 þar sem skólinn hefur haft aðsetur í 16 ár. „Og enn horfum við fram á breytingar í húsnæðismálum," segir Valgerður, „okkur hefur verið sagt upp hér á Tryggvagötunni en það húsnæði hefur verið í endurbyggingu og er enn. Við höfðum lengi vel trú á því að við fengjum að vera hérna til langframa enda hentar þetta húsnæði okkur afar vel. En nú er orðið ljóst að við verðum að fara héðan út annaðhvort á miðjum næsta vetri eða næsta sumri. Þetta kemur sér vitanlega af- skaplega illa en við höfum vilyrði frá borg- aryfirvöldum um að þau fínni fyrir okkur annað húsnæði. Eg vona bara að í kjölfar þessara breytinga komi skóli sem er jafn góður og sá sem nú er. Skólinn stendur að mínu mati á tímamót- um; ekki aðeins vegna breytinga í húsnæðis- málum heldur einnig vegna þess að nú er að koma inn í skólann ný kynslóð ungra kennara. Það hefur lengi verið mikið til fólk af sömu kynslóð sem starfað hefur við skól- ann. Hringur Jóhannesson listmálari var lengst kennara samfellt í starfi við skólann eða frá 1962 til 1996 að hann lést fyrir ald- ur fram. Hann var enn við kennslu meðal yngri myndlistarmanna sem nú eru að taka við. Það eiga eftir að koma nýir og ferskir straumar inn með þessu unga fólki og ég kvíði því engan veginn framtíð skólans. Að auki eru að verða til nýjar áherslur í þjóðfélaginu hvað varðar menntun; það er talað um símenntun og endurmenntun. Skól- ar, eins og sá sem hér er rekinn, verða því sífellt mikilvægari og fjölsóttari." Afmælissýningin verður opnuð í dag kl. 14 í húsnæði skólans við Tryggvagötu 15. Á sýningunni verða sýnd nemendaverk unnin í skólanum í vetur. Á henni verður lögð áhersla á bakgrunn skólans og fortíð með myndum úr sögu hans, bæði af verkum nemenda, af kennslu og úr félagslífí. Skólinn á mjög gott heimildasafn um íslenska myndlist allt frá 1930. Á sýningunni eru dæmi úr úrklippu- safni Axels Helgasonar sem var einn af stofn- endum skólans og fyrsti skólastjóri og úr úrklippusafni Ragnars Kjartanssonar og auk þess ljósmyndir frá fyrstu kennsluárunum í Víðishúsi. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 10. MAÍ1997 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.