Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1997, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1997, Blaðsíða 15
Mynd: Sverrir Már Bjarnason, Árbæjarskóla. ÁLAGASVANURINN BÍLLINN rennur hljóðlaust eftir malbikuðum veginum. Rign- ingin, sem veðurfræðingurinn spáði um morguninn, lemur rúðumar. En áfram heldur hann. Kílómetra eftir kíló- metra og ber hana æ lengra. Hún er á leið Vestur. Vestur þar sem jökullinn bíður þess að taka á móti henni - tilkomumikill og óhagganlegur sem fyrr. í tuttugu ár hefur hún horft út á flóann þar sem hann ber við loft sem ókrýndur konung- ur fjallanna. í öll þessi ár hefur hún þráð það heitast af öllu að fara aftur heim; vitja æsku- stöðvanna. En hann var því mótfallinn. „Hvaða tilgang hefur það að fara þangað? Gleymdu þessum hræðilega stað,“ sagði maðurinn sem hún elskaði og fékk hana til að gleyma minning- unum - um stund. „Það færir þér enga gleði að rifj'a upp löngu liðna atburði, ástin mín - fyrir utan að þar er ekkert Iengur að sjá; bær- inn löngu hruninn og allt komið í eyði.“ Og svo liðu árin. Af og til leitaði hugurinn Vestur en hann var laginn við að eyða um- ræðuefninu þegar hún bar það upp að fara. En nú er hann horfinn á braut og enginn getur lengur stöðvað hana. Umferðarskiltin renna hjá og og einstaka ær hrökklast frá vegkantinum. í huga stúlk- unnar bærist í senn tilhlökkun og kvíði. Hvern- ig skildi aðkoman verða? Er bærinn alveg hruninn? Eru álftirnar á tjörninni horfnar? Finndi hún krossinn á leiðinu hans Blesa og búið sem hún byggði í hrauninu? Kannski. Hún kveikir á útvarpinu til að drepa hugsun- um sínum á dreif en slekkur strax aftur þeg- ar hávær ljósvíkingurinn hamast við að kynna iagið í 17. sæti breska vinsældarlistans. Hugurinn reikar aftur til fortíðar. í hugan- um kviknar mynd af sjö ára stelpu í röndóttri peysu, popplínbuxum og gúmmískóm, sem faðir hennar hafði keypt af farandsala. Hún stendur við hraunjaðarinn og lýtur höfði með spenntar greipar. Við fætur hennar er lítill kross. Hún hefur þegar lokið við að lesa Faðir- vorið og þá tekur söngurinn við. „Heimsu- ból/helgerujól/signimær/songusól“ syngur hún með sinni skæru barnsrödd og vatnar músum yfir hátíðleika stundarinnar. Hún er að kveðja Blesa, vin sinn, hinstu kveðju og kann aðeins þennan eina sálm. Blesa hafði faðir hennar gefið henni sem nýköstuðu fol- aldi. Hann átti að verða reiðhesturinn hennar en bar þess í stað beinin, tveggja vetra, í skurði sem vondir menn höfðu grafið. Mikið hafði hún hatað þessa menn. Sárt hafði hún grátið vin sinn. Seinna, þegar kettlingarnir hennar Klódhildar „fundust" drukknaðir í tjörninni af einhveijum óskiljanlegum ástæðum, naut hún góðs af þeirri lífsreynslu. Þá var hún orð- in átta ára og hafði lært bænir sem hún fór með við útför þeirra. Þá voru krossarnir á grafreitnum fimm að tölu - allir í röð. Þá ________SMÁSAGA EFTIR______________ RAGNHEIÐI DAVÍÐSDÓTTUR kunni hún líka „Afram krissmenn kossmenn" sem hún heyrði sungið í barnatímanum hjá Skeggja. Svo signdi hún yfir hina fimmföldu gröf og skildi eftir fífla og vönd af sóleyjum. Stúlkan hverfur frá endurminningum berns- kunnar og lítur á kílómetramælinn sem sýnir hundruðfimmtíuogfimm. Hún stoppar stutta stund, ieggur hendurnar fram á stýrið og hvílir sig. Hvaða erindi á hún annars vestur? Var hún ekki guðslifandifegin að komast það- an? Hversu oft hafði hún ekki mænt suður yfir jökul þar sem hún vissi af Fyrirheitna landinu; höfuðborginni sjálfri þar sem strætis- vagnar liðu um göturnar og allir gátu farið í bíó og keypt sér alvöruís í brauðformi. Þar gengu stelpur í nælonúlpum og streddsbuxum og áttu tyggjó í vasanum. Og þar voru engir gúmmískór til. Þar þurftu stelpur aldrei að gefa kálfum eða raka slægjur. Þar var lífið stórkostlegt ævintýri. Snæfellsrútan. Aðeins nafnið hafði yfir sér ævintýrabiæ. Þetta rauða og hvíta ferlíki bara hana til Fyrirheitna landsins. Þá fékk hún spánýja strigaskó úr Kaupfélaginu með hvítum reimum. Þá fékk hún líka tíkall til að kaupa sér Sínalkó og krembrauð þegar rútan stopp- aði í Borgarnesi. Hún valdi sér sæti við gluggann og naut hverrar mínútu sem bar hana lengra í átt að ævintýrunum. Mikið var hann lánsamur, rútubílstjórinn, sem naut þeirra forréttinda að fá að aka til Reykjavíkur tvisvar í viku. Hann var kallaður Baddi og var í köflóttri vinnuskyrtu með uppbrettar ermar svo skein í myndir af berum konum á hand- leggjum hans. Hann var með gula putta og reykti Kamel eins og pabbi. Eins og pabbi sem sat löngum stundum í eldhúsinu með hendur undir kinn og reykti á meðan kaffið kólnaði í fantinum. Pabbi sem lyfti henni hátt á loft með sterkum örmum sínu og sagði: „Mikið er stelpan mín orðin stór.“ Pabbi sem gaf henni spenvolga, freyð- andi nýmjólk úr kókflösku þar sem hún sat á skammeli í fjósinu og beið þess að hann lyki mjöltum. Undir miðnætti hvern dag og skildi ekki af hverju stelpan möglaði. „Þú verður stór og sterk af mjólkinni," sagði hann rétt eins og þegar hann otaði að henni lýsinu á morgnana. Þetta var pabbi sem dvaldi löngum stundum í kjallaranum og sýslaði við aukabú- greinina sem lyktaði eins og rúgbrauð. Alltaf var karlinn jafn kátur þegar hann kom upp aftur. Pabbi sem sendi hana suður í girðingu til að tína hagalagða í strigapoka; ull sem varð að aurum í Kaupfélaginu. Aurum sem hún mátti eiga. Mikið var hún kát þegar hún fór í kaupstaðinn og gat keypt sér malt og Prins póló og hvað súkkulaðið var lengi að bráðna uppí henni. Það var líka pabbi sem las með henni söguna af litlu stelpunni sem týnd- ist í höfuðborginni og lögregluþjóninum sem hjálpaði henni aftur heim. Hún var í „Gagn og gaman“ bókinni með skrýtnu lyktinni; sömu lykt og var af Alfinni álfakóngi sem amma í Reykjavík sendi henni í pakkanum sem kom með rútunni. Það var amma sem bjó um hana í stofunni þegar hún kom til höfuðborgarinn- ar; amma sem átti eldhús þar sem alltaf var sérstök kaffilykt. Hún gekk í Hagkaupsslopp með rósamynstri og leiddi hana eftir hádegi uppí Njálsgötu-Gunnarsbrautarstrætóinn sem bar þær á Roy Rogersbíóið. Þetta var amma sem bjó handan við jökulinn í suðrinu þar sem fyrirheitna landið var. Jökullinn. Frá Reykjavík blasti hann við frá öðru sjónarhorni. Dældin á sínum stað. Ein- hver sagði henni að tröllskessa hefði sest á toppinn en það var líklega bara plat. Því komst hún að seinna þegar hún hafði búið í mörg ár í höfuðborginni. En nú var hún á leið Vestur þar sem jökulinn ber við loft. Hún nálgast tjörnina; tjörnina þar sem álft- irnar áttu heima. Þar renndi hún sér á skautun- um sem foreldrar hennar höfðu gefið henni í jólagjöf. Skautana sem keyptir voru við vöxt og kröfðust fernra ullarleista. „Þeir verða að endast," hafði pabbi sagt þegar hún mátaði þá á stofugólfinu framan við jólatréð. Þeir dugðu í þijú ár. Tjörnin. Hvar var hún? Var þessi litli pollur virkilega tjörnin hennar? Hvar voru álftirnar? Hvar var skjannahvíti, hálslangi svanurinn sem hún lokkaði að tjarnarbakkanum undir tindrandi norðurljósunum? Svanurinn sem hún náði aldrei að kyssa og breyttist því aldrei í prins eins og í ævintýrinu? Áfram líður farkosturinn eftir hólóttum veg- inum. Það er tekið að skyggja. Við vegarbrún- ina sér hún þúst. Var þetta gamli Fergusoninn sem pabbi hennar hafði keypt af karlinum fyr- ir sunnan? Karlinum sem fékk jarpskjóttan fjög- urra vetra fola í skiptum? Þarna tijónir hann í túnfætinum sem minnismerki um löngu liðna tíð. Ekki lengur fagurgrænn eins og forðum þegar hann dró rakstrarvélina. Fergusoninn er liðin tíð. Rétt eins og tjörnin hennar og álftirn- ar. Rétt eins og bæjarrústimar, sem nú blasa við henni efst á bæjarhólnum. Rétt eins og búið í hrauninu, inneignin í Kaupfélaginu, kettling- amir og Blesi. Eins og nýmjólkin í kókflösk- unni og gúmmískórnir með hvítu röndinni. Meira að segja litla stelpan, sem söng „Heims um ból“ er horfín í þoku minninganna. Allt hefur breyst nema jökullinn. Jökullinn sem tijónir enn fyrir Vestan - óhagganlegur sem fyrr. Stúlkan snýr bifreiðinni við á veginum og heldur aftur suður fyrir jökul til Fyrirheitna landsins. Þar ætlar hún að halda áfram leitinni að skjannhvíta, hálslanga svaninum sem bíður þess enn að verða kysstur. Höfundurinn starfar hjó VÍS. KENYA EMELÍUDÓTTIR HAFIÐ Er ég anda að mér sjávarloftinu og horfi á hafið finnst mér sem ég horfi á stærsta demant heims. Demant vonar, demant ástar og þrár. Ég ímynda mér að ef ég kyssi það muni óskir mínar rætast. Með fjaðurmögnuðum hreyfingum ég beygi mig niður og kyssi það blítt. Eg þarf ekkert að finna til lengur, ekkert að óttast. Allt er hljótt ég opna augun. Tindrandi birtu leggur yfir allt. Ég veit hvert ég er komin þú veist það líka. Ég vil ei aftur Eg verð hér alltaf. Eg fann sjálfa mig hér. Höfundurinn er ung stúlka í Kópavogi. ÞÓRIR HAUKUR EINARSSON ÖLDRUN Komstu þar forðum, er klettarið kögruðu bláan sæ. Við æskunnar seiðandi öldunið var ýmsu kastað á glæ. Skínandi perlur og skarfakál skörtuðu Ijósum litum, þar glaðir og reifir bernskunnar skóm við slitum. Bak við dali, heiðar og höf er Höfðinn þinn í dag. endurfundunum orðin á töf við ævinnar sólarlag. Eitt er að slíta átthagabönd, annað að hnýta þau saman. Þú veist ekki lengur hvernig þú ert í framan. Fokið er löngu í forna slóð, farin veröld, sem var. Við hugar þíns kulnandi hlóðaglóð húkirðu, gamalt skar, heldur þú eigir afturkvæmt inn fyrir Höfðatána. Bíttu á jaxlinn, gamanið tekur að grána. Komið er héðra á líf þitt los, nú liður að ögurstund. Við skarmánans tvíræða skelmibros þú skjögrar á forlagafund. Hvað helst er á dagskrá veistu vart, á vísan er ekki að róa. Ef til vill saknarðu Höfðans við Húnafióa. Höfundur er fyrrverandi skólastjóri. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 10. MAÍ 1997 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.