Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1997, Blaðsíða 11
BABELSTURNAR HINUM
MEGIN Á HNETTINUM
Hæstu byggingar heimsins hafa mestalla
öldina verið í Bandaríkjunum. Það er til
marks um framvinduna í A-Asíu og Astral-
íu að þar seilist hver turninn ó fætur
öórum hærra en áóur hefur verió byggt.
FRÁSÖGN 1. Mósebókar Gamla
testamentisins af Babelsturnin-
um (Babyloníuturninum)greinir
frá því, að mennirnir, sem þá
töluðu allir sama tungumál,
vildu reisa sér turn sem skyldi
nátil himins. Að sjálfsögðu refs-
aði Guð þeim fyrir slíkan hroka
með því að rugla tungumái þeirra, þannig
að enginn skildi lengur annars mál og varð
því að hætta við bygginguna. Babyloníu-
‘menn voru um þær mundir meiri bygginga-
menn en flestir eða allir aðrir og fræg bygg-
ing, Ziggúratið í Babýlon, er talin kveikja
hugmyndarinnar um Babelsturninn. Það var
svo löngu síðar, árið 1546, að flæmski málar-
inn Pieter Bruegel, eldri, festi á léreft hug-
mynd sína og kannski annarra 16. aldar
manna um útlit Bablestumsins. Að visu læt-
ur Breugel turninn ná ofar skýjum, en skýin
eru svo sem á móts við 12. hæð og flestum
þætti nú ámóta bygging og þessi minna
meira á dávæna mauraþúfu en turn sem teyg-
ist til himins. Raunar er þess að gæta, að
Breugel málar tuminn að öllum líkindum á
því stigi þar sem mennirnir urðu að hætta
við hann, þegar enginn skildi lengur annars
manns mál, enda ber útlitið að ofanverðu það
með sér að hér er allt í smíðum.
Um langan aldur voru pýramídarnir í
sEgyptalandi hæstu byggingar veraldar. Það
ier eftirtektarvert að slíkir byggingamenn
;sem Rómveijar voru, reyndu þeir ekki á
iþolrif hins mögulega að þessu leyti; aftur á
'móti byggðu þeir Pantheon, sem var lang-
stærsta sjálfberandi hvolfþak veraldar.
Rómveijar voru praktískir menn með báða
fætur á jörðinni og guðadýrkun þeirra virð-
ist ekki hafa gert kröfu til þess að teygja
byggingar til himins. Slíkar teygingar til
himins voru á næstu öldum í nafni trúar;
þar á meðal moskan Hagia Sophia í Mikla-
EFTIR GÍSLA SIGURÐSSON
BABELSTURNINN, málverk eftir Pieter Breugel eldri, 1546. Af Babelsturninum segir í I.Mósebók, en þeim hroka að byggja uppfyr-
ir skýin lét Guð ekki órefsað.
garði og á miðöldum varð það guði og kirkj-
unni þóknanlegt að hinn gotneski stíll teygði
turnspírur sínar sem hæst. íbúðarhús voru
ekki háreist af þeirri einföldu staðreynd að
fólk fékkst ekki til að þramma upp stiga
ofar en svo sem á 6. hæð. En hæð íbúðar-
húsa breyttist þegar lyftutæknin kom til
sögunnar.
Tæknileg forsenda fyrir hæstu bygging-
um þessarar aldar er einskonar beinagrind
eða burðargrind úr stáli. Þar tóku Banda-
ríkjamenn afgerandi forystu, bæði í Chicago
og New York, þar sem Empire State-bygg-
ingin átti um tíma heimsmetið og nú um
hríð Sears-turninn í Chicago. Einn merkasti
arkitekt aldarinnar, Frank Lloyd Wright,
teiknaði 1956 skýjakljúf, gerólíkan öllum
þeim sem áður voru byggðir og þar að auki
' átti hann að gnæfa yfir þá alla með sínar
528 hæðir. Þessari byggingu var stefnt gegn
skókassastílnum í flestum hæstu
byggingunum, en af framkvæmdum varð
aldrei.
Evrópa hefur að þessu leyti farið sér
hægt og í borg eins og
París, þar sem byggt hef-
ur verið af miklum list-
rænum metnaði, hafa
menn ekki lagt áherzlu á
hæðina.
Því hefur verið spáð að
þungamiðja heimsviðskiptanna eigi eft-
ir að færast á Austur-Ásíusvæðið, þar
sem hagvöxtur er nú hvað mestur í
heiminum. Stórbísnisinn heiminum er
sem óðast að koma sér fyrir í löndum
eins og Tælandi, Kína, Suður-Kóreu
og Tævan. Þangað streymir ijármagn-
ið og þá fylgir með, að menn byggja
og byggja stórt. Nú er að minnsta
kosti einn turn langt kominn sem skák-
ar öllu í Ameríku og annar á teikni-
borðinu, eða rúmlega það, sem yfir-
gnæfa skal allt annað.
Kuala Lumpur
og Melbourne
Borgríkið Singapore hefur verið mikið
hagvaxtarhreiður, en næsti nágranni
þess er Malaysia, neðst á Malakka-
skaganum og raunar er annar hluti
þess lands í mikill fjarlægð á norður-
hluta Borneo. í Malaysiu virðist mik-
ill uppgangur, svo sem fram kemur
í Kuala Lumpur, þar sem menn eru
nú að leggja síðustu hönd á þá bygg-
ingu sem verður í bili hæst í heimi.
Til þess að teikna hana var fenginn
stjörnuarkitektinn Cesar Pelli, en
tímaritið Architectural Review, sem
fjallað hefur um bygginguna, er ekki
ýkja hrifið. Ekki þarf að kvarta yfir
skókassalaginu hér. Turnarnir tveir
(því miður sést aðeins rúmur helm-
ingur þeirra á myndinni) eru sam-
tengdir með brú sem hér sést, en
gagnrýnandi tímaritsins segir Pelli
hafa hrifsað eitt og annað úr fornum
musterisbyggingum nálægra landa,
búddamusterum í Burma þar á með-
al, til þess að finna stíl sem hann
álíti við hæfi á þessum slóðum.
Melbourne
skákar öllum
Það er hinsvegar í Melbourne í
Ástralíu sem skýjakljúfi skýjakljúf-
anna er ætlað að rísa og hefur arki-
tektinn Denton Corker Marshall
þegar teiknað hann. Eins og sést
á myndinni er álitlegur klasi miðl-
ungs skýjakljúfa fyrir í
borginni, en þeir verða æði
lágreistir eftir að sá nýi
rís uppí 680 m hæð. Bygg-
ingin er eins einföld og
turnarnir í Kuala Lumpur
eru margbrotnir. Turninn
öfgf
;| ■
■. -■
f|
II
ii »■
: í
er ferhyrndur, en fjögur pör af uppistöðum
úr stáli mynda megin burðarvirkið, sem
gengur að sér svo turninn mjókkar að ofan.
Burðarvirkið myndar einskonar fætur sem
turninn stendur á og það er dtjúgur spölur
upp á 1. hæð, en hæðirnar eru samtals
137. Neðantil í turninum munu stórfyrir-
tæki fá rými til afnota, ofar er gert ráð
fyrir hóteli, en efst er glerklæddur, lllm
hár toppur, sem eingöngu verður fyrir fjar-
skiptabúnað.
En hvað segja íbúar Melbourne? Fer þeim
eins og Reykvíkingum, sem yfirleitt rísa upp
með heilagri vandlætingu ef byggja á nýtt
hús í miðbænum, jafnvel þótt það sé lægra
en húsin í kring?
Nei, hugsunarhátturinn er eitthvað öðru-
vísi hinum megin á hnettinum. Skoðanak-
annanir í Melbourne sýna að 80?4> borgarbúa
líta nýja turninn með velþóknun.
Hann verður táknmynd borgar-
innar á sama hátt og óperuhúsið
í Sydney er táknmynd þeirrar
borgar.
Grœn gildi ■ Shanghai
Sunnantil í Kína er um þessar
mundir meiri uppgangur en ann-
arsstaðar í veröldinni. Meðal
þess sem senn mun rísa þar er
turnhýsi í Shanghai, reyndar
aðeins uppá 36 hæðir, svo þetta
verður dvergur í samanburði við
turninn í Melbourne. Arkitekt-
arnir heita Norindar, Hamzah
og Kennedt Yeang, sem þekktur
er fyrir umhverfisvænar til-
raunir. í tuminum í Shanghai
verða hin grænu gildi í fyrir-
rúmi. Einn af brautryðjendum
módemismans sagði einhveiju
sinni, að hús væri vél til að búa
í. Frá sumum sjónarhornum
minnir turninn í Shanghai
meira á einhverskonar vél en
venjulegt hús og helgast það
af því að sólarrafhlöður eru
gerðar áberandi og einnig hitt,
að utan á húsinu og utan við
útveggina er einskonar hlífð-
arkápa.
í Shanghai getur orðið kalt
á vetram og að sama skapi
heitt á sumrum og kælibúnað-
ur er þá jafn nauðsynlegur
og upphitun þegar kaldast er.
Hlutverk kápunnar er bæði
að skýla fyrir köldum vindi
og draga úr hitunaráhrifum
sólar. Með því er bæði dregið
úr mengun og orkunotkun.
Ofugt við turninn í Melbo-
urne, er hótel neðantil, en
skrifstofur ofantil. Þar á
milli, á 17. og 18. hæð er
300 manna ráðstefnusalur
og önnur aðstaða fyrir ráð-
stefnuhald.
í turni hinna grænu gilda
er gert ráð fyrir tijágróðri
víða um bygginguna. Hér
er ekki beint verið að leita
eftir frumleika -eða gera
kúnstir eða stílrænar eftir-
líkingar eins og í Kuala
Lumpur, heldur ræðst útlit-
ið af þeirri fyrirætlun, að
byggja þægilegt og vist-
vænt umhverfí.
TVÍBURATURNINN í Kuata Lumpur í Malaysiu, þar sem arkitektinn Cesar Pelli þykir
hafa tekið frjálslega að láni ýmislegt úr musterisbyggingum Austurlanda.
GRÆNT og vænt í Shanghai: Kápuklæddi turninn mun fá rafmagn frá sólarrafhlöðum
en kápan á að draga úr rekstrarkostnaði, bæði við upphitun og kælibúnað.
ÞANNIG mun miðborg Melbourne Ifta út eftir að turninn rís, 680 m hár. Hann verður þá hæsta bygging heims.
sx
^ÍfiL
ARKITEKTÚR
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 10. MAÍ 1997
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 10. MAÍ 1997 1 1