Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1997, Page 6
MYNDLISTASKOLINN I REYKJAVIK
Á AFMÆLISSÝNINGUNNI verða sýnd nemendaverk unnin í skólanum i vetur.
Á TÍMA-
MÓTUM
Myndlistaskólinn í Reykjavík ó fimmtíu ára afmæli
um þessar mundir og í tilefni þess efnir hann til
sýningar ó verkum nemenda og myndum og munum
úr safni skólans. ÞRÖSTUR HELGASON ræddi við
skólastjóra skólans, Valgerói Bergsdóttur, um hlut-
verk hans, gildi og framtíð sem þrótt fyrir 1 hús-
næóiskröggur er björt aó hennar mati.
ÞRÖNGT mega sáttir sitja. Kennslustund í barnadeild á fyrstu starfsárum
ÚR KENNSLUSTUND i portrettmálun. Nemendur í almenningsfræðslu, endurmenntun
og á framhaldsskólastigi nú á vorönn voru á þriðja hundrað, flestir i teiknun og málun
en einnig i myndasögugerð, formfræði, keramik og skúlptúr.
TÖFRAHEIMAR myndlistarinnar
hafa opnast fyrir mörgum í
Myndlistaskólanum í Reykja-
vík. í þennan skóla hefur al-
menningur, jafnt böm sem full-
orðnir, leikir og lærðir, getað
leitað sér fræðslu um myndlist
síðastliðin fimmtíu ár en skól-
inn var stofnaður af Félagi íslenskra frí-
stundamálara árið 1947. Á vorönninni sem
nú er að Ijúka voru nemendur skólans rúm-
lega 360 talsins, börn og unglingar í dagdeild-
um og fullorðnir síðdegis og á kvöldin.
Kennslugreinar skólans eru bæði almennings-
fræðsla í myndlist, áfangakennsla á fram-
haldsskólastigi, endurmenntun og fræðsla í
myndlist fyrir börn og unglinga.
Að sögn Valgerðar Bergsdóttur, skóla-
stjóra skólans, stuðlar skólinn að almennri
fræðslu um myndlist. „Hingað koma börn
úr grunnskólunum sem hafa sérstakan áhuga
á myndlist. Hér læra þau ekki aðeins að
munda pennsil eða móta úr leir, nám þeirra
hér mótar afstöðu þeirra til myndlistar, þrosk-
ar skynfæri þeirra til að taka við myndlist
og njóta hennar. Mörg dæmi eru um að
krakkar komi hingað á grunnskólaaldri og
haldi svo áfram í gegnum alla sína skóla-
göngu, framhaldsskólann og jafnvel háskól-
ann.
Þetta nám skilar sér einnig í öðru námi.
Það er löngu viðurkennt hvað tónmennta-
kennsla hefur mikið gildi og sést það á styrkj-
um sem veittir eru til slíkra skóla. Og mér
finnst eins og þetta viðhorf sé einnig að verða
ofan á um myndlistina, að hún gegni stóru
hlutverki í uppeldi barna. Við sjáum þetta
endurspeglast í breyttu viðhorfi til handverks
sem nú er mikið talað um að þurfi að efla.“
UM 140 nemendur voru f barna- og ungl-
ingadeildum skólans nú á vorönn en mörg
dæmi eru um að krakkar sæki skólann
meðfram öðru námi, bæði með grunn-
skóla, framhaldsskóla og háskóla.
Fræðsla fyrir börn og f ullorðna
Um 140 nemendur voru í barna- og ungl-
ingadeildum við skólann á þessari vorönn.
Myndlistarfræðsla barna við skólann er auk
verklegrar kennslu í meðferð leirs og lita og
vinnu að eigin hugmyndum og úrvinnslu,
fræðsla á listabókasafni og heimsóknir á
sýningar. í barnadeildum var viðfangsefni
vorannar Reykjavík og er það jafnframt þema
vorsýningarinnar sem jafnframt er afmælis-
sýning skólans. Aðalsteinn Ingólfsson fjallaði
af því tilefni um myndgerð húsa í meðförum
íslenskra myndlistarmanna í fræðandi fyrir-
lestri sem sérstaklega var fiuttur fyrir barna-
og unglingadeildir. Myndgerð í nemenda-
vinnu barnanna hefur einkum beinst að hús-
um í næsta nágrenni skólans sem er staðsett-
ur í miðju borgarinnar með útsýni yfir miðbæ-
inn. Börnin hafa einnig fengið vinnuaðstöðu
í sölum ráðhúss Reykjavíkur í því skyni að
sjá yfir og teikna mannlíf og fugla við Tjörn-
ina. Myndþemað tók einnig til myndskreyt-
inga við ljóð borgarskáldsins Tómasar Guð-
mundssonar.
Allt frá stofnun skólans hefur mikil áhersla
verið lögð á myndlistarkennslu barna og
unglinga. Fyrsti kennari í barnadeildum var
Unnur Briem. Ragnar Kjartansson tók við
barnakennslu um 1956. Börnin unnu undir
hans leiðsögn samvinnuverkefni sem prýða
skóla og stofnanir innan borgar. Sýningar á
nemendavinnu barna úr skólanum hafa und-
anfarin ár verið í Listasafni íslands og í
Norræna húsinu. Barna- og unglingadeildir
hafa reynst sigursælar á erlendum sýningum,
þar er þekktastur grafíktvíæringurinn í Torun
í Póllandi en þar hafa nemendur skólans
unnið til gullverðlauna í þrígang, íyrst árið
1986 og nú seinast árið 1994.
Myndlistaskólinn í Reykjavík sér um al-
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 10. MAÍ 1997