Lesbók Morgunblaðsins - 12.07.1997, Page 2
ISLENSKUR SAFNADAGUR
ISLENSKUR safnadagur verður á morg-
un, sunnudag. Þá munu söfn á íslandi
sameinast um að vekja athygli á starf-
semi sinni og er þess vænst að fólk leggi
leið sína á söfnin og njóti þess sem í boði
verður, að því er fram kemur í máli Lilju
Árnadóttur safnstjóra Þjóðminjasafns Is-
lands. Víða verður ókeypis aðgangur eða
FINNSKUR
SIGUR í
BEETHOV-
ENKEPPNI
/
TJÁN ára piltur, Antti Siirala
frá Helsingfors sigraði nýlega
í alþjóðlegu Beethovenkeppn-
inni í píanóleik sem haldin var
í Vín í Austurríki. Siirala hlotnuðust
einnig sérstök verðlaun fyrir að leika
einn af síðari sónötum Beethovens.
Siirala stundar nám í Sibeliusar-aka-
demíunni hjá Matti Raekallio.
Beethoven-keppnin er ein sú virtasta
af þeim sem eingöngu eru bundnar við
túlkun á verkum eins tónskálds. Alls
kepptu 300 píanóleikarar um þátttöku-
rétt.
SLENSKUM listamanni, Pétri Kristjáns-
syni á Seyðisfirði, var boðið að vera
með hliðarsýningu á sýningu svissneska
listamannsins, Dieter Roth, og sonar
hans, Björns Roth, í Samtímalistasafninu í
Marseille í Frakklandi. Fleiri íslendingar
eiga aðild að sýningunni því Eggert Einars-
son, Gunnar Helgason og Gísli Jóhannsson,
eru samstarfsmenn Dieters og Björns Roth
á þessari sýningu.
Pétur Kristjánsson er búfræðingur og
þjóðfræðingur að mennt. Hann hefur feng-
ist við listsköpun um skeið og sýnt mynd-
verk og skúlptúra í heimabyggð sinni. Pétur
og Dieter Roth hafa verið kunningjar í nokk-
ur ár. Dieter bauð honum að vinna með sér
veittur afsláttur og boðið upp á sérstaka
leiðsögn um sýningar.
Lilja segir að íslenska safnadaginn megi
rekja til alþjóðasamtaka safna, ICOM, sem
haldi safnadag hátíðlegan átjánda maí ár
hvert. Sú dagsetning henti aftur á móti illa
íslenskum aðstæðum. „Því varð að ráði
milli íslandsdeildar ICOM og íslenskra
KOSTNAÐUR við tónleikahald ten-
óranna þriggja; Lucianos Pavarott-
is, Placidos Domingos og Joses
Carreras, í Þýskalandi verður héðan
í frá margfaldur miðað við það sem hingað
til hefur verið, eftir að þýskur dómstóll úr-
skurðaði í vikunni að þeir flyttu ekki sígilda
tónlist, heldur dægurtónlist.
Félag þýskra rétthafa í tónlist (GEMA)
höfðaði mál á síðasta ári, þar sem þeir töldu
að tenórarnir þrír ættu að greiða tónleika-
gjald eins og um dægurtónlist hefði verið að
ræða. Sígild tónlist á sér ríka hefð í Þýska-
landi og þar er flutningur hennar styrktur
með því að greiða þarf lægri gjöld fyrir tón-
leika en þegar um dægurtónlist er að ræða.
Hefðu tónleikar tenóranna talist sígildir, hefðu
þeir átt að greiða um 40.000 mörk, um 1,6
milljónir ísl. kr. En vegna þess að tenórarnir
fluttu m.a. dægurflugur á borð við „O sole
árið 1991 og oft síðan.
„Það var engin alvara í
listsköpun minni fyrr en
ég kynntist Dieter. Hann
hefur sannfært mig um
að þetta sé í lagi og í
raun búið mig til sem
listamann. Hann er besti
kennari sem ég hef haft,“
segir Pétur.
„Úti - inni"
Sýningin í hinu stóra
Samtímalistasafni í Marseille var opnuð 27.
júní og stendur fram í september. Hún er
einskonar yfirlitssýning á verkur þeirra
safna að velja fremur annan sunnudag júlí-
mánaðar.“
Að sögn Lilju eru miklar vonir bundnar
við safnadaginn sem vonast sé til að geti
orðið að árlegum viðburði hér á landi.
Greint er frá því helsta sem söfn bjóða
upp á í dálkinum Menning/listir næstu viku
hér á síðunni.
mio“, krafðist GEMA þess að þeir greiddu
um 1,5 milljón marka, um 60 milljónir ísl. kr.
Hélt félagið því fram að ekki væri hægt að
halda því fram að tónleikar tenóranna væru
sígildir þar sem þeir hefðu „yfirbragð uppá-
komu“ og að þeir væru eingöngu í hagnaðar-
skyni. „Þegar alvarleg tónlist er annars vegar
skiptir mestu máli að njóta tónlistarinnar og
hlú að menningunni," sagði m.a. í málflutn-
ingi GEMA. „Á tónleikum tenóranna er mark-
aðssetningin í forgrunni."
Tónleikar tenóranna, sem þeir hafa haldið
undir berum himni m.a. í Þýskalandi, frá
1990, njóta mikilla vinsælda þar í landi, þrátt
fyrir að miðaverðið sé um þrefalt hærra en
á óperutónleika. Hélt GEMA því fram að það
væru fyrst og fremst dægurlögin, svo sem
„O sole mio“ sem löðuðu áhorfendur að, og
því bæri tenórunum að greiða gjöld í sam-
ræmi við það.
feðga. Þeir hafa síðan boðið þremur lista-
mönnum að vera þar með hliðarsýningar,
auk Péturs eru það Dorothy Iannone og
Ingrid Wiener. Þá er Boekie Woekie, bóka-
búðin í Amsterdam, með sýningu og verslun
í hluta sýningarrýmisins.
„Dieter bauð mér að fá eitt herbergi,"
segir Pétur sem setti þar upp myndverk
og skúlptúra undir heitinu: „Uti — inni“..
Ekki vill hann fara nánar út í það hvers
konar verk þarna eru á ferðinni en síðar í
spjallinu kemur í ljós að meðal verkanna
er hurðin á salerni verslunarinnar Turn-
bræðra sem Pétur rekur með félaga sínum
og hefur farið höndum um á síðustu mánuð-
um og árum.
MENNING
LISTIR
Þjóðminjasafn Islans
Sýningin Kirkja og kirkjusknlð, miðalda-
kirkjan í Noregi og á íslandi.
Listasafn Islands
Sögn í sjón; sýning á verkum sem byggð
eru á íslenskum fornritum.
Asmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveins-
sonar
Árbæjarsafn
í sumar verða sýndar Ijósmyndir frá Reykja-
vík, ásamt Ijóðum skálda.
Kjarvalsstaðir - Flókagötu
íslensk myndlist til 31. ágúst. í vestursal er
landslagsmálverk frumheijanna og verk ab-
straktmálara, í miðrými verk eftir listamenn
úr SÚM-hópnum og verkið Scienee Fiction
eftir Erró. í Austui'sal eru verk yngri málara,
Safn Ásgríms Jónssonar - Bergstaða-
stræti 7 4
Sýning á úrvali vatnslitamynda eftir Ásgrím.
Norræna húsið - við Hringbraut
Sýning á íslensku handverki, Þingborgarhóp-
urinn sýnir verk sín. Anddyri Norræna húss-
ins 11.7.-17. 8. opið 9-19, nema sun. 12-19.
Sýningarsalur í kjallara: 19. júlí - 17, ágúst
Sumarsýning Norræna hússins Fögur Snert-
ing - sýning á verkum Guðjóns Bjarnasonar
opið alla daga 13-19.
Ráðhús Reykjavíkur
Sýning á vatnslitum Bridget Woods í Tjarn-
arsal og í Ráðhúskaffi. Sýningin stendur til
15. júlí.
Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði
v/Suðurgötu
Sögn í sjón. Hátíðarsýning handrita, opin
daglega kl. 13-17.
Þjóðarbókhlaða
ísland - himnaríki eða helvíti. Sýning út
ágúst.
Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b
Fimm nýjar sýningar. Magnús Pálsson sýnir
í Giyfjunni, Gallerí Gúlp og Undir pari eru
með sýningu í Forsal, Áslaug Thorlacius sýn-
ir í Bjarta og Svarta sal, í SÚM-salnum er
haldið upp á 20 ára afmæli Suðurgötu 7 og
gestur safnsins að þessu sinni er Jón Reykdal.
Gallerí Hornið
Gunnar Þjóðbjörn Jónsson sýnir til 30. júlí.
Gallerí Sævars Karls, Bankastræti 19.
Kristinn M. Pálma sýnir til 6. ágúst.
Handverk og hönnun
Georg Hollanders sýnir leikföng til 14. júlí.
Mokka - Skólavörðustíg
Hlín Gylfadóttir sýnir sílikondýr til 6. ágúst.
Tuttugu fermetrar, Vcsturgötu 10
Sýning á verkum Oliver Kochta.
Hafnarborg - Strandgötu 34 Hf.
Sýning á verkum Wulf Kirchners, Nönnu
Pallgard Pape, Magni Jensen og Svein
Thingnes.
Listasafn Sigurjóns - Laugarnestanga 70
Sumarsýning á völdum verkum Siguijóns.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Sýning á málverkum Tuma Magnússonar.
SPRON, Álfabakka 14, Mjódd.
Aðalheiður Valgeirsdóttir sýn. til 8. ágúst.
Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn
Fjarvera/nærvera - sýning á verkum Christ-
ine Borland, Juliao Sarmento og Kristjáns
Guðmundssonar.
Byggðasafn Hafnarfjarðar
Undir Hamrinum - Af lífi hafnfirskrar al-
þýðu til 30. sept.
Sjóminjasafn Islands við Vesturgötu Hf.
Almenn sýning og sýning á olíumyndum
Bjarna Jónssonar.
Norska húsið Stykkishólmi
Sýning á verkum R. Weissaves. Opið dag-
lega kl. 11-17.
Iþróttamiðst. Reykjahlíð i Mývatnssveit
Sólveig Illugadóttir sýnir 15 olíumálverk
Laugardagur 12. júlí.
Hádegistónleikar í Hallgrímskirkju. Gustavo
Delgado Parra og Ofelia G. Castallanos ieika
mexíkóska barokktónlist.
Sumartónleikar í Skálholtskirkju. Hedwig
Bilgram, orgel- og semballeikari leikur kl.
15. Kl. 17 syngur Marta G. Halldórsdóttir,
sópran ásamt Hedwig Bilgram og Kolbeini
Bjarnasyni, flautuleikara.
Sumartónleikar á Norðurlandi.Reykjahlíðar-
kirkja klukkan 21. Quadro Corydon (messo-
sópran, senball, selló og blokkflauta)
Sunnudagur 13. júli
Sumartónleikar í Skálholtskirkju. Kl. 15 verð-
ur leikið úrval af efnisskrám laugardagsins.
Sumartónleikar á Norðurlandi.Akureyrar-
kirkja klukkan 17. Quadro Corydon (messo-
sópran, senball, selló og blokkflauta) Sumar-
kvöld við orgelið í Hallgrímskirkju kl. 20.30.
Flytjendur Gustavo Delgado Parra og Ofelia
G. Castallanos.__________________
LEIKLIST
Islenska óperan
Evíta laug. 12. júlí.
Hermóður og Háðvör
Að eilífu laug. 12. júlí.
Augnablik
Tristan og ísól sun. 13. júlí.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er
eftir að birtar verði í þessum dálki verða að
hafa borist bréflega fyrir kl. 16 á miðviku-
dögum merktar: Morgunblaðið, Menn-
ing/listir, Kringlunni 1, 103 ltvík. Myndsend-
ir: 5691181. Netfang: Kolla @mbl.is.
ISLENDINGAR MEÐ ROTH-FEÐGUM
TENORARNIR ÞRIR
EKKI SÍGILDIR
Bonn. The Daily Telegraph.
Pétur
Kristjánsson
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS — MENNING/LISTIR 12. JÚLÍ 1997