Lesbók Morgunblaðsins - 12.07.1997, Page 12

Lesbók Morgunblaðsins - 12.07.1997, Page 12
KARL-ERIK BERGMAN EKKERT VAL Aðalsteinn Ásberg Sigurósson þýddi. í þokunni á Tíu-grunni vörpuðum við trollinu út. Strituðum og drógum í fjóra tíma með 2x200 hestöflum. Einungis í ratsjánni sáum við skerin og hina bátana. A bergmálsdýptarmælinum birtust litlir svartir kekkir og máfarnir í kjölfarinu voru til vitnis. Þegar við hættum og höluðum inn færðist harka í leikinn. Silfurhvítur risapoki vall upp einsog skafl meðfram bátnum. En ellefu tonn af streymingi er engin Ijóðlist. Við bryggjuna bognuðu bök og hnúar hvítnuðu á skóflusköftum. Ellefu tonn af streymingi í minkafóður meðan fjöldi fólks deyr úr næringarskorti þyngir skóflurnar og kassana til muna. En næsta morgun, á slaginu fimm, vörpum við aftur trollinu á Tíu-grunni. Höfundurinn er sjómaður og rithöfundur ó Álandseyjum. Ljóöió er úr bók, sem heitir Ljóó ó londi og sjó og komin er út ó íslenzku í þýóingu Aóalsteins Ásbergs Siguróssonar. ORÐAFORÐI 7 AMBASSADOR, DIPLOMAT, RÆÐISMAÐUR, EMBÆTTI, AMT OG AMBÁTT EFTIR SÖLVA SVEINSSON AMBASSADOR er sendiherra af hæstu gráðu, en sendimenn erlendra ríkja hafa margvísleg tignarheiti og stöðutákn, allt eftir því hvað þeir eru hátt- settir. Orðið er komið til okkar úr dönsku máli, ambassadar, en Danir fengu það með frönskum sendi- mönnum. Orðið er dregið af keltnesk-lat- nesku orði, ambactus sem merkir þjónn eða vikapiltur, enda eru sendiherrar að þjóna landi sínu og landsmönnum þegar þeir eru sendir til annarra landa. Þetta kemur fram í gotnesku biblíunni. í Mark- úsar guðspjalli er frá því greint er Jesús ræðir við lærisveina sína og segir: „Ef einhver vill vera fremstur, þá sé hann síðastur allra og þjónn allra.“ Wulfila bisk- up ritar andbahts þar sem stendur þjónn í íslenskri þýðingu. Diplómat er stjórnarerindreki, að jafn- aði háttsettur í utanríkisþjónustunni. Þetta orð hefur verið á vörum manna þessa öld, sótt til Danmerkur eða Eng- lands, dipiomat. Orðið er hins vegar grískt að uppruna. Diploma merkir á grísku blað brotið í tvennt, dregið af diploun, að tvö- faida. Stjómarerindrekar afhenda trúnað- arbréf þegar þeir koma til annarra landa sem sendiherrar, það er diploma ef svo má segja, og sá sem ber slík bréf er dipló- mat. A erlendum málum merkir diploma líka prófskírteini, leyfisbréf sem færir mönnum tiltekin réttindi. En flest ríki eiga líka ræðismann í öðr- um löndum til þess að gæta hagsmuna einstaklinga og fyrirtækja. Þeir eru yfir- leitt búsettir þar sem þeir gegna skyldum sínum. Danir eiga til dæmis ræðismenn í nokkmm kaupstöðum á íslandi sem allir eru íslenskir. Ræðismaður er gamalt orð, þýðing á latneska orðinu consul, en á lýð- veldistíma Rómar, um það bil 500-44 f. Kr., voru tveir konsúlar kjömir í öldunga- ráðinu til þess að fara með framkvæmda- valdið. Consiiium þýðir ráð, ráðstefna á latínu og af því er orðið dregið. Konsúlar, ræðismenn, eiga að gefa þau ráð sem duga. Af ambactus er einnig dregið ambátt sem merkir ófrjáls kona. Ambassadorar eru að því leyti til ófijálsir að þeir verða að hlíta mjög nákvæmum siðareglum og hefðum sem skapast hafa í samskiptum ríkja. Og þeir þurfa líka að gegna skyldum sem kunna að stríða gegn skoðunum þeirra. Þeir eru að framfylgja stefnu stjórnar og eiga og mega ekki hafa skoð- anir á efninu. Þeir eru þjónar þeirra stjórn- valda sem fólu þeim að ganga vika sinna í ókunnum löndum; með sínum hætti eru þeir þrælar. Ambassadorar eru embættismenn, en embætti er skylt orðinu ambátt. í got- nesku er til orðið andbathi sem merkir þjónusta. Embætti getur einmitt merkt messa sem er guðsþjónusta. íslandi var áður skipt í ömt, stjórnsýslu- umdæmi, en amt er einmitt skylt emb- ætti. Hér voru amtmenn frá 1688-1904, umboðsmenn Danakonungs, eins konar ambassadorar konungs og fóru með til- tekin völd, gengu erinda hans. Höfundurinn er cand. mag. í íslensku. KÁTHE Öien og Kristín Ástgeirsdóttir við opnun sýningarinnar í Sveio. Á SLÓÐUM HRAFNA- FLÓKA EFTIR KRISTÍNU ÁSTGEIRSDÓTTUR Sýning ó mólverkum Kathe Öien sem hlotió hefur heitió: Sagg Flóka Vilgeróarsonar, hefst ó morgun, sunnudag, í golfskálanum í Hafnarfirói í tengslum vió víkingahátíóina sem þar stendur yfir. Fióki Vilgerðarson hét víkingur mikill; hann bjóst af Rogalandi að leita Snjólands; þeir lágu í Smjörsundi. Hann fékk að blóti miklu og blótaði hrafna þijá, þá er honum skyldu leið vísa, því að þá höfðu hafsiglingarmenn engir leiðarstein í þann tíma í Norðurlöndum. Þeir hlóðu þar varða, er blótið hafði verið og kölluðu Flókavarða; það er þar er mætist Hörðaland ogRogaland. (Landnámabók) AU ERU margvísleg störfin sem hlaðast á herðar þing- manna. Síðastliðinn vetur barst óvænt verkefni inn á mitt borð er mér var boðið að koma til vesturstrandar Noregs, nánar tiltekið til Sveio, en þann stað hafði ég aldrei heyrt nefndan fyrr. Mér var ætlað það hlutverk að opna sýningu á málverkum Kát- he Öien sem hlotið höfðu heitið: Saga Flóka Vilgerðarsonar. Það var ekki fyrr en ég ók til norðurs frá flugvellinum á Karmeyju gegnum Haugasund í átt til Sveio að ég áttaði mig til fulls á því hvert ég var komin. Víða blöstu við bauta- steinar og haugar fornmanna, stærstur var haugur Haraldar hárfagra sem er hin mynd- arlegasta hæð. Hafi ég einhvern tíma efast um norrænan uppruna í það minnsta hluta íslendinga, hvarf sá efí í þessari ferð, því hvarvetna blöstu við kunnugleg nöfn sunda og eyja, dala og bæja. Rétt eins og íslending- arnir sem fluttust til Vesturheims á síðustu öld, fluttu norsku landnámsmennirnir staðar- heitin með sér til nýrra heimahaga. Þegar komið var á leiðarenda út við strönd- ina þar sem nú heitir Ryvarden varð mér ljóst að ég var komin til sjálfs upprunans, næstum því til upphafs íslandssögunnar ef marka má heimildir. Við mér blasti staðurinn þar sem mætast Hörðaland og Rogaland. Þarna blótaði Hrafna-Flóki hrafnana þijá, þarna stóð varðan og þarna úti á sundinu lá skip hans við festar, hlaðið vistum til ferðarinnar löngu út til Snjólands. Þegar ég lagðist til hvíldar um kvöldið heyrðist ekkert annað en gnauð í vindi og lágvær sjávarniður. Þarna lá ég altekin af því sem Þórbergur Þórðarson kallaði: að hlusta á nið aldanna. Ég hugsaði: ef einhvern tím'a er ástæða til merkra drauma þá er það nú, vitja þú mín Hrafna-Flóki. En ekkert bar fyrir mig þessa nótt og sannaðist hið fornkveðna, að eigi er mark að draumum. Sveitarfélagió Sveio Sveio er víðlent en fámennt sveitarfélag á norskan mælikvarða. Byggðin er dreifð, en á milli tveggja meginbyggðakjarna búa bændur sem einkum stunda mjólkurfram- leiðslu. Fyrir norðan er sveitarfélagið Stord og enn norðar er Bergen. Haugasund er rétt fyrir sunnan Sveio en þar var miðstöð skipa- smíða og siglinga fyrr á öldinni. Nú er þar sannkallaður olíubær. Þar hafa skipasmíða- stöðvar breyst í þjónustufyrirtæki fyrir olíu- borpallana og meðaltekjur bæjarbúa eru með þeim hæstu í Noregi. Þess njóta nágrannarn- ir í Sveio, en margir íbúanna vinna í bænum eða á borpöllunum og koma færandi hendi heim. Þetta er ástæðan fyrir því að Sveio hefur efni á því að reka listamiðstöð á Ryvard- en og bjóða lisamönnum starfsstyrki með íbúð á hveiju ári, en auk þess er rekin öflug félagsleg þjónusta fyrir íbúana með skólum, leikskólum og íbúðum fyrir aldraða. I Sveio er mikið af gömlum timburhúsum, meðal annars heimsótti ég bóndabæ sem var byggður á fyrstu áratugm 19. aldar og ber aldurinn vel. Þar má einnig sjá hús tónskálds- 12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 12. JÚLÍ1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.