Lesbók Morgunblaðsins - 20.09.1997, Side 2
Morgunblaðið/Golli
STEINUNN Birna og Þorsteinn Gauti segja flutning á verkum fyrir tvö píanó reyna á „samspilstaugina'
GETUM ANDAÐ SAMAN
PÍANÓLEIKARARNIR Steinunn Birna
Ragnarsdóttir og Þorsteinn Gauti Sigurðs-
son halda tónleika í Hafnarborg á morgun,
sunnudag, kl. 20. Leikin verða verk fyrir
tvö píanó eftir Debussy, Milhaud og Brahms.
Steinunn Birna og Þorsteinn Gauti léku
efnisskrá fyrir tvo flygla á tónleikum í ís-
lensku óperunni í fyrra. Þá höfðu slíkir tón-
Ieikar ekki verið haldnir hér á landi í tæpa
tvo áratugi en Halldór Haraldsson og Gísli
Magnússon munu hafa verið síðasta starf-
andi píanódúóið. Tónleikana í íslensku óper-
unni varð að endurtaka nokkrum sinnum
vegna mikillar aðsóknar.
En hvað varð til þess að Steinunn Bima
ogÞorsteinn Gauti ákváðu að setja píanódúó
á laggirnar? „Það kom eiginlega af sjálfu
sér,“ segir Steinunn Birna. „Það er svo
mikið til af skemmtilegri tónlist fyrir tvo
flygla að við stóðumst ekki freistinguna.“
Og Þorsteinn Gauti tekur í sama streng:
„Það er í raun merkilegt hve mikið er til
af þessari tónlist, bæði af verkum sem sam-
in hafa verið fyrir tvö píanó og verkum sem
útsett hafa verið fyrir tvö píanó.“
Steinunn Birna og Þorsteinn Gauti hafa
einbeitt sér að því að leika á tvö píanó í
stað þess að leika fjórhent á eitt píanó fyr-
ir þær sakir að „það hljómar betur og okk-
ur líður betur,“ eins og Steinunn Birna tek-
ur til orða. Eru þau á einu máli um að sam-
starf af þessu tagi reyni tvímælalaust meira
á „samspilstaugina“ en samstarf hljóðfæra-
leikara í hefðbundnum kammerhópi fyrir
þær sakir að verkaskiptingin sé ekki eins
afdráttarlaus. „Til allrar hamingju er þessi
„samspilstaug“ til staðar hjá okkur - við
getum andað saman. Annars værum við
örugglega löngu hætt þessu,“ segir Steinunn
Birna.
Píanóleikararnir segja að efnisskráin sé
samsett af áheyrilegu og vinsælu efni og
muni án efa höfða til breiðs hóps áheyrenda
- „af þeirri einföldu ástæðu að það er
skemmtilegt," bætir Steinunn Birna við.
Johannesar Brahms verður sérstaklega
minnst á tónleikunum, í tilefni af hundrað
ára dánarafmæli hans, en leiknir verða hin-
ir nafnkunnu Ungversku dansar. Þá munu
tvö verk eftir Claude Debussy, Tunglskin
og Lítil svíta, og eitt verk eftir franska tón-
skáldið Darius Milhaud, svítan Les Songes,
hljóma í Hafnarborg annað kvöld. Mun þetta
vera frumflutningur síðastnefnda verksins
hérlendis en eins og Steinunn Birna bendir
á er tiltölulega auðvelt að finna verk fyrir
tvö píanó sem ekki hafa verið flutt á ís-
landi áður.
Steinunn Birna og Þorsteinn Gauti hafa
fullan hug á að halda samstarfinu áfram
og segja það verðugt markmið að gera tón-
leika með þessu sniði að árvissum viðburði.
„Við erum með fleiri verk í vinnslu - verk
sem þurfa langan undirbúning. Þá sendum
við væntanlega frá okkur geislaplötu á
næsta ári með efni fyrir tvo flygla."
Aðalfundur
Sögufélagsins
BÖÐVAR
FJALLAR UM
VESTURFARA-
SÖGURNAR
BÖÐVAR Guðmundsson rithöfundur
heldur fyrirlestur á aðalfundi Sögufé-
lagsins í Þjóðarbókhlöðunni í dag kl. 14
um ritun skáld-
sagna sinna Hýbýli
vindanna og Lífsins
tré sem hlaut ís-
lensku bókmennta-
verðlaunin í febrúar
síðastliðnum. Böð-
var fjallar sérstak-
lega um heimilda-
notkun sína við skrif
skáldsagnanna.
Hann studdist að
miklu leyti við bréf
vesturfara frá sfð-
ustu öld en sögurnar fjalla um íslenska
fjölskyldu sem fór vestur um haf og
settist að í Nýja-íslandi. Fyrirlesturinn
nefnist Að ljúga til víða.
Böðvar
Guðmundsson
LEIRKER Rögnu Ingimundardóttur eru meðal listaverka sem sýnd eru íGerðarsafni.
Síðasta sýningarhelgi í Geróarsafni
NÚ UM helgina lýkur þremur einkasýning-
um í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni. í
austursal sýnir Kristín Jónsdóttir frá
Munkaþverá pappírsverk með íslenskum
örnefnum og þrivíð verk (skúlptúra) úr ull
og plexigleri og fleiri efnum þar sem
áhersla er Iögð á ullina í sögu landsins.
í vestursal sýnir Málfríður Aðalsteins-
dóttir stór, litrík myndverk þar sem hún
stílfærir form úr islensku landslagi sem
leitað hefur á hug hennar í fjarlægð en
Málfríður hefur verið búsett í Noregi um
árabil.
Ragna Ingimundardóttir sýnir á neðri
hæð safnsins stór og voldug leirker sem
hún skreytir og málar í mörgum litum og
Iögum. A sýningu Rögnu eru einnig mósa-
íkborð sem eru nýjung í list hennar.
MENNING/
LISTIR
í NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Þjóðminjasafn Islands
Sýningin Kirkja og kirkjuskrúð, miðalda-
kirkjan í Noregi og á íslandi.
Listasafn íslands
ON ICELAND til 28. sept. Salir 1 og 2:
Svissnesk samtímalist; Peter Fischli/David
Weiss, Thomas Huber.
Úr eigu safnsins, salur 3: íslenskir frumheij-
ar. Salur 4: íslensk abstraktlist. Fyrirlestra-
salur: Hreinn Friðfinnsson, Kristján Guð-
mundsson, Sigurður Guðmundsson.
Listasafn ASI, Freyjugötu 41
- Ásmundarsalur
„Blár“ samsýning. Verk úr eigu safnsins.
Til 5. október.
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitssýning á verkum Ásmundar.
Árbæjarsafn
í sumar verða sýndar Ijósmyndir frá Reykja-
vík, ásamt ljóðum skálda.
Kjarvalsstaðir - Flókagötu
Kristján Davíðsson í austursal, Sigurður
Guðmundsson í miðsal og Samtímalist frá
Litháen í vestursal.
Safn Ásgríms Jónssonar .
Kyrralífs- og blómamyndir ásamt myndum
úr Reykjavík og nágrenni. Til febrúarloka.
Norræna húsið - við Hringbraut
Anddyri: Auglýsingaspjöld eftir Tryggva
Magnússon og Jón Kristinsson -Jónda. Til
2. nóvember.
Stofnun Árna Magnússonar, Arnagarði
v/Suðurgötu
Handritasýning opin þriðjud., miðv. og fimm.
kl. 14-16 til 19. des.
Hafnarborg
Handverkssýning í Sverrissal, Egill Ólafur
Strange módelsmiður og ljósmyndasýning
Clare Langan. Sýningar til 22. september.
Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b
í neðri sölum sýna Olga Bergmann og Anna
Hallin. Hafdís Helgadóttir sýnir í Bjarta og
Svarta sal og í Súmsal sýna Nikolaj Pavlov
og Júrí Spiridonov frá Jakútíu. Arnar Her-
bertsson er gestur safnsins í setustofunni.
Ráðhús Reykjavíkur, Nýlistasafnið og
MÍR-salurinn
Sýning sex íslenskra og jakútskra iista-
manna: Nikolaj Pavlov, Júrí Spiridonov, Kju-
regej Alexandra, Jón Magnússon, Ragnar
Axelsson, Ari Alexander Ergis Magnússon.
Gallerí Hornið
Inga Elín Kristinsdóttir sýnir til 1. október.
Gallerí Fold
Lu Hong og Ólöf Kjaran sýna til 21. sept.
Galleríkeðjan Sýnirými
Sýnibox: Elsa D. Gísladóttir
Gallerí Barmur: Finnur Arnar Arnarson.
Listasafn Siguijóns - Laugarnestanga 70
Sumarsýning á völdum verkum Siguijóns.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Sýning á málverkum Lore Bert.
Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn
Málfriður Aðalsteinsdóttir, Ragna Ingimund-
ardóttir og Kristin Jónsdóttir sýna til 21.
sept.
Gallerí Stöðlakot
Fríða S. Kristinsdóttir sýnir veflist til 28.
september.
Gallerí Listakot
Dröfn Guðmundsdóttir sýnir til 5. okt.
Ráðhús Reykjavíkur
Gyða Ölvisdóttir sýnir til 30. september.
Myndás ljósmyndamiðstöð,
Skólavörðustíg 41
Wout Berger sýnir til 26. september.
Gallerí Sævars Karls, Bankastræti 9
Aðalheiður Skarphéðinsdóttir sýnir til 3.
október.
Sjóminjasafn Islands við Vesturgötu i Hf.
Almenn sýning og sýning á olíumyndum
Bjarna Jónssonar.
Listaskálinn í Hveragerði
Björgvin Sigurgeir Haraldsson, Gunnar
Karlsson, Jóhanna Bogadóttir, Kjartan
Gunnarsson, Pétur Gautur, Soffía Sæmunds-
dóttir og Valgarður Gunnarsson.
Byggðasafn Hafnarfjarðar
Undir Hamrinum - Af lífi hafnfirskrar al-
þýðu til 30. sept.
Gerðuberg
Listsköpun barna frá Norðurlöndum.
Sunnudagur 21. september
Hafnarborg: Steinunn Birna Ragnarsdóttir
og Þorsteinn Gauti Sigurðsson halda tónl.
kl. 20.
Hallgrímskirkja: Norskur aðventistakór
heldur tónleika kl. 17.
Fimmtudagur 25. september
Sinfóníuhljómsveit íslands: Tónl., UNM, í
Langholtskirkju. Hljómsveitarstjóri: Guð-
mundur ÓIi Gunnarsson.________________________
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Þrjár systur lau. 20., sun.
21., fim. 25. sept. Fiðlarinn á þakinu fös.
26. sept. Listaverkið fös. 26. sept.
Borgarleikhúsið
Hár og hitt lau. 20., fös. 26. sept. Hið ljúfa
líf fim. 25. sept. Ástarsaga sun. 21. sept.
Loftkastalinn: Bein útsending sun. 21. sept.
Á sama tíma að ári mið. 24., fös. 26. sept.
Veðmálið lau. 20. sept.
íslenska óperan: Evíta lau. 20. sept.
Skemmtihúsið Ormstunga sun. 28. sept.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 20. SEPTEMBER 1997