Lesbók Morgunblaðsins - 20.09.1997, Side 13

Lesbók Morgunblaðsins - 20.09.1997, Side 13
DAGBOKARSLITUR FRA SUÐUR-FRAKKLANDI II VIÐ STRÖND EÐA GÖTU Aix-en-Provence og fjallið Sainte-Victoire í baksýn. EFTIR SVEIN EINARSSON Á kaffihúsinu Sól kostar móltíðin 50 franka eða minna og ó kaffihúsinu Vegamótum kostar bjórinn 1 3 franka. Manni fer að skiljast hvers- vegna feróalangar fjöl- menna ekki til Islands og reka upp ramakvein þegar maginn neyðir þó til aó nærast. AÐ er merkilegt hvað dagarnir geta verið ólíkir. Ólíkir dög- unum heima, ólíkir dögunum hér um árið, þegar við vorum hjá henni Betty, dagarnir inn- byrðis hér í Aix. Betty, vel á minnst, hún var nú kapítuli fyrir sig. Við dvöldumst hjá henni lungann úr tveimur sum- rum, fjölskyldan, fyrir einum fimmtán árum. í húsi sínu hafði hún á sumrin gesti og kost- gangara og ekkert nema listamenn - ólög- lega að þvi sagt var - en á því var söguleg skýring. Betty var upphaflega breskur dans- ari, sem komst svo langt að verða eindansari í þeim fræga ballettflokki, sem upphaflega var kenndur við Diaghilef, en seinna hét Ballets de Monte Carlo og undir stjórn Pól- veija, sem verið hafði náinn samstarfsmaður hins fræga Rússa. Hún var engin stjarna, en góður dansari, skildist okkur, og tók upp rússneskt nafn, því að ekkert stoðaði í ballett- heiminum að heita upp á ensku á þeim tím- um. Hún gerði reyndar gott betur, því að hún giftist svo einum rússneska dansaranum í hópnum og ól honum dóttur. Einu sinni milli stríða eru þau stödd í sam- kvæmi á stað skammt frá Le Lavandeau - miðja vega milli St. Tropez og Toulon - þar heitir réttu nafni La Faviere, en kallað manna á meðal Rússneska ströndin, af því að svo margir émigrés - landflótta Rússar höfðu sest þar að. Segir þá einn veislugestur við Betty okkar: Þetta hús hérna við hliðina á er til sölu. Tímarnir eru ótryggir, þú ættir að kaupa þetta hús til að hafa eitthvað í bakhönd- inni. „Alveg er það gráupplagt," svarar Betty, „ég með dansaralaun, gift dansara með dans- aralaun, sem kemur þeim í lóg í spilavítinu í Monte Carlo hvenær sem hann kemur því við.“ En móðir Betty var þarna í heimsókn og hún sagði: „Þetta eru vísdómsorð, tímarn- ir eru ótryggir, þú átt eftir að erfa mig og nú kaupir þú þetta hús fyrir arfínn." Og svo varð. Tímarnir voru vissulega ótryggir, árið eftir skall á heimsstyrjöld og dansflokkurinn var leystur upp. Betty skildi við sinn rússneska dansara og fór að reka pensjónat í húsinu. Reyndar gerði hún sitthvað fleira, því að hún átti vini í andspyrnuhreyfingunni, eftir að Frakkland var hernumið, og nú tók hún að sér að fela þá sem þurftu að fara huldu höfði í kjallaranum hjá sér. Meðal þeirra var dada- skáldið Tristan Tzara, eða svo segir sagan, og einhver nefndi nafn Jeans Gionos, annars af höfuðskáldum Provence, en það er af ýms- um ástæðum óstaðfest - insolite - eins og innfæddir segja. Einhverja nasasjón höfðu Þjóðvetjar af þessari starfsemi söguhetju okk- ar, því að einn góðan veðurdag, til að gera langa sögu stutta, koma til hennar menn úr /a resistance - andspyrnuhreyfingunni og segja sisona: Madame Baronova, Þjóðveijar hafa komist á snoðir um allt, þér og dóttir yðar eruð í hættu; þér fáið þijá tíma til að undirbúa yður og takið með yður það eitt sem þið getið borið í höndum, ailt er skipulagt: þér farið heim til Englands um Portúgal. Heim fór hún, gerðist þar fyrst dansgagn- rýnandi, síðar umboðsmaður fyrir stórstjömur eins og Margot Fonteyn, Vivien Leigh og Laurence Olivier, þegar þetta fólk þurfti að bregða sér hinum megin á hnöttinn til að sýna Áströlum list sína. Að tala við þessa konu var eins og að tala við lifandi orðabók um breska menningarsögu - alla hafði hún þekkt og af öllum kunni hún fróðleik og sögur. En hvað um það. Árið 1946 bregður hún sér yfir Ermarsund og suður að Cote d’Azur eins og Frakkar nefna þessa gullnu strand- lengju þar syðra, og stendur þar yfir rústum síns gamla húss, því að Þjóðveijar höfðu gert sér lítið fyrir og sprengt það í loft upp viku eftir að hún fór. Sem hún nú stendur þar og lætur hugann reika með tár í augnkrók, vind- ur sér að henni maður í rykfrakka með upp- brettan kragann, líkt og skroppinn út úr þeirri frægu mynd Þriðji maðurinn og segir: „Eruð þér Madame Baronova?" Henni verður hveift við og spyr eitthvað sem svo, hvort verið sé að fylgjast með ferðum hennar. „Ja, það má nú eiginlega orða það sem svo,“ segir maður- inn í frakkanum. „Þannig er mái með vexti, að ríkisstjórn Frakklands hefur ákveðið í þakklætisskyni fyrir það sem þér gerðuð fyr- ir okkur á stríðsárunum að reisa aftur hús yðar endurgjaldslaust.11 Og svo hófust bygg- ingaframkvæmdir og síðan rak Betty á hveiju ári gististað sinn án þess að þurfa til þess nein sérstök leyfi. Hún auglýsti aldrei, en orð barst og til okkar, kom það frá vinkonu okk- ar, breska leikstjóranum Jill Brooke. Betty var orðin öldruð og við náðum að upplifa tvö síðustu sumrin hennar dans le Midi. Dóttir hennar, sem gift er breska leikar- anum Ian Richardsson sem leikur höfuðskúrk- inn í öllum háðþáttunum, sem Bretar gera um skriffinnskuna og bræðravígin í Brussel, hafði ekki áhuga á að halda starfseminni áfram. Enda þurfti mikið til. Þegar við komum fyrst til Betty vorum við með bíl á okkar vegum og með Guide Michelin í höndum, ákveðin í að kynnast öllum sögufrægum veit- ingastöðum í þessu gósenlandi matarmenn- ingarinnar. Eftir fyrsta kvöldið hjá Betty fór- um við hvergi. Maturinn hjá henni var slík veisla fyrir skilningarvitin og viðræðurnar svo skemmtilegar, að við áttum ekki erindi annað. Hér í Aix er ekki farið á markaðinn á morgnana með Betty eða heim til vínbóndans að smakka guðaveigarnar - sans appellation controlée - hinn opinbera merkimiða - áður en sest er við skriftir á veröndinni eða farið á ströndina og í sjóinn. Dagurinn hefst á því að fara út í brauðbúð til að verða sér úti um glóðheitt mini-baguette eða dökkbrúnt banine og auðvitað croissant eða pain de chocolade. Og svo náttúrlega blaðið, La Provencale, til að fylgjast með. Gatan okkar heitir Rue d’It- alie og gengur út frá þeirri frægu götu Co- urs Mirabeau, þar sem heimurinn spókar sig fyrir framan tveggja alda kaffihúsin eins og Les deux Garcons. (Strákarnir tveir). íslensk stúlka sat þar milli tveggja presta. Annar, sem var kaþólskur, var spurður að því hvort það væri ekki erfitt að lifa einlífi. Hann sagð- ist halda, að það væri miklu vandasamara að vera giftur. Hinn, sem var mótmælendatrú- ar, lýsti yfir því að Cours Mirabeau væri full- komnasta gata í heimi og að sitja þar í sól- inni væri sín mesta sæla. Engin kirkja er þar í augsýn, en gosbrunnar, tré og fólk og göm- ul falleg hús. En okkar gata heitir sem sagt Rue d’It- alie. Slátrarinn er orðinn vinur minn og ekki aðeins farinn að segja mér til um það hvað ég eigi að hafa í matinn, heldur leggur hann einnig á ráðin um það, hvernig ég eigi að matreiða. Og ef það er eitthvað sem próven- salar kunna, þá er það matargerðarkúnstin. Kona mín og dóttir fara á námskeið eitt kvöld- ið og koma heim sprenglærðar í því að búa til Soupe a Poisson avec son rouille et crout- ons, sem er fiskisúpa með brauðskorpu og bragðbæti, og Aubergine farcie, sem eru eg- galdin steikt í ólífuolíu með tómatmauki og osti. Frúin í Bouchon leggur á ráðin um for- réttina, tapanede, margs kyns smárétti, sem miðjarðarhafsmenn hafa fundið upp á, eða patés, kæfurnar góðu. Handan við götuna fær maður svo fyrirlestur um osta, allt frá munst- er með kúmen og Sauternes-vím til Rebloc- hon, St. Albey eða blessuðum Tomme de Savoie., sem réttrúaðir telja mesta ost í heimi. Og vínsalinn heitir svo hvorki meira né minna en Bacchus og slær auðvitað gjörsamlega út áfengisútsölur mörlandans hvað úrval snertir. Á horninu á móti er verslun sem selur ein- göngu Calissons d’Aix, sælgæti, sem Aix er fræg fyrir, möndlumassa með ávaxtahjúp. Og þar við hliðina á er verslun sem sérhæfir sig í hinni sérgrein bæjarbúa, Santons, sem eru litlar leirstyttur af fólki og fé. Þar er að baki gömul hefð og í safninu, sem helgar sig sögu bæjarins (Musée de vieil Aix) má sjá að forðum var þetta leirfólk notað í brúðuleik- húsi. Vinsælt þema er fæðing Jesú með jötu og dýrasafnaði. Örfá tískuhús skjóta þarna upp kollinum, en meira ber á matvörubúðunum. Þarna er til dæmis Casino, angi af stórri verslunar- keðju, sem vekur hjá okkur minningar um það þegar við gistum hjá vinafólki okkar, hljómsveitarstjóranum Jean-Pierre Jacquillat og konu hans Cecile í myllu, sem var orðin að gestahúsi, skömmu áður en Jean-Pierre lést í bílsiysi. Þetta var uppi í Ardeche-fjöU- um, í Chambon-sur-Lignon og þarna var Edda Jónsdóttir myndlistarmaður með skemmtilega sýningu. Ymsum sveitabæjum þarna um kring hafði verið breytt í sveitaset- ur og ekki af vanefnum. Við vorum boðin á nokkur þeirra, en minnisstæðast var hjá for- stjóra Casino géant. Eldhúsið var stórt og klætt viðarveggjum, nema einn veggurinn var gler einn. Þar sást beint í hesthúsið og hægt að horfast í augu við reiðskjóta fjölskyldunn- ar. En nú erum við í Aix og í Rue d’Italie, sem er kannski ekkert merkileg gata, en ótrúlega íjölbreytt og yfir henni þokki, sem gerir það að verkum að auðvelt er að taka við hana ástfóstri. Og það er ekki bara út af veitinga- ~ húsunum og kránum, þó aðjiau setji auðvitað líka svip sinn á götuna. A kaffihúsinu Sól kostar máltíðin 50 franka eða minna og á kaffihúsinu Vegamót kostar bjórinn 13 franka. Manni fer að skiljast, hvers vegna ferðalangar fjölmenna ekki til íslands og reka upp ramakvein, þegar maginn neyðir þá til að nærast. Á kaffihúsinu sem kennir sig við Vitringana þijá er svo kaffi og te og bakkelsi í ómældum fjölbreytileik, þó að annað sé kannski ekki sérlega biblíulegt við þann stað en nafnið eitt. Hins vegar sér í gaflinn á kirkj- unni St. Jean de Malte, sem minnir bæði á postulann Jóhannes og Mölturiddara og til þess að ganga í hana þarf að bregða sér fyr- ir horn á lítið snoturt torg (með gosbrunni auðvitað); við það torg stendur líka listasafn borgarinnar, Musée Granet, sem heldur Céz- anne-sýningar án þess að eiga Cézanne- myndir; en meira um það síðar. En einn sunnudagsmorguninn förum við í kirkju. Söngurinn í þessari kirkju er rómaður og stóð undir nafni. En minnisstæðust varð þó predikunin. Þemað úr Brekkukotsannál um þann hreina tón, um það sem er ekta. Predikarinn byijaði á því að segja að allir væru í frí og það ætti líka við um þá tvo presta, sem venjulega þjónuðu söfnuðinum. Hann væri staðgengill. Ef hann nú tæki upp á því að líkja eftir þeim, væri hætta á að falskur tónn læddist inn í lagið. Hann yrði að kvaka með sínu nefi. Það bað hann okkur hin að gera líka. Sagðist vita, að mörg okkar væru ferðamenn, og í því væri svosem ekk- ert ljótt. En það væri eins og með hreina tóninn, menn þyrftu að huga að hinni sönnu - ferðamennsku. Til dæmis stoðaði lítið að koma í þessa kirkju og láta eins og hún væri ein- hver hátrimbruð dómkirkja. Á túristamáli fengi hún varla nema eina eða tvær stjörnur. Enda ekki það sem máli skipti. Hin sanna ferðamennska væri ganga pílagrímsins, leit hans að hinum sönnu verðmætum. Hann stóð með guðsorðabókina í vinstri hendi og sveiflaði þeirri hægri eins og róm- verskur ræðusnillingur eða leikari í Comédie Francaise. En samt var enginn upphafinn eða óekta tónn í þeirri framsetningu. Hann var nefnilega ekki að tala yfir okkur, heldur við okkur. Niðurlag í næstu Lesbók. ' Höfundur er rithöfundur og fyrrverandi Þjóóleikhússtjóri. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 20. SEPTEMBER 1997 I 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.