Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1998, Síða 2
Morgunblaðið/Golli
GENGIÐ hefur verið frá kaupum Listasafns íslands á Laufásvegi 12 og mun það gjörbreyta allri vinnuaðstöðu safnsins. í nýja húsinu verða
m.a. skrifstofa safnsins, fræðsludeild, bóka- og heimildasafn, forvarsla og starfsmannahald.
LISTASAFN ÍSLANDS FESTIR KAUP Á LAUFÁSVEGl 12
FRAMTÍÐARLAUSN Á HÚS-
NÆÐISVANDA SAFNSINS
MENNTAMALARAÐHERRA Björn
Bjarnason skýrði frá því í ræðu sinni við opn-
un sýningarinnar Ný aðföng í Listasafni ís-
lands í gærkvöldi að gengið hefði verið frá
kaupum á húsnæðinu Laufásvegi 12 undir
starfsemi Listasafnsins. Ólafur Kvaran, for-
stöðumaður Listasafnsins, segir að kaupin á
þessu 850 fermetra húsi fælu í sér framtíðar-
lausn á húsnæðisvanda safnsins hvað alla
vinnuaðstöðu varðaði. Söluverð húseignarinn-
ar er 58 milljónir króna.
Hinn 30. janúar n.k. verða liðin 10 ár frá
því að Listasafn íslands hóf formlega starf-
semi sína að Fríkirkjuvegi 7 eftir gagngerar
endurbætur á því húsnæði. í ræðu ráðherra
kom fram að safnhús Listasafnsins hafi að-
eins verið fyrsti áfangi í mannvirkjagerð í
þágu safnsins. Starfsmenn hafi til þessa
hvorki haft viðunandi vinnuaðstöðu né að-
stöðu til að þróa mikilvæga þjónustu, t.d. á
sviði rannsókna, fræðslu og upplýsingamiðl-
unar. Listasafnið fékk Næpuna eða Lands-
höfðingjahúsið til umsjónar og notkunar árið
1993 en þá þegar var ljóst að Næpan myndi
ekki leysa varanlega úr þörfum safnsins fyrir
stærra húsnæði. Með kaupum á Laufásvegi
12 hefur hins vegar tekist að leysa flest af því
sem stefnt var að með öðrum byggingará-
fanga safnsins. Þar mun yfirstjórn safnsins
verða til húsa ásamt skrifstofum, forvörslu og
starfsmannahaldi, geymslum, kennslustofu
og fundarherbergi.
Ólafur segir að enn eigi eftir að útfæra
starfsemina í nýja húsnæðinu í smáatriðum
en ljóst sé að gjörbreytt aðstaða eigi eftir að
skapast við flutning bókasafnsins í stærra
húsnæði sem gerir safninu kleift að sinna bet-
ur upplýsingaþjónustu við almenning. „Þá
eykst rýmið í safnbyggingunni sem við mun-
um t.d. nýta undir stærri og betri safnverslun.
Nýja húsnæðið hefur í för með sér gjörbreytt-
ar vinnuaðstæður og með kaupunum hefur
tvímælalaust fengist framtíðarlausn á hús-
næðisvanda safnsins hvað þetta varðar.“
Húsið verður afhent Listasafninu 1. júlí n.k.
BRASSÍ
HÁTEIGS-
KIRKJU
TÓNLISTARHÓPURINN Serpent sérhæfir
sig í flutningi blásaratónlistar og í dag kl. 17
gengst hópurinn fyrir kammertónleikum 16
blásara og 3ja slagverksleikara í Háteigs-
kirkju. Fyrirferðarmesta verkið á efnis-
skránni er tónverkið Myndir á sýningu eftir
rússneska tónskáldið Modest Musorgsky. Þá
verður frumflutt hér á landi Sónata á 14 eftir
Tryggva Baldvinsson auk þess sem leikin
verða verk eftir ítalska 16. aldar tónskáldið
Gabrielli, Benjamin Britten og Richard
Strauss.
I framvarðasveit Serpent hópsins eru þeir
Jóhann Bjöm Ævarsson, hornleikari, Einar
Jónsson, básúnuleikari, og Guðmundur Haf-
steinsson trompetleikari. Markmið hópsins er
að efla blásaramenningu hér á landi með því
að standa reglulega fyrir tónleikum þar sem
eingöngu er leikin brasstónlist. Hljómsveitar-
stjóri á tónleikunum í dag verður Kjartan Ás-
geirsson. Rússneska tónskáldið Musorgsky
skrifaði verk sitt Myndir af sýningu árið 1874.
Tónskáldið fæddist árið 1829 og tilheyrði hin-
um fræga fimmmenningahópi rússneskra nú-
tímatónskálda sem unnu að því að endurvekja
slavneska tónlistarhefð í verkum sínum. Aðrir
meðlimir þessa hóps tónskálda og lautinanta í
rússneska hernum voru Balakirev, Rimski-
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Á TÓNLEIKUM Serpent hópsins í Háteigskirkju í dag verður flutt blásaratónlist
frá ýmsum tímum.
Korsakov, Borudin og Caesar Cui. „Þessi tón-
skáld vildu vinna úr slavneskum menningar-
arfi sínum í stað þess að leita fyrirmyndar til
vesturs en á þessum tíma gætti mjög franskra
áhrifa í Rússlandi," segir Jóhannes. Arkitekt-
inn og listmálarinn Viktor Hartman var náinn
vinur Musorgskys og skömmu eftir að hann
lést var haldin stór yfirlistssýning á verkum
hans sem Musorgsky ákvað þá að semja tón-
list við. Verkið hefst á stefi leiðsögumannsinns
og Musorgsky ímyndar sér að Hartman sjálf-
ur leiði áhorfendur um sýninguna. Upphaflega
var verkið skrifað fyrir píanó en Einar segir
að ekkert verk í heiminum hafi verið útsett af
svo mörgum og á svo mismunandi hljóðfæri og
nefnir sem dæmi bæði Ravel og Askinasy.
Brassútsetning verksins er eftir Sir Edgar
Howard frá áttunda áratugnum.
Árið 1996 samdi Tryggvi Baldvinsson verk
fyrir blásturshljóðfæri sem hann nefnir Sónötu
á 14 og frumflutt var í Kaupmannahöfn á þingi
Norrænna tónskálda. Verkið hefur hins vegar
ekki heyrst fyrr hér á landi. Tvö verk á tónleik-
unum eru svokölluð antiphone verk þar sem
tveimur hljóðfærakórum er stillt upp and-
spænis hvor öðrum í kirkjunni og þeir leikast
á. Einar segir að þessi aðferð sé nk. „frum-
mynd stereósins," bæði skemmtileg og í senn
mjög vandmeðfarin í samleik hópanna tveggja.
Fyrra verkið er eftir ítalska 16. aldar tónskáld-
ið Gabrielli. Hið síðara er eftir Benjamin Britt-
en og nefnist Fanfare for St. Edmundsburry.
Það er í flutningi þriggja trompetleikara sem
staðsettir eru á mismunandi stöðum í kirkjunni
og kallast á með hljóðfærum sínum. Lokaverk
tónleikanna er verk Richards Strauss,
Feierlicher ein Zug op. 103, frá árinu 1909.
Max Reger umskrifaði verkið fyrir átta blás-
ara, orgel og pákur og á tónleikunum í dag
mun verkið hljóma í útsetningu hans.
MENNING/
LÍSTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Sýning vetrarins, Svífandi form. Verk
Sigurjóns Olafssonar. Safnið verður opið
samkvæmt samkomulagi í janúar.
Listasafn Islands
Ný aðfóng. Salur 1-3. Til 3. mars.
Salur 4: Asgrímur Jónsson, Þórarinn B.
Þorláksson, Jón Stefánsson, Jóhannes
Kjarval.
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitssýning á verkum Ásmundar
Sveinssonar.
Ásmundarsalur, Freyjugötu 41
Fyrirmyndarfólk sýnir myndski'eytingar
til 25. jan.
Kjarvalsstaðir - Flókagötu
Úr Kjarvalssafni - Sýningarstjóri Thor
Vilhjálmsson.
Líkamsnánd, norrænt sýningar- og safn-
fræðsluverkefni til 1. mars.
Safn Ásgríms Jónssonar - Bergstaða-
stræti 74
Kyrralífs- og blómamyndir ásamt mynd-
um úr Reykjavík og nágrenni. Til febrú-
arloka.
Þjóðarbókhlaðan
„Verð ég þá gleymd" - og búin saga. Brot
úr sögu íslenskra skáldkvenna. Sýning á
ritum og munum úr Kvennasögusafni. Til
31. jan.
Nýlistasafnið
Matjaz Stuk, Alena Hudocovicoca. Chris
Hales, margmiðlunarkvikmyndir. Pálína
Guðmundsdóttir, Hildur Bjarnadóttir og
Einar Garibaldi Eiríksson.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn
Steinupn Helgadóttir og Kjartan Olafs-
son. Úrval bestu frétta- og blaðaljós-
mynda ársins 1997. Til 1. febr.
Gallerí Horn
Árni Rúnar Sverrisson. Til 21. jan.
Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6
Snorri Ásmundsson. Til 19. jan.
Gallerí Sævars Karls, Bankastræti
Jón Óskar, Harlequin. Til 4. febr.
Sýning á ljósmyndum á almanökum frá
Lavazza. Til 6. febr.
Gallerf Fold
Jónas Viðar Sveinsson. Til 25. janúar.
Gallerfkeðjan Sýnirými
Sýnibox: Þriðja árs nemar Grafikdeildar
MHÍ.
Gallerí Barmur: Húbert Nói.
Gallerí Hlust: Hljóðmynd verksins „Af-
þreying fyrír tvo“ eftir Pétur Örn Frið-
riksson. Síminn er 551 4348.
20m2 Egill Sæbjörnsson. Til 25. jan.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Ólafur Gíslason. Deila með og skipta.
Birgir Eggertsson, Baldur Gunnai'sson,
Ólafur Stefánsson, Finnur Leifsson,
Magnús Skúlason og Erna Arnórsdóttir.
Til 15. feb.
Handverk & hönnun
íslenskt handverk. Til 24. jan.
Gerðuberg
Valdimar Bjarnfreðsson. Til 18. janúar.
Laugardagur 17. janúar
Háteigskirkja: Serpenthópurinn. Kl. 17.
Safnaðarheimili Vídalínskirkju: Gerrit
Schuil og Sigrún Eðvaldsdóttir. Kl. 17.
Sunnudagur 18. janúar
Bústaðakirkja: Kammertónleikar Bern-
ardel-kvartettsins kl. 20.30.
Fimmtudagur 22. janúar
Háskólabíó. SI. Einleikari Jenö Jandó.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Yndisfríð og óft'eskjan, sun. 18. jan.
Hamlet, sun. 18., fös. 23. jan.
Grandavegur 7, lau. 17., fim. 22. jan.
Borgarleikhúsið
Feður og synir, lau. 17., fós. 23. jan.
Galdrakarlinn í Oz, lau. 17., sun. 18. jan.
Augun þín blá, sun. 18. jan.
Njála, lau. 17. jan.
Hár og hitt sýnir Hver myrti Karólínu,
fim. 22. jan.
Loftkastalinn
Fjögur hjörtu, sun. 18., fós. 23. jan.
Á sama tíma að ári, lau. 17. jan.
Leikfélag Akureyrar
Á ferð með frú Daisy, lau. 17., sun. 18.
jan.
Leikfélag Kópavogs
Með kveðju frá Yalta, sun. 18. jan.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir
að birtar verði í þessum dálki verða að hafa
borist bréflega eða á netfangi fyrir kl. 16 á mið-
vikudögum merktar: Morgunblaðið, Menn-
ing/listír, Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir:
569 1222. Netfang: menning@mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 17. JANÚAR 1998