Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1998, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1998, Page 8
+ FREiGÁTAN „La Flore“ fyrir utan verslunarstaðinn Vatneyri við Patreksfjörð. Glæsileg þrímastra, búin 32 falistykkjum. NÝLEGA FUNDNAR ÍSLANDS- MYNDIR FRÁ 18. ÖLD EFTIR ÆSU SIGURJÓNSDÓTTUR OG GISÉLE JÓNSSON [ leiðangri sem farinn var til (slands og víðar 1771 og gerður var út af Loðvík XV Frakkakonungi var komið við á Patreksfirði, en i með í förinni var listamaðurinn Pierre Ozanne sem teiknaði mynd ir á mörgum stöðum. Flestar eru því miður glataðar, nema hvað nýl lega komu íl Ijós nokkrar m yndan na frá Patreksfirði. ÝLEGA komu í ljós í Frakklandi nokkrar áður óþekktar myndir frá Is- landi, gerðar af þekktum frönskum listamanni Pierre Ozanne (1737-1813). Þær birtast nú í fyrsta sinn. Hinn 1. júlí árið 1772 sigldi franska freigát- an „La Flore“ inn á Patreksfjörð og akkerum var varpað hjá verslunarstaðnum Vatneyri. Skipið kom í þeim erindagjörðum að gera ná- kvæmar staðarákvarðanir við ísland. Fyrir tilviljun varð Patreksfjörður fyrsti áfanga- staðurinn á íslandi. Ferðin til íslands var hluti af víðtækum leiðangri, sem gerður var út af Loðvík XV Frakkakonungi undir forystu Jean René Antoine Marquis de Verdun de la Crenne (1741-1805), til að reikna út með hjálp stjörnufræði og tímamæla, staðarákvarðan- ir ýmissa staða á hnettinum svo bæta mætti siglingakort. Með í förinni voru stærðfræð- ingurinn Jean Charles de Borda og stjörnu- fræðingurinn Alexandre Guy Pingré, auk annarra siglingafróðra manna. Leiðangur- inn tók tvö ár, hófst hinn 29. október 1771 og lauk hinn 8. október 1772. Farið var til Spánar, siglt með vesturströnd Afríku yfir til Kanarí- og Grænhöfðaeyja, yfir Atlants- hafið til Karíbahafsins, komið við á St. Pierre við Nýfundnaíand, til íslands, Færeyja, Hjaltlands yfir til Noregs og Dan- merkur og síðan heim á leið til Brest. Nið- urstöður mælinganna ásamt ferðalýsingu og myndum af strandlengju ýmissa staða voru birtar í tveggja binda riti: Voyage fait par ordre du Roi en 1771 et 1772 en diver- ses parties de TEurope, de TAfrique et de TAmérique .. .suivi de Recherches pour Rectifier les Cartes hydrographiques ... Paris 1778. Hingað kom leiðangurinn frá St. Pierre við Nýfundnaland eftir 23 daga erfiða ferð. Lenti skipið í hafvillum við Grænland vegna ófull- kominna siglingakorta og fundu skipsmenn ekki ísland. í upphafi var ætlunin að sigla norður fyrir Hom inn á Skagafjörð, til að gera hnattstöðumælingar á Hólum í Hjalta- dal. Þar hafði Guðbrandur Þorláksson biskup gert staðarmælingar á sínum tíma, sem þóttu furðu nákvæmar. í Landfræðissögu íslands segir Þorvaldur Thoroddsen að leiðangur Verdun de la Crenne ’nafi lagt grunninn að sjávarmælingum við Island. Með í förinni var franski listamaðurinn Pi- erre Ozanne (1737-1813). Eftir hann liggja nokkrar írumteikningar m.a. frá Patreks- firði, Tálknafirði, Vestmannaeyjum, auk tveggja portrettmynda. Hann gerði miklu fleiri myndir frá Islandi, sem nú munu glat- aðar því allar landsýnismyndimar, sem birt- ar eru í bókinni era gerðar eftir teikningum hans. Pierre Ozanne fæddist í Brest, þar sem hann bjó alla ævi. Hann starfaði hjá franska sjóhemum sem teiknari, málari og skipa- verkfræðingur. Hann var yngri bróðir og lærisveinn Nicolas Ozanne (1728-1811), sem er einn þekktasti skipa- og sjávarmyndamál- ari Frakka. Eftir þá bræður liggur merkt safn skipa- sjávar- og hafnarmynda, ómetan- leg heimild um skip og bæi á s.hl. 18. aldar. Skipa- og sjávarmyndamálarar voru sérstök stétt listamanna, oftast starfandi á vegum sjó- hersins. Þeir þóttu ómissandi við að teikna skip, kort, hafnir, sjóorastur og staðarmyndir. Þeir voru því oft fengnir til að taka þátt í leið- öngram til framandi landa og vora myndir þeirra hluti af skýrslugerð um leiðangurinn. Þeir voru lengi vel þeir listamenn, sem höfðu útimyndagerð hvað best á valdi sínu. Nicolas Ozanne var umsvifamikill lista- maður. Hann rak vinnustofu í París, þar sem systur þeiraa bræðra Jeanne-Frangoise (1735-1793) og Marie-Jeanne (1736-1786) unnu við að gera prentmyndir eftir teikning- um bræðranna. Pierre hafði minni akademíska teikniþjálf- un en bróðirinn Nicolas, hins vegar lærði hann einnig skipaverkfræði og stundaði sigl- ingar. Núna þykir þessi skortur hans á akademískri teikningu vera höfuðkostur mynda hans, því yfir þeim er ferskleiki og persónulegur léttleiki, sem gerir þær eftir- sóknarverðar, og sýna að í raun var Pierre afskaplega næmur teiknari. Hann var einnig vel þjálfaður í mannamyndagerð, eins og myndimar frá Patreksfirði og fleiri portrett- myndir hans bera með sér, m.a. sjálfsmynd hans, sem nú hangir uppi á safni sjóhersins í París. Myndir þeirra Ozanne bræðra era eftir- sóttar heimildir, því þær þykja með afburð- um heiðarlegar og nákvæmar. Saman ferðuð- ust þeir víða um lönd. Þeirra er minnst á al- þjóðlegum vettvangi vegna mynda sem þeir teiknuðu af orustum úr frelsisstríði Banda- ríkjanna og sýndar voru fyrir nokkrum árum á stórri sýningu í Washington. Eins og kunnugt er þá var ísland afskap- lega myndfátækt land. Hver einasta ný mynd, sem finnst er því ómetanleg, einkum og sér í lagi komi hún úr hendi góðra lista- manna. Svo furðulega vill til að þetta sama sumar árið 1772 vora þrír breskir listamenn hér á ferð, þátttakendur í leiðangri undir stjórn aðalsmannsins Sir Joseph Banks. Nokkram áram seinna, eða 1789, gerði breski málarinn John Baine talsvert af skissum hér á landi, en hann kom á vegum Thomasar Stanley. 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 17. JANÚAR 1998 4

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.