Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1998, Qupperneq 19
SIGRÚN Eðvaldsdóttir fiðluleikari mun standa í ströngu
um helgina en, eins og fram kemur í fréttum hér á síð-
unni, mun hún koma fram á tvennum ólíkum tónleikum, í
Kirkjuhvoli í Garðabæ í dag og í Bústaðakirkju annað
kvöld. Mun hún glíma þar við kvartetta og sónötur eftir
Mozart, Beethoven, Brahms og Jón Nordal.
En er ekki erfitt að búa sig undir tvenna tónleika í einu?
„Jú, fólk heldur að ég sé brjáluð,“ segir Sigrún og skellir
uppúr. „Ef ég er ekki á æfingu er ég á hlaupum á milli æf-
inga. Samt er ég viss um að þetta blessast allt saman, and-
inn góði kemur alltaf yfir mann þegar á þarf að halda, þetta
er bara spuming um að passa orkuna sína - ofgera sér
ekki. Eg fæ alveg ofsalega mikið vítamín út úr tónlistinni."
En þótt Sigrún eigi að sönnu erfiða törn að baki, hefur
hún jafnframt verið „ofsalega skemmtileg og gefandi".
„Það er æðislegt að æfa svona mörg góð verk á sama
tíma, til dæmis eftir Beethoven og Mozart, og ég er að
heyra allskonar hluti í verkunum sem hjálpa mér í öðrum
verkum. Það sem ég heyri í Beethoven-kvartettinum
hjálpar mér í Beethoven-sónötunni og öfugt. Síðan hjálp-
ar það manni heilmikið að spila svona mikið - maður
verður svo opinn og vakandi, auk þess sem það er nátt-
úrulega frábært að fá tækifæri til að spila svona mörg
verk eftir þessa meistara á aðeins tveimur dögum. Ég er
lukkunnar pamfíll!"
EG ER
LUKKUNNAR
PAMFÍLL
Af verkunum sex sem Sigrún mun taka þátt í að flytja
um helgina hefur hún einungis leikið tvö áður, Brahms-
sónötuna og Beethoven-sónötuna.
Ferskur og djarfur
Sigrún leikur nú í fyrsta sinn með Gerrit Schuil og ber
hún píanóleikaranum vel 'söguna. „Það er alveg ofboðs-
lega gaman að spila með manninum. Hann er svo ferskur
og djarfur og spilar sónöturnar af mikilli dýpt. Hann fell-
ur með öðrum orðum ekki í sömu gryfju og margir píanó-
leikarar sem líta á þessar sónötur sem „fiðluleikaraverk“.
Síðan er hann svo vel að sér, þekkir verk Beethovens til
dæmis svo vel, að hann þorir að spila þau á töluvert djarf-
an hátt. Beethoven átti mjög erfitt - var ekkert blíð-
menni, sem kemur fram í tónlistinni hans, þótt inn á milli
komi auðvitað þessar guðdómlegu laglínur. Þess vegna á
þetta ekki endilega að vera slétt og fellt. Við þetta allt
saman bætist síðan að við Gerrit náum óskaplega vel sam-
an.“
Sigrún kemur fram sem gestur á tónleikum Bernardel-
kvartettsins í Bústaðakirkju, ásamt Bryndísi Höllu Gylfa-
dóttur sellóleikara. Leggjast þeir tónleikar jafnframt
ákaflega vel í hana. „Það er alltaf jafngaman að spila með
Gretu [Guðnadóttur] og Guðmundi [Kristmundssyni], þau
eru svo yndisleg, eins Bryndfs. Það skiptir líka miklu máli
að fólki komi vel saman þegar verið er að æfa jafnerfið
verk og Beethoven-kvartettinn. Hann er alveg afspyrnu-
langur og skiptingar mjög örar, þannig að maður veit
stundum ekki hvaðan á sig stendur veðrið," segir fiðlu-
leikarinn og hlær.
Svo sem kunnugt er hefur Sigrún verið búsett í Lund-
únum um skeið og þar bíður næsta verkefni hennar, 14.
febrúar, einleikstónleikar með hljómsveit, þar sem helsti
fiðlukonsert Bruchs verður á efnisskránni. Næst fáum við
Islendingar að njóta krafta hennar á Listahátíð í Reykja-
vík í maí, þegar hún mun flytja fiðlukonsert eftir Hauk
Tómasson.
BERNARDEL-
KVARTETTINN í
KAMMERMÚSÍK-
KLÚBBNUM
FJÓRÐU tónleikar Kammermúsíkklúbbsins á starfsárinu verða
á morgun, sunnudag, kl. 20.30 í Bústaðakirkju. Fram kemur
Bernardel-kvartettinn, sem skipaður er Sigrúnu Eðvaldsdóttur
og Gretu Guðnadóttur fiðluleikurum, Guðmundi Kristmunds-
syni víóluleikara og Bryndísi Höllu Gylfadóttur sellóleikara, en á
efnisskrá verða verk eftir Mozart, Beethoven og Jón Nordal.
Tónleikarnir hefjast á Strengjakvartett í B-dúr, K. 589 sem
Wolfgang Amadeus Mozart samdi árið 1790 að beiðni Friðriks
Vilhjálms II Prússakonungs. Alls samdi tónskáldið þrjá
strengjakvartetta að beiðni konungs, sem sjálfur var tónelskur
og lék á selló í kvartett við hirð sína, og er það sá í miðjunni sem
fluttur verður í Bústaðakirkju annað kvöld. Hinir tveh’ hafa áður
verið leiknir á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins.
Því næst verður leikinn strengjakvartettinn „Frá draumi til
draums“ eftir Jón Nordal sem frumfluttur var á afmælistónleik-
um Kammermúsíkklúbbsins fyrir réttu ári. Vísar nafnið til
kvæðisins Söknuður eftir Jóhann Jónsson skáld.
Lokaverk tónleikanna verður Strengjakvartett í cis-moll, op.
131, einn af hinum „þremur stóru“ strengjakvartettum Ludwigs
van Beethovens. Strengjakvartettar voru tjáningarmiðill Beet-
hovens síðustu þrjú æviárin en þá samdi hann sex af þeim
sautján kvai’tettum sem eftir hann liggja. Þeirra á meðal
Strengjakvartett op. 131, sem mun hafa verið eitt síðasta verkið
sem hann vann að. Lauk prentun þess ekki fyrr en í sama mán-
uði og tónskáldið andaðist, 1827.
Morgunblaðið/Ásdís
BERNARDEL-KVARTETTINN: Guðmundur Kristmundsson, Sigrún Eðvaldsdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir
og Greta Guðnadóttir.
LOFTUR Erlingsson og
Sigrún Hjálmtýsdóttir
undirbúa frumsýningu á
Ástardrykknum.
ÁSTAR-
DRYKK-
URINN I
GERJUN
Morgunblaðið/Ásdís
ÍSLENSKA Óperan frumsýnir Ástardrykk-
inn eftir ítalska tónskáldið G. Donizetti
föstudaginn 6. febrúar næstkomandi.
í hlutverkum eru Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Bergþór Pálsson, Cesare Zamparino, Loftur
Erlingsson og Hrafnhildur Bjömsdóttir. Kór
og hljómsveit Islensku óperunnar leikur og
syngur. Stjórnandi Robin Stapleton.
Leikstjóri, leikmynda- og búningahönn-
uðir koma frá Danmörku; Kasper Holten,
(leikstjóri), Steffen Aarfing (leikmynd) og
Maria Gyullenhoff (búningar).
Ástardrykkurinn er létt og fjörleg saga
sem hér er látin gerast í ferðamanna-þorpi
við Gardavatnið á Ítalíu. Hin glæsilega Ad-
ina (sópran) stýrir hóteli fóður síns, en
Nemorino (tenór) er fátækur listmálari sem
verður að hafa ofan af fyrir sér með húsa-
málun. Gianetta (sópran) er þjónustustúlka á
hóteli Adinu.
Fjöldi ferðamanna kemur við sögu, en til
þorpsins kemur einnig Belcore (baríton),
liðsforingi og stjórnandi herlúðrasveitarinn-
ar, ásamt lúðraþeyturum sínum, og síðast,
en ekki síst, Dulcamare, (bassi) sem er ein-
staklega laginn sölumaður og býður allra-
handa meðul til að auka hamingju og heppni
í lífinu.
Hann selur Nemorino „ástardrykkinn“
sem á að ávinna honum ást Adinu, og með
utanaðkomandi aðstoð, jafnvel frá æðri
máttarvöldum, virist drykkurinn ná tilætluð-
um áhrifum.
Sýningin er viðamikil og þvi er sýningar-
fjöldi takmarkaður og áætlaðar eru 14-16
sýningar á laugardögum og sunnudögum.
NÝRRI TÓNLEIKARÖÐ
HLEYPT AF STOKKUNUM
í KIRKJUHVOLI í GARÐABÆ
KAMMERTÓNLEIKAR í
Garðabæ er yfirskrift tón-
leikaraðar sem hleypt verður
af stokkunum í Kirkjuhvoli,
safnaðarheimili Vídalíns-
kirkju, í dag kl. 17. Þar munu
Sigrún Eðvaldsdóttir fiðlu-
leikari og Gerrit Schuil píanó-
leikari, sem jafnframt er list-
rænn stjómandi hátíðarinnar,
leika verk eftir Mozart, Beet-
hoven og Brahms.
Fyrst á efnisskránni er
sónata Mozarts fyrir fiðlu og
píanó í Es-dúr KV 481, sem
að áliti Gerrits er ein sú
merkilegasta af átján fiðlu-
sónötum tónskáldsins.
„Margt í sónötunni minnir frekar á hinn
unga Beethoven en Mozart. Tóntegundin
Es-dúr er kraftmikil og hetjuleg og Beet-
hoven notaði hana bæði í þriðju sinfóníu
sinni og í fimmta píanókonsertinum. Upp-
hafsstefið í fyrsta þætti sónötunnar minn-
ir sannarlega líka á Beethoven," segir pí-
anóleikarinn.
Næst verður flutt Vorsónata Beet-
hovens, sem samin var á árunum 1800-
1801 og tileinkuð gi’eifanum Moritz von
Fries. Um tilurð nafnsins, sem ekki er frá
tónskáldinu sjálfu komið, segir Gerrit: „í
öllu verkinu skipa bæði hljóð-
færin jafnháan sess og yfir
því er andi náttúra og heið-
ríkju. Er því auðskilið hvers
vegna hugmyndin um vor
skyldi festast í heiti þess.“
Þriðja og síðasta verkið á
tónleikunum verður þriðja og
síðasta sónata Brahms fyrir
fiðlu og píanó í d-moll op. 108.
Er hún samin á áranum 1886-
88 og tileinkuð hljómsveitar-
stjóranum Hans von Biilow.
Að dómi Gerrits er sónatan
ólík hinum fiðlusónötunum
sem Brahms skrifaði. „Þær
eru hljóðlátar og innhverfar
en þessi þriðja sónata er öll
stærri í sniðum og einkennist af voldugum
tilfmningasveiflum. Að sumu leyti minnir
hún á fyrsta píanókonsert Brahms sem
einnig er í d-moll.“
Femir tónleikar til viðbótar era í röð-
inni Kammertónleikar í Garðabæ, þar sem
fram koma Magnea Tómasdóttir sópran-
söngkona, Rannveig Fríða Bragadóttir
messósópransöngkona, Guðni Franzon
klarínettuleikari, Gunnar Kvaran selló-
leikari og Keith Reed barítonsöngvari,
auk þess sem Gerrit Schuil verður við pí-
anóið á öllum tónleikunum.
Gerrít Schuil
ŒSBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 17. JANÚAR 1998 19