Lesbók Morgunblaðsins - 08.08.1998, Qupperneq 11
SANDY Bar, Ijósmynd Guðmundar Ingólfssonar af öðrum tveggja staða í Manitobafylki þar sem vesturfararnir hugðust í fyrstu setjast að.
MEÐ FRANUM
GESTSAUGUM
Tveir heimar mætast á Ijósmyndasýningu Guðmundar
Ingólfssonar og Wayne Gudmundson í Listasafni
aljDýðu, Asmundarsal, við Freyjugötu sem opnuð
verður í dag, laugardaginn 8. ágúst, kl. 15. Ljósmynd-
ararnir tveir sögðu HULDU STEFANSDOTTUR frá
heimsóknum hvors á annars heimaslóðir en eitt
megin-einkenni myndanna er hlutlaus og hversdagsleg
_______nálgun við viðfangsefnið._
LJÓSMYND eftir Wayne Gudmundson frá eyðilegu tjaldstæðinu í Drekagili.
VIÐ nálgumst viðfangsefnið
með þeim hætti að við reyn-
um að lýsa heimahögum
hvors annars á eins hvers-
daglegan hátt og mögulegt
er, og án allrar upphafningar
á landslaginu. Tilgangurinn
er sá að gefa fólki sem
raunasæjasta mynd af því hvemig þessir staðir
líta út,“ segir Guðmundur sem staddur er í
Listasafni Alþýðu við uppsetningu á 105 ljós-
myndum sem annars vegar eru teknar á slóð-
um Vestur-íslendinga í Kanada og Bandaríkj-
unum og hins vegar á Islandi, á slóðum ís-
lenskra forfeðra Waynes Gudmundsonar. „Það
er mjög erfítt að taka hlutlausar ljósmyndir í
eigin heimahögum vegna þess hversu skýra
mynd maður hefur af landinu og hefur fyrir-
fram mótað með sér ákveðnar skoðanir á ýms-
um fyrirbrigðum þess, hvað sé áhugavert og
hvað ekki,“ bendir Wayne á í gegnum símtólið
þar sem hann er í óða önn að ferðbúast til Is-
lands. „Það hefur því bæði verið mjög spenn-
andi að upplifa áður ókunnugt umhverfi og
eins að fá nýja sýn á staði sem standa manni
svo nærri í gegnum augu gestsins." Sýningin
er skipulögð af pARTs-Photographic Arts í
Minneapolis, Minnesota þai- sem hún stóð yfir
fyrr á árinu.
Verkefnið er þannig tilkomið að fyrir um
fimm árum kom Wayne hingað til lands i þeim
tilgangi að taka ljósmyndir af heimaslóðum
Vestur-Islendingsins K.N. Júlíus fyi-h- væntan-
lega útgáfu bókar með ferskeytlum skáldsins
ásamt þýðingum sem er enn í smíðum. Hingað
kominn datt Wayne í hug að setja sig í sam-
band við íslenskan ljósmyndara sem gæti hugs-
anlega verið honum innan handar með vinnuað-
stöðu. „Ég mundi eftir sýningarski’á sem ég
Morgunblaöiö/Jim Smart
„VIÐ reynum að lýsa heimahögum hvor annars á
eins hversdaglegan hátt og mögulegt er,“ segir
Guðmundur Ingólfsson Ijósmyndari um samsýningu
sína og Waynes Gudmundsonar sem opnuð verður í
dag í Listasafni alþýðu.
átti í fórum mínum frá Ijósmyndasýn-
ingu íslenskra Ijósmyndara á Scandinav-
ia Today í Minneapolis iyrir 15 árum og
fletti þar upp á samtímaljósmyndaran-
um Guðmundi Ingólfssyni,“ segir Way-
ne. „Ég hafði síðan samband við Guð-
mund og með okkur tókst vinskapur
sem síðan leiddi til þess að við ákváðum
að ráðast í þetta verkefni saman.“
1 bókinni Heimahagar/Homeplaces
sem gefin var út í tilefni sýninganna
fjallar David Arnason um verkefni Guð-
mundar og Waynes. Bendir hann m.a. á
að eftir því sem tíminn leið frá landnámi
íslendinga í Vesturheimi hafi persónu-
leg tengsl íslands og Ameriku smám
saman rofnað og að hugmyndir Islend-
inga annars vegar og Bandaríkjamanna
hins vegar um hina framandi heima, Is-
land og Ameríku, byggist nú fyrst og
fremst á ímyndum kvikmynda og tíma-
rita, og listrænum myndabókum en séu
í fremur litlum tengslum við raunveru-
leikann. „Það gefur sýningunni sérstætt
yfirbragð, að þeir skuli báðir hafa kosið
sér að skilgreina á heimilislegan hátt
hinn ókunna raunveruleika, því hið
ókunna er þannig vanið á hús og eðli
frændseminnar þannig könnuð, að til verður
eins konai- framhald sérstæðra bréfaskrifta, er
hófust við aðskilnað fyiúr meira en hundrað ár-
um.“
„Meiri flatneskja en hsegt
er að imynda sér"
„Það dettur ekki nokkrum manni í hug að til
sé staður svo flatur og auður sem landslagið í
Vestur-Kanada er,“ segir Guðmundur aðspurð-
ur hvað hafi komið honum mest á óvart á ferð
sinni um ókunnar slóðir íslendingabyggða í
Kanada og Bandaríkjunum. „En það er greini-
legt að íslensku landnemarnir hafa reynt að
bæta sér upp landslagsleysið með stórfengleg-
um staðarnöfnum." Hann bendir á ljósmyndir
sem teknar eru í borginni Mountain í Norður-
Dakóta. Augljóslega er ekki um mikilfenglegra
landslag að ræða en litla hæð þó að landnem-
arnir hafi í gleði sinni yfir þessu óvænta jarð-
risi á miðri sléttunni ákveðið að kenna þessa
einstæðu hæð við fjall. „Og sjáðu svo þennan
stað,“ segir Guðmundur og bendir á aðra Ijós-
mynd. „Þennan stað fann ég á korti undir heit-
inu Reykjavík." Höfuðborgarbragurinn var þó
ekki meiri en það að við blasti stór beljuhópur í
drullusvaði. Og annars ekkert. Ljósmyndar-
arnir hafa báðir glöggt auga fyrir slíkum smá-
atriðum og undirtónn myndverkanna er góð-
látlegur húmor fyrir viðfangsefninu.
Það vekur annars athygli, þegar myndirnar
eru skoðaðar, sú tilhneiging hjá báðum ljós-
myndurunum að leita uppi kunnugleg mótíf í
hinu ókunnuga umhverfi. í ljósmynd Waynes
af sjávarlendum í drunga og þoku út af Gríms-
ey kann að búa löngun til að endurvekja tilfinn-
ingu fyrir tilbreytingarsnauðu og eyðilegu
landslagi sléttunnar í Norður-Dakóta. Guð-
mundur Ijósmyndai’ þráðbeinan þjóðveginn of-
an af lítilli hæð þaðan sem vegurinn líður enda-
laust áfram uns hann sameinast himni við sjón-
deildarrönd og neðan við hæðina blasir víðátt-
an við. í samanburði við hinai’ ljósmyndirnar
má gera ráð fyi’ir að Guðmundur hafi lagt tals-
vert á sig við að hafa uppi á hæðinni a’tarna.
„Landslagið ekki eins framandi
og við var að búast"
„Það kann að vera nokkuð til í þvi að við leit-
um til þess umhverfis sem okkur er tamt að
skoða þegar við erum staddh’ á ókunnum slóð-
um,“ segir Wayne. „Annars kom það mér eig-
inlega meira á óvai’t hversu margt er líkt í um-
hverfi landanna tveggja. Landslagið er vissu-
lega dramatískara en það býr yfir sama gróf-
leika og sterkum andstæðum eins og í Kanada.
Heimsókn mín til Islands var eins konar leit að
upprunanum og það var mjög sérstök tilfinn-
ing sem fylgdi því að vera allt í einu staddur í
landslagi forfeðra sinna og hugsa með sér:
„Þetta höfðu þeir íyi’h’ augunum“.“
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 8. ÁGÚST 1998 1 1