Lesbók Morgunblaðsins - 08.08.1998, Síða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 08.08.1998, Síða 15
MARAÞON- DJASS í KÖBEN EFTIR VERNHARÐ LINNET Djasshátíðin í Kaupmannahöfn var haldin í tuttugasta sinn þriðja til tólfta júlí sl. Fimm hundruð tónleikar voru víðsvegar um borgina og hér er ófram haldið að re kja helstu atburðina, þar sem fró var horfið í síðustu Lesbók. NIELS Jörgen Steen stjórnar The A-Team f Kóngsins garði. Morgunblaðið/Anna Bryndís Kristinsdóttir BOB Rockweli og Jacob Fischer á Grébræðratorgi. SKRÚÐGANGA John Tchicai gerði stuttan stans á Amakurstorgi. PHIL Collins sat rétt hjá okkur á tónleikum Tonys Bennetts í Sirkusnum á fimmta degi djasshá- tíðarinnar í Kaupmannahöfn. Klukkutíma síðar var hann kom- inn á sviðið á Plænen í Tívolí ásamt stórsveit sinni. Pað hefur verið draumur margra breskra rokkara að spila djass og tveimur þeirra hefur tekist að koma á fót stórsveitum; Rollingnum Charlie Watts og Phil Collins. Sveit Collins djassaði gömlu Genesis-lögin í upphafi og fór saxófónleikarinn Gerald Albright þar á kost- um. Síðan kom söngkonan Oleta Adams til sögunnar og ýmis klassísk lög af efnisskrá djassins. Það voru aftur á móti færri sem stigu á svið í Þjóðminjasafninu danska á mið- nætti næsta dag. Þar stóð Niels-Henning 0r- sted Pedersen einn og bassinn hans góði. Þetta eru fyrstu einleikstónleikar Niels og hefur hann alltaf verið heldur mótfallinn því að halda slíka tónleika. En hann kom, sá og sigraði og þótt flest lögin hafí verið á efnis- skrá tríós hans síðustu áratugi var ótrúleg reynsla að heyra hann túlka þau einan. Meðal þeirra voru klassísk djassverk eins og St. Thomas og Autumn Leaves, norræn lög á borð við Jeg gik mig ud en sommerdag og Den storste sorg i verden og nýrri verk eftir hann sjálfan - þar á meðal With Respect, sem mér fannst njóta sín mun betur í einleik hans en tríótúlkun. Allt var þetta spilað tandur- hreint og af þeim rytmíska krafti og hug- myndaauðgi sem einkennir bassaleik Niels flestum framar. Finn Ziegler fíðlaði á Axelstorgi og John Tchicai var sérstakur gestur hátíðarinnar. Það þótti mörgum undarlegt að Dani skyldi verða heiðursgestur hátíðarinnar, en þótt John sé eini danski djassleikarinn sem er á ævilöngum heiðurslaunum frá danska þinginu býr hann í Kaliforníu og hefur gert um árabil. Ætli Danir eigi ekki svona átta alþjóðlegar djassstjörnur um þessar mundir og kannski er Tchicai þeirra sérstökust. Hann varð fyrst frægur sem einn hinna ungu framúrstefnu- manna í New York ásamt Archie Shepps, Bill Dixon og félögum, en heima í Danmörku var hann lengst af hrópandinn í eyðimörkinni. Nú brá svo við að fullt var á öllum tónleikum hans og einna sérstökust var skrúðganga hans og félaga, m.a. Karstens Trandbergs trompet- leikara sem hingað kom með Frumskógar- sveit Dorges, frá Kolatorgi til Amákurstorgs og síðan í portið við Copenhagen JazzHouse. Orion-brassbandið marseraði á hverjum degi með klassíska New Orleans-efnisskrá og í far- arbroddi Fessor, Finn Otto Hansen og Jorgen Svare. En þetta var dálítið öðruvísi. Lars Thorborg, stjórnandi Copenhagen JazzHouse, hló við dátt af gleði og sagði við mig: „Svona hefur maður aldrei upplifað áð- ur.“ Og tónlistin var einhvers staðar mitt á milli Dirty Dozen-brassbandsins frá New Or- leans og Frumskógarsveitar Dorges, en yfír öllu gnæfði hinn einstaki persónuleiki meist- ara Tchicais. Annar danskur saxófónleikari og dálítið öðruvísi var mjög áberandi á hátíðinni - bí- boppmeistarinn Bent Jædig, sem hefur leikið á Islandi í þrígang og lærði hér á saxófón hjá Gunnari Ormslev. Ben Beisakow og Ole Strindberg léku með honum á píanó og bassa þau tvö skipti sem ég hlustaði á kvartett hans, en tveir íslandsfarar voru á bassann. Lennart Ginman í fyrra skiptið í Soffíukjallara, en Jesper Lundgaard í það seina við Vandkunst- en. Þarna var blásið af þeim þroska sem að- eins næst í áranna rás og eins og Bent segir: „Ungu strákarnir blása alltaf eins margar nótur og þeir geta, en ég hef lært að sleppa þeim sem ekki skipta máli.“ Ágætur gestur blés nokkra ópusa með Bent í Soffíukjallaran- um, Brent Rosengren, einn helsti djassleikari Svía. Hann var að vísu í fríi í Kapmannahöfn með fjölskyldunni, en stóðst stundum ekki mátið að blása með gömlum vinum. Bent Jædig komst sjaldan í rúmið þessa tíu daga. Hann byrjaði á útitónleikum um miðjan dag og hætti undir morgun að djamma á La Fountain. „Svo verður Kaupmannahöfn aftur draugaborg þegar hátíðinni lýkur og maður verður að fara til íslands eða Hollands til að fá að leika djass,“ sagði hann í forsíðuviðtali í menningarblaði Politiken er hátíðin stóð sem hæst. Bent var líka höfuðsólisti í einni skemmti- legustu hljómsveit hátíðarinnar, ellefu manna sveit undir stjórn Niels Jorgens Steens: The A-Team. Það var Niels Jorgen sem samdi Pink tenor sem Gunnar Ormslev hljóðritaði með Radioens Big Band 1978. Félagarnir í The A-Team koma ekki oft saman, enda flest- ir eftirsóttustu djassleikarar Danaveldis í sveitinni, en guðirnir sýndu þeim og okkur velþóknun á þessum lokadegi hátíðarinnar er sveitin lék í Kóngsins garði. Þá var glampandi sólskin. Bo Stief sló bassann en Jesper Lundgaard hafði verið auglýstur. Hann kom í hléinu til að hlusta á sveitina. Hafði verið að leika á Jótlandi. Jesper Thilo söng með tilþrifum Black and blue og hafði næstum náð sömu Armstrong-tilfinningu og Theis Jensen, sem hefur hana best á valdi sínu allra Evrópubúa síðan Nat Gonella lést. Það sýndi hann og sannaði í lögum eins og On The Sunny Side Of The Street og My Bucket Got A Hole In It á útitónleikum sínum í Nýhöfninni á hátíð- inni. Þeir félagar í The A-Team léku Louis Jord- an, Basie og Ellington og allt þar á milli og eitt sinn þegar stjórnandinn kynnti Bent Jædig í einleikshlutverki sagði hann söguna um danska djassleikarann sem dó og hélt til himna. Sánkti-Pétri þótti nógu slæmt að sá dauði væri djassleikari og ekki skánaði það þegar upp komst að hann væri danskur. Þá hristi Pétur höfuðið mæðulega og sagði: „Æ og ó, hann þekkir þá Bent Jædig.“ Síðustu tónleikamir er ég sótti á hátíðinni hófust klukkan hálfsex sunnudaginn 12. júlí og lék þar hljómsveit kongótrommarans og söngvarans Rays Barrettos. Tónleikarnir voru haldnir í Konsitorium-garðinum bak við aðalbyggingu Hafnai'háskóla - þar sem hið elsta hús Kaupmannahafnar stendur og það eina í háskólahvei'fínu sem stóð af sér brun- ann mikla 1728. Þarna hljómaði bíboppsalsa eins og hún gerist best, - Ray Barretto með Kúbu og Ghana í arf - fyrrverandi félagi Charlies Parkers og Titos Puentes. Þetta voru glæsileg lok á glæsilegri hátíð og sorglegt til þess að vita að þar með var djassinn fluttur frá Kaupmannahöfn til Árósa, þar sem ný djasshátíð var að hefja göngu sína. Hátíðir geta verið hættulegar þegar þess er ekki gætt að listin þarf líka að þrífast í amstri hversdagsins. Þó mátti lesa gleðilega frétt í Hafnarblöðum meðan á hátíðinni stóð. For- stjórar nokkurra helstu stórfyrii-tækja Dan- merkur höfðu tekið saman höndum og stofnað vinafélag Copenhagen JazzHouse, svo það mætti fá sem flesta djasssnillinga til borgar- innar, sem þekkt hefur verið sem ein helsta djassborg Evrópu um langt árabil. í staðinn fá þeir að taka frá borð í JazzHouse, það hef- ur ekki verið hægt áður. Nú þarf bara að efla litlu djassklúbbana þar sem tónlistarmenn geta komið saman og leikið fram á nótt. Það er bara hægt einu sinni í viku á La Fountain og Finn Zieglers hjorne. „Það er varla ætlun- in með hátíðinni að djassinn blómstri bara í tvær vikur árlega í Kaupmannahöfn," segir Bent Jædig og hefur að venju á réttu að standa, því að í Kaupmannahöfn er sægur djassleikara sem vilja spila eftir vinnu eins og kollegar þeirra í Bandaríkjunum á gullöld svíngsins. LESBÓK MORGUNBIAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 8. ÁGÚST 1998 1 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.