Lesbók Morgunblaðsins - 15.08.1998, Side 6

Lesbók Morgunblaðsins - 15.08.1998, Side 6
JAMES Cameron ásamt Leonardo DiCaprio og Kate Winslet. TÍTANSKAR HETJUR EFTIR SIGURGEIR ORRA SIGURGEIRSSON Harmleikir virðast hafg eitthvert óútskýrt aðdráttarafl sem laðar fólk að Deim, samanber harmleikinn um Jesú, sem er kjarni cristinnar trúar. Titanic-slysið með fræqum jafnt sem ófræqum fórnarlömbum er marqfald- ur harmleikur oq sem slíkur með marq falt aðdróttarafl. JACK Dawson sýnir Rósu DeWitt Bukater teikningar sínar. Jack er sólargeisli sem lýsir upp gleðisnauða tilveru stúlkunnar. Aðdáunarverður eiginleiki Titanic er augljós, svo glæsilegt og mikilfenglegt skip hafði aldrei verið smíðað. Titanic var álitið ósökkvanlegt og í því hybris (ofdrambi) var fall þess falið.. JAMES Bond er hetja sem sigrast á illvígustu illmennum heimsins án þess að jakkafötin krumpist eða hárgreiðslan hrökkvi úr skorðum. Indiana Jones, Rambó, Zorró og Ellen Ripley í Aliens eru líka hetjur sem 1 krafti hæfileika sinna ráða niðurlögum heiftúðugustu andstæð- inga. Þetta er ímynd hinnar fullkomnu hetju í huga margra. En hversu mikilvægt hugrekki, styrkur og þolgáeði kann að vera, er það samt ekki aðalsmerki hetjunnar. í hinni feykivin- sælu kvikmynd James Cameron, Titanic, kemur fyrir hetja sem tekur öllum þessum fram, en það er Jack Dawson sem leikinn er af Leonardo DiCaprio. Helsti styrkur hans er fórnfýsin og það er aðalsmerki hinnar einu sönnu hetju. I bókinni Ferð höfundarins, sem nýlega kom út hjá bókaforlaginu Mál og mynd, segir að fórnin sé vilji hetjunnar til að láta eitthvað dýrmætt af hendi, jafnvel lífið, í þágu hugsjónar eða hóps. Fórnin gæti falist í að segja skilið við vin eða jafnvel ástvin; hún gæti falist í að segja skilið við lesti eða kenjar eins og fíkn af einhverju tagi eða fordómafull- ar skoðanir eða hún gæti falist í baráttu fyrir málstað líkt og Gandhi og Martin Luther King fórnuðu lífínu fyrir. Sjálfsmorðstilraun á Hawaii Goðsögufræðingurinn Joseph Campbeli tók ágætt dæmi, sem skýrir vel hvað felst í því að vera hetja. Lögreglumaður nokkur, sem bjó og starfaði á eyjunni Hawaii, lenti eitt sinn í útkalli þar sem maður ætiaði að stökkva fram af brú. Lögreglumaðurinn reyndi að tala manninn til en það bar ekki árangur. Ætlaði maðurinn þá að henda sér niður, en lögreglu- maðurinn kastaði sér á eftir honum og náði taki en var kominn svo utarlega að hann hefði hrapað líka hefði félagi hans ekki þrifið í fæt- ur hans. Lögreglumaðurinn var spurður að því eftir á hversvegna hann kastaði sér á eftir biáókunnugum manni með tilheyrandi áhættu fyrir eigið líf. Hann sagðist ekki vita það, hann hafí einfaldlega ekki leitt hugann að því. Við þessar aðstæður hefðu flestir líklega ekki talið áhættunnar virði að stökkva á eftir manninum. Lögreglumaðurinn hinsvegar leiddi ekki hugann að því, fómfýsi hans var öðrum hvötum yfirsterkari. Þar skilur á milli hetjunnar og hinna. Þar skilur á milli hetju í sinni fullkomnustu mynd og þeirra sem geta gert tilkall til þess á grundvelli fæmi við að höggva menn eða sprengja sprengjur. I kvikmyndinni um jómfrúrferð skipsins títanska og farþega þess (nafnið er sótt í gríska goðafræði, títanar vom risar sem réðu yfir heiminum) kemur fyrir atvik sem er slá- andi líkt því sem getið er hér á undan. Sögu- hetjurnar em áðurnefndur Jack Dawson og Rósa DeWitt Bukater (síðar Dawson) sem leikin er af Kate Winslet. Þegar fundum Jacks og Rósu ber saman er hún í sömu spor- um og maðurinn á brúnni. Óréttlæti heimsins hefur vaxið henni svo í augum að hún telur enga þörf fyrir frekari hérvist og hyggst hverfa í hafið. Viðbrögð Jacks em óvenjuleg að því leyti að hann segist munu stökkva líka láti hún verða af því og fer úr skóm og sokk- um því til áréttingar. Þegar Rósu skrikar fót- ur bregst hann nákvæmlega eins við og lög- reglumaðurinn á Hawaii. Þótt það kosti hann töluverða hættu nær hann að bjarga henni um borð. Með þessari fórnfýsi skákar Jack flest- um ofurhetjum hvíta tjaldsins og staðfestir svo ekki verður um villst í hverju sönn hetju- lund felst. Rósa tileinkar sér svo breytni Jacks með því að klofa úr björgunarbát, sem verið er að setja í sjóinn, inn á neðra þilfar. Jack spyr í forundran hvað hún meini eigin- lega með þessu en hún minnir hann á það sem hann sagði er þau hittust fyrst: „Ef þú stekk- ur, stekk ég.“ Ekki verður um villst að fórn- fýsin er þeirra aðalsmerki. Jack Dawson og James Cameron Einhverjir kunna að telja hegðun Jack Dawson gagnvart sjálfsmorðstilraun Rósu lít- ilvæga og eingöngu í þágu söguþráðarins. En hegðun hans á sér sterka og jafnframt raun- vemlega hliðstæðu í þeim sem skóp hann, James Cameron. Eins og flestum er kunnugt gaf Cameron eftir þóknun sína og að auki hlutfallstekjur af hugsanlegum hagnaði myndarinnar gegn því að hann stæði í brúnni; fengi að segja söguna eftir eigin höfði. Hann bauðst með öðram orðum til að „sökkva" með „skipinu" ef það fengi ekki nógu marga „far- þega“, rétt eins og Jack býðst til að sökkva með Rósu geri hún alvöra úr hótun sinni. Þessi fórn Camerons hafa menn reiknað út að jafngildi fimmtíu milljónum dollara. Margir starfsbræður hans sögðu það rangt af honum að gefa eftir tekjur sínar vegna þess að fram- leiðendur myndarinnar ættu engan annan kost en hann; hann væri sá eini sem réði við verkefnið. Þetta sýnir að fómfýsi Camerons MARTIN Luther King og Gandhi fórnuðu líf- inu í þágu málstaðar sem þeir trúðu á. er afar mikil og tengir veruleikann og söguna á skemmtilegan hátt. Hegðun Jacks er ekki einskær tilviljun heldur til marks um að Ca- meron gerir sér grein fyiár í hverju sönn hetjulund felst og að uppgjöf eigingirninnar er afar sterkur leikur og getur þegar upp er staðið skilað sér margfalt til baka. (Nýjar fregnir herma að sú verði og raunin í tilfelli Camerons, hann muni fá milljónimar 50 þrátt fyrir allt og jafnvel tvöfalda þá upphæð.) Harmleikur skips og manns I raun er atburðurinn með stærri og öfga- meiri harmleikjum tuttugustu aldar (ef stríð og ógnarstjórnir em undanskilin). Harmleikir virðast hafa eitthvert óútskýi-t aðdráttarafl sem laðar fólk að sér, samanber harmleikinn um Jesú, sem er kjarni kristinnar trúar. Tit- anic-slysið með frægum jafnt sem ófrægum fórnarlömbum er margfaldur harmleikur og sem slíkur með margfalt aðdráttarafl. Það er einkenni harmrænnar hetju að í fari hennar era aðdáunarverðir eiginleikar og jafnframt harmrænir brestir sem leiða til falls hennar. Góðu eiginleikarnir gera hana ástsæla og söknuðinn því miklu mem þegar hún fellur. Aðdáunarverður eiginleiki Titanic er augijós, svo glæsilegt og mikilfenglegt skip hafði aldrei verið smíðað. Titanic var álitið ósökkv- anlegt og í því hybris (ofdrambi) var fall þess falið. Stjórnendur skipsins töldu sig ekki þurfa að hægja ferðina þótt borgarísjakar væra á sveimi. Ruglingur Camerons og hans manna á bak og stjór setti ekki strik í þann reikning (en „stýrimaðurinn“ um borð beygir á bakborða þegar skipun um hið gagnstæða berst honum til eyrna). Jack, sem einnig er harmræn hetja, hefur engan augljósan brest eins og skipið, en kost- um er hann hlaðinn og það heldur betur. Hann er holdgemngur frelsis og lífsgleði og þar að auki eru áhorfendur látnir halda að hann hafi sérstakt þol gegn köldu vatni því hann stundaði slík böð í æsku. Það gefur til- efni til að álykta að hann muni komast af í slysinu (við Islendingar eigum fyrir því for- dæmi). Vitaskuld var hann einungis einn af þeim fjölmörgu sem fórust og höfðu ekkert til saka unnið, en hann er söguhetjan og til að dauði söguhetju sé trúverðugur eða skáldlega réttlætanlegur þarf hún að hafa til þess unnið á einhvern hátt. Dálítið ósamræmi er á milli hins ráðagóða Jacks sem veit allt um hvar best sé að halda sig og hins sem hugsar ekki út í að setja á sig björgunarvesti, hvað þá tína á sig fataleppa, til einangrunar í köldum sjón- um (hann hafði þekkinguna til þess). Dauði hans í lokin er því örlítið sviksamlegur, örlítið á slqön við persónuleika hans - en þó ekki - því hann færir sína lokafórn þar þegar hann unir Rósu að dveljast á flekanum þótt það kosti hann lífíð. A vinnsluferlinu fór leikarinn sem blés Jack lífi fram á það við Cameron að hann ljæði hon- um einhvern skugga eða brest að kjást við. En leikstjórinn tók ekki undir það og sagði honum að hann yrði að sætta sig við að Jack Dawson væri eins og sólargeisli sem lýsti upp tilvera stúlkunnar. DiCaprio hafði án efa tölu- vert til síns máls. Jack Dawson er harmræn hetja sem fellur fyrir tilviljun en ekki brest - eitthvað er bogið við það. Þáttaskil Titanic er mynd sem markar þáttaskil í kvikmyndasögunni. Hér er í fyrsta skipti full- komið jafnvægi milli tæknibrella og söguþráð- ar. James Cameron hefur áttað sig á að tæknibrellur verða að vera í þágu sögunnar en ekki öfugt, enda er ástarævintýrið í for- grunni þótt sagan af árekstrinum og öllu sem leiddi til hans sé afar áhugaverð. En þar sannast að þótt risastórir atburðir gerist eru þeir litlir í samanburði við þá sem eiga sér stað í hjörtum þeirra sem elska. 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 15. ÁGÚSTI998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.