Lesbók Morgunblaðsins - 15.08.1998, Blaðsíða 12
SyMAR-
SYNING
ROYAL
ACADEMY
■. ------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Nokkrar í hæsta máta áhugaverðar listsýningar bar
f/rir augu BRAGA ASGEIRSSONAR í Lundúnum
nýlega. Hann telur Islendinga mikið geta lært ef heims-
borginni í skipulagi slíkra og á einkum við árlega
sumarsýningu konunglegu akademíunnar, sem þessi
grein hans fjallar r™
DÖGUNUM varð rýnir-
inn áþreifanlega var við,
að samskipti við um-
heiminn gerast til muna
einfaldari eftir að hinar
svonefndu pakkaferðir
komust á. Þannig geta
menn til að mynda af
til valið milli helg-
arferða til ýmissa stórborga austan hafs
og vestan eða tíu daga dvalar. Hængur-
inn er sá, að séu þetta ekki innkaupa-
eða skemmtiferðir er tíminn full stuttur 1
fyrra fallinu en helst til langur yfir há-
sumarið í því seinna, þá hver góður dag-
ur á íslandi telst ígildi marga sólardaga
í útlandinu. Þetta er þróunin víða um
heim, risaþotur orðnar að almennings-
vögnum háloftanna, og gott að vita að
þessi ferðamáti skuli loks hafa náð ein-
angraða landinu á Dumbshafí, utanferðir
þarmeð til muna minna og sjálfsagðara
mál.
Það hafði ekki komið fyrir rýninn áður, að
lagt væri af stað frá Keflavík klukkan níu að
morgni og hann búinn að koma sér fyrir á hót-
eli, skoða eina stórsýningu á British Museum
og gott betur, er dyr lokuðu klukkan fimm síð-
degis. En þetta er framtíðin og ekki eru það
svo lítil og hressandi umskipti, að komast á
þann veg í návígi við púls listaheimsins. Hefði
eins getað verið búinn að reika um sali Þjóð-
listasafnsins, sem er opið klukkustund lengur,
virða fyrir mér verk meistara aldanna, doka að
venju góða stund í herberginu undursamlega,
með verkum eftir Vermeer, Pietro de Hoch,
Saenredam og fleiri hollenska snillinga.
Áður hefur þó auðvitað komið fyrir, að
tækifæri hafa gefist til að skoða söfn og
sýningar samdægurs, einkum á dögum
kvöldlokunar á miðri viku, en nú er þetta
að verða sjálfsagður hlutur, sem er helst-
ur ávinningur.
Það verður þó að bíða um stund að
herma af magnaðri list Maori, frum-
byggja Nýja Sjálands og Pólýnesíu á
British Museum, en sýningin stendur til
1. nóvember. Þeim mun meira aðkallandi
er sumarsýning Royal Akademy í Bur-
lington-húsi við Piccadilly Street, sem lýk-
ur 16. ágúst. Megintilgangur fararinnar til
Lundúna var einmitt að skoða hana ásamt
sýningum á Þjóðlistasafninu, National Gall-
ery og Andlitsmyndasafhinu, National
Portrait Gallery, í sömu byggingu, allt annað
skyldi mæta afgangi að þessu sinni, tíminn
naumur.
Það eru ekki endilega gæðin sem gera sum-
arsýninguna forvitnilega fyrir okkur Norður-
landabúa, mun írekar sérstaða hennar og form
sem einkum íslendingar mættu draga dám af.
Hún er um margt skyld svonefndum Salon-
sýningum Parísarborgar, sem eru uppstokkan-
ir á því helsta sem á döfinni er í myndlist frá
ári til árs, en telst mun opnari og altækari. Sá
mikli möguleiki til samanburðar á innlendri list
sem skoðandinn fær upp í hendumar, hefur
aflað henni ómældra vinsælda, og enginn kipp-
VATNSSKULPTUR Jonatans Froud, Að
hlusta og læra, vakti mikla athygli sýningar-
gesta, en hvorki vatnið né hljóðið koma fram
á myndinni.
LÍKAN af aldamótahvelfingunni eftir Richard Rogers og félaga.
MÁLVERKIÐ stóra, Breytilegur sjór, olía á léreft 102x144 tommur, eftir Söndru Blow hlaut
sómann „málverk ársins" og 10.000 punda verðlaun.
ir sér upp við þótt aðgangseyririnn sé í hærra
lagi, eða heil sjö pund, eða rúmar 800 krónur.
Er þó hvorki sýningarskrá né sérstök
verkaskrá innfalin. Á móti kemur hinn stóri
skammtur listaverka, í ár eru þau 1.202,
sem deilast í málverk, höggmyndir, grafík,
teikningar, vatnslitamyndir og arkitektúr,
auk mynda blandaðrar tækni.
Eðlilega er ekki um sérinnsetningar af
neinu tagi að ræða, heldur reynist kraða-
kið á veggjunum yfirgengilegt og hanga
þar hinir ólíkustu myndstílar hlið við hlið.
Upphengingin í sjálfri sér fengi því réttilega
afleita dóma, en er þar fýrir styrkur sýning-
arinnar, gerir ótæpar kröfur til skoðenda,
einnig líkast hressandi gusti öllum þeim sem
eru mikið til ofurseldir meinlæti, sýndar-
mennsku, hugmyndafræði og fjöltækni í
heimahögum. Sýnu yfirgengilegast í einum
salnum, þar sem tíðkast að hengja smærri
verk frá hnéhæð og svo til upp í rjáfur, en þá
skeður hið merkilega, að fólk dvelur þar iðu-
lega lengst og skoðar af mestri athygli! Og hér
var þanþol athyglisgáfunnar mikið ásamt
fjörugri orðræðu um verkin manna á millum.
Áður en lengra er haldið, er rétt að fram
komi, að hér er á ferð árleg sýning viður-
kenndra atvinnulistamanna, að stórum hluta
meðlima konunglegu akademíunnar, Royal
Academy. Einangrast alfarið við málara, teikn-
ara, grafíklistamenn, myndhöggvara og arki-
tekta, alla sígilda höfuðgeira sjónlista. Til að
forða nærtækum miskilningi, þurfa þeir þó
MÁLVERK eftir Victor Pasmore (1918-1998).
engan veginn að hafa stundað nám við sam-
nefndan listaskóla í sömu byggingu. Getur tek-
ið langan tíma og mörg ár að ná svo langt að
komast í samtökin og/eða fá myndir á sumar-
sýninguna, telst hvorutveggja drjúgur heiður.
Einstaka bógurinn virðist þc lengi vel ekki
hafa kært sig um að fylla hópinn og þeirra á
meðal hinn nýlátni Victor Pasmore (f. 1908),
sem varð meðlimur svo seint sem 1983, en sér-
stök upphenging er tileinkuð þeim gáfaða, fjöl-
hæfa, hugmyndaríka og sjálflærða málara.
Sumarsýningamar hafa verið lengi við lýði,
eða frá 1769. Fylgdu upprunalega stofnun kon-
unglegu listakademíunnar ári áður, og mynd-
12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 15. ÁGÚST 1998