Lesbók Morgunblaðsins - 15.08.1998, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 15.08.1998, Blaðsíða 11
ERLENDAR BÆKUR JHINN RAÐANDI STOFN James Oakes: The Ruling Race. A Hi- story of American Slaveholders. W.W. Norton & Company 1998. BÓKIN kom fyrst út 1982 og vakti þá þegar feikna athygli. Sagan hófst 1619, þegar hollenskt fragtskip flutti 20 svertingja til Jamestown, um 1860 töld- ust svartir þærlar alls um fjórar millj- ónir í Suðurríkjunum. Nokkrir land- nemar, sem námu land í Jamestown gerðu Jamestown og næstu byggðir að fyrstu föstu byggðum Englendinga í Norður-Ameríku, þeir urðu forfeður þeirrar herraþjóðar sem taldist 400 þúsund 1860. Tóbaksrækt var meginframleiðslu- grein Suðurríkjanna fram undir alda- mótin 1800 og um það leyti var tekið fyi'ir innflutning þræla frá Afríku, en með baðmullaiTæktuninni varð land- búnaður Suðurríkjanna enn arðsamari og varð jafnframt til þess að festa fram- hald þessa framleiðsluforms og rök- styðja nauðsyn þrælahalds. Hugmyndir um samfélag Suðurríkj- anna sem íhaldssamt og hefðbundið, mótað af aristókrötum, og Norðurríkin sem eina iðandi kös prangara og víxl- ara, eða andstæður hefðbundinnar landsföðurhyggju stórjarðeigenda og óhefts kapítalisma, eru miklar ranghug- myndir samkvæmt niður- stöðu höfundar. Hann telur að viðhorf Norður- og Suðurríkjamanna hafí verið af sama uppruna, óheft frelsi og sér- eignarréttur til framkvæmda og gæða. Munurinn var fólginn í afstöðunni til þrælahalds. Enginn munur var á stétt- festu nema hvað þrælar voru ekki taldir til rétthafa frelsis í Suðurríkjunum. í frelsisstríðinu gegn Bretum og með samningu frelsisskrárinnar voru þræla- haldarar Suðurríkjanna ákveðnari í kröfum um jafnan rétt allra manna en Norðurríkjamenn, að frátöldum þræl- unum. Höfundurinn ræðir mismunandi eignarhlut jarðeigenda að landi og þrælum, þeir auðugri áttu hundruð þræ\a og hundruð hektara lands, en þeir snauðari 1-3 þræla og fáeina hekt- ara. En hagsmunir þeirra fóru saman. Þessi bók er mjög vel skrifuð og er ít- arleg lýsing á „The Ruling Race“ og viðhorfum hennar til hugmyndafræði byltingaráranna eins og hún birtist í mannréttindakröfum samtímans, hag- kerfi Norður- og SuðuiTÍkjanna er um- fjallað og þá kemur það sama í ljós, munurinn er „aðeins" fólginn í frjálsu og ófrjálsu vinnuafli. Borgarastyrjöldin var á engan hátt styrjöld hugmyndafræði, gilda eða menningarhefða að svo miklu leyti sem það snerti þá frjálsu eða hina hvítu, Borgarastyrjöldin var háð til þess að afmá réttlætingu þrælahalds. SIGLAUGUR BRYNLEIFSSON Mynd/Ágústína Jónsdóttir NÆTURVORÐUR KAUPIR ÚR SMÁSAGA EFTIR ÁGÚSTtNU JÓNSDÓTTUR ARATUGUM saman hefur hann búið ásamt nokkrum kattakynslóðum í höfuð- borginni og hefur lengi am- ast yfir að tíminn sé fleygur sem bjúgverpOl. Fyrir tveimur mánuðum þegar þann virtist í miklu tíma- hraki með verkefni morgundagsins var dyra- bjöliunni hringt. Þegar hann opnaði bauð sér inn til hans ókunn kona í gæruskinnúlpu og slitnum skóm með innkaupatösku í hendinni. Hún tók sér sæti við hlið stóru klukkunnar, sem í sama bili sló nokkur högg og maðurinn giskaði á að þessi kona væri að vestan, en komst að raun um að hún var úr öðrum stað. í fyrstu þagði hún en sagðist svo vera að rukka fyrir blaðið. Hann fann gremju magnast innra með sér og svaraði: „Ég sóa ekki tímanum í slíkt, ég nota greiðslukort - Vísa, þú skilur?" „Ég sel einnig klukkur og úr,“ sagði hún. Hann hreytti út úr sér: „Eins og þú sérð eru klukkur ekki það sem mig bráðvantar og hel- vítis tíminn líður víst nógu hratt þótt ég bæti ekki einni við.“ Eftir skamma þögn sagði hún kuldalega: „Þú veist eflaust að úr eru hvert öðru ólík. Ég sel óvenjuleg úr eins og þetta In- varúr. Sjáðu skífuna, tölumar og glerið, úrið er viðurkennt fyrir gæði og hönnun. Það er frá því fyrir aldamót." Invarúrið hafði bersýnilega verið handfjatlað af æði mörgum og hann grannskoðaði útlit þess og hönnun. Hún sagði: „Ég hef heimildir fyrh’ því að umbótasinnaðir þjóðhöfðingjar, innblásnir af stjórnmálahug- sjón, báru svona úr.“ Hann handlék úrið og sá að það var harla óvenjulegt; lítil myndski-eyt- ing af Lögréttuhúsinu á Þingvöllum var grafin á skífuna. Á gafli hússins var klukka fest við bjálka upp í kverk. Þú skalt skoða myndina vel því að þú færð aðeins þetta eina tækifæri tU þess. Á morgun verð ég búin að selja úrið. Hún sagði þetta eins og um væri að ræða kjarrlyktina úr Bláskóg- um sem aðeins er til í minningu manns. Hann rétti konunni úrið aftur. „Þetta er eitthvað fyi-h' safnara, ér ekki svo?“ spurði hann. „Já og nei,“ sagði hún og lækkaði róminn: „Ég fékk það á fornmarkaði og mig grunar að eigandinn hafi verið fávís um klukkur og úr og þar af leiðandi ekki áttað sig á verðmæti þess. Það er hætt að mæla tímann og þess vegna er það tákn þess að hann er hættui' að líða.“ „Er úrið hætt að ganga?“ spurði hann efins um að hann hefði skilið orð hennar rétt. Hún svaraði: „Tíminn er hættur að líða.“ Þetta úr var nú farið að freista hans meira en hann kærði sig um að viðurkenna: „Láttu mig hafa það,“ sagði hann einbeittur: „Ég get gefið það góðvini mínum.“ Hún sagði: „Það er vonandi úravinur. Mér er ekki sama hvar mín- ar klukkur og úr liggja. Engin klukkna minna hefur enn sem komið er lent á milli óheiðar- legra fingi'a." Orð hennar gerðu hann önugan. „Þú ert rukkari og sölukona með tilfinningu fyrir klukkum og hringingum,“ sagði hann. „Já,“ sagði hún: „Tímaskyn mitt er ná- kvæmt. Ég veit alltaf hverjum klukkan glym- ur. Ég er sannfærð um að klukkur eiga erindi við Islendinga því að það eru ekki einungis hringingar, sem greina heilagan tíma frá hin- um veraldlega, heldur einnig klukkur þeirra. Ég var ekki að braska þegar ég lét náungann á markaðinum hafa loftvogina í skiptum fyrir In- varúrið en hann hafði meiri not fyrir loftvog en klukkuna, sem hafði sagt skilið við tímann.“ Hann fullvissaði hana um að hann sjálfur teldi hana hafa farið heiðarlega að ráði sínu. Seljandinn hefði viljað losna við gripinn, sem var honum gagnslaus. Það var einmitt hér sem hann uppgötvaði að hún var ein af þessum kerlingum sem sagan greinir frá og fór að tala um forlagatrú. Öriítið hæðnislega spurði hann hana síðan hvort hún hygðist bjóða úrsmíðafé- laginu djásnið eða hvort það væri nú þegar selt. Hún setti upp óræðan svip og sagði: „Þú færð það. Ég sel aldrei sama úrið tvisvar. Upphæð- inni ræður þú.“ Hann svai-aði að greiðslugeta sín væri lítil en hann ætti sparifé í læstum skáp og bætti við að líklega væri þetta rétta stundin til að losa sig við það og fjárfesta í fornum hlut. „Ég heyri að þú ert á réttri leið,“ sagði hún: „Þú færð úrið.“ Hann seildist í öryggisskáp á bak við stórt ol- íumálverk og tíndi fram úr honum væna fjár- fúlgu. „Þetta eru góð skipti,“ sagði hún. Honum fannst skrýtið að nú talaði hún hátt og með áhersluþunga í röddinni. Augljóslega vai' hún lunknari en honum virtist í fyrstu. Hún tvítaldi peningana, tróð þeim í innkaupatöskuna og hneigði sig þrisvar sinnum áður en hún gekk auðmjúk afturábak út um dyrnar og hvai'f í mannhafið. Hann minntist þess ekki að hún hefði sagt til nafns og hann hefur aldrei séð hana öðru sinni. Urið ætlaði hann að varðveita í læstum skápn- um á bak við olíumálverkið og stakk því inn í hann. Hann fór í sturtu um kvöldið, lagðist til svefns en lá andvaka fram eftir nóttu og bylti sér. Um miðja nótt tiplaði hann fram úr rúmi sínu og náði í úrið. Á bakhlið þess voru grafnir tveir bókstafir sem espuðu upp í honum for- vitnina: MM. Hann sagði engum frá viðskiptum sínum. Við ástríðuna, sem fylgdi því að handleika úrið, bættist heift og ónotatilfinning. Hvað ef hann týndi lyklinum að skápnum og kæmist ekki oft- ar í hann? Sú hugsun magnaði efasemdir hans og varð til þess að hann geymdi lykilinn á sér, eins og verðmætan hring. Hann varð lykla- vörður efans og fór æ sjaldnar út fyrir hússins dyr. Honum tókst að sefa sig nokkuð með því að telja sér trú um að úrið væri fornt og þyrfti ekki á nýjum eiganda að halda. Hann tók blað og blýant og hóf að skissa það í teikniblokk en blokkirnar urðu tvær, fjórar, sex og þeim hélt áfram að fjölga þar til hann fínteiknaði úrið og lykilinn jafnt í vöku sem svefni. Um áramótin áttaði hann sig á að Invarúrið var orðið of ásækið og allt í einu tók hann eftir því að það var farið að tifa og vísarnir að hreyfast; tíminn var lagður af stað! Ekki bætti úr skák að honum fannst sem hann væri óþol- andi í þessum úraleik; orðinn leiksoppur eigin tíma sem hafði dregið hann inní veröld vísanna. Var hann að líða burt þar sem hann eigraði fram og aftur um íbúðina með köttinn í sínum tíma og sjálfan sig í öðrum? Honum varð oft litið til bíla sem fluttu rusl en var efins um að með þeim færi úrið beint á haugana. Hann rifjaði upp nokkuð sem hann sá í kvikmynd um klukkur sem hægt var að eyða eins og blikkdósum eða grafa þær í vígða mold. Áður en hann hóf störf sem næturvörður, starfaði hann sem kistusmiður. Honum var ljóst að í smiðjunni voru tilbúnar kistur geymdar á lagernum vestanverðum. Hann tók sig til einn morgun og heimsótti gamla vinnu- staðinn sinn og fór fram á að mega svipast þar um. Með því móti tókst honum að lauma úrinu í eina hvítmálaða kistu, fella það inn í viðinn, gera krossmark yfir áður en hann fór frá staðnum og gekk öfugsnúinn heim; uppgefinn á erfiðum tíma. Höfundurinn er skáld og kennari í Reykjavík. Honum tókst að sefa sig nokkuð með því að telja sér trú um að úrið vœrifornt ogþyrfti ekki á nýjum eig- anda að halda. Hann tók blað og blýant og hóf að skissa það í teikniblokk en blokkirnar urðu tvær; jjór- ar, sex ogþeim hélt áf-am að jjölga þar til hann fín- teiknaði úrið og lykilinn jafnt í vöku sem svefni LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 15. ÁGÚST 1998 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.