Lesbók Morgunblaðsins - 13.02.1999, Qupperneq 14
GUÐRÚN
STEINARSDÓTTIR
STRIÐIÐ VIÐ
DAGANA
dagarnir vakna
nudda skýjaflókana úr augunum
grípa um sólargeislana í mjaðmabelt-
unum
henda sér fram af fjallshlíðum
smeygja sér inn um skráargöt
skríða út úr húsasundum
um morgunþætti útvarpsstöðva
og tíst smáfugla ígörðum
berast hernaðar!eyndarméú
á dulmáli
mennirnir vígbúast ristuðum brauð-
sneiðum
ávaxtasafa og skjalatöskum
kveðja konur og börn
ogganga mót vígreifum dögunum
baráttan er hörð;
dagar hverfa gleymdir á vit ára sinna
og menn hverfa gleymdir í duftið
fyrir fótum daganna;
og þrátt fyrir árþúsunda þjálfun
mæðast stríðsaðilar fijótt;
mennirnir sligast undan lífsbarátt-
unni
og vígbúnaðarkapphlaupinu
líkt og dagarnir
sem verða vart nema skugginn af
sjálfum sér
Það er því enginn sem andmælir
þegar sáttasemjarar nætur
koma á vopnahléi um stund
nema tunglið
sem heldur uppi skæruhemaði
INGIBJÖRG
HINRIKSDÓTTIR
TILBRIGÐI
VIÐ STEIN II
Á meðan ég stóð
og horfði út
yfir dimmblátt vatnið
flaug tíminn framhjá.
Og í vatninu synti
fagurgrænn fiskur
og hann sagði
við mig.
Hirtu ekki um þau
tíminn og vatnið
eru eilíf
en ekki við.
TILBRIGÐI
VIÐ STEIN III
í firðblárri birtu
fínn ég angan þína
fylla mig.
Eg veit þú ert þama
eins og vor
á næsta leyti.
Og nóttin lýsir
leið mína til þín.
En er birtir
koma skuggamyndir
þínar í Ijós.
Ég var á rangri leið
en nóttin kemur aftur
og þá fínn ég angan þín á ný.
Höfundur er fulltrúi í Reykjavík og starfar
hjó Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
ERLENDAR BÆKUR
VIRKIÐ Olofsborg var reist 1477 og tilgangurinn var sá að hafa gætur á landamærum Finn-
lands og Rússlands. Virkið er vel varðveitt.
OLDENBORGARHORNIÐ, kjörgripur eftir
dverghaga 15. aldar gullsmiði. Það er nú
varðveitt í Rósenborgarhöll í Danmörku.
SAGA KALMAR-
SAMBANDSINS
Vivian Etting: Fra fællesskab til blodbad.
Kalmarunionen Gyldendal 1998. 231 bls.
myndir, kort.
ARTÍÐIR, afmæli og aðrir minningar-
dagar verða sagnfræðingum gjaman
tilefni til að rifja upp sögulega atburði,
sem fáir virðast hafa hirt um langa
hríð. Þannig var á árinu 1997. Þá voru 600 ár
liðin frá stofnun Kalmai'sambandsins og varð
það ýmsum norrænum fræðimönnum tilefni til
að hyggja að ýmsu í sögu ríkjasambandsins.
Slíkri athugun fylgir gjaman endurmat á fyrri
rannsóknum og skoðunum og svo var einnig nú.
Virðist mér að niðurstaða þeirra rannsókna,
sem unnar hafa verið á sögu Kalmarsambands-
ins á Norðurlöndum á síðustu árum, sé sú að
þessi tilraun til að sameina Norðurlönd í eitt
ríki hafi verið allrar athygli verð og að Kalmar-
sambandið eigi betri eftirmæli skilið en það hef-
ur almennt hlotið til þessa. Má þó vera að í
þessu efni séu sumir fræðimenn smitaðir af
hinni miklu sameiningarumræðu, sem undan-
farín ár hefur átt sér stað í Evrópu. Svo mikið
er víst, að viðhorf manna nú á dögum eru um-
talsvert önnur en viðhorf þjóðernissinnaðra
starfsbræðra þeirra í upphafi aldarinnar.
Danski sagnfræðingurinn Vivian Etting hefur
um langt skeið fengist við rannsóknir á sögu
Norðurlanda á miðöldum og m.a. skrifað bók
um Margréti I. Hún kom út árið 1986 og var
endurútgefin 1997. í þessari bók fjallar hún um
ýmsa meginþætti í sögu Kalmarsambandsins
frá stofnun þess árið 1397 og fram til blóðbaðs-
ins mikla í Stokkhólmi árið 1520. Þá lét Kristján
II. Danakonungur taka af lífi marga helstu for-
ystumenn Svía, í allt u.þ.b. 100 manns, og mark-
aði sá atburður endalok ríkjasambandsins.
Þessi bók verður engan veginn talin saga Kal-
marsambandsins í eiginlegum skilningi. Höf-
undur velur sér söguefni frá tímum ríkjasam-
bandsins og fjallar um þau í ljósi samtímans og
er tilraunin til að sameina Norðurlönd ávallt í
bakgrunni. í inngangskafla er aðdragandinn að
stofnun Kalmarsambandsins rakinn, en á meðal
annarra efnisþátta, sem um er fjallað, má nefna
reglu heilagi-ar Birgittu, pílagrímsfór Kristjáns
I. til Rómar og loks lokaátökin í Stokkhólmi árið
1520. Bókin er afbragðsvel skrifuð og ríkulega
skreytt myndum af listmunum, byggingum og
handritum frá sögutímanum.
Islenskir fræðimenn hafa aldrei sinnt sögu
Kalmarsambandsins svo orð sé á gerandi, en ef
til vill væri þarna fróðlegt rannsóknarefni íyrir
íslendinga. Island var hluti af Kalmarsamband-
inu og fer vart hjá því að átökin, sem urðu á
Norðurlöndum á þessum tíma hafi haft einhver
áhrif hér úti. Nægir þar að nefna, að mestan
hluta þess tíma sem Kalmarsambandið stóð
voru Englendingar umsvifameiri hér á landi en
nokkru sinni bæði fyrr og síðar. Fengu þeir
kannski frjálsari hendur vegna átakanna á
Norðurlöndum? Fleiri slíkra spurninga mætti
spyrja, en í þessari bók er íslands aðeins einu
sinni getið: þar sem segir frá því er Jóni biskupi
Gerrekssyni var drekkt í Brúará. Og hann er
reyndar kallaður Jens.
JÓN Þ. ÞÓR
VISBY á Gotlandi. Yfir borgarmúrana ber turna Maríukirkjunnar.
,SAMEINING hinna þriggja norrænu ríkja í Kalmar", málverk í táknrænum stíl eftir dansk
norska málarann Erik Paulsen frá árinu 1784.
1 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 13. FEBRÚAR 1999