Lesbók Morgunblaðsins - 22.05.1999, Side 2
EDDUKVÆÐIN
LOFUÐ í
GRAMOPHONE
DÓMUR um útgáfu Eddukvæðanna
birtist nýlega í tónlistartímaritinu
Gramophone. Kvæðin eru í flutningi
Sequentia-hópsins, en hann hefur áð-
ur hlotið viðurkenningu fyrir flutning
á miðaldatónlist. Eddukvæðin koma
út undir nafninu „Edda - Myths from
medieval Iceland" og er tónlistin tek-
in upp í Skálholti.
Gagnrýnandi Gramophone hrósar
sveitinni fyrir flutning sinn á Eddu-
kvæðunum, biður um meira af slíku og
segist heillaður af þeim krafti og heil-
indum sem einkenni tónlistina. Segir
blaðið flutning Sequentia á Eddu-
kvæðunum hafa vakið undrun og að-
dáun íslendinga jafnt sem annarra.
Kvæðin eru öll flutt á íslensku, en
meðal þeirra eru Völuspá, Hávamál
og Þrymskviða. Þess má geta að
Sequentia hélt tónleika í Þjóðminja-
safninu fyrir nokkrum árum. Við út-
gáfu Eddukvæðanna naut hópurinn
tilsagnar Heimis Pálssonar, dósents
við Kennaraháskólann, og Terry
Gunnells, lektors í þjóðháttafræðum
við Háskóla íslands, en auk þess not-
aði hópurinn segulbandasafn stofnun-
ar Áma Magnússonar.
I dómi sínum segir Gramophone að
Sequentia búi yfir mikilli þekkingu á
munnlegri kvæðahefð Norður-Evrópu
og bætir við að enn í dag megi heyra
leifar rímnasöngs í leikskólasöngvum
íslenskra bama.
Það er Japis sem sér um dreifingu
„Edda - Myths from medieval Ice-
land“ á íslandi.
LOUVRE
LOKAÐ VEGNA
VERKFALLA
París. Reuters.
VERKFÖLL starfsmanna ýmissa
listasafna og þjóðminjastofnana í
Frakklandi ollu því að frægustu lista-
söfn Parísarborgar, Louvre-safnið og
Orsay-safnið, voru lokuð seinnipart
þessarar viku eftir að viðræður
stjómvalda og verkalýðsfélaga fóru út
um þúfur. Ymis önnur söfn vora opin
en áhugasamir komu hins vegar að
lokuðum dyrum hjá bæði Louvre og
Orsay miðvikudag, fimmtudag og
föstudag en milljónir ferðamanna
heimsækja þessi listasöfn á ári
hverju. Viðræður héldu áfram en
starfsfólkið kvartar yfír allt of miklu
vinnuálagi.
KAMMERKÓR Hafnarfjarðar heldur tón-
leika í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, Hásöl-
um, þriðjudaginn 25. maí kl. 20.30. Á dag-
skrá verða íslensk þjóðlög og þjóðleg tónlist
frá Skotlandi, Irlandi og Englandi.
Á tónleikunum mun Volker Dellwo leika á
sekkjapípu, en hann hefur dvalist hér á landi
í vetur og kennt og numið við Menntaskól-
ann í Reykjavík. Hann fékk snemma áhuga á
tónlist Bretlandseyja og dvaldist þar um
skeið til að tileinka sér tónlist fyrir sekkja-
pípu. Volker leikur einnig á keltneskar flaut-
ur á tónleikunum.
Einsöng með kómum syngur Margrét Eir
Hjartardóttir en hún hefur komið fram sem
söngkona bæði hér heima og erlendis og tek-
ur nú þátt í söngleiknum Rent í Loftkastal-
anum. Valgerður Andrésdóttir píanóleikari
leikur með í nokkrum lögum.
Kórinn leitast við að koma á framfæri tón-
list sem sjaldan heyrist hér á landi og að
þessu sinni leitar hann fanga á Bret-
landseyjum og flytur þjóðlög í útsetningum
Johns Rutters og fleiri. Granntónninn í
bresku lögunum og íslensku þjóðlögunum er
um margt líkur og má þar nefna að búrdon
er notaður í báðum löndunum og má segja
að langspilið með sína eiginleika samsvari
sekkjapípunni þar ytra, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Kammerkór Hafnarfjarðar var stofnaður
af Helga Bragasyni kórstjóra og hefur starf-
að í tvö ár. Um síðustu jól gaf kórinn út
geislaplötu.
MENNING/
LISIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn
Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveins-
sonar.
Gallerí Kambur, Rangárvallasýslu
Kristján Kristjánsson. Til 30. maí.
Gallerí Stöðlakot
Dögg Guðmundsdóttir, hönnunarsýning. Til
30. maí.
Gallerí Sævars Karls
Kristján Davíðsson. Til 27. maí.
Gerðarsafn, Listasafn Kópavogs
Yfirlitssýning á verkum Magnúsar Á. Áma-
sonar. Til 20. júní.
Hallgrímskirkja
Björg Þorsteinsdóttir. Til 1. júní.
Hafnarborg
Sverrissalur: Guðný Hafsteinsdóttir.
Aðalsalur: Margrét Jónsdóttir. Til 31. maí.
Ingólfsstræti 8
Finnbogi Pétursson. Til 13. júní.
Kjarvalsstaðir
Hönnun eftir Jasper Morrison, Marc Newson
og Miehael Young. Ljósmyndir Spessa. Aust-
ursalur: Jóhannes S. Kjarval. Til 24. maí.
Listasafn ASÍ
Ásmundarsalur og Giyfja: Þorri Hringsson.
Arinstofa: Svavar Guðnason. Úr eigu safns-
ins. Til 30. maí.
Listasafn Árnesinga
Verk í eigu heimamanna og Pétur Halldórs-
son. Til 30. maí.
Listasafn Einars Jónssonar
Opið laugardaga og sunnudaga 14-17.
Höggmyndagarðurinn opinn alla daga.
Listasafn Islands
Salur 1: Abstraktverk Þorvaldar Skúlasonar.
Salur 2: Andlitsmyndir Jóhannesar S. Kjar-
vals. Salur 3: Nýraunsæi 8. áratugarins. Sal-
ur 4: Náttúruhrif. Til 24. maí.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Yfirlitssýning á verkum Sigurjóns.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg
Páll S. Pálsson. Til 29. maí.
Norræna húsið
Myndasögur í Mýrinni. Til 23. maí.
Nýlistasafnið
Eggert Pétursson, Kenneth G. Hay, Jyrki
Siukonen, Sol Lyfond, Karin Schlechter og
Peter Friedl. Til 30. maí.
Mokkakaffí
Messíana Tómasdóttir. Til 4. júní.
Safnasafnið, Svalbarðsströnd
Hildur Hákonardóttir. Til 4. júní. Ragnar
Bjarnason, Gunnar Árnason, Svava Skúla-
dóttir, Þór Vigfússon, Óskar Beck, Handverk
í Húnaþingi, 8 sýnendur. Til 29. ágúst.
SPRON, Álfabakka
Sigurður Örlygsson. Til 9. júlí.
Þjóðarbókhlaðan, anddyri
Áhugaljósmyndarar í Reykjavík 1950-70. Til
28. maí.
TONLIST
Laugardagur
Anddyri Islensku óperunnar: Hornleikarafé-
lag íslands. Kl. 17.
Sunnudagur
Langholtskirkja: Musica Antiqua Köln. Kl.
17.
Þriðjudagur
Garðakirkja: Kór Vídalínskirkju og
Álftaneskórinn. KI. 20.30.
Salurinn, Kópavogi: Söngkvartettinn Rúdolf.
Kl. 20.30. •
Tónlistarskóli Hafnarfjarðar, Hásalir:
Kammerkór Hafnarfjarðar. Kl. 20.30.
Miðvikudagur
Seltjarnarneskirkja: Lögreglukórinn. Kl. 20.
Bessastaðakirkja: Kór Vídalínskirkju og
Álftaneskórinn. Kl. 20.30.
Fimmtudagur
Seltjarnarneskirkja: Lögreglukórinn. Kl. 20.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Sjálfstætt fólk: Bjartur, fim. 27. maí.
Tveir tvöfaldir, fos. 28. maí. Abel Snorko býr
einn, mið. 26., fós. 28. maí. Maður í mislitum
sokkum, fim. 27., fós. 28. maí.
Borgarleikhúsið
Stjórnleysingi ferst af slysfórum, fós. 28. maí.
Fegurðardrottningin frá Línakri, lau. 22. maí.
Islenska óperan
Hellisbúinn, lau. 22., sun. 23., mán. 24., fim.
27. maí. Ávaxtakarfan, lau. 22. maí.
Loftkastalinn Söngleikurinn Rent, lau. 22.,
mán. 24. maí. Hattur og Fattur, lau. 8. maí.
Iðnó Rommí, fös. 28. maí. Hnetan, lau. 22.
maí.
Möguleikhúsið
Leikfélagið Leyndir draumar: Herbergi 213,
lau. 22. maí.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er
eftir að birtar verði í þessum dálki verða að
hafa borist bréflega eða í tölvupósti fyrir kl.
16 á miðvikudögum merktar: Morgunblaðið,
Menning/listir, Kringlunni 1, 103 Rvík.
Myndsendir: 5691222. Netfang: menn-
ing@mbl.is.
ÞORKELL SIGURBJÖRNSSON TQNSKÁLD
SÆMDUR HEIÐURS-
DOKTORSNAFNBÓT
VIÐ HAMLINE-HÁSKÓLA
ÞORKELL Sigurbjörnsson tón-
skáld verður í dag sæmdur heið-
ursdoktorsnafnbót við Hamline-
háskóla í St. Paul, Minnesota,
fyrir tónsmíðar sínar. Athöfnin
fer fram í tengslum við braut-
skráningu nemenda frá háskól-
anum.
„Það veit Guð en ekki ég,“
sagði Þorkell glaður í bragði
þegar blaðamaður náði sam-
bandi við hann til að spyrja
hvaða þýðingu nafnbótin hefði
fyrir hann. Hann sagði hana
vissulega vera eins og svolítið
klapp á öxlina. „Er það ekki
bara gaman?“ sagði hann og
bætti við að þessi tíðindi hefðu
þó komið eins og þruma úr heið-
skíra lofti. En auðvitað hefði hann hlýtt kall- fjöratíu árum,“ segir hann.
Þorkell
Sigurbjörnsson
inu og haldið utan til þess að
veita heiðursdoktorsnafnbótinni
viðtöku. „Maður verður auðvitað
að gjöra svo vel að mæta og
setja upp húfu og skikkju og til-
heyrandi."
Þorkell er ekki með öllu
ókunnugur Hamline-háskólan-
um, því hann útskrifaðist þaðan
með BA-gráðu fyrir um fjörutíu
áram. „Svo þeir hafa nú líklega
eitthvað fylgst með manni, þó að
ég hafi eiginlega ekki verið í
neinu sambandi við þá síðan.
Tvisvar sinnum hafa að vísu
komið prófessorar þaðan sem
hafa heimsótt okkur heima á
leiðinni yfir Atlantshafið en það
er nú ekki mikið samband á
Morgunblaðið/Ásdís
KAMMERKÓR Hafnarfjarðar leitar fanga á Bretlandseyjum á tónleikunum á þriðjudag.
KÓRSÖNGUR
OG SEKKJAPÍPA
í HÁSÖLUM
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS m MENNING/HSTJR. 22.;AAAÍ 1999