Lesbók Morgunblaðsins - 22.05.1999, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 22.05.1999, Blaðsíða 5
HALLVARÐUR súgandi. Einn af fyrstu vélbátum Súgfirðinga. Báturinn var smíðaður á ísafirði árið 1908 fyrir Helga Sigurðsson, formann á Suð- ureyrarmölum, og Guðmund bónda Ásgrímsson í Gelti. Myndin var tekin frá Suðureyri árið 1910. Handan fjarðar sjáum við Norðureyrargilið og efst í því snjóskafl sem sjaldan tekur upp. Myndin er úr kaflanum um Suðureyrarhrepp. KONUR við fiskþvott á Suðureyri um 1910. Myndin er úr kaflanum um Suðureyrarhrepp. Bærinn og kirkjan standa hátt, efst á stórri bungulagaðri hæð sem landinu hallar frá á alla vegu. Skammt fyrir framan Stað skiptir fjallið Sunndalshorn Staðardal í tvo dali, Vatnadal og Sunndal, sem liggur hærra og vestar. Langáin, sem ýmsir nefna Staðará, kemur af Vatnadal en Þverá af Sunndal og fellur hún í Langá hér skammt fyrir framan túnið. Staður á allt land, sín megin ár, neðan frá sjó og fram að Þverá; og á Sunndal allt land fyrir vestan Þverá. I skjali frá árinu 1460 sést að landamerkin voru þá hin sömu. Stutt var á milli bæjanna í Stað- ardal, aðeins nokkur hundruð metrar yfir í Bæ og tæplega tveir kílómetrar frá Stað fram í Vatnadal. Nokkru lengra er inn á Suðureyri og liggur sú leið um fjöruna undir fjallinu Spilli. Utan við túnið á Stað setja Hólarnir svip á landslagið en hvilftin ofan við þá heitir Bæjar- hvilft og var stundum nefnd Móhvilft á ái'um áður. Ur henni fellur bæjarlækurinn niður hlíðina og er þar enn í sínum gamla farvegi. Fjallið framan við hvilftina heitir Miðdegis- bunga og er gamalt eyktamark en í klettabrún- inni vestan við Sunndal er Magnúsarhornið svipsterkast. Séð frá bæjarhlaðinu á Stað er það rétt austan við hásuður. Að fornu mati taldist bújörðin Staður vera 16 hundruð að dýrleika. Vetrarbeit þótti hér „í skárra lagi bæði til lands og vatns,“ úti á Sauðanesi og í fjörunni. Um 1920 var talið að hér mætti fleyta fram 120 sauðkindum, sex kúm og fjórum hrossum. Af túninu fengust þá 130 hestar af heyi og 260 hestar af engjunum. A átjándu og nítjándu öld var fátítt að sóknar- presturinn hefði alla jörðina til ábúðar og oft var hér margbýli. Fardagaárið 1792- 1793 voru býlin sex, að hjáleigukotunum meðtöldum, og munu sjaldan eða aldrei hafa verið fleiri. Árið 1860 voru hér fimm býli en frá 1863 til 1901 var prestlaust og á því skeiði bjó oftast einn bóndi á allri jörðinni. A fimmtándu öld var kirkjustaður þessi stundum nefndur Dalstaður og í heimild frá ár- inu 1539 „Staður í Dal“. Timburkirkjan sem hér stendur nú var reist árið 1886 en allar hin- ar eldri kirkjur voru byggðar úr torfi og stóðu inni í gamla kirkjugarðinum sem er 70-80 metrum sunnar og aðeins vestar en sá nýrri. Þar mótar enn fyrir kirkjutóttinni í gamla garðinum miðjum. Prestsbústaðurinn sem byggður var árið 1909 og brann 5. janúar 1976 stóð á Smiðjuflöt, um 60 metrum fyrir sunnan og austan íbúðarhúsið sem nú er hér. Gamli torfbærinn var aðeins framar en húsið frá 1909 og heldur nær fjallinu. Á því bæjarstæði sem ætla má að sé hið forna eru nú útihús. Um kirkjuna á Stað í Súgandafirði er fyrst getið í kirknatali frá árunum kringum 1200 en elsti máldagi hennai- sem varðveist hefur er talinn vera frá árinu 1324. Kirkjan var helguð Maríu mey og sjálfum guði. Um 1324 átti hún allt heimalandið hér á Stað og allan reka „millum Dalsár og Raufar", það er að segja frá árósn- um hér í Staðardal að hreppamörkunum á Sauðanesi. Staðarkirkja átti þá líka tíu aura í jörðinni Geirsbrekku, sem nú er nefnd Gils- brekka, rétt til naustgerðar við Árós í landi Bæjar og þriðjung afréttar í Vatnadal, „um- fram stóðhrossabeit". Á þeirri tíð átti hún fimm kýr, sex ær, gyltu með níu grísum og sem svaraði tveimur kúgildum í öðrum búfénaði. Á fyrri hluta 16. aldar eignaðist Staðarkirkja jörðina Ytri-Vatnadal, hér framar í dalnum, sem að fornu mati var átta hundruð að dýr- leika, en glataði henni fyrir 1639. Aðrar jarð- eignir, utan heimalandsins, mun þessi fátæka kirkja aldrei hafa náð að eignast ef frá eru taldir aurarnir tíu í landi Gilsbrekku, sem fyrr voru nefndir, og metnir voru til jafns við hálft jarðarhundrað. Sú eign var í raun ekki annað en ítak, enda er hún jafnan skilgreind svo í skjölum frá 17. öld og yngri heimildum. Skóg- arreitur kirkjunnar í landi Gilsbrekku var nefndur Staðarteigur. Árið 1839 var þetta skógarpláss, „að allra sögn“, ónýtt orðið en var þó reyndar enn til einhverra nytja tíu árum síðar. Árið 1689 var kirkjan á Stað í fjórum staf- gólfum og var eitt í kórnum en þrjú í fram- kirkjunni. Algeng lengd stafgólfa í kirkjum á 19. öld var 1,3 metrar eða svo og má því telja líklegt að á 17. öld hafi Staðarkirkja verið álíka stór og gamla bænhúsið á Núpsstað í Skafta- fellssýslu en lengd þess er 5,2 metrar. Sumarið 1700 var kominn á kirkjuhurðina koparhringur sem þáverandi sóknarprestur á Stað, séra Jón Torfason, hafði lagt kirkjunni til. Sá hringur var enn á hurðinni árið 1863 en er nú varðveitt- ur í Þjóðminjasafni íslands. Skömmu eftir 1720 var kirkjan endurbyggð og hefur þá að líkind- um verið stækkuð því nú urðu stafgólfin sex í stað fjögurra. Árið 1828 var grunnflötur kirkj- unnar 7,8 _ 3,4 metrar. Við endurbyggingu hennar árið 1856 var hún mjókkuð og stytt og varð 7,2 _ 3 metrar. Valdimar Þorvaldsson hef- ur í ritgerð greint stuttlega frá kirkjusiðum Súgfirðinga undir lok 19. aldar. Þegar kirkju- klukkunum var hringt, fyrir messu, lyftu karl- menn höfuðfötum sínum. Allir voru, að sögn Valdimars, með hvítan klút og höfðu hann í hendinni, „fyrir enni og augum“ þegar lesið var „faðir vor“. Helstu gripir Staðarkirkju árið 1324 voru mynd af Maríu guðsmóður, Péturs líkneski, líkneski Þorláks biskups helga, þrjár klukkur, tveir krossar og kertastika úr kopar. Hún átti þá líka „Jóns líkneski" og má vera að sú mynd hafi átt að sýna mönnum svip hins fyrsta Hóla- biskups, Jóns helga Ögmundssonar, en líklegra er þó hitt að styttan hafi verið af Jóhannesi skírara eða Jóhannesi guðspjallamanni. Árið 1615 átti kirkjan á Stað enn „lasið pappírsblað málað“ og kynni það að hafa verið gamla Mar- iumyndin. Elstu gripirnir sem kirkjan á nú eru tvær kertastikur „með þrístrendri stétt“. Þær lagði séra Jón Torfason, þáverandi sóknar- prestur á Stað, henni til árið 1689 og kostuðu 32 fiska. Staðarkirkja á gamlan hökul með ár- talinu 1692 og var hann gefinn hingað frá Rafnseyri haustið 1855. Hökullinn var gefinn Rafnseyrarkirkju árið 1692 eða örfáum árum síðar og var gefandinn Marin Hansdóttir, ekkja Eriks Munk sem lengi hafði rekið versl- un á Þingeyri. Þessi gamla flík er merkileg, ekki síst fyrir það að henni skrýddust um langt skeið feðgamir séra Jón Sigurðsson og séra Sigurður Jónsson sem þjónuðu Rafnseyrar- prestakalli frá 1786 til 1851 (sjá Rafnseyri), faðir og afi Jóns Sigurðssonar forseta. Klukkurnar tvær í Staðarkirkju eru gaml- ar. Á hinni stærri er ártalið 1727 og hana eign- aðist kirkjan á árunum kringum 1730. Á hana eru letruð orðin „gloria deo in excelsis", sem útleggst „dýrð sé guði í upphæðum". Minni klukkuna lagði séra Bergsveinn Hafliðason kirkjunni til mjög skömmu fyrir 1750 og hafði þá látið umsteypa hana „úr þeirri litlu og rifnu klukku sem hér áður var“. Predikunarstóllinn sem hér gefst kostur á að stíga í er frá árinu 1763. Kirkjan á líka altaris- klæði frá árinu 1773. Það lagði henni til ekkjan Þuríður Jónsdóttir frá Melum í Hrútafirði sem átt hafði séra Gísla Bjarnason er hér var prest- ur. Þuríður saumaði sjálf þetta klæði. Bók sem kirkjan á Stað eignaðist i móðuharðindunum sumarið 1784 var líka vel geymd í vörslu stað- arhaldara sumarið 1996, danska frumútgáfan KOPARHRINGUR úr kirkjuhurðinni á Stað í Súgandafirði. Þennan rauðleita koparhring lagði séra Jón Torfason til kirkjunnar á árun- um 1661-1700. Á hrínginn eru letruð nöfn guðspjallamannanna og f hann greyptar myndir af einkennisverum þeirra. Guðmund- ur Þorbjarnarson frá Suðureyri færði hann Þjóðminjasafninu árið 1922. af Ferðabók Ólafs Olaviusar, prentuð 1780. Með fullri vissu er aðeins kunnugt um nöfn tveggja presta sem sátu hér á Stað í kaþólsku, Ólafs Teitssonai' og Ara Jónssonar. Ólafur þjónaði Súgfirðingum á árunum kringum 1500 og kynni að hafa komið hingað um 1460 en séra Ari sat hér að búi á fyrri hluta sextándu aldar. Hann var síðasti kaþólski presturinn í Súg- andafirði og sá fyrsti lúterski. í hans tíð átti Staðarkirkja jörðina Ytri-Vatnadal og búsmala sinn hafði presturinn í seli frammi við Stóra- vatn (sjá Fremri-Vatnadalur). Á tímaskeiðinu frá 1569 til 1863 gegndu hér embætti fimmtán sóknarprestar og tveir aðstoðarprestar. Um þá alla liggur fyrir meiri eða minni vitneskja en fáir verða þó nefndir hér. Lengst allra sat hér að kalli séra Jón Torfason sem var prestur á Stað frá 1661 til 1719 eða í 58 ár. Hann var bóndasonur frá Gerðhömrum í Dýrafirði og aðeins liðlega tví- tugur er hann vígðist hingað. Seinna vann hann sér það til dómsáfellis, sem frægt er orðið, að fordjarfa nokkrum blöðum úr einni af frumgerðum Landnámabókar og notaði þau til að binda inn kver en hvert og eitt þessara fornu skinnblaða vildi Árni Magnús- son, handritasafnari og prófessor, kaupa háu verði ef finnast kynnu. Þau dýru „membrana" sem glötuðust hér á Stað fékk séra Jón um 1670 norður í Skálavík hjá fólki sem að hans eigin sögn hafði „eitt það lakasta verið í mannatölu, bæði til vitsmuna og veru“ og lét prestur þess getið í jólabréfi frá bóluárinu 1707 að nú væri það „flest strádautt". Sonar- sonur Jóns Torfasonar á Stað og konu hans, Ástríðar Bjarnadóttur, var Jón Ólafsson úr Grunnavík sem ungur að árum gerðist skrif- ari hjá Árna Magnússyni í Kaupmannahöfn. Iðnari mann við skriftir en þann góða Grunn- víking getur vart og má vona að honum hafi á langri æfi tekist að bæta að nokkru fyrir þau afglöp afa síns að kasta á glæ hinum mygluðu skinnblöðum úr Hauksbók. Einn prestanna sjö sem sátu hér á átjándu öldinni var séra Tyrfingur Finnsson, bóndason- ur úr Mýrasýslu. Hann tók við embættinu haust- ið 1737 og þjónaði hér í þrjú ár. Við guðsþjón- ustu í Eyrarkirkju í Skutulsfirði 19. júm' 1740 varð honum á að missa niður nokkrar oblátur og var talið að ölvun hefði valdið. Fyrir þá slysni var hann sviptur kjól og kalli en sat þó um kyrrt sem hver annar bóndi uns hann hrökklaðist héð- an þrítugur að aldri vorið 1743. Haustið 1749 var hann búsettur í Skutulsfirði, en fjórum árum síð- ar genginn á vit feðra sinna. Ekkja hans, Ingi- björg Bjamadóttir, var þá við búhokur í Hrauni í Hnífsdal. Þau urðu endalok þessa Mýramanns að hann varð úti á ferð milli bæja. Séra Tyrfingur var listaskrifari og allvel skáldmæltur. Hann orti nokkra sálma og byrj- ar einn þeirra svo: „Á þeim degi dóma dynja lúðurhljóð ...“ Hinn breyski guðsmaður var líka elskur að fomum sögum og um Kjartan Ólafs- son í Laxdælu orti hann þetta: Kurt bar Ólafsson Kjartan, klára fagur á hárin. Góðlyndur, gjöfull sýndi gnóttirmestuíþrótta. Mjallhvítur af bar öllum, í trú vistaðist Kristi. Dó við stein dal í Svína dörþollur knjám í Bolla. (Kaflinn um Stað er talsvert lengri en rýmis- ins vegna er ekki hægt að birta hann allan.) Höfundurinn er fyrrverandi alþingismaður og ritstjóri. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 22. MAÍl 999 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.