Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1999, Side 19

Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1999, Side 19
Sumardagskrá oq sýningar í Norræna húsinu Tl L MÓTS VIÐ ÁRIÐ 2000 Morgunblaðiö/Amaldur KAY Berg myndar listafólk og menningarfrömuði. SUMARDAGSKRÁ Norræna hússins sem ber yfírskriftina Til móts við árið 2000 hefst í dag með opnun ljósmyndasýninga. I sýningarsölum verður opnuð sýning á ljós- myndum eftir norska ljósmyndarann Kay Berg. Viðfangsefnið er ljósmyndir af listafólki og menningarfrömuðum sem koma frá menn- ingarborgum Evrópu árið 2000. Kay Berg verður viðstaddur opnun sýningarinnar ásamt fleiri gestum frá Noregi. Kay Berg starfar sem Ijósmyndari í Bergen. Þegar Bergen var valin sem ein af menningar- borgum Evrópu árið 2000, fékk hann þá hug- mynd að tengja saman þessar menningarborg- ir með því að heimsækja þær allar og taka myndir af fólki sem hefur á einhvem hátt verið áberandi á sviði menningar og lista. Tuttugu manns urðu fyrir valinu í hverri borg. Kay Berg kynnti þetta verkefni fyrir við- komandi borgaryfirvöldum og var því vel tekið. Bergen 2000 veitti honum styrk til að koma hugmyndinni í framkvæmd. Það er löng hefð í sögu ljósmyndarinnar að mynda þekkta per- sónuleika. Kay Berg stundaði nám í ljósmyndun 1993-1996. Hann var valinn ljósmyndari ársins 1996 og 1997 í samkeppni sem Norska ljós- myndarasambandið stendur að árlega meðal ljósmyndara í Noregi. Menning, listir og daglegt Iff I tilefni sýningarinnar kemur út bók með 160 ljósmyndum af nafnkunnu fólki í menning- arborgunum níu. Bókinni er skipt í níu kafla sem hver um sig fjallar um þróun borganna, menningu, listir og daglegt líf. Matthías Jo- hannessen, skáld og ritstjóri, skrifar textann í Reykj avíkurkaflanum. Dagskrá sumarsins í Norræna húsinu verð- ur helguð menningarborgunum árið 2000. Yfír- skriftin er Til móts við árið 2000. Á mánudagskvöldum frá 14. júní til 22. ágúst koma fram listamenn og fyrirlesarar frá menningarborgunum að Brussel undanskilinni. Auk þess koma aðrir góðir gestir frá Norður- löndum og taka þátt í sumardagskránni. ísland - Ijósmyndasýning í anddyri Fjórtán ljósmyndarar sem luku prófí frá Norræna Ijósmyndaskólanum í Biskops Arnö í Svíþjóð árið 1998 sýna verk sín í anddyri Nor- ræna hússins frá 5. júní til 15. ágúst. Sýningin verður tvískipt; sjö ljósmyndarar sýna frá 5. júní til 11. júlí og sjö ijósmyndarar sýna frá 12.júlí til 15. ágúst. Sýningin er opin daglega kl. 9-18, nema sunnudaga kl. 12-18. Aðgangur er ókeypis. Lokaverkefnið 1998 Var að taka heimilda- ljósmyndir og varð Island fyrir valinu. 16 ljós- myndanemar komu hingað til lands haustið 1998 og unnu að þessu verkefni í sex vikur. Hver og einn fann sér viðfangsefni og voru þau af ólíkum toga; náttúra landsins, hestar, átt- ræður bóndi, sundhallargestir, ungt fólk að skemmta sér, andlitsmyndir o.s.frv. Ljósmyndanámið í Norræna ljósmyndaskól- anum tók tvö og hálft ár. Lögð var áhersla á myndblaðamennsku (á sænsku bildjouma- listik) og heimildaljósmyndun þar sem listræn túlkun og vinnsla gegnir miklu hlutverki. Sýningin var opnuð í janúar í ár í Galleri Kontrast í Stokkhólmi og vakti hún athygli og hlaut góða dóma. Norræna félagið í Svíþjóð og Norræni lýð- háskólinn í Biskops Arnö veittu styrk til sýn- ingarinnar á Islandi. Flugleiðir og Morgun- blaðið veittu einnig aðstoð. FRÁ BELGRAD TIL THERESIENSTADT KIMISI Sfgildir diskar HRISTIC OG SLAVENSKI Stevan Hristic: Sögnin um Ohrid (Ohridska Legenda) - hljómsveitarsvítur. Josip Slavenski: Balkanophonia op. 10. Einleikur: Volker Wor- litzsch (fíðla). Hljómsveitarstjóri: Moshe Atzmon. Hljómsveit: Filharmóníusveit Norður- þýska útvarpsins í Hannover. Útgáfa: cpo 999 582-2. Lengd: 59-42. Verð: 1.800 kr. (12 tónar). I ÞAÐ vakti forvitni mína þegar ég rakst á geislaplötu með tónlist frá stríðshrjáðum þjóðum á Balkanskaga enda munu hörmung- ar þeirra vera ofarlega í hugum flestra. Ein- kennilegt er það að þessar þjóðir hafa ekki átt tónskáld sem náð hafa eyrum manna utan landsteina sinna. Og um þá Hristic og Sla- venski fínnst ekki stafkrókur í uppflettiritum mínum um sígilda tónlist - hvergi! En fróð- legur bæklingur með diskinum bætir þar úr. Stevan Hristic (1885-1958) var Serbi og stundaði tónlistarnám í Leipzig, Róm, Moskvu og París. Hann varð kennari í tón- smíðum við stofnun Tónlistarháskólans í Belgrad og rektor þar um skeið, stjórnaði Fíl- harmóníusveit Belgrad, hljómsveit Belgrad- óperunnar og óperustjóri var hann um árabil. Árið 1950 var hann kjörinn meðlimur Ser- bnesku vísinda- og tónlistarakademíunnar. Hristic var ekki stórvirkt tónskáld en kom þó við á flestum sviðum tónlistarinnar. Ballettinn Sögnin af Ohrid (1947) er talið meginverk Hristics og er það byggt á þjóð- sögu frá Serbíu. Verkið fjallar í sem stystu máli um ungt par sem má ekki eigast því stúlkunni er ætlað að giftast öðrum og efnaðri manni. En allt fer þó vel að lokum. Tónlistin er samin í afar litríkum þjóðlegum síðróman- tískum stíl enda notast Hristic í ríkum mæli við serbnesk og makedónsk þjóðlög. Hér er mikið af fallegri tónlist með grípandi laglínum og dansryþmum. Helst minnir hljómsetningin á Rimsky-Korsakov og jafnvel Smetana. Nið- urlag svítu nr. 2 ber sláandi keim af niðurlagi Moldár. I svítunum skiptast á blíðlegir og ljóðrænir kaflar með mikilli, næstum im- pressíónískri stemmningu og svo á hinn bóg- inn grófari kaflar. Þriðji kafli fyrstu svítunnar er greinilega í ætt við Sverðdans Kachaturi- ans. I þessum kafla er reyndar lýst árás ribb- alda á þorp elskendanna, þeir kveikja í húsun- um, myrða börnin og gamla fólkið og hneppa hina í þrældóm. Kannast einhver við þessa lýsingu? Josip Slavenski (1896-1955) fæddist í Króa- tíu og telst brautryðjandi í tónlistarsögu Jú- góslavíu. Hann lærði tónsmíðar hjá m.a. Kodály í Budapest og Novák í Prag og í París kynntist hann tónskáldunum Poulenc, d’Indy og Milhaud. Nýklassískur tónsmíðastíll Sla- venskis ber enda mikinn keim af verkum þessara tónskálda. Árið 1937 varð Slavenski prófessor í hljómfræði og tónsmíðum við Tón- listarháskólann í Belgrad. Hann var mikil- virkt tónskáld og samdi tónlist af flestum gerðum. Balkanophony (1928) er eitt þekktasta verk Slavenskis. Kaflamir eru sjö og byggja á þjóðdönsum frá Balkanlöndunum - eins kon- ar tónlistarportrett af þjóðunum á þessu svæði. Eins og gefur að skilja er tónlistin ákaflega ryþmísk og litrík, hljómamir litaðir af sérkennum tónlistar hverrar þjóðar um sig og allt klætt í búning hins nýklassíska tón- máls sem stundum verður skemmtilega óm- strítt. Sérlega áheyrilegt verk. I heild er diskurinn hinn ánægjulegasti, tónlistin aðgengileg og grípandi. Flutningur beggja verkanna er með ágætum og litrík tónlistin nýtur sín vel í skýrri og dýnamískri hljóðritun. KLEIN, ULLMANN, HAAS, KRÁSA OG HARTMANN Gideon Klein: Partíta fyrir strengi. Viktor Ull- mann: Píanúsónata nr. 7, Þrjú hebresk lög fyrir drengjakór, Þrjú sönglög við ljóð Friedrich Hölderlin. Pavel Haas: Stúdía fyrir strengja- sveit. Hans Krása: Passacaglia og fúga fyrir strengjatríó, Forleikur fyrir litla kammersveit, Brundibár-ópera fyrir börn. Karl Amadeus Hartmann: Pfanósónata „27. April 1945“, Sorg- arkonsert fyrir fiðlu og hljómsveit, Strengja- kvartett nr. 2. Einleikur: Aldo Orvieto og Mar- ina D’Ambroso (pfanó), Maffeo Scarpis (fiðla). Einsöngur: Maricla Rossi (sópran). Kór: Mlad- inski Zbor Slovenja. Kammerhópur: Quartetto d’archi di Venezia. Hljómsveit: Orhestra di Pa- dova e del Veneto. Hljómsveitíirstjóri: Nada Matose Vic. Útgáfa: Hommage Musik- produktion HOM 7001891-3 (3 diskar). Lengd: 172-13. Verð: 1.500 kr. (12 tónar). ÞAÐ stenst enginn tilboð sem hljóðar á 1.500 krónur fyrir þriggja diska sett - næst- um of gott til að vera satt Þetta eru þrír þokkalega vel fylltir geisla- diskar og spilamennskan er áköf og innblásin. Reyndar er eldmóður hinna ítölsku hljóðfæra- leikara stundum svo mikill að það kemur nið- ur á samstillingu þeirra en það vegur létt þeg- ar tillit er tekið til þess hve gegnheill og ekta flutningurinn er. Slóvenski barnakórinn stendur sig einnig með prýði og sama má segja um einsöng Maricla Rossi. Og ekki má gleyma tónverkunum, þau eru flest hin áheyrilegustu. En titill settsins, „Bönnuð, ekki gleymd" og undirtitillinn - Tónlist sem þögguð var niður á árunum 1938-1945“ stenst einhvern veginn ekki. Að því er látið liggja að hér megi heyra tónlist sem samin var í fangabúðum nazista í ÁSTAR- BRÉFÁ UPPBOÐI London. Morgnnblaðið. BRÉF, þar sem kvikmyndaleikkonan Ingrid Bergman, fjallar um deyjandi ást hennar og Roberto Rosselini verða boðin upp í Róm síðar í mánuðinum. The Daily Telegraph skýrir frá þessu og segir í annarri frétt, að Georgetown háskóli í Washington hafi keypt 120 ástar- "*■ bréf, sem rithöfund- urinn Graham Greene skrifaði á ár- unum 1963-1986 til Yvonne Cloette. Bréf Bergman eru frá árunum 1949-51 og hún skrifaði þau til mágkvenna sinna, Renzo og Anita Rosselini. I bréfun- um koma fram áhyggjur hennar vegna hranalegrar framkomu Rosselin- is og minnkandi kærleika með þeim a. hjónum og 1951 snú- ast áhyggjur hennar um það, að spennan milli þeirra hafí slæm áhrif á dóttur- ina Piu. Það er allt annar tónn í bréfunum frá Graham Greene, enda hans ást „eilíf‘, enda þótt sú eilífð hafi átt sinn endi, eins og fleiri í ástalífi skáldsins, en Georgetown á einnig myndarlegt safn ástarbréfa, sem Greene skrifaði Catherine Walston. Að sögn kaupandans var gefrn fimm stafa upphæð fyrir bréfin, sem þýðir að þau hafa verið keypt á innan við 100 þúsund pund. Graham Greene gaf Georgetown mikið safn bréfa og skjala áður en hann lézt 1991. Ingrid Bergman Graham Greene Theresienstadt. Karl Amadeus Hartmann, sem er helgaður heill diskur í settinu, var aldrei í Theresienstadt og hinn magnaði Trauerkonzert fyrir fiðlu og hljómsveit var saminn árið 1959! Barnaóperan Brundibár eftir Hans Krása (sem var sendur til Theresi- enstadt 1942) var samin 1938-1944, frumflutt á laun 1941 og síðan leikin 55 sinnum í Ther- esienstadt 1943-1944. Samt var bannað að flytja verkið! Hver skilur svona rugl? Sjöunda 9 píanósónata Viktors Ullmanns er nefnd pí- anókonsert í bæklingnum - eða er e.t.v. átt við einhvern píanókonsert nr. 7? Manni dettur það í hug því meira er þar fjallað um verk sem ekki er að finna á diskunum. Hvers vegna er fjórða þættinum sleppt í glæsilegri Píanó- sónötu Hartmanns, „27. April 1945“, fyrst því er haldið fram að fjögurra kafla formið sé svo dæmigert fyrir þessa tegund tónlistar hans? Ágæt Partita fyrir strengi (1944) eftir Gideon Klein ku vera „endurgerð og hljómsett" af Vojtech Saudek. Miðkafli verksins er sagður upprunninn úr Strengjatríói Kleins en spurn- ingin er: hvers vegna spila menn þá ekki tríó- ið í stað hinnar endurgerðu partítu - og hvað- an koma þá hinir kaflarnir tveir? Eins og sjá má af framansögðu er ýmislegt á huldu um tilurð og gerð mai’gra þessara'v verka. Og ekki hjálpar vægast sagt hræðileg- ur bæklingur diskanna til. Þar eru ótal lausir endar og óútskýrð atriði, þversagnir og aug- ljós ruglingur á ferðinni. Ágætis hugmynd rennur út í sandinn vegna vondra vinnu- bragða. Þetta er synd og skömm því tónlistin er góð og þessir gallar draga athyglina frá því sem vafalaust átti að vera meginmarkmiðið með útgáfunni: að minna á hryllileg örlög Gyðinga í fangabúðum nazista. Þessi tónlist er okkur áminning um einhverja þá svívirði- legustu glæpi sem framdir hafa verið: kald- rifjaða og þaulskipulagða útrýmingu þýskra nazista á Gyðingum, atburði sem við megum aldrei gleyma. * Flutningurinn er yfirleitt prýðilegur og þó að hljóðritunin sé frekar þurr og ómlítil er settið þrátt fyrir allt framansagt mjög eigu- legt - og ekki spillir lágt verð fyrir. Valdemar Pálsson LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 5. JÚNÍ 1999 19

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.