Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1999, Page 20
DANS í HELGU RÝMI
Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju verður sett annað
kvöld. Hápunktur kvöldsins er frumflutningur á nýrri
gerð orgelverksins Dýrð Krists eftir Jónas Tómasson.
ORRI PALL ORMARSSON ræddi við tónskáldið og fólk-
ið sem að flutningnum kemur, Hörð Askelsson org-
anista, Sverri Guðjónsson söngvara og Láru Stefáns-
dóttur sem samið hefur dans við verkið.
✓
MÍNUM huga er Dýrð Krists ekki
prógrammúsík, heldur abstrakt tónsmíð til
íhugunar á textunum, sem flestir eru
þekktar sögur úr Biblíunni. Þess vegna
þótti mér verkið bjóða upp á víðari útfærslu -
það væri ekta verk fyrir dans,“ segir Hörður
Áskelsson organisti um tildrög þess að hann
fékk Láru Stefánsdóttur danshöfund til að
semja dans við Dýrð Krists, orgelverk í sjö
köflum eftir Jónas Tómasson, sem flutt verður
í nýrri mynd við opnun Kirkjulistahátíðar í
Hallgríumskirkju annað kvöld.
„Það er alltaf gaman að vinna með fólki úr
öðrum listgreinum,“ heldur Hörður áfram, „og
jfcpkkur hefur lengi langað að fá listdans inn í
kirkjuna. Lára dansar sjálf og ég er heillaður
af innleggi hennar, hún hefur verið gripin af
þessu verkefni."
Hörður segir það síðan hafa komið upp af
sjálfu sér í kjölfarið að hann fékk tónskáldið til
að bæta sönghlutverki inn í verkið. „Við urð-
um strax sammála um að Sverrir Guðjónsson
kontratenórsöngvari væri rétti maðurinn til að
flytja þessa tónsetningu á textunum á milli
orgelkaflanna. Hugmyndin hélt svo áfram að
þróast og úr varð eiginlega ný textaröð, sjö
textar sem Sverrir flytur án undirleiks á und-
an hverjum orgelkafla."
Og flutningurinn leggst ákaflega vel í Hörð.
„Þó að þarna verði þrír einstaklingar, hver á
sínu róli, að túlka þetta verk, er þarna á ferð-
inni samspil sem ég held að sé áhrifaríkt.
Sverrir og Lára ganga bæði af heilum hug inn
í þetta verkefni, af mikflli einlægni, og ég hef
sterklega á tilfinningunni að þessi viðbót við
verkið eigi eftir að stækka upplifunina. Og svo
er auðvitað kirkjuleg hugsun í þessu tríói - hin
heilaga þrenning."
Herði þykir það ögrandi verkefni að tefla
listgreinum saman með þessum hætti í Hall-
grímskirkju og rýmið komi án efa til með að
magna upp stemmninguna í kringum upp-
færsluna. „Það er ekki bara Lára sem verður
á hreyfíngu í rýminu, heldur einnig Sverrir.
Hann syngur bæði á ýmsum stöðum í kirkj-
unni og á ferð - kemur sem sagt með mynd-
^rænum hætti inn í þessa gerð. Segja má að
hann sé í hlutverki sendiboða, jafnvel spá-
manns.“
Drakk í sig tónlistina
Lára Stefánsdóttir fékk geislaplötuna, þar
sem Hörður leikur Dýrð Krists, í hendur fyrh'
um ári en tók þó ekki til við að semja dansinn
fyrr en fyrir fáeinum vikum. „Það er ekki
minn stíll að þvinga fram sköpun, þannig að
fyrst um sinn hlustaði ég bara á tónlistina,
drakk hana í mig, á milli þess sem ég fór upp í
kirkju til að velta rýminu fyrir mér,“ segir
hún. „Þetta er mögnuð tónlist sem vinnur
stöðugt á og niðurstaða mín, þegar ég byrjaði
að semja dansinn, var að hafa látbragðið og
auðmýktina í fyrirrúmi. Þetta er gjöful tónlist
sem auðvelt er að túlka og þegar þessi já-
kvæða orka sem kirkjan hefur að geyma bætt-
ist við flæddi dansinn eiginlega fram. Þetta
hefur verið virkilega spennandi verkefni og
ekki laust við að orkan hafi flætt um kirkjuna
á æfíngum, vonandi verður sama upp á ten-
ingnum við frumflutninginn.“
Sverrir Guðjónsson kveðst þegar í stað hafa
heillast af verkefninu en þó tekið það að sér
með eilitlum kvíða, þar sem honum var ætlað
að syngja hlutverkið án undirleiks. Þegar
hann fékk tónlistina í hendur hvarf sá kvíði
eins og hendi væri veifað. „Tónlist Jónasar
heillaði mig strax, það er svo falleg tilfínning í
henni. Ég myndi ekki kalla minn part tónles
en tónskáldið leikur sér þarna með sönglínur
sem maður heyrir stundum í orgelpartinum.
Þetta tvennt kallast því á. Raunar lít ég á
þetta verk sem helgidans, dansara, organista
og söngvara.“
Að dómi Sverris eykur textinn áhrif verks-
ins. „Textinn er að mínu mati táknrænn fyrir
blóðbaðið í kringum okkur sem ætlar engan
enda að taka. Maðurinn virðist aldrei ætla að
læra. Sérstaklega er þessi setning mér hug-
leikin: „Verið góðviljaðir hver við annan, mis-
kunnsamir, fúsir til að fyrirgefa hver öðrum
eins og Guð hefur í Kristi fyrirgefið yður.“ Það
er sama hvar maður ber niður í þessu mannlífí
sem við lifum í, það virðist alls staðar vera
erfítt að fyrirgefa."
Sverrir er, sem fyrr segir, mjög hreyfanleg-
ur í rýminu. Hreyfingarnar samdi hann sjálf-
ur. „Við Lára unnum okkar vinnu hvort í sínu
lagi en þegar við fórum að bera saman bækur
okkar kom í ljós að hugmyndirnar féllu mjög
vel saman. Það var ánægjulegt."
Lifir ógætu lífi
Jónas Tómasson skrifaði Dýrð Krists árið
1995 að beiðni sóknarnefndar Isafjarðarkirkju
í tilefni af vígslu nýs orgels kirkjunnar. Hafði
hann Hörð Askelsson í huga við samninguna
og frumflutti Hörður verkið fyrir vestan í jan-
úar 1996 og flutti það svo aftur í Hallgríms-
kirkju fáeinum dögum síðar. Síðan hefur hann
farið með verkið víða, innan lands og utan,
bæði í heild og einstaka kafla. Verkið er til á
geislaplötu sem Tónlistarfélag Isafjarðar gaf
llttllitflilll
Morgunblaðið/Þorkell
MIKIÐ mun mæða á þeim Sverri Guðjónssyni, Herði Áskelssyni og Láru Stefánsdóttur í opn- .
unardagskrá Kirkjulistahátíðar í Hallgrímskirkju.
Morgunblaðið/Kristinn
GEORG Guðni sýnir verk sín
á Kirkjulistahátíð.
út og segir Jónas það hafa fengið töluverða
umfjöllun í erlendum fagtímaritum. „Það eru
svona við og við að detta inn á borð til mín
dómar úr organistablöðum í Þýskalandi og
víðar. Þannig að verkið virðist lifa ágætu lífí.“
Dýrð Krists er í sjö köflum og er hver þátt-
ur hugleiðing um texta guðspjallanna. Tón-
skáldið segir verkið taka sinn tíma í flutningi,
nánar tiltekið um fjörutíu mínútur, og er það
lengsta orgelverk Islendings.
Jónas, sem búsettur er á Isafirði, hefur ekki
séð dans Láru Stefánsdóttur ennþá en kveðst
hlakka til þess. „Þessi hugmynd er frá Herði
komin en honum fannst henta verkinu að fá
einhverja sýnilega hreyfíngu með því. Það
verður spennandi að sjá hvernig það kemur
út.“
Verkið verður endurflutt í þessari nýju
mynd á ísafirði 9. júní næstkomandi.
Athöfnin annað kvöld hefst kl. 20 með
klukknaspili og lúðraþyt. Herra Karl Sigur-
björnsson biskup setur hátíðina og opnuð
verður myndlistarsýning á verkum Georgs
Guðna Haukssonar.
SÝNING Á MYND-
TÁKNUM I MÍR-SALNUM
Morgunblaðið/Þorkell
KÍNVERJAR geta lesið verk Mai Cheng Zheng, en Vesturlandabúar sjá í þeim abstrakt form
og myndir.
í SÝNINGARSÖLUM MÍR, Vatnsstíg 10,
verður opnuð sýning á verkum Mai Cheng
Zheng, í dag kl. 15. Mai Cheng er norskur
ríkisborgari en fædd og uppalin í Kína.
Myndtákn hverskonar eru áberandi í nær
öllum verkum hennar. Táknskriftin byggist
á strikagerð, sem býður uppá möguleika í
listrænni útfærslu. Myndletrið veldur því að
kínverjar geta „lesið“ verk Mai Cheng Zhen,
en Vesturlandabúar sjá í þeim abstrakt form
og myndir. Hún hefur kynnt sér kalligrafí
(skriftamál) og táknmyndir. Einnig hefur
hún lengi haft áhuga á norrænum rúnum og
^pínaristum. Hugmyndir að verkum sínum
sækir hún til alls þessa og telur að kínverska
táknskriftin, myndletur fornegypta og rúnir
norrænna manna eigi sér sama fagurfræði-
lega bakgrunninn.
Margar myndanna sem hún sýnir í MIR-
salnum eru unnar í Kína og sýna framandi
landslag með táknum og skrift menningar,
sem er okkur fjarlæg. Hún málar bæði með
tússi og steinlitum á hríspappír, sem síðan
er lagður á ekta silkivef, en þessi tækni við
myndgerð viðgengst aðeins í Kína og Jap-
an.
Mai Cheng býr og vinnur til skiptis í Nor-
egi, Frakklandi og Klna, og sjálf segist hún
ekki leggja mikið upp úr sérstökum þegn-
rétti. Henni finnst hún hvorki evrópsk né
asísk. Hún stundaði nám bæði við Listahá-
skólann í Kína og Kunstakademiet í Ósló.
Hún hefur haldið tvær einkasýningar í París,
þá síðari í Espace Bateau Lavoir, sýningar-
sal sem á sínum tíma var vinnustofa Pablos
Picasso á Montmartre. Stærsta sýning henn-
ar til þessa var haldin árið 1992 í Ríkislista-
safninu í Kína í Beijing, þar sem hún sýndi
yfir 100 olíumálverk og tússteikningar og
hafa margar mynda hennar verið keyptar til
safnsins. Fyrir fjórum árum hannaði hún
myndskrift sem prýða mun risastórt bóka-
safn í Alexandríu í Egyptalandi og norsk
arkitektastofa vinnur að.
Sýningin er opin alla daga kl. 15-18 og
stendur til 20. júní.
í'*
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 5. JÚNÍ 1999