Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1999, Qupperneq 6
BLÓÐI DRIFIN SLÓÐ HERNANDO DE SOTO - SÍDARI HLUTI
HVERT ÞORP fyrir sig var sjálfstæð sem daglegt líf íbúanna snerist að mestu um. Oftast voru þorpin ekki víggirt, en á ófriðartímum voru þau hins vegar víggirt og oft voru rammgerð virki
reist þar sem íbúarnir gátu leitað skjóls þegar árásir stóðu yfir.
EINN ÞRÆLL MEÐ BOLUSÓTT
Á si
Æk So
#Y ieí
#\ ha
M m un
ipMMk frt
# V;
STÆÐAN fyrir þvi að de
Soto hélt í norður er senni-
lega sú að Spánverjunum
hafði skömmu fyrir kom-
til Mauvila, borist sú
fregn að spænsk skip biðu
þeirra við mynni Alabama-
Mexíkóflóa. De Soto
var hins vegar enn staðráðinn i að fmna færa
leið í gegnum þetta land til Kína og til að
koma í veg fyrir liðhlaup, hélt hann í norður-
átt með liðið, sennilega til að finna vetursetu
handan mikillar ár sem hann hafði heyrt að
væri þar stutt frá. Þegar Spánverjarair væru
einu sinni komnir yfir þá torfæru, taldi de
Soto að undankomuleiðum væri þar með lok-
að fyrir þá einstaklinga sem vildu stinga af.
Conquistadorarair náðu tveimur vikum
seinna til Tennessefljóts eftir að hafa átt í
skærum á leiðinni við Napotsía og
Chocktawa. Her de Sotos hafði vetursetu í
byggðum Chickasawa norðan Tennessefljóts
en allt frá upphafi ríkti mikil spenna milli
heimamanna og Spánverjanna. Spennan stig-
magnaðist síðan þar til Chickasawar gerðu
skyndiárás á Spánveijana í skjóli nætur og
náðu næstum áð gera út af við hinn illræmda
leiðangur. Hestar Spánverjanna, sem hlupu
ærðir um, villtu svo um fyrir Chickasöwunum
að þeir héldu að þar væri um gagnárás
conquistadoranna að ræða og hörfuðu á úr-
slitastundu. Allan veturinn eða í 4 mánuði
héldu Chickasawamir uppi stöðugum árásum
á Spánverjana og við fyrstu merki vors í apríl
1541 hröðuðu Spánverjamir sér í norðurátt,
út úr landi Chickasawanna.
Bardagarnir við Móbílana og Chicka-
sawana hafði víðtæk áhrif í þá átt að breyta
áliti Indíánanna á conquistadorunum. Áhrifin
voru þau að sýna Indíánunum að Spán-
verjamir voru ekki eins ósigrandi eins og þeir
höfðu virst í fyrstu. Því var það að þegar
Spánverjamir komu til norðurlandamæra
Chickasawanna, komu þeir að virki Alabama-
Indíána sem voru nágrannar Chickasawanna í
norðri. I virkinu var samankominn fjöldi ala-
bamskra stríðsmanna sem virtust óðir og
uppvægir vilja reyna sig við conquistadorana.
r r
OG INDIANAÞJOÐ-
FLOKKARNIR STRÁFÉLLU
EFTIR BALDUR A SIGURVINSSON
í ágúst 1559 sendi Spánarkonungur Tristan de Luna
með 500 hermenn oq 1000 landnema til að stofna ný-
lendu í landi hinna auð^u Kúsa Það sem
voru akrar í órækt, yfirgefin þorp og að hruni komnar
pýramídahæðir. Fólkið og menning þess var horfin og
flestir höfðu farist í bólusóttarfaraldrinum.
PÝRAMÍDARNIR voru stækkaðir þegar aðalhöfðinginn dó en þá var hús hans á toppi
pýramídans brotið niður, jarðvegur borinn yfir og látinn hylja leifarnar. Á þennan hátt stækk-
uðu pýramídarnir með hverri kynslóð.
Eftir misheppnaða árás manna de Sotos á þá
þar sem um tugur Spánverjanna féll en engir
Alabamar, hörfuðu Alabamamir sigri hrós-
andi eftir þennan sálfræðilega sigur á
conquistadorunum. Óður af reiði hélt de Soto
áfram ferð sinni norður á bóginn inn í land
Alabamanna en fann byggðir þeirra hins veg-
ar yfirgefnar og vistalausar. Vistalitlir
komust Spánverjamir til Cumberlandárinnar
en á norðurbakka hennar bjuggu Yútsíar.
Koma Spánverjanna virtist koma Yútsíum á
óvart og náði de Soto þorpi þeirra við vaðið
mótþróalaust á sitt vald því flestir Yútsíarnir
voru við vinnu sína úti á ökranum. Þar sem
Spánverjana skorti illilega vistir, ákvað de
Soto að fara vel að heimamönnum og frið-
mæltist hann því við höfðingja þorpsins sem
samþykkti að vista conquistadorana.
Tveimur vikum seinna komu Spánverjamir
til Ohiofljóts en þar þurftu þeir að berjast við
Aqúíxóa sem bjuggu á norðurbakkanum og
vörnuðu þeim að komast yfir fljótið. Eftir sig-
ur á Aqúíxóum hélt de Soto áfram ferð sinni
norðureftir. Við ármót Wabash og White
komu conquistadoramir til byggða Ka-
skinampóa. Þar frétti hann af aðalandstæð-
ingi Kaskinampóa í norðri og ákvað de Soto
að halda ferðinni áfram upp með Wabashánni.
Við núverandi Terre Haute-borg komu
conquistadorarnir til höfuðstaðar Qúapawa,
Pacaha. í byggðum Qúapawa ákvað de Soto
að hafa vetursetu og til að dragast ekki inn í
ófrið Qúapawa og Kaskinampóa, neyddi hann
þá til að semja frið sín á milli.
Frá Pacaha sendi de Soto leiðangur norður
á bóginn til að kanna aðstæður. Sá leiðangur
komst alla leið til suðurenda Michiganvatns
en sú staðreynd að um vatn en ekki sjó var að
ræða, olli de Soto vonbrigðum. Um vorið hélt
de Soto því aftur suður með Wabashánni en
við ármót hennar og Ohio, sneri hann í vestur
og eftir nokkurra daga ferð kom hann til
Mississippifljóts. Sá fundur nægði til að sann-
færa de Soto um að um þetta land væri ekki
hægt að finna færa leið til Kína, þar sem því-
líkt risafljót eins og Mississippi hlyti að renna
um mjög umfangsmikinn landmassa. Fullur
vonbrigða ákvað de Soto að tími væri kominn
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 7. ÁGÚST 1999