Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1999, Page 15
150 ÁRA MINNINGARSÝNING MICHAELS ANCHERS í SKAGEN
SEGJA má að Michael Ancher hafi slegið f
gegn sem listmálari með verkinu „Vil han
klare pynten?" (Kemst hann fyrir nesið?),
sem hann sýndi fyrst á vorsýningunni á
Charlottenborg 1880, en hann varð mest um- '
talaði málari Oanmerkur það árið. Statens
Museum for kunst hafði fest kaup á málverk-
inu en dró sig út úr kaupunum þegar kon-
ungurinn, Kristján níundi, falaðist eftir því.
ÞEGAR „Portræt af min hustru“ var sýnt á
vorsýningunni á Charlottenborg árið 1880
vakti það hneykslun margra. A þeim tíma
þótti það nefnilega ekki viðeigandi að lista-
maðurinn skyldi ekki á nokkurn hátt reyna að
leyna því að eiginkona hans ætti von á barni.
MYNDIR ÚR LÍFI
FISKIMANNA
í listasafninu í Skaqen í Danmörku, Skaqens Museum,
stendur nú yfir umfanqsmikil sýninq á verkum eins
þekktasta Skaqen-málarans, Michaels Ancher, en á
Dessu ári eru liðin 150 ár frá fæðinqu hans. MARGRET
SVEINBJÖRNSDÓTTIR rölti um sýninqarsalina oq heim-
sótti því næst heimili heiðurshjónanna Michaels oq
Önnu Ancher, sem er safn til minninqar um íf þeirra
oq list, svo lifandi að það var enqu líkara en Dau hefðu
einunqis bruqðið sér frá eitt auqnabli c.
MEÐ því að ganga um
hús hjónanna og lista-
mannanna Miehaels og
Önnu Ancher, gefst góð
innsýn í líf þeirra og
starf og gesturinn
hverfur um stund aftur
til þess tíma á seinni
hluta síðustu aldar þegar listamenn flykktust
víða að til þessa nyrsta skaga Jótlands, þar
sem höfin Skagerak og Kattegat mætast og
birtan er tær og hrein. Af þeim fundum spratt
fjöldi málverka sem fljótt urðu víðfræg. Með-
al viðfangsefna Skagen-málaranna voru lífs-
barátta fiskimanna, sem Michael Ancher brá
nýju og raunsæu ljósi á í verkum sínum, og
lífið í listamannanýlendunni. Auk Ancher-
hjónanna má þar fremsta nefna listmálarana
P.S. Kroyer, Laurits Tuxen, Viggo Johansen,
Christian Krogh og Oscar Björck.
I húsi Ancher-hjónanna er flest eins og það
var þegar þau bjuggu þar ásamt dóttur sinni,
Helgu, en þakkað veri framsýni hennar var
húsið gert að safni. Eftir andlát hennar árið
1964 var stofnaður sérstakur sjóður, Helga
Anchers Fond, og var uppistaðan í þeim sjóði
allt sem hún lét eftir sig. Sjóðurinn stendur að
rekstri safnsins, sem var opnað árið 1967 eftir
gagngerar endurbætur. Bak við húsið er Sax-
ilds gaard, sem komst í eigu sjóðsins árið
1989. Þar eru reglulega haldnar sýningar á
verkum í eigu sjóðsins, sér í lagi á skissum
verka þeirra Michaels, Önnu og Helgu
Ancher. Eftir að hafa séð sýninguna á Skag-
ens Museum er einstaklega áhugavert að
skyggnast bak við málverkin með því að
skoða hluta af þeirri gríðarlegu foi’vinnu sem
að baki þeim liggur, auk þess sem gaman er
að sjá á heimili þeii-ra hjóna og í garðinum
umhverfis bakgrunn ýmissa frægra verka
þeirra.
Sýningin á Skagens Museum var opnuð
hinn 9. júní sl., en þann dag árið 1849 fæddist
Michael Ancher á Borgundarhólmi. Hann er
orðinn 25 ára þegar hann kemur fyrst til
Skagen, þar sem hann fer strax að teikna
skissur af lífi og starfi fiskimanna. Þetta sum-
ar hittir hann í fyrsta sinn tilvonandi eigin-
konu sína, Önnu, dóttur veitingamannsins
Eriks Brondum, en hún var þá um fermingu.
Þar með má segja að teningunum hafi verið
kastað fyrir Michael Ancher. Hann snýr aftur
til Skagen næsta sumai' þegar hann hefur gef-
ist endanlega upp á að ijúka námi frá Listaka-
demíunni í Kaupmannahöfn, þar sem hann
hafði numið um nokkurra ára skeið. Hann
kvænist Önnu Brondum sumarið 1880 og þau
búa saman í Skagen upp frá því, frá árinu
„DEN druknede" frá árinu 1896. Hér minnist Ancher hins þekkta
björgunarmanns Lars Kruse, sem drukknaði sjálfur við veiðar.
Morgunblaðið/Margrét
MEÐ því að ganga um
hús hjónanna og lista-
mannanna Michaels og
Önnu Ancher gefst for-
vitnum gestum góð inn- ,
sýn í líf þeirra og list.
1884 og til dauðadags í húsinu við Markvej,
sem nú hýsir safn þeirra hjóna. Nokkra vetur
héldu þau einnig heimOi í Kaupmannahöfn til
þess að geta verið í betri tengslum við listalíf-
ið þar, en þeirra aðalheimili var alla tíð í
Skagen. Aðrir frægir Skagen-málarar voru
þar einungis sumargestir sem hurfu á braut
þegar haustaði.
A sýningunni, sem spannar meira en fjög-
urra áratuga listsköpun Anchers, eru 120
málverk og hátt í 40 teikningar. Um helming-
ur verkanna er í eigu safnsins í Skagen og
fyrrnefnds sjóðs Helgu Ancher en hin eru
fengin að láni hjá Statens Museum for Kunst í
Kaupmannahöfn og ýmsum öðrum listasöfn-
um, auk einkaaðila. Þetta er stærsta sýningin
sem hingað til hefur verið haldin á verkum
listamannsins en fyrir nokkrum árum var
haldin stór yfirlitssýning á verkum Önnu
Ancher.
Sýningin í Skagens Museum stendur fram
til 29. ágúst nk. og er opin alla daga kl. 10-18.
Hús Michaels og Önnu Ancher við Markvej er
opið gestum á sama tíma.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 7. ÁGÚST 1999 1 5