Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.2000, Blaðsíða 2
Kjarvalssýning á Gamle Holtegaard
PER KIRKEBY SKRIFAR AÐFARAORÐ
Jóhannes S. Kjarval: Skjaldbreiður, 1958.
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
SÝNING á 24 stórum málverkum eftir Jó-
hannes Kjarval var opnuð nýverið í Gamle
Holtegaard úti í Holte, norðan við Kaup-
mannahöfn. Um er að ræða 23 málverk frá
Islandi, sem sum hver hafa ekki verið sýnd
opinberlega áður og eitt málverk úr danskri
eigu. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi for-
seti, opnaði sýninguna. Formála að sýning-
arskrá skrifar Per Kirkeby, sem er einn
þekktasti málari Dana, og þar rekur hann
áhrif Kjarvals á sig. Að sögn Jacobs Thage,
sem sá um sýninguna, hefur aðsóknin verið
góð. Sýningin hefur verið vel kynnt í dönsk-
um fjölmiðlum.
Frá írlandi til íslands
Að sögn Jacob Thage spratt hugmyndin
að sýningunni upp fyrir nokkrum árum, þeg-
ar unnið var að undirbúningi á sýningu
verka írska málarans Jack B. Yeats, sem
haldin var í fyrra. Thage segist þá hafa
hugsað með sér að Yeats og Kjarval ættu
báðir sameiginlegt að koma frá löndum með
ríkri sagnahefð, en fátæklegri myndlistar-
hefð.
Það var líka fleira að sögn Thage sem var
sameiginlegt þessum tveimur málurum. Báð-
ir skiluðu að mati Thage sínum bestu verk-
um síðari hluta ævinnar, höfðu sinn sérstaka
stíl og þekktu vel til myndlistarstrauma í
Evrópu, þótt þeir færu sínar eigin leiðir.
Með allt þetta í huga ákvað Thage að það
færi vel á að sýna verk Kjarvals í kjölfar
Yeats.
Áhrif Kjarvals á Kirkeby
Myndir Kjarvals á dönsku sýningunni eru
frá árunum 1942-1964. Thage fór til íslands
að velja myndirnar og segist hafa notið góðr-
ar aðstoðar Kjarvalsstaða, sem einnig hafi
séð um ýmis framkvæmdaatriði. Myndirnar
á sýningunni eru bæði úr eigu Kjarvalsstaða
og Listasafns íslands, en einnig eru þar
myndir í einkaeign, sem ekki hafa verið
sýndar opinberberlega áður. Auk þess er á
sýningunni myndin Sjón er sögu ríkari, sem
íslendingar gáfu danska þinginu á sínum
tíma og sem hangir þar uppi í einum af fund-
arsölum þingsins.
Thage sagðist ekki hafa vitað af miklum
áhuga Per Kirkeby á Kjarval fyrr en hann
vann að undirbúningi sýningarinnar. Kirk-
eby tók síðan að sér að skrifa aðfaraorð að
sýningunni. Þar rekur hann á skemmtilegan
hátt hvernig myndir Kjarvals hafi á unga
aldri opnað augu sín fyrir að hægt væri að
mála bæði mjög hefðbundið en um leið ótrú-
lega nútímalega.
Sýningin á Gamle Holtegaard stendur til
5. mars, en fer þá á listasafnið á Borgundar-
hólmi, þar sem hún verður 12. mars til 30.
apríl.
Kumpánlegt olnboga-
skot í sænsku tímariti
LJÓÐAFLOKKUR Matthíasar
Johannessen, Kumpánlegt oln-
bogaskot, er birtur í heild sinni í
sænskri þýðingu í tímaritinu
Pequod 24.-25. tölublaði. Ljóða-
flokkurinn er í 52 hlutum og nær
yfir sjö síður í ritinu.
I honum er dauðanum líkt við
„kumpánlegt olnbogaskot/ við
siglutoppa/ og segl“. Einkunnar-
orð flokksins eru sótt í Moby
Dick eftir Herman Melville:
„Hann kallaði á timbursmiðinn.
Akab fól honum tafarlaust að
gera sér nýjan fótlegg."
Melville er helgað þetta tölu-
blað Pequod en heiti tímaritsins
merkir það sama og Moby Dick á
indíánamáli.
Matthías
Johannessen
Úr Vötn þín
og vængur
Kumpánlegt olnbogaskot birt-
ist í ljóðabók Matthíasar, Vötn
þín og vængur, 1996, en sú bók
var lögð fram til Bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs
1998. Bókina þýddi John
Swedenmark, en það er þýðing
hans sem birt er í tímaritinu.
Meðal annars efnis í Pequod er
grein eftir portúgalska Nóbels-
höfundinn José Saramago og
kynning á bandaríska skáldinu
Charles Olson.
Útgefandi Pequod er samnefnt
menningarfélag. Póstfang rits-
ins er Box 7523, 200 42 Malmö.
Maður og hundur
ÍSLENSKUR gamanleikari,
Kristján Ingimarsson, kemur
fram í Kanonhallen í Kaup-
mannahöfn með fyrstu stóru
sjálfstæðu sýningu sína dagana
12.-16. febrúar.
Sýningin nefnist „Poodle" og
gerist í stórri íbúð og lýsir
samskiptum manns (Kristjáns
Ingimarssonar) og hunds
(Lars Rnutssons). Maður og
hundur nýta hvor annan með
sínum hætti og bilið milli
manns og hunds verður lítt
greinanlegt. Hvernig maðurinn
skynjar tilveruna lfkist háttum
hundsins og öfugt.
„Mike Attack", sýning Kri-
stjáns Ingimarssonar fyrir
tveimur árum, var tilnefnd til
Reumert-verðlauna sem besta
kabarettsýningin og hlaut
mjög góða dóma gagnrýnenda.
Það er leikhópurinn Neand-
er undir leikstjórn Helle
Fuglsang sem stendur að
„Poodle“.
'000''ÍéWi’fa'-
Orgel-
tónleikar
í Dóm-
kirkjunni
ORGELTÓNLEIKAR verða haldnir í Dóm-
kirkjunni sunnudaginn 13. febrúar kl. 17 á
vegum Tónskáldafélags Islands í samvinnu
við Reykjavík -
menningarborg
Evrópu árið 2000.
Leikin verður
tónlist frá fyrri
hluta aldarinnar.
Við orgelið er
Marteinn H. Frið-
riksson. Leikin
verða lög eftir Jó-
hann Olaf Har-
aldsson, Victor
Urbancic, Hall-
grím Helgason,
Arna Björnsson,
Jón Þórarinsson,
Jón Leifs og Pál
ísólfsson.
Marteinn H.
Friðriksson er fæddur í Meissen í Þýska-
landi. Hann stundaði nám í Kirkjumúsíkskól-
anum í Dresden og í Tónlistarháskóla F.
Mendelssohn-Bartholdy í Leipzig.
Árið 1964 fluttist hann til Islands og gerð-
ist organleikari við Landakirkju í Vest-
mannaeyjum til ársins 1970. Þá tók hann við
stöðu organista við Háteigskirkju í Reykja-
vík. Frá árinu 1978 hefur Marteinn verið
dómorganisti og stjórnandi Dómkórsins í
Reykjavík.
Marteinn hefur haldið orgeltónleika víða
um heim og hefur jafnan verk íslenskra tón-
skálda á efnisskrá sinni. Hann hefur verið
frumkvöðull Tónlistardaga Dómkirkjunnar,
sem voru haldnir í 18. sinn í nóvember sl. og
árlega hafa tónskáld samið ný kór- og orgel-
verk sem hafa verið frumflutt á Tónlistardög-
unum.
Auk organistastarfsins kennir Marteinn í
Tónlistarskólanum í Reykjavík og stjórnar
kór Menntaskólans í Reykjavík.
Marteinn H.
Friðriksson
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn: Verk Ásmundar
Sveinssonar.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg:
Margt smátt. 28 listamenn sýna verk.
Til 20. febrúar.
Galleri@hlemmur.is: ..Helgi Hjaltalín
Eyjólfsson og Pétur Örn Friðriksson.
Til 27. febrúar.
Gallerí Nema hvað: Elín Helena
Evertsdóttir. Til 13. febrúar.
Gallerí One o One:
Ásmundur Ásmundsson. Til 12. mars.
Gallerí Sævars Karls:
Anna Líndal.
Hafnarborg: Ljósmyndasýning. Sig-
ríður Zoéga. Til 28. febrúar. Elías B.
Halldórsson. Til 14. febrúar.
Hallgrimskirkja: Leifur Breiðfjörð. Til
16. feb.
i8, Ingólfsstræti 8: Birgir Andrésson.
Til 27. febrúar.
Islensk grafík, Hafnarhúsinu: Alistair
Macintyre. Til. 27. feb.
Kjarvalssstaðir (austursalur): Jóhann-
es Sveinsson Kjarval. Myndir úr Kjar-
valssafni.
Listasafn ASÍ: Ásmundarsalur og
Gryfja: Guðný Magnúsdóttir.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið laug.
og sun. kl. 14-17. Höggmyndagarður-
inn opinn alla daga.
Listasafn íslands: Claudio Parmiggi-
ani. Til 28. febrúar. Roni Horn. Til 5.
mars.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Valin
verk eftir Sigurjón Ólafsson.
Mokkakaffi: Aðalheiður S. Eysteins-
dóttir. Til 11. mars.
Nýlistasafnið: Sýning á verkum úr
eigu safnsins. Til 13. febrúar.
Stofnun Áma Magnússonar: Hand-
ritasýning opin þriðjudaga-föstudaga
kl. 14-16. Til 15. maí.
Stöðlakot: Vytautas Narbutas. Til 27.
febrúar. Grímur Marinó Steindórsson.
Til 19. mars.
Upplýsingamiðstöð myndlistar: Lista
yfir fyrirhugaðar og yfirstandandi
myndlistarsýningar í öllum helstu sýn-
ingarsölum landsins má finna á slóðinni
www.umm.is undir „Fréttir".
TÓNLIST
Sunnudagur
Salurinn: Píanótónleikar með Peter
Maté kl. 20.30.
Dómkirkjan: Orgeltónleikar kl. 17.
Marteinn H. Friðriksson.
Mánudagur
ÝMIR: Tónleikar Hamrahlíðarkórsins
undir sjtórn Þorgerðar Ingólfsdóttur.
Kl. 20.30.
Þriðjudagur
Salurinn: íslensk einsöngslög kl. 20.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Gullna hliðið, lau. 19.
febrúar.
Glanni glæpur í Latabæ, sun. 13. feb.
Krítarhringurinn í Kákasus, lau. 12.
feb., mið. 16. feb.
Abel Snorko býr einn, þri. 22. feb.
Vér morðingjar, fös. 18. feb.
Borgarleikhúsið: Djöflarnir: lau. 12.
feb.
Bláa herbergið, sun. 20. feb.
Litla hryllingsbúðin, sun. 13. feb.
Sex í sveit, mið. 16. feb.
Afaspil sun. 13. feb.
Leitin að vísbendingu..., fös. 11. feb.
Fegurðardrottningin frá Línakri, fim.
17. feb., fös. 18. feb.
Iðnó: Stjörnur á morgunhimni, sun. 13.
feb.
Frankie & Johnny, lau. 12. feb.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Salka, ástar-
saga, lau. 12. feb., fim. 17. feb., fös. 18.
feb.
Loftkastalinn: Panodil, lau. 19. feb.
Ég var einu sinni nörd, lau. 12. feb.,
mið. 16. feb., fös. 18. feb.
Kaffileikhúsið: Ó - þessi þjóð, fös. 18.
feb.
Nornaveiðar, sun. 13. feb.
Islenska óperan: Lúkretía svívirt, sun.
13. feb.
Baneitrað samband, lau. 12. feb.
Hellisbúinn, fim. 17. feb.
Bíóleikhúsið: Kossinn, lau. 12. feb.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað
er eftir að birtar verði í þessum dálki
verða að hafa borist bréflega eða í
tölvupósti fyrir kl. 16 á miðvikudögum
merktar: Morgunblaðið, Menning/list-
ir, Kringlunni 1,103 Rvík. Myndsendir:
5691222. Netfang: menning@mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 12. FEBRÚAR 2000