Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.2000, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.2000, Blaðsíða 7
Andrúmsloftið baksviðs er öruggasta smitleið leiklistarbakteríunnar. Freyvangsleikarar undirbúa frumsýningu á Fló á skinni. Sigríður Guðmundsdóttir og Björn Björnsson segja soninn Björn Má alinn upp af Leikfélaginu. með að fylla upp í tímann,“ segja hjónin Björn Björnsson og Sigríður en hún er for- maður og Björn hefur lengi verið einn helsti leikari þeirra Dalvíkinga. Eitt af því sem kemur upp í hugann þegar rætt er um áhugaleiklist er hvert hið raun- verulega hlutverk hennar sé. Er það fyrst og fremst að fullnægja áhuga þeirra sem taka þátt eða er starfseminni ætlað að hafa menningarlegt afþreyingargildi fyrir íbúana í sveitarfélaginu? Stjórn Leikfélags Húsa- víkur er ekki í vafa: „Við erum auðvitað að þessu af áhuga því enginn fær laun fyrir sitt framlag nema leikstjórinn. Hins vegar erum við að mæta ákveðinni þörf og verðum að gæta vel að hvers konar leikrit við veljum til flutnings og hverjir veljast til að leika í þeim. Við erum háð áhorfendum um afkomu félagsins því styrkir frá ríki og bæ gera ekki meira en greiða laun leikstjórans." í leikhús til að hlæja Dalvíkingarnir Sigríður og Björn taka í sama streng og segja nauðsynlegt að taka tillit til áhorfenda. „Það er staðreynd að fólk vill frekar sjá eitthvað létt og skemmtilegt. Það vill koma í leikhúsið til að hlæja,“ segir Sigríður og nefnir að þau hafi ætlað að setja upp Blessað barnalán eftir Kjartan Ragn- arsson en hætt við það og nú séu æfingar hafnar á Barpari, þrautreyndu gamanleikriti eftir Jim Cartwright. Hún segir að þau hafi fallið frá Blessuðu barnaláni vegna þess að ekki hafi tekist að finna leikkonu í eitt hlut- verkanna. „Við leggjum metnað okkar í sýn- ingarnar og viljum ekki fara af stað með æf- ingar nema við séum alveg sannfærð um að sýningin sé rétt mönnuð." Ég spyr hvort þetta sé ekki fullstrangt viðhorf, ef einhver vill leika á hann/hún þá ekki að fá að gera það? „Nei,“ segir Sigríður. „Við þurfum að standa okkur í samkeppninni við hin leikfé- lögin á Eyjafjarðarsvæðinu og getum ekki leyft okkur að slá af kröfunum. Ahorfendur eru líka fljótir að láta okkur finna það ef þeim finnst við hafa tekið niður fyrir okkur með einhverjum hætti." Þetta sjónarmið væri fullkomlega skiljan- legt ef um atvinnuleikhús væri að ræða en er áhugaleikhús ekki farið að misskilja hlut- verk sitt þegar starfsemin er tekin svona hátíðlega? Ekki vilja Húsvíkingarnir eða Dalvíkingarnir fallast á það og hafa talsvert til síns máls. „Hér á Húsavík er saga leikfé- lagsins orðin 100 ára. Við höfum sett upp fjölmargar rómaðar sýningar og margir eiga sínar fyrstu og sterkustu leikhúsminningar héðan úr samkomuhúsinu. Leikhúsið hefur átt mjög sterkan þátt í mótun ímyndar bæj- arfélagsins. íbúarnir eru stoltir af leikfélag- inu og gera miklar kröfur til þess. Þær hafa fremur aukist með árunum en hitt,“ segir Jón Ai-nkelsson meðstjórnandi sem stjórnað hefur ljósum leikfélagsins í nær 25 ár. Ég slæ fram þeirri spurningu hvort áhugaleik- félögin hafi ekki þurft að endurskipuleggja starfsemi sína og skilgreina hlutverk sitt upp á nýtt þegar svo margt annað býðst fólki til afþreyingar. Svarið virðist einfalt en er í rauninni flókið. í mikilli samkeppni „Við höfum þurft að gera enn meiri kröfur til okkar og þess sem við höfum að bjóða svo við getum staðið okkur í samkeppninni," segja Steinunn og Jón. Undir þetta taka Sigríður og Björn þó með eilítið öðrum áherslum sé: „Við leggjum mikla áherslu á að fá til okkar reynda og góða leikstjóra. Við leggjum mikla vinnu í val á verkefnum og skipan í hlutverk. Þegar við erum sátt við alla þessa þætti förum við af stað.“ I svarinu felst að leikfélögin sem best standa sig horfast í augu við harða sam- keppni um frítíma fólks og leggja gríðarmik- ið í sölurnar til að lokka til sín áhorfendur. „Við getum ekki verið þekkt fyrir annað en bjóða fólki upp á sem vandaðastar sýningar, því aðgöngumiðarnir kosta sitt. Það er ekki sjálfsagt mál fyrir hjón með tvö börn að fara í leikhús. Það verður að vera peninganna virði,“ segir Sigríður. Hvað fyndist þeim um þá hugmynd að leikfélögin nytu svo ríflegra styrkja að þau þyrftu ekki að selja aðgang að sýningunum? Gætu einfaldlega boðið íbúum bæjarfélags- ins í leikhúsið. Meðalkostnaður við upp- færslu er í kringum 1 milljón króna og ef leikfélagið fengi 1-2 milljónir á ári þyrfti • ekki að hafa áhyggjur af sölu aðgöngumiða. „Þetta er auðvitað freistandi hugmynd, sem myndi létta helstu áhyggjum af okkur,“ seg- ir Steinunn og fellst á að með þessu væri verið að viðurkenna hlutverk og tilgang áhugaleikfélags í sínu samfélagi. Sigríður kveðst einnig koma auga á kostina við þessa hugmynd en bendir á að krafturinn og spennan sem starfsemin þrífst á sé einmitt fólgin í því að vera stöðugt að leita leiða til að láta enda ná saman. „Ætli við myndum ekki fjarlægjast áhorfendur okkar með þessu, gleyma hvað þeir eru mikilvægir?" Blómaskeið eftir 1970 Þegar sjónvarpið kom til sögunnar á seinni hluta sjöunda áratugarins og bæir og sveitir landsins sjónvarpsvæddust í kjölfarið kom greinilegt bakslag í starfsemi margi-a áhugaleikfélaga. Leikfélögin voru ekki ein um að finna fyrir þessu heldur leið flestöll félagsstarfsemi fyrir tilkomu sjónvarpsins. Þær raddir heyrðust jafnvel sem höfðu á orði að nú væri eiginlegu hlutverki slíkrar starfsemi lokið, sjónvarpið væri tekið við því að hafa ofan af fyrir fólki í frítíma þess. Þessi hugmynd rann út í sandinn á nokkr- um árum og félagsstarfsemin rétti úr kútn- um og lagaði sig sumpart að tilvist sjón- varpsins. Sjónvarpslausu kvöldin urðu t.a.m. vinsæl til fundahalda. Hér er á hinn bóginn um gerólíka tegund afþreyingar að ræða sem getur ekki komið í stað hinnar. Sjónvar- pið gerir engar kröfur um skapandi þátttöku heldur situr áhorfandinn aðgerðalaus frammi fyrir tækinu og meðtekur það sem á borð er borið. í leik og söng og annarri fé- lagsstarfsemi er þátttakan virk og skapandi, fólk þarf að leggja eitthvað að mörkum, tíma sinn og andlega og líkamlega orku. Sameig- inleg útrás veitir fullnægju og gleði. Þetta eru svosem engin ný sannindi en er engu að síður ástæða þess að leikstarfsemi hefur staðið af sér sjónvarp, myndbönd, tölvur, fjölvarp og hvaðeina sem býður upp á að- gerðalaust áhorf án skapandi þátttöku. Steinunn og Jón benda t.d. á að starfsemi Leikfélags Húsavíkur hafi aldrei verið jafn öflug í 100 ára sögu þess og einmitt á þeim tíma sem hér um ræðir, ca. 1970-2000. „Við höfum á þessu tímabili komið okkur upp miklum og góðum hljóð- og ljósabúnaði, þannig að við erum algjörlega sjálfbjarga í þeim efnum og þetta hefur kostað sitt,“ seg- ir Jón. Steinunn bætir því við að svigrúm til tækjakaupa gefist eingöngu þegar sýningar gangi svo vel að hreinn hagnaður sé eftir þegar allur annar kostnaður hafi verið greiddur. Sigríður og Björn taka undir þetta og segja Leikfélag Dalvíkur eiga sitt blóma- skeið á þessu tímabili. „Blómaskeið sem stendur enn!“ Unga fólkið vill taka þótt í starfinu Ekki hefur heldur reynst erfiðleikum bundið að fá unga fólkið til starfa og hefur leiklistaráhugi þess fremur aukist en hitt. „Við fengum nánast alla unglinga bæjarins hingað inn í leikhúsið þegar okkur vantaði nokkra krakka til að taka þátt í sýningu hér í fyrra. Við höfum í rauninni orðið að taka þá ákvörðun að hleypa ekki unglingum undir 16 ára aldri inn í félagið vegna þess hversu mikil ábyrgð fylgir því að hafa þau yngri. Æfingar standa yfirleitt til 23 eða jafnvel 24 á kvöldin og ábyrgð okkar gagnvart þeim sem yngri eru en 16 ára eftir kl. 22 er ótví- ræð,“ segir Sigríður. „Hins vegar höfum við tekið þátt í leikstarfsemi í grunnskólanum og aðstoðað nemendur með ýmsum hætti við uppsetningu sýninga og leikskemmtana á vegum skólans. Bærinn hefur styrkt þennan þátt starfseminnar.“ Sá áhugi sem þannig kviknar skilar sér síðan gi-einilega inn í starfsemi leikfélag- anna þegar unglingarnir komast á þann ald- ur að geta tekið þátt. Húsvíkingarnir njóta þess að þar er framhaldsskóli svo talsvert stór hópur ungs fólks á aldrinum 16-20 ára er til staðar í bænum. Á smærri stöðunum hverfa margir burt til skólavistar eftir grunnskólann og koma því ekki til starfa í leikfélagi heima fyrir. „Ékki þá fyrr en síð- ar,“ segir Steinunn en viðurkennir jafnframt að því fari fjarri að allir snúi aftur að námi loknu. „Menningarstarfsemin er auðvitað hluti af aðdráttarafli staðarins og ég segi fyrir mig að þegar sú hugmynd kom upp í minni fjölskyldu að flytja búferlum var leik- félagið eitt af því sem hélt hvað fastast í mann,“ segir Steinunn. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 12. FEBRÚAR 2000 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.