Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.2000, Side 20

Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.2000, Side 20
MorgunblaÖið/Golli ÓSÝNILEGAR HEFÐIR HINS DAGLEGA LÍFS NNA Líndal er kona sem hikar hvergi og kaupir sjö sjónvörp í einu til að koma hugmyndum sínum á fram- færi. Þá hengir hún tvinna- kefli í ýmsum litum upp á vegg og umvefur litla og . sæta sykurmola tvinna. tnda segir hún sjálf að myndlist hennar sé eins og stækkunargler sem auðveldi henni að skoða þær fjölmörgu athafnir og siðvenjur sem ríki í samfélagi okkar og sprottnar eru af hefðum eða bara af vana, og að því er virðist athuga- semdalaust. Anna stundaði nám í Slade School of Fine Art í London og hefur lagt gjörva hönd á ýmsar tegundir sjónlista síðan hún útskrifaðist, unnið með grafík, ljósmyndaverk, innsetningar og nú síðast myndbandainnsetningu sem skýrir áhuga hennar á sjónvörpum. Hún hefur haldið fjölda einkasýninga bæði hér heima og á svo fjarlægum stöðum sem Frakklandi og Istanbul í Tyrklandi. A vori komanda setur hún upp sýningu í Kóreu sem fulltrúi Evrópu á Kóreanska tvíær- v^jngnum. Stjórnandi Sjónþingsins í dag er Jór- unn Sigurðardóttir en spyrlar verða þau Björn Brynjólfur Bjömsson og Ásta Ólafsdóttir. En hvaða verk mun bera fyrir augu fólks í Gerðu- bergi í dag? Yfirlitssýning síðustu tíu ára „Ég lauk námi árið 1990 og þetta er yfir- litssýning á verkum mínum síðan þá,“ svarar Anna Líndal, „það er að segja frá þessu tíu ára tímabili. Ég byrjaði í grafík og fór síðan í inn- setningar sem síðan flokkast bæði sem skúlp- túr og textílverk. Listheimurinn hefur alltaf til- hneigingu til að flokka og aðgreina verk. Að þessu loknu fór ég út í myndbandalist sem er iPpennandi miðill. Ég er alltaf að reyna að koma einhveijum skilaboðum áleiðis frekar en að reyna að finna eitthvað út úr tækninni. Á milli tilfinninga og tækni er falin óbeisluð orka, mín listræna glíma felst aðallega í því að finna þess- ari orku viðeigandi sjónrænt tjáningarform.“ í dag kl. 13.30 verður Sjónþing Önnu Líndal haldið í Gerðubergí i þar sem listakonan mun greina frá ferli sínum og sitja fyrir svörum. Anna hefur haldið fjölda einf casýninga bæði hér heima og erlenc lis. Hún var fulltrúi íslands á Istanbul-tvíæringn- um árið 1997 og verður fulltrúi Evrópu á Kóreska tvíæringnum nú í ár. ÞORVARÐUR HJÁLM- ARSSON fór á 1 und listakonunnar. Tvinnakefli eru þér hugleikin. Hvers vegna? Hvuð ersvona spennandi við tvinnakefli? „Árið 1994 setti ég upp í Nýlistasafninu sýn- ingu með 1.138 tvinnakeflum þar sem ég var að fást við þessar ósýnilegu hefðir daglegs lífs sem við sjáum ekki en stjórna í raun og veru lífi okk- ar! I verkum mínum er ég mikið að velta fyrir mér hversu mikið við stjórnum okkar eigin lífi. Það er svo margt sem var ákveðið fyrir okkur fyrir 200 árum, svo sem hvemig við borðum, sofum í rúmi eða högum okkur yfírieitt. Þessar spurningar reyni ég að myndgera á einhvern hátt. í framhaldi af þessari sýningu í Nýlista- safninu má segja að ég hafi alltaf haft nóg verk- efni í myndlist. Árið 1995 var mér í fyrsta sinn úthlutað starfslaunum listamanna og ég hef síðan þá eingöngu stundað myndlist og haft mitt lifibrauð af henni. Þá hef ég á umliðnum árum sett upp ýmsar sýningar erlendis, þeirra skemmtilegust var Istanbul-tvíœringui inn árid 1997. Það er mjög hollt fyrir myndlistarmann að eiga þess kost að sjá verkin sín í samhengi við annað sem er að gerast í heiminum. Þetta er stór alþjóðleg sýning og það er gaman að sjá verkin sín í þessum félagsskap. Þarna voru um- ræður um myndlist og fyrirlestrar sem settu myndlistina í samhengi við þjóðfélagsmálin. Umræða um myndlist á þessum nótum er ekki algeng á íslandi, sjálfsagt veldur fólksfæðin því eða eitthvað annað sem ég kann ekki skil á. En þama í Istanbul var stærri pottur en ég á að venjast og mörg og ólík sjónarmið sem koma þurfti á framfæri. Þarna var meðal annars rætt um hvert sé hlutverk myndlistar í samfélaginu í dag og hvaða möguleika smáþjóðir og jaðar- hópar hafi miðað við stórþjóðir til dæmis gagn- vart listasögunni.“ Nú eru tíu ár sjálfsagt ekki langur tími í lífl myndlistarmanns en þegar þú lítur yflr farinn veg við þessi tímamót sem Sjónþingið óneitan- lega er, sérðu þá, með tilvísun til tvinnakefl- anna, rauðan þráð í verkum þínum ? „Já, þótt það séu ekki nema tíu ár sem ég er búin að vera starfandi sem myndlistarmaður, er maður strax farinn að sjá verk eftir sig sem maður er búinn að gleyma að hafa gert. Eg var að skoða myndir af útskriftarsýningunni í Slade árið 1990, og þá var þar verk sem kom mér á óvart. Þar var til dæmis þráður og hilla sem ég hef síðan notað mjög mikið. í Gerðu- bergi verð ég með tvinnakeflaverk, Ijósmyndir, myndbönd og grafík. Nýjasta verkið á sýning- unni gerði ég í september á síðasta ári. En sam- hliða Sjónþinginu er ég með sýningu í Galleríi Sævars Karls sem er í raun einn hluti þingsins. Ég byrjaði með tvinnakeflin árið 1994. Mig langaði að nota eitthvað sem ég kynni enda hef ég alltaf saumað mikið. Ég er lærður kjóla: meistari og vön að handleika nál og tvinna. I tvinnakeflisverkunum tekur eitt kefli við af öðru, tvinnakeflið hangir á nálinni og síðan er nálinni stungið í vegginn. Þetta verk hugsaði ég sem virðingarvott við öll þau umönnunarstörf sem verið er að vinna alls staðar í þjóðfélag- inu.“ Einhverjum kynni að þykja þetta æði undar- legar athafnir með alveg sjálfsagða hluti? „Ég er að benda á endurtekninguna í gegn- um aldirnar. Það er alveg sama hvað maður endurtekur þetta oft, það verður aldrei jafn banalt og lífíð sjálft.“ Sjö sjónvarpstæki Svo fórst þú á stúfana og keyptir þér ein sjö sjónvarpstæki? „Já, forsagan er sú að árið 1997 fór ég í fyrsta skipti með Jöklarannsóknarfélaginu í rannsóknarleiðangur á Vatnajökul. Þá kviknaði sú hugmynd að gera myndverk um rannsóknir, þörfina fyrir að skrá og mæla og tengja þetta við samfélagið. í þessari ferð fór ég að safna myndefni og velta fyrir mér sannleiksþrá mannsins, þörfinni fyrir að skilja náttúruöflin sem í raun eru ofvaxin mannlegum skilningi. Það er spennandi að tefla þessu gegn okkar flókna daglega veruleika. f verkinu stefni ég saman mörgum sjónvarpsskjám sem hver segir sína sögu, verkið er þannig fjölfrásagnarlegs eðlis. Á sjónvarpsskjánum birtast margvísleg myndskeið sem sýna náttúruöflin, bæði ógn- andi og gefandi, landslag og beinharðar stað- reyndir um hefðbundnar rannsóknh’, en með því að tengja þær við heimilið og okkar daglega líf verða þær á einhvern hátt afstæðar, jafnvel undarlega tvíræðar. Ég held að hver einstakl- ingur geymi náttúruna og tímann í sér, trúi jafnvel að hann eigi náttúruna, meðan það er náttúran sem á hann.“ &0 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 12. FEBRÚAR 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.