Lesbók Morgunblaðsins - 07.10.2000, Page 6
EGÉR
PALITILL
ROMAK-
TIKERIMER
Islensk tónverkamiðstöð gaf nýlega út geisladisk með
tveimurverkum Hróðmars Inga Sigurbjörnssonar,
Stokkseyri og Septett, í flutningi Caputog Sverris Guð-
jónssonar. SÚSANNA SVAVARSDÓniR heillaðistaf
diskinum og ræddi við tónskóldið um verkin ó diskin-
um, krísur tónskólda og þróun.
f
EG vil að tónlist sé falleg, dramatísk
og full af andstæðum,“ segir
Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson
tónskáld þegar hann er beðinn að
lýsa því hverju hann vill ná fram
með tónsmíðum sínum. Nýút-
kominn geisladiskur hans, sem
hefur að geyma tvö verk, Stokks-
eyri og Septett, hefur vakið athygli fyrir margra
hluta sakir. Hróðmar er greinilega kominn inn á
nýjar brautir í tónsmíðum sínum vegna þess að
verkin tvö eru nokkuð ólík fýrri verkum hans;
þíð, rómantísk, glettin, mimúðarleg, full af djúpri
alvöru, einsemd og þrá.
Einnig eru verkin óskyld þeirri viðleitni
margra nútímatónskálda að þurfa að fínna upp
eitthvað alveg nýtt, eins og til dæmis hjóUð.
Hróðmar Ingi er ófeiminn við að leita í smiðju
annarra tónskálda og hefða, taka stef og hend-
ingar og vinna nýja tónasögu upp úr þeim.
Stokkseyri er samið við tólf af ljóðum ísaks
Harðarsonar úr samnefndri ljóðabók, ljóð þar
sem helstu þátttakendur eru maður, haf og al-
mættið.
Þegar Hróðmar er spurður hvers vegna hann
hafi valið Stokkseyri til þess að semja við, svar-
ar hann því til að hann hefði hlustað á ísak flytja
ávarp í Ríkisútvarpinu á gamlársdag 1994, þeg-
ar hann tók við rithöfundaverðlaunum RÚV það
árið. „Þá hafði ég ekki lesið mikið af verkum
hans en hann heillaði mig vegna þess að þetta
erindi hans var svo skemmtilegt. Eg náði mér í
bókina og féll gersamlega fyrir henni.“
Fyrst fyrir kontratenór og gítar
Hróðmar segist þó ekki hafa sest strax niður
til þess að semja tónlist við ljóðin. Það hafi átt
sér lengri aðdraganda. „Fyrst valdi ég fimm ljóð
og hélt svo áfram, fannst alltaf vanta meira. í
næstu útgáfu voru þau átta og enduðu í þeim
tólf sem eru í verkinu. Og ég gæti í sjálfu sér al-
veg haldið áfram. Maður les bókina áfram og er
Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
alltaf að uppgötva nýja hluti í ljóðunum."
Hvað var það í ljóðunum sem höfðaði svona til
þín?
„Mér finnst þessi ljóð vera mjög persónuleg.
Þau koma sterkt inn á trúna. Þau koma líka inn
á ást og það er einhver einmanaleiki í þeim.
Þetta er maðurinn að tjá tilfinningar sínar í
þessari náttúru. Isak fer yfir vítt svið sem býður
upp á mikla möguleika.
Mig langaði til -að ná þessari vídd sem er í
bókinni. Þess vegna var ég svona lengi að þessu,
eða í tvö til þrjú ár. Fyrstu fimm lögin eru fyrir
kontratenór og gítar, íyrir Sverri Guðjónsson
og Einar Kristján Einarsson, en síðan þegar
þau urðu fleiri, skrifaði ég þau íyrir kammer-
hljómsveit og verkið var frumflutt á Listahátíð
1998 - af Caput og Sverri.“
Hvers vegna kontratenór og gítar?
Sú hugmynd er eiginlega komin frá þeim fé-
lögum Sverri og Einari. Þeir pöntuðu frá mér
verk til að flytja á gítarhátíð 1995 og ég var
búinn að vera að leita að Ijóðum. Ég er alltaf að
leita að ljóðum vegna þess að ég sem mikið fyrir
söng. Þannig að þetta passaði alveg saman. Ég
var að velta fyrir mér einhveiju handa þeim
þegar ég fann þessa bók og kynntist Stokks-
eyri.“
Visst afturhvarf
Hvað geturðu sagt mér um hitt verkið á disk-
inum, Septett?
„Ég samdi það strax á eftir Stokkseyri. Ég
hugsaði Septettinn strax sem verk sem stæði
með Stokkseyri á einhvem hátt, jafnvel sem
andstæða, og þá á diski. Ég er ekkert að vinna
með ósvipaða hluti þar, til dæmis hvað varðar
tónmálið."
En eru þetta ekki dáh'tið óvenjuleg nútíma-
verk?
„Þau eru það. Þetta er visst afturhvarf. Ég
bjó á Akureyri í fjögur ár og samdi þau þar. Ég
var svona aðeins að líta yfir farinn veg og skoða
FJARA FULLAF UÓÐUM
ísak Harðarson
ísak Harðarson segist
hafa orðið stórhrifinn af
tónverkinu Stokkseyri og
segir hér fró tilurð
Ijóðanna.
EINI þáttur minn í þessu máli er að vera
ánægður," segir Ijóðskáldið ísak
Harðarson þegar hann er spurður um
tilurð geisladisksins sem hefur að
geyma „Stokkseyri", tónverk Hróðmars Inga
Sigurbjömssonar við tólf af ljóðum ísaks úr
samnefndri ljóðabók, í flutningi Caput og
Sverris Guðjónssonar.
Og víst er að ísak hefur fulla ástæðu til að
vera ánægður, því Hróðmar hefur náð að
fanga andrúmsloft Ijóðanna í tónmáli sínu,
hvort heldur era glettnar bámr, hamrandi
undiralda, einsemd mannsins eða djúp birtan
og kyrr kyrrðin svo vísað sé í upphafsljóð
bókarinnar, „Tvö flæðarmál I“.
Ljóðin orti Isak á Stokkseyri í október 1992
og kom bókin út 1994. Þegar hann er spurður
hvers vegna bókin hefði hlotið heitið Stokks-
eyri segir hann: „Þetta byrjaði með því að ég
fór til Stokkseyrar og leigði þar lítinn kofa
sem heitir Lindarlón. Ég var þar í tíu daga í
október þegar nóttin er orðin dálítið dimm.
Ég fór þangað til að skrifa STÓRU
MERKILEGU BÓKINA UM SANNLEIK-
ANN en það gekk ekki neitt.
Svo var ég að ráfa þama um í fjömnni einn
daginn og sá það að fjaran var full af ljóðum.
Bókstaflega. Ég jjurfti að hafa mig allan við
til að grípa þau. Ég hafði engan annan pappír
á mér en tékkhefti - og skrifaði þau aftan á
eyðublöðin. Þess vegna em þau svona stutt.
Síðan vann ég þau betur þegar ég kom heim.
En eitt ljóðið í bókinni varð ekki til á
Stokkseyri, heldur þegar ég sá mynd af Gyrði
Elíassyni aftan á bókarkápunni Mold í
Skuggadal sem út kom 1992 og var tekin af
Einari Fal Ingólfssyni. Á myndinni stendur
Gyrðir í fjöm.
Hannvarífjörunni
meðtrefilúrþangieins
og fléttað spumingarmerki
margvafið um hálsinn
Teygðan hálsinn
sem hvarf eins og stöngull
niðurístormjakkann
dimmanafsjó
Astönglinum
Tifandi vítishnöttur -
síðan: Utsprungið mannshöfuð...
Tóttirnar skutu myrkri
og allsnakið glottið bar kveðju
úrheimibeina
Þegar ísak er spurður hvemig honum líkaði
tónlist Hróðmars þegar hann heyrði hana
segist hann hafa orðið stórhrifinn. „Bæði
vegna þess að tónlistin er grípandi, svo full af
rómantík og svo mannleg.
Síðan var það röddin... Það er einmanaleiki
í þessum Ijóðum og röddin nær því.“
-I
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 7. OKTÓBER 2000