Lesbók Morgunblaðsins - 07.10.2000, Síða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 07.10.2000, Síða 13
Barmar. Myndin er tekin á árunum 1966-68 en það voru síðustu árin sem búið var í bænum. Húsbændur á Börmum, Bima Sigurjónsdóttir og Jón Óiafsson, framan við bæjargöngin. BARMAR - TORF0ÆRI REYK- HOLASVEIT EFTIR JÓN ÓLAFSSON Barmar í Reykhólasveit eftir endurbygginguna. Teikning eftir greinarhöfundinn. Barmar voru eini upprunalegi torfbærinn á Vestfjörðum þegar greinarhöfundurinn gerði leigusamning við landbúnaðarráðuneytið og fékk leyfi til að endurbyggja bæjarhúsin. Þeirri endurbyggingu var að mestu lokið 1974. AKMAK er gömul kirkjujörð, nú undir umsjá jarðeignadeildar landbúnaðarráðuneytisins. Hún var til foma metin 12 hundruð að dýrleika en hlunn- indalaus. Búskapur hefur ávallt verið lítill í Börmum og þar búið fátækt fólk á veraldavísu en andlega ríkt. Elstu heimildir um Barma sem ég veit um eru úr jarðabók Páls Vídalíns og Ama Magnússonar frá því 1710. Þá var jörðin talin afar rýr, bæjarlækurinn spillti túninu, langur hreppaflutningur að Hymingsstöðum og jörðin hlunnindalaus. Vorið 1885 flytur Þórður Ólafsson að Börm- um ásamt konu sinni, Ingibjörgu Einarsdóttur og fjómm bömum þeirra hjóna, Lárasi, Þór- dísi, Sigurlínu og Ólafíu. Þórður var ættaður frá Hhðartúni í Sökkólfsdal í Dölum en Ingibjörg frá Kiukkufelli í Reykhólasveit. Þórður missti konu sína 1926 og bjó eftir það ásamt bömum sínum í Börmum til ársins 1937 að hann lést. Láras sonur hans lést árið 1931 eftir mikla van- heilsu. Láras var hagorður vel og að honum látnum var gefin út ljóðabók með ljóðum hans. Hann var kennari og stundaði farkennslu um árabil. Áður en Þórður lést, réð hann til sín Ólaf Þorláksson sem tók við búsforráðum í Börmum að Þórði látnum, 1937. Ólafur Þorláksson bjó í Börmum eftir það, ásamt systrunum Þórdísi og Ólafíu Þórðardætram til vorsins 1967. I Börmum hafa ávallt verið torfhús eftir því sem mínar heimildir herma. I kringum 1925 vora húsin mjög illa á sig komin og tóku þá nágrannar Þórðar Ólafssonar, sem þá var bóndi í Börmum, sig til og endurreistu bæinn á tæpri viku. I samtali mínu við tvo þeirra sem verkið unnu, Hjört Hjálmarsson og Tómas Sigurgeirs- son frá Reykhólum kom fram að bærinn var þá endurbyggður eins og hann vai- fyrr. Nokkuð löngu síðar var steyptur reykháfur á húsið, eftir að eldur komst í þekjuna út frá gamla reykrör- inu. Húsaskipan að Börmum virðist hafa verið nokkuð hefðbundin. Bæjarhús með þriggja stafgólfa baðstofulofti. Grannflötur íbúðarhúss- ins sem næst 5x9 álnir. Austan við íbúðarhúsið var búr og eldhús og á milli gangur (göng) með ilötu þaki. Við ganginn hafði verið byggt eins- konar bíslag. Úr búrinu var innangengt í fjósið, sem stóð þvert á búr og eldhús. Hænsnakofar voru byggðir við fjósið og íbúðarhúsið. Hey- garður var hlaðinn að baki fjóssins. Torfhleðslu móti suðri við íramhlið íbúðarhússins var búið að fjarlægja þegar fyrir endurbygginguna 1925 en veggkambarnir vora látnir standa eins og þeir væntanlega hafa verið hlaðnir þegar torf- bær var og hét í Börmum. Árið 1971 var mér undirrituðum boðinn bær- inn til uppbyggingar og árið eftir gerði ég leigu- samning við landbúnaðairáðuneytið um leigu á hluta jarðarinnar og leyfi til endurbyggingar bæjarhúsanna. Eg leitaði álits nokkurra aðila varðandi málið, m.a. þjóðminjavarðar, og vora allir hvetjandi þess að hafist yrði handa við end- urbyggingu. Eftir því sem ég komst næst vora Barmar eini uppranalegi torfbærinn á Vest- fjörðum sem þá stóð uppi. Áður en hafist er handa við uppbyggingu torfbæjar eins og Barma þarf ýmislegt að at- huga og skoða. Þeim sem slíkt tekur að sér ber siðferðileg skylda til að setja sig vel inn í alla gerð slíkra húsa, ekki bara hið ytra heldur einn- ig hið innra. Þá þarf að leita til fagfólks sem kann til verka og miðlað getur reynslu og fæmi í öflun efnis og gerð einstakra hluta torfhússins. Leita þarf að ristu, stungu, hleðslugrjóti og hverju því sem við kemur hinni ytri uppbygg- ingu. Leita þarf fanga á minjasöfnum, skoða gömul hús og sýna útsjónarsemi við útvegun þess smáa jafnt sem hins stóra. En stærsta spurningin er þó, hvort maður er reiðubúinn til að helga sér þann lífsstíl sem fylgir því að búa í torfbæ. Þegar ég kom að þessu verkefni 1971, hafði bærinn staðið auður og yfirgefinn frá því 1968, að mér var sagt, en Jón Guðmundsson, fræði- maður og bóndi að Skáldstöðum í Reykhóla- sveit segir í grein sem hann skrifar í Heima er best um 1969, hann hafa farið í eyði 1967. Áður en bærinn fór í eyði var búið að leggja í hann rafmagn auk vatns og síma. Á þessum þremur til fjórum áram sem líða þar til ég tek við hon- um eyðileggst á honum þekjan, gluggarnir era að mestu rifnir úr og trétexþiljun á veggjum neðri hæðar grotnar og er tætt sundur. Ymsir munir sem sagðir hafa verið í bænum vora fjar- lægðir. Gangurinn var að mestu hraninn svo og moldarveggur milli gangs og búrs. Búrið og eldhúsið var hrunið, nema gaflþilið til suðurs stóð uppi. í þessum húsum öllum voru torfvegg- ir og moldargólf. Þegar ákvörðun hafði verið tekin um upp- byggingu varð að ákveða hvað skyldi byggt upp og hvernig. Þótt staðreyndin væri sú að fólk hafi áður fyrr eldað á hlóðum, lesið við grútar- týru og gengið um á sauðskinns- eða roðskinns- skóm var ekki sanngjarnt gagnvart fjölskyld- unni eða sjálfum sér að gera ráð fyrir slíku. Ákvörðun var því tekin um að endurtengja raf- magnið til eldunar og hitunar, endumýja vatns- lagnir og vatnsból, koma fyiir snyrtingu og grafa rotþró eins og kröfur vora gerðar til. Við endurgerð gangsins, búrsins og eldhússins var tekin ákvörðun um að byggja þessi hús upp í tvær burstir, með trégólfum og panelklæddum veggjum. Skarsúð var sett á súðir húsa. Veggir og burstir vora einangraðir og notað plastþak- Suóurhlið bæjarhúsanna. Næst á myndinni er elzti hluti bæjarins. efni til að verjast leka og leiða raka út yfir veggi. Þannig vora notuð byggingarefni og byggingartækni nútímans þar sem því var við komið. Að mestu var endurbyggingunni lokið á þjóð- hátíðarárinu 1974. Síðan þá hefur farið fram eðlilegt viðhald á bænum. Þannig hefur þurft að tyrfa hann upp einu sinni, hlaða veggkamb sem hranið hefur og endurreisa fjósið (geymsluna) sem hrandi að fullu fyrir þremur árum. Að öðra leyti er það umhirða, stöðug natni og ávekni, sem heldur bæ sem Börmum í nothæfu ástandi. Bær eins og hér er sagt frá á allt sitt undir því að búið sé í honum, hugsað til hans og um hann. En þeir sem eru reiðubúnir til að gefa sig í verkefnið, lífsstílinn, uppskera ríkulega. I blaðaviðtali sem Guðjón Friðriksson, blaða- maður og sagnfræðingur, átti við mig í ágúst 1985 í Þjóðviljanum, kem ég inn á það álit mitt hvað Þjóðminjasafn íslands gæti lagt af mörk- um við varðveislu og uppbyggingu gamalla bæja og húsa með því að heimila einstaklingum uppbyggingu undir umsjá þess og jafnvel hlaða slíka bæi og hús gömlum munum svo lifandi söfn gætu risið sem víðast. Þótt ég hafi átt vinsamleg samskipti við þjóðminjavörð við end- urbyggingu Barma hef ég ekki fengið neitt vörslufé þaðan. Hinsvegar kom ýmislegt í Ijós þegar farið var að hreyfa við veggjum og stein- um. Einnig komu sveitungar mínir með sitt lítið sem verið hafði í bænum áður en ég tók við hon- um. Annað áhugasamt fólk um varðveislu gam- alla minja hefur og komið færandi hendi með sitt lítið hvert. I því felst viðurkenning á vel unnu verki. Á seinni árum hefur fólk og stofnanir leyft sér að kalla þennan virðulega toi’fbæ sumarhús. Eg á ákaflega bágt með að sætta mig við slíka nafngift en erfitt hefur reynst að taka á því. Fyrir mig sem iðnaðarmann og hönnuð hefur það verið sérstök upplifun að standa að bygg- ingu mannvirkis, þar sem byggingarefnið er jörðin sem þú stendur á. Við fjölskyldan eyðum miklum tíma og hugs- un í Barma og njótum hverrar stundar þar. Bærinn okkar og náttúran eru sem eitt og fanga hug okkar allan. Hægt er að taka undir orð Lárusar Þórðarsonar í Börmum þegar hann í einu ljóða sinna segir svo: Frítt er um haga um hásumardaga, heiðfjöllin draga vor augu til sín. Landið vort fríða sem lofað er víða, ljómandi blíð er þá ásýndin þín. Lokaorð Við endurbyggingu Barma hafa margir kom- ið að verki og erfitt yrði að telja upp alla þá sem lagt hafa hönd á plóginn, svo margþætt verk sem slík uppbygging er. Þar þarf að ganga í gegnum krákustíga stofnana, afla velvilja í hér- aði, afla upplýsinga og þekkingar um ýmsa þætti sem snúa að gerð torfbæja, vemdun lands og minja, tryggja aðstoð sérfræðinga og hand- verksmanna, afla tækja og svo má lengi telja. I þessu sambandi era mér þó efst í huga nöfn nokkurra valinkunnra manna en því miður era margir þeirra fallnir frá. • Foreldrar mínir, þau Guðný Guðjónsdóttir og Ólafur Daðason, en þau aðstoðuðu og studdu endurbygginguna á alla lund • Eyjólfur Jónsson frá Bakka í Geiradal, en hann var hleðslumeistari og ráðgjafi við efn- isval til hleðslu • Jón Sveinsson, bóndi Klukkufelli í Reykhóla- sveit, og sonur hans Vignir, þeir önnuðust torfristu • Rögnvaldur Guðjónsson, smiður, hann sá um trésmíði • Reynir Halldórsson, bóndi Hríshóli í Reyk- hólasveit, hann hefur séð um endurhleðslu fallinna veggja og tyrfingu • Karólína Guðmundsdóttir vefari, hún óf og hannaði mynstur salúnofinna rúmábreiða í baðstofu • Ólína Jónsdóttir og Sveinn Guðmundsson, bændur á Miðhúsum í Reykhólasveit greiddu götu þessa verkefnis á ýmsan hátt • Sveinbjöm Dagfinnsson ráðuneytisstjóri og síra Gísli Brynjólfsson, fulltrúi í landbúnað- arráðuneytinu, önnuðust samningsgerð f.h. þess. Nú er kominn tími til njóta ávaxta þess sem byggt hefur verið upp en jafnframt verður að vera vakandi yfir hverjum steini og hnaus. Margt hefur breyst í afstöðu manna innan og utan sveitar, síðan hafist var handa við upp- bygginguna. Það krefst einnig árvekni að gæta hagsmuna sinna gagnvart ásókn þeirra sem sjá eftirsóknarverð gæði í góðum verkum. Árang- ursrík samvinna við opinbera aðila hefur verið, forsendan fyrir því starfi sem þarna hefur farið fram. Hverig sú samvinna verður í framtíðinni á tímum vaxandi frjálshyggju og auðhyggju er erfitt að segja, en ég tel að stuðningur þeirra verði að vera tryggur og traustur til að hægt sé að standa vörð um viðgang þessa verks sem hafið var fyrir tæpum 30 áram. Ég vil að lokum leyfa mér að gera orð Einars Benediktssonar skálds að mínum, þar sem hann segir í kvæði sínu Aldamót: Það fagra, sem var, skal ei lastað og lýtt, en lyft upp í framfór, hafið og prýtt. Að fortíð skal hyggja, ef frumlegt skal byggja, án fræðslu þess liðna sést ei, hvað er nýtL Heimildir um ættmenni Þórðar Olafssonar, bónda í Börmum, eru að mestu fengnar úr tímaritsgrein eftir Jón Guðmundsson, fræðimann og bónda að Skáldstöðum í Reykhólasveit sem hann skrifar í Heima er best um 1969 og bók hans Sprek úr fjöru, Hildur 1989. Höfundurinn er hönnuÖur. LESBÓK MORGUNBIAÐSINS - MENNING/LISTIR 7. OKTÓBER 2000 1 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.